Morgunblaðið - 26.06.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1977
7
Næstsíðasta sunnudegi
fylgdi auk guðspjallsins um
auðuga bóndann, sem dauð-
inn gaf ekki frest til að
stækka kornhlöður sínar,
annað guðspjall, sagan af
tveim mönnum, sem dauð-
inn átti erindi við, ríka mann-
inum og Lazarusi og örlögum
þeirra eftir að dauðinn hafði
lokið hlutverki slnu.
Ólík örlög segir Kristur að
beðið hafi þessara tveggja
manna, og ólík höfðu örlög
þeirra verið I lifanda lífi. .
Ríki maðurinn hafði „lifað
dag hvern I dýrlegum fagn-
aði". Var það hans sök, hans
synd að hann hafði verið rík-
ur? Engan veginn, hafi hann
affaðauðæfa sinna með heið-
arlegum hætti, dugnaði og
hyggindum. Var það hans
synd, að hann hafði notið
þeirra unaðssemda, sem
jörðin er auðug að og örlát
við marga? Engan veginn,
hafi hann notið þeirra unaðs-
semda með skynsemd og í
hófi.
Var það ávinningur
Lazarusar annars heims, að
hann hafði verið fátækur? Að
sjálfsögðu ekki. Var það
ávinningur hans, þegar yfir
landamæri heimanna var
komið, að hann hafði verið
sjúkur? Ekki svo, ef ekki
hefði annað komið til.
Af hverju stafaði það böl,
sem Lazarus bar? Þeirri spurn
veit ég engan hafa svarað
svo að allir hljóti að játa. En
bölið er svo ríkur þáttur í
mannlífinu, að menn spyrja
og spyrja: Hvers vegna?
Sumir hyggja, að sjálfssköp-
uð örlög fylgi manninum inn
í þennan heim, og að við
ævilokin hafi Lazarus verið
búinn að Ijúka erfiðri náms-
grein en nauðsynlegri og að
því hafði dauðinn orðið hon-
um blessun eftir ævilangt
böl. Þá hugmynd má lesa inn
í Ijóðlínur skáldsins (E.Ben.)
Þegar hann yrkir um óláns-
mann og segir, að
„bölið, sem aldrei fékk
uppreisn á jörð,
var auðlegð á vöxtum
í guðanna ríki”.
Hafi svo verið er auðsætt,
að við dæmum oft eins og
blindur um bók, þegar við
dæmum milli gæfu og gæfu-
leysis. Varekki sýndarham-
ingja auðuga mannsins dul-
búið böl, en harmur hins
snauða dulbúin blessun?
Margt eigum við vafalaust
eftir að undrast síðar, þegar
okkur lærist að líta yfir liðin
jarðlífsár af sjónarhóli eilíf ð-
arinnarog undraste.t v það
hvað mest, hve við fögn-
uðum mörgu, sem var ekki
raunverulegt fagnaðarefni,
og hörmuðum margt, sem
var dulbúin blessun.
Menn þurfa ekki ævinlega
að líta á liðna ævi af sjónar-
hóli eilífðarinnar til þess líta
allt öðrum augum en fyrrá
lífsreynsluna. Þaðtekst
mörgum þegará efri eða
efstu árer komið. Það vottar
sra Matthías með þessum
Ijóðlínum:
„En það, sem ég sárast
syrgði fyrr,
er sál mína farið að kæta"
Og þegar hið spakvitra
skáld, sra Björn í Laufási, leit
löngu síðará það, sem hon-
um hafði verið sárast á yngri
árum, kvað hann þetta
merkilega erindi:
„Leiðin, sem ég kalla krók,
kann í lífsins vegabók
að vera brautin beina.
Og það, sem helzt mér
harma jók,
og hjartanu mínu
sárast tók,
bezt vera bótin meina,,.
Mundi Lazarusekki, þegar
hann leit af æðra sjónarhóli
yfir sinn sorgfyllta jarðardag,
hafa getað samsinnt þessum
orðum skáldsins í Laufási?
Hver var sú synd auðuga
mannsins að henni fylgdu
skuggalegar afleiðingar I öðr-
um heimi?
Ekki er ástæða til að ætla,
að hann hafi verið raunveru-
lega illur maður, ekki heldur
það, að hann hafi lifað ein-
hverju viðbjóðslegu lastalífi.
En heimskulegt óhófslíf hafði
blindað hann svo, að hann sá
ekki byrðar annarra, ekki
einu sinni holdsveika vesa-
lingsins Lazarusar, sem lagð-
ur hafði verið við dyr hans til
að vekja honum vorkunn-
semi. Brauðmolum lét hann
fleygja út til hans, en hló í
sömu andrá með
heimskingjunum, sem við
veizluborð hans sátu.
Mikið hefði þessi maður
getað látið gott af sér leiða,
hefði sál hans verið stór og
fjársjóðir hans og hjarta hans
eins auðugt að gulli og hirzl-
ur hans voru. En tækifærun-
um, sem Guð hafði gefið
honum mörg og mikil, hafði
hann glatað, og það kom
honum hörmulega í koll þeg-
ar engill dauðans kallaði
hann til hinna miklu skulda-
skila. Það sem hinn æðsti
herra, hæstur höfuðsmiður
alls, sem er, hafði ætlað hon-
um þegar hann gaf honum af
stóru örlæti miklar gjafir með
miklum möguleikum, hafði
hann svo gersamlega
vd’nrækt, aðallslaus var hann
nú í auðugri veröld, blindur í
ósegjanlega dýrðlegu um-
hverfi. Þar fékk hann einskis
notið en kvaldist af hungri og
þorsta, hungri eftir hégóm-
anum, sem hafði verið hon-
um eitt og allt á jörðu, þorsta
eftir þeim nautnum, sem
ævilangt óhófslíf var nú svo
sárleqa að koma honum I
koll.
Og þó var kannski enn
verra hitt, að nú hrópuðu til
hans og vöktu honum brenn-
andi kvöl öll glötuðu tækifær-
in frá liðnum jarðlífsárum.
Lestu þessa lærdómsríku
sögu í 1 6. kap. Lúk. guð-
spjalls einu sinni enn, það
eru á henni fleiri hliðar en
unnt er að drepa á í örstuttri
blaðagrein. En tekur þú eftir
því, að Jesú minnist ekki
einu orði á trú hins ríka
manns, „rétttrúnað" hans
eða „hreina tru', þegar hann
segir örlagasögu þessara
manna fyrir handan landa-
mærin, heldur lætur hann líf
þeirra og breytni fella dóm-
inn.
Skuldaskil
Sjóliöajakkarnir
komnir aftur
• ••
u.
KAPAN
LAUGAVEGI 66II hæð
HvaðerPVC?
PVC er skammstöfun fyrir plastefniö POLY VINYL CHLORIDE
Úr þessu efni eru framleiddar
jarðvegslagnir.
PVC jarðvegslagnir úr plasti.
Þær gegna sama hlutverki og
gömlu, góðu skólprörin úrsteini,
en kostirnir liggja í augum uppi:
PLAST ER LÉTT
• Það er auðvelt og fljótlegt að
flytja það, og mun ódýrara en
þyngra efni.
• Það er auðveldara og fljótlegra
að leggja plastlagnir en lagnir
úr þyngra efni, og í því er
líka fólginn sparnaður.
PLAST ER SLÉTT
• Innra borð PVC jarðvegslagna
er SLÉTT. Það er því ekki
hætta á stíflumyndun.
• Þvermál: 100 mm (4 tommur)
150mm (6tommur).
PVC jarðvegslagnir eru enn ein
gæðavaran, sem
VATNSVIRKINN býður
viðskiptamönnum sínum. Sala
þeirra hófst 1974, og hefur hún
aukist um helming ár frá ári
síðan. Þeir, sem vita af PVC,
biðja ekki um annað.
Vöruvöndun, þekking og
þjónusta byggð á 25ára reynslu.
í samræmi við íslenzkan staðal IST 65.
Vatnsvirkinn hf.
Ármúla 21 - Sérverzlun með efnivörur til pípulagna
Já, það er ótrúlegt en samt satt. Það er hægt að baka
fjórar mismunandi tegundir af kökum i JUNO ofni
samtímis.
Nú, eða þá steikja, til dæmis, fjóra kjúklinga í einu og
það sem meira er, það er hægt að steikja um leið og
bakað er.
Með því að nota JUNO ofn sparið þér rafmagn og tíma
Leitið nánari upplýsinga hjá umboðsmönnum JUNO
verksmiðjanna á Islandi.
ÓN JÓHANNESSON & C0. S.F.
Hafnarhúsinu Sfmar 26988 og 15821.