Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.06.1977, Blaðsíða 41
félk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JUNÍ 1977 41 17. júní í Noregi + Blaðinu hefur borist bréf frá Roar Rönning sem býr f Örsta, Noregi og fer það hér á eftir í lauslegri þýð- ingu: Um 40 Islendingar sem búsettir eru í Möre og Romsdal I Noregi komu saman föstudaginn 17. júní til að halda þjóðhátíðardag- inn hátíðlegan. Fulltrúar js- lands á hátíðinni voru Sig- urður Hafstað fulltrúi við íslenska sendiráðið í Ósló og kona hans Ragnheiður Hafstað. Einnig voru þar Oskar Larsen, ræðismaður íslands í Álasundi, og kona hans Hilda Bödtker Larsen. Veg og vanda af undirbún- ingi hátiðahaldanna sem haldin voru f bænum Örsta hafði Eilhelm Jonson í Vartdal. Þetta var í fyrsta sinn sem Sigurður Hafstað og kona hans komu til Sunnmöre. Þau notuðu fyrri hluta dagsins til að fara f skoðunarferð um hér- aðið kring um Álasund með Oskari Larsen ræðismanni. Oskar Larsen hefur verið íslenskur ræðismaður i Ála- sundi í 28 ár og segist hafa af þvf mikla ánægju og í huga sínum væri 17. júnf ekki sfðri hátfðisdagur en 17. maf, þjóðhátiðardagur Norðmanna. Hátíðin f Örsta hófst með borðhaldi en síðan voru ræðuhöld og sgngur. Meðal annars söng 83 ára íslendingur, Jón Jónsson, ættaður úr Fljót- um f Skagafirði, öll erindin af kvæðinu Eggert Ólafsson eftir Matthfas Jochums- son. Jón fluttist til Noregs árið 1914. Hátfðinni lauk með þvf að sunginn var þjóðsöngurinn. Á myndinni sjást nokkrir þátttakenda f hátíðahöldunum. Sérstakur ráðgjafi Trudeaus af ís- lenzku bergi brotinn % Pierre Elliot Trudeau forsætisráðherra Kanada hefur skipað Donald Scarth Thorson, aðstoð- ardómsmálaráðherra, til að vera sérstakur ráð- gjafi um málefni sem varða stjórnarskrá lands- ins. Thorson, sem er 51 árs, er vel þekktur fyrir sín fyrri störf, og allt frá því Trudeau varð áhrifa- maður í stjórnmálum ár- ið 1965 hefur Thorson verið einn af ráðgjöfum hans. Thorson hefur átt þátt f samningu margra lagabálka, og honum hafa verið falin mörg þýðingarmikil verkefni. Faðir hans, Joseph T. Thorson, sem nú er 88 ára er einnig þekktur Iögfræðingur, og eitt sinn barðist hann fyrir nýjum lögum um tungu- mál og var þá sonur hans á öndverðum meiði. — Föðurnum tókst ekki að fá ný lög samþykkt, og vakti allt þetta mál mikla athygli. J. T. Thorson er sonur Stefáns Þórðarsonar Jónssonar frá Bryggju í Biskupstungum og konu hans Sigríðar Þórarins- dóttur frá Ásakoti í Biskupstungum. Tilnefning forsætisráð- herrans er talin vera mikil viðurkenning fyrir D. C. Thorson, sem hafði fengið mörg betur laun- uð atvinnutilboð, sem hann hafnaði. Hann hefur þegar tek- ið við hinu nýja embætti. Við endurskoðun stjórnarskrárinnar sem að sjálfsögðu verður stefnumarkandi íyrir alla þjóðina, verður Thorson að taka sérstak- lega til meðferðar deil- una um sjálfstæði Que- beck-fylkis. (Fríít 'ur Lógbergi/Heimskrignlu, 7. júní 1977). Okkar vinsælu fótlagaskór komnir aftur Póstsendum No. 35—41 GEYSIBr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.