Morgunblaðið - 26.06.1977, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1977
SELAV]
»AR
á Breiðamerkursandi
Grein og myndir: Ragnar Axelsson.
Selaveiðar voru í fréttum
fyrir nokkrum vikum, er
franska kvikmyndaleikkon-
an og kynbomban Birgitta
Bardot millilenti á flugvelli
á leið sinni til Nýfundna-
lands, til að mótmæla sei-
veiðum þar við land. Sel-
veiðar eru stundaðar víðar
en við Nýfundnaland. Mbl.
fylgdist nýlega með selveið-
um í Öræfum, þar sem slík-
ar veiðar hafa verið stund-
aðar í áraraðir.
Haldið var snemma dags
að Jökulsárós, þar sem sel-
ur heldur mikið til. Veiðin
fór þannig fram að tvö net
voru dregin þvert á ósinn
hvert á eftir öðru, og látin
reka með straumnum.
Tveir menn eru við hvorn
enda og einn maður sér um
að vaða út í og aflífa skepn-
urnar. Þegar komið er ná-
lægt sjó eru netin dregin á
land, og gert að selnum.
Netin eru greidd á þartil-
gerðar hjólbörur sem siðan
er ekið upp eftir fljótinu til
nýrrar umferðar.
Eftir hverja ferð eru þeir
selir sem veiddust bundnir
saman, og hafðir ofaní fljót-
inu til varnar skinninu sem
ekki má þorna mikið. Einn-
ig er það gert vegna mávs-
ins sem étur og heggur í
skinnið. Farnar eru 4 til 5
ferðir með netin, og síðast
er netið látið liggja dágóða
stund.
Aðeins tveir selir veidd-
ust í sfðasta drættinum,
annar var f ullorðinn og
honum var sleppt þar sem
skinniðá fullorðnum selum
er ónothæft en kópnum
lógað.
Er á leið daginn voru sel-
irnir dregnir yfir ósinn og
bundnir niður Gengiðvar
frá ýmsu til undirbúnings
heimferðar, meðan netin
voru látin liggja.
Selurinn er alveg látinn í
friði þartil aðselveiði
hefst, og má ekki raska ró
hans á þeim tíma.
Það er komið að kvöldi
þegar veiðinni er hætt og
selnum raðað á vörubíl og
haldiðtil heimferðar. 57
selir höfðu veiðst þann dag-
inn.
Það er erfitt að veiða sel,
mikla áræðni og kjark þarf
til að vaða út í ískalda sand-
blauta jökulsá, sem er mis-
djúp. Þaðfinnst eflaust
engum gaman að veiða sel
eða fáum, en mikil eftir-
spurn er eftir selskinnum
og hátt ferð fæst fyrir þau.
Þá á örygglega einhver fög-
ur yngismær eftir að spóka
sig í selskinnskápu af sel-
um sem veiddust í þessari
ferð, en eitt er víst að dýr
verður gripurinn.
í fjöruborðinu.
Er Rosalynn ný
Eleanor Roosevelt ?
# Rosalynn Carter, forsetafrú í Bandarfkj-
unum, vakti óskipta athygli er hún var
nýlega á ferð um sjö Suður-Ameríkuríki.
Erindi hennar var að gera grein fyrir
stefnu forsetans í málum sem snerta sam-
skipti Bandarfkjanna og Suður-Ameríku,
svo og önnur utanrfkismál. Aður en Rosa-
lynn lagði upp f ferðina höfðu ýmsir orðið
til að draga f efa hæfni hennar og var talið
að um yrði að ræða einhvers konar kur-
teisisheimsókn, sem hefði heldur litla þýð-
ingu. Sú skoðun kom fram líka, að það væri
óskynsamlegt af Carter forseta að senda
konu sína á fund leiðtoga S-Ameríkuríkja
til að ræða við þá alvörumál, þar sem þeir
tækju yfirleitt ekki mark á kvenfólki.
Heimsókn Rosalynn gæti þvf beinlfnis orð-
ið til þess að þeir móðguðust og þættu
Bandarfkin ekki sýna rfkjum Suður-
Ameríku tilhlýðilega virðingu.
En Rosalynn lagði ótrauð
af stað og þegar fréttir tóku að
berast af viðræðum hennar við
stjórnmálamenn í Suður-
Ameríku kom á daginn, að hin-
ir vantrúuðu höfðu ekki reikn-
að dæmið rétt. Rosalynn Carter
kom hvarvetna fram af mikilli
festu og eindrægni. Hún veigr-
aði sér ekki við að reifa hin
flóknustu mál við viðmælendur
sína og var órög við að gera
þeim grein fyrir stefnu forset-
ans í mannréttindamálum, sem
eru engan veginn kærkomnasta
umræðuefni, sem áhrifa- og
valdamenn í Suður-Ameriku
geta hugsað sér.
1 Equator lýsti Rosalynn and-
úð forsetans á kaupum stjórn-
arinnar þar á orrustuþotum frá
Israel. Hún tjáði ráðamönnum i
Perú, að Bandaríkjastjórn
hefði áhyggjur af aukinni her-
væðingu þar, og ræddi við
Braziliustjórn leiðir til að jafna
ágreining, sem upp er kominn
vegna kjarnorkukaupa stjórn-
arinnar frá Vestur-Þýzkalandi.
í för með Rosalynn var
fjöldi fréttamanna, og kom hún
jafnóðum fram í sjónvarpi og
gerði grein fyrir viðræðum sín-
um. Með mjórri og tilbreytinga-
lausri röddu kvaðst hún mundu
skýra „Jimmy“ frá þvi sem um
var að ræða hverju sinni, en
þegar blaðamanni einum varð á
að spyrja hvaða umboð hún
hefði til að taia fyrir hönd
bandarísku þjóðarinnar, svar-
aði hún hvasst og að bragði:
„Ég tel mig vera þá mann-
eskju, sem stendur næst forseta
Bandaríkjanna, og ef ég get
orðið honum að liði við að öðl-
ast skilning á þjóðum heims, þá
mun ég gera það.“
Þeir, sem hingað til hafa
ekki tekið forsetafrúna alvar-
lega, ættu að gefa þessu svari
gaum. Þeir ættu lika að minn-
ast orða Hamiltons Jordans,
eins nánasta samstarfsmanns
forsetans, i kosningabaráttunni
í fyrra:
„E f við Jody (Powell,
blaðafulltrúi forsetans) ætlum
okkar að leggja til atlögu, þá er
bezta leiðin að reyna að fá Rosa-
lynn i lið með sér.“
Sagt er að fyrirmynd Rosa-
lynn sé Eleanor Roosevelt, sem
óumdeilanlega er talin aðsóps-
mesta forsetafrú aldarinnar.
Haft er fyrir satt að Carter for-
seti hafi hrópað upp yfir sig af
hrifningu er honum bárust
fregnir af velgengni Rosalyrtn i
Suður-Ameríku: „Eleanor
mín.“
Ef það er rétt að Rosalynn
taki sér Eleanor til fyrirmynd-
ar og geri sér vonir um að geta
sér svipaðan orðstir, þá er vert
að hafa I huga, að jarðvegurinn,
sem þessar tvær konur koma úr
gæti vart verið ólikari. Eleanor
Roosevelt var hefðarfrú frá
fæðingu, en frú Carter hét
Rosalynn Smith áður en hún
giftist og var dóttir bifreiða-
virkja i Plains. Skólaganga
hennar varð ekki löng — hún
var tvo vetur við nám í gagn-
fræðaskóla í bænum Amerieus,
sem er í námunda við Plains.
Eleanor Roosevelt var stað-
gengill ’ hins bæklaða eigin-
manns sins og ferðaðist viða
þegar hann gat ekki komið þvi
við vegna þessa annmarka. Hún
var annáluð fyrir samúð sina
með svertingjum og fyrir fram-
lag sitt til baráttu fyrir auknum
mannréttindum. Hins vegar
átti hún jafnan við að striða
vandamál í einkalífi sinu, og
sambúð hennar og forsetans
var með eindæmum erfið.
Carter-hjónin hafa verið i
hjónabandi I 30 ár, og siðan
Jimmy Cacter hætti i hernum