Morgunblaðið - 26.06.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JUNÍ 1977
33
Katrín Guðjónsdótt-
ir—Minningarorð
Fædd 31. júlf 1950.
Dáin 17. júní 1977.
Þegar við kveðjum einhvern aí
vinum okkar í hinzta sinn, þá er
eins og sól sumarsins hverfi og
fölva haustsins slái á lifið og til-
veruna i kringum okkur. Minning-
arnar koma fram í huga manns ein
af annarri.
Við minnumst Katrinar sem lit-
illar stúlku með sitt hýra bros,
unglings, sem vildi gleðja aðra og
láta öðrum liða vel, og loks sem
fulltiða og glæsilegrar stúlku.
Hverjum skyldi detta í hug, að þín
ævi yrði ekki lengri og þú svo
snögglega burt frá okkur kölluð.
En vegir drottins eru órannsakan-
legir, og spurningin vaknar: Til
hvers er þetta lff? Við hljótum að
trúa þvi, að annað líf sé eftir þetta.
Við Gulla viljum aðeins þakka
Katrínu allar góðu stundirnar,
sem við áttum saman, Gulla sér-
staklega fyrir allar ánægjustund-
irnar í blakinu í vetur, sem aldrei
koma aftur. Við þökkum henni
fyrir hversu góð hún var börnum
okkar. Alltaf hafði hún tima til að
tala við þau og gleðja á einn eða
annan hátt.
Við biðjum algóðan guð að
styrkja foreldra hennar, bróður og
systur, ömmu og afa á Frakkastfg
og aðra ástvini.
Ó þá náð að eiga Jesúm
einkavin f hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sfnu f Drottins skaut.
Ó, það slys þvf hnossi að hafna,
hvflfkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg f Drottins skaut.
Blessuð sé minning hennar.
Sverrir Gunnarsson.
Kveðjuorð frá starfsfólki
Útvegsbankans
Á morgun verður til hvílu borin
í vígðri fósturmold, Katrin Guð-
jónsdóttir. Að liðnum Jónsmessu-
degi, þegar jörðin er döggvuð hlýj-
um morgunúða komum við saman
til þess að kveðja elskulega starfs-
systur, en minning hennar mun
lifa um alla ævi meðan hjartað
slær í brjóstum okkar.
Katrín Guðjónsdóttir átti ekki
langa ævibraut i þessu lífi. Ung er
hún frá oss horfin, aðeins 26 ára
gömul.
Hörmulegur var hennar dauð-
dagi, þegar hún andaðist í Elliða-
vatni, siðastliðinn 17. júni.
Katrín Guðjónsdóttir fæddist í
Reykjavík 31. júlí 1950. Foreldrar
hennar eru Ágústa Jóhannsdóttir
Og Guðjón Ásbjörnsson, húsasmið-
ur og tvö eru systkinin, Guðmund-
ur, sem búsettur er á Húsavík, og
ung systir, Brynja Þyrí, í foreldra-
húsum.
Katrin nam og lauk prófi frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar vor-
ið 1967. Að hausti sama árs frá
Bankamannaskólanum og nám-
skeiði á vegum bankanna i vélrit-
un 1968. Framhaldsnám sótti hún
á vegum Utvegsbankans i Privat-
banken í Danmörku um hálfsárs-
skeið 1974.
Katrín hóf störf i Utvegsbanka
íslands 29. maí 1967, þá 16 ára
gömul og var bankamær til and-
láts.
Hún átti vináttu allra, sem með
henni störfuðu i bankanum. Aðlað-
andi framkoma hennar, bros í and-
liti og góðvilji til allra var hennar
aðalsmerki.
Katrin Guðjónsdóttir vann störf
sín i Útvegsbankanum í áratug af
mikilli kostgæfni og alúð og minn-
ing hennar mun aldrei afmást í
hugum þeirra, sem nutu samferð-
ar hennar, um lengri eða skemmri
tíma. Þær sólskinsstundir hverfa
aldrei.
Ég kveð elskulega starfssystur
með orðum úr kvæðabók vinar
mins, Kjartans J. Gislasonar frá
Mosfelli:
Ég bið ykkur svanir, að syngja
og syngja í sál hennar kveðju frá
mér.
Adolf Björnsson.
Á morgun verður kvödd Katrin
Guójónsdóttir, elzta barn hjón-
anna Ágústu Jóhannsdóttur og
Guðjóns Ásbjörnssonar, húsa-
smiðs, Brúnalandi 19, Reykjavík.
Þvi verður ekki með orðum lýst,
hvílíkt reiðarslag fregnin um slys-
ið varð okkur vinnufélögum henn-
ar.
Katrin var nýkomin úr sumar-
fríi frá Spáni ásamt vini sínum,
Jóni Sævari Gunnarssyni. Þau
voru boðin í afmælisveizlu 16. þ.m.
til vinafólks síns, f sumarbústað
við Elliðavatn. Um nóttina reru
þau út á vatnið. Þau komu ekki
aftur að landi í okkar hverfula
heimi, en ekki efumst við um, að
þótt okkar islenzka vornótt sé
dýrðleg, hafi þau vaknað til nýs
lifs á enn dásamlegri ströndu.
Það er orðtak sem segir: „Þeir
sem guðirnir elska deyja ungir.“
Við vitum að Guð hefur elskað
hana Katrinu okkar mikið, þvi
hver í okkar hópi skyldi frekar
hafa lifað eftir kenningum hans?
Þessi yndislega stúlka var hógvær,
hljóðlát og glöð, trú yfir litlu jafnt
sem stóru og með afbrigðum hlý
og kærleiksrík við alla sem hún
umgekkst, og ekki hvað sizt við þá,
senj sjúkir voru og minna máttu
sín. Samband hennar við foreldra
og systkini var óvenju ástúðlegt.
Okkur er sérstaklega minnisstætt
hversu góðir vinir hún og litla
systir hennar voru og hvað þær
gátu spjallað mikið saman.
Fyrir utan að vera þannig til
fyrirmyndar, hvað alla mannkosti
snerti, var hún lika með afbrigð-
um góður starfskraftur. 1 Utvegs-
bankanum, þar sem Katrin hóf
störf þann 29.5 1967 verður vand-
fyllt hennar skarð.
Við viljum nú að leiðarlokum
þakka henni allar notalegu sam-
verustundirnar, bæði í leik og
starfi.
Það er oft erfitt að skilja þetta
lífshlaup okkar, þegar svo ungu og
efnilegu fólki er fyrirvaralaust
kippt í burtu á meðan fjöldi fólks
bíður dauðans árum saman með
óþreyju.
Lifið er sjálfsagt fyrst og fremst
skóli.
Við vottum ástvinum þeirra Kat-
rínar og Jóns Sævars okkar dýpstu
samúð.
Samstarfsfélagar í Innheimtu-
deild Útvegsbankans.
Nokkur fátækleg kveðjuorð til
Katrínar frá blakkonum Vikings.
Hörmulegt slys og tvær ungar
manneskjur falla i valinn. Glöð og
hamingjusöm ungmenni sem gæf-
an virtist blasa við. En það þýðir
ekki að deila við dómarann. Og
reynum við því aö orna okkur við
hlýjar minningar liðinna ára.
Það er nokkuð stór hópur
kvenna, sem hafa æft blak saman
nokkur undanfarin ár, og var
Katrín ein úr þessum skemmti-
lega og samrýnda hópi. Hún var
sú yngsta í hópnum, áhugasöm og
dugleg enda vandfyllt sæti henn-
ar hér eftir. Það verður tómlegt
að hefja æfingar á ný án hennar.
Framhaid á bls. 36
Cléjfaáud 5M
glæsileg lítil fjölskyldubifreid med frábæra
aksturseiginleika
1186 cc, 4ra cyl, 72 hö SAE, tveir beltadrifnir ofanáliggjandi knastásar.
Einfaldur blöndungur. Vökvakæling. 475 watta rafall (allernator). Eyðsla
6.4 1/100 km við 90 km meðalhraða á klst. Hámarkshraði 150 km á klst.
HEMLAR — FJÖÐRUN:
Aflhemlar með diskum við öll hjól og sérstökum öryggisventli fyrir hemlun
á afturhjólum, sem hindrar læsingu (lock up). Tvöfalt bremsukerfi.
Gormafjöðrun við öll hjól.
YFIRBYGGING:
4ra dyra, fimm manna. Sæti stillanleg upp og niður, fram
og aftur, auk halla á baki og hæðar á höfuðpuða. Stillan-
legt veltistýri. Rúmgóð farangursgeymsla (400 I). Hituð
afturrúða.
GÍRKASSI:
5 gira alsamhæfður, fimmti gir yfirdrif (overdrive).
Framhjóladrif
það er unun að aka í alfa
JÖFUR HF.
Sérstakt kynningarveró
aðeinsum kr. 1.950.000-
AUOBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SIMI 42600