Morgunblaðið - 26.06.1977, Side 14
14
MOKGU.NBLAÐIÐ, SU.WUDAGUH 2«. JÚ.NÍ 1977
viðlal:
IIKRDIS
ÞORGKIRSDÓTTIR
niyndir:
K.ÍIILIA BJÖR.VSDÓTTIR
EINS og fram hefur komið
hér í blaðinu, stendur nú
yfir í vestursal Kjarvals-
staða sýning á verkum hins
þekkta þýzka grafíklista-
manns, A. Paul Weber.
Stendur sýningin til 1 2. júlí
n .k en Weber, sem kom
hingað til lands fyrir tæpri
viku, heldur til Þýzkalands í
dag
Andreas Paul Weber er
fæddur í bænum Arnstadt í
Þýzkalandi 1. nóvemberár-
ið 1 893 og er því á 84.
aldursári. Átján ára gamall
fór hann að vinna að grafik
og hefur haldið því áfram
ótrauður siðan. Hann byrj-
aði snemma að mynd-
skreyog timarit með þeim
afdrifariku afleiðingum að á
uppgangsárum
nazdaÞýzkalandi var hann
settur i fangabúðir vegna
aðildar sinnar að andófs-
tímaritinu ,, Widerstand".
Hlaut hann eins árs fanga-
vist árið 1 937 vegna mynd-
skreytinga sinna i tímarit
þetta með sögu eftir rit-
höfundinn Niekischs, sem
hét „Hitler — hin þýzku
örlög", og var birt árið
1932. Áðurhafði hann
myndskreytt sögur eftir
Munchausen, ritverk Kafka
og m.a. ævintýrið um
Róbinson Krúsó. Árið 1973
keyptu Slésvik og Holstein
land undir safn fyrir hans
helztu listaverk og er það
safn í Ratzeburgh. Síðan
1 959 hefur hann gefið út
bók með myndum sínum ár
hvert og kallar árbók þá
„Kritischer Kalender". Þar
birtir hann myndir við ýms-
ar hugmyndir og texta bæði
i bundnu og óbundnu máli.
Paul Weber er í dag og hefur um
langan aldur verið álitinn einn
fremsti grafik listamaður Þýzkalands
og þó viðar væri leitað
Morgunblaðið hitti hann að máli á
Kjarvalsstöðum nú í vikunni og átti
við hann stutt samtal Hann er treg-
ur að tala um sjálfan sig. vill frekar
ræða vandamál blaðamannsins. fjöl-
miðlunar og þeirra erfiðleika, sem
fjölmiðlar stöðugt búa við, það er að
að vera hógvær
„Yfirleitt risti ég myndir minar beint á stein án þess að
gera uppkast, en sumar þaulhugsa ég og skipulegg áður
eins og myndina af Efnahagsbandalaginu." (t.v.). Til
hægri er svo mynd, sem heitir hamarshögg, táknræn fyrir
sovézkan kommúnisma. í likkistunni á að vera rithöfund-
ur. „Tvö til þrjú hamarshögg og þögn!" segir Weber.
----------------------j m
Með verkunum horfir hann einnig
fram í timann Fyrir áratug eða svo
vann hann mynd, þar sem koma
fram ýmsir punktar i Helsinkisátt-
málanum. Umhverfisvernd og nauð-
syn hennar stakk upp kollinum i
hans fyrstu verkum Við upphaf list-
ferils síns verðist hann hafa skynjað
9ndirinn5> „Kannski'
Mótiv mynda hans hafa skerpt
athyglisgáfu hans „Maður verður
að virða fyrir sér umhverfið — rýna
í gegnum hlutina og undir yfirborð-
ið Með þvi öðlast maður innsýn í
hluti, sem annars væru huldir sjón-
um manns.
Þær myndir, sem nú hanga i
vestursalnum eru að hans sögn nei-
kvæðari en mörg önnur verk hans
„Sum eru stór eins og listin sjálf,
önnur viðkvæm, neikvæð eða já-
kvæð Listin er víðfeðm Gagnrýni
getur lika verið jákvæð '
Weber er ekki eingöngu grafíker,
hann málar einnig með pensli og
olíulitum
— Af hverju tekur hann grafík
fram yfir venjulega listmálun<>
„Vegna þess að það er ekki hægt
að gagnrýna öðruvísi en i gegnum
grafik Pensil og olíuliti getur maður
ekki notaðá sama hátt '
Hann byrjaði á tréskurði og einnig
fljótt með steinprent sem hefur verið
ráðandi í listsköpun hans æ síðan
Myndirnar vinnur hann af „inspira-
sjón", gerir sjaldnast uppkast nema í
fáum tilvikum og þá er yfirleitt hver
millimetri flatarins þaulhugsaður áð-
ur, eins og í einni mynd hans af
Efnahagsbandalaginu á drekkhlöðn-
um skipshjalli
— Hverjir voru hans lærifeður?
— „Kannski Durer eða svokölluð
Núrnbergtækni " Goya segist hann
þó hafa mest dálæti á
„Ég virði alla duglega listamenn
Það bezta frá hverjum Gæðin eru
það, sem skiptir mestu máli í list-
inni,"
Weber er mjög góður vinur
Heinemanns fyrrverandi forseta
Vestur-Þýzkalands, en sá hefur alla
tíð verið mikill aðdáandi grafíklistar
Webers Sex sjónvarpsmenn komu
hingað til lands ásamt Webers til að
fylgjast með ferðum hans og gjörð-
um
— Hvað hefur frægðin gert fyrir
hann? Verið hindrun eða til góðs?
— „Frægðin hefur aldrei verið
vandamál hjá mér", segir hann
„Frægðin hefur kennt mér að vera
hógvær Hún verkar örvandi á mig '
Meðan á dvöl hans í Reykjavík
hefur staðið. segist hann hafa séð
mikið af íslenzkum listaverkum —
hangandi upp um alla veggi. Hann
segist hafa haft gaman af því að
skoða Kjarvalssýninguna
„Ég vildi óska þess", segir hann
rétt áður en við stöndum upp frá
kaffidrykkjunni til að skoða verk
hans, „að list mín hér í Reykjavík
hefði sömu áhrif og bergmálið. að
hún endurhljómi Vegna þessað þið
hér á íslandi hafið þörf fyrir list
Fyrir ykkur er listin áríðandi!"
,, Mín list er á þann hátt svipuð fjölmiðli að hún er upplýsing," segir A. Paul Weber.
geta ekki tjáð sig fullkomlega eða
nákvæmlega. þegar listamaður
getur rissað upp mynd á smábleðil.'
sem segir meira en opnugrein í
dagblaði
Við sitjum yfir kaffibolla og hann
segir „Ems lengi og við drekkum
kaffi, þarf engin orð ' Kannski verð-
ur hann reiður ef sagt er að yfir
bragð hans og fas minni ofurlítið á
Picasso Það er eitthvað ekta við allt
hans látbragð, eitthvað, sem gerir
það að verkum að maður finnur að
þarna er óvenjulegur maður á ferð
— listamaður
Hann er þó ekki í essinu sínu fyrr
en hann fær að ganga með okkur
um vestursalinn og sýna okkur
myndirnar Þær einar skipta hann
máli, í gegnum þær vill hann tala og
tjá sig Grafíkin ei hans fjölmiðill.
hans tjáningarform og hans sam-
band við umheimmn
Markmið hans með listinni er að
benda á vandamálin. stóru og smáu.
allt sem fer aflaga bæði stjórnarfars-
lega, þjojóðfélagslega og í mann-
legu lífi Hann segist ekki geta talað
við fólk nema með myndum sínum
en með þeim vilji hann vekja fólk til
umhugsunar, allt fólk — hvort sem
það er vinstri eða hægri sinnað,
trúlaust eða kaþólskt. „Listin er á
þann hátt svipuð fjölmiðli, þ e mín
list að hún er upplýsing Ég ætlast
ekki eingöngu til þess að þeir, sem
horfi á verk mín, skynji eða sjái
ádeiluna, sem í þeim felst — heldur
líka formið í „Kritischer Kalender,"
sem ég gef út árlega, hef ég oft
rekið mig á, að það er erfiðara að
finna texta við myndirnar heldur en
að vinna myndirnar sjálfar"
Hann kveður nei við spurningunni
hvort hann sé á einhvern hátt frum-
kvöðull á sviði grafiklistar í Þýzka-
landi „Hvorki frumkvöðull né læri-
faðir, fólk, sem notar sömu aðferðir
og ég við listræna túlkun i grafik, er
eingöngu fólk. sem fylgir sömu
stefnu og ég eða gengur sömu leið,
því ég get ekki talizt fylgjandi einnar
ákveðmnar stefnu annarar en að
vera gagnrýninni á allt." Hann segist
heldur ekki álíta að verk sín höfði til
eins sérstaks hóps og þeir, sem hafi
hrifist af verkum hans, séu úr öllum
pólitískum flokkum eða stéttum Það
voru Hil dæmis andstæð pólitisk
samtök eða öfl, sem stuðluðu að
tilkomu safnsins í Ratzeburgh. Hann
litur sýnilega á sig sem gagnrýn-
anda fremur en stefnumótanda
Kaþólska kirkjan hefur td verið
honum hugleikið viðfangsefni til
gagnrýni, ekki vegna þess að hann
sé andvígur kaþólskri trú, heldur að
honum finnst þar megi margt betur
fara eins oq annars staðar
„Miðpunktur listar minnar er þó
manneskjan " Siðan hlær hann og
segist eiga erfitt með að tjá sig eða
benda á vandamál mannsins öðru
visi en i gegnum verk sín
Dýr og ævintýri eru listamanninum einnig hugleikið viðfangsefni. Hér er mynd af
héranum, sem fór í kapphlaup við broddgöltinn og tapaði
Frægðin hefnr kennt mér
— segir grafíklistamadurinn PAUL WEBER