Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1977
17
Úlfur Ragnarsson, læknir:
Hvítasunna
Ef þið hafið ekki lesið frásögn-
ina um eldtungurnar, sem komu
yfir lærisveinana, skuluð þið gera
það. Frásögnin er í öðrum kapi-
tula Postulasögunnar í Nýja
Testamentinu.
Þar greinir frá stórmerkilegu
fyrirbrigði, sem ekki er nægileg-
ur gaumur gefinn, þvi að það
skiptir okkur miklu máli.
Það er háttur skynsams fólks að
láta þau verk ganga fyrir, sem
mikilvægust eru. Hvað telst mikil-
vægast á timum mikillrar sundr-
ungar, sem gæti eytt öllu lifi á
Jörð? — Að bjarga lifinu, vitan-
lega! Einmitt þessvegna er nauð-
synlegt að snúa sér að aimanna-
vörnum.
Almannavarnir eru með ýmsu
móti, en miða ávallt að þvi að
hindra, að líf eyðist, sem mögu-
legt er að bjarga. Slíkt er lofsvert.
Hvítasunnufrásögnin bendir til
stórvirkustu varna, sem um er að
ræða, vörnum, sem byggjast á þvi,
að lúta leiðsögn Lífsandans sjálfs.
Það er vegna óhlýðni við þann
anda, sem svo margt gengur al-
varlega úrskeiðis á þessum hnetti
okkar.
Það er timabært, að við hættum
að líta á fyrirbrigði trúarlífsins
ýmist sem eitthvað hálfpartinn til
að skopast að eða sem einkenni
um geðbilun.
Það má gera sér nokkra grein
fyrir mikilvægustu þróuninni
með því að fylgja eftir frásögnum
Nýja Testamentisins.
Samtímis þeim sögulegu at-
burðum urðu innri breytingar
með fyrstu lærisveinum Jesú.
Fyrst hrifust þeir af persónu hans
og boðskap, en ortu jafnframt
drauma sína og þjóðarinnar um
hinn fyrirheitna Messias inn í
hann. En þess verður að gæta, að
þeir draumar voru samkvæmt
takmörkuðum skilningi þeirra
sjálfra.
Svo var hann krossfestur, og
þessir draumar urðu þá að engu,
eða svo sýndist þeim þá. Og þeir
voru ráðvilltir og ringlaðir af ör-
væntingu eins og allir, sem glata
dýrustu draumum sinum, einnig
nú á okkar dögum.
En svo gerðist það, sem þeir
höfðu ekki trúað að gæti gerst.
Reyndar sagði hann þeim það fyr-
ir, en þeim fannst það víst ekki
raunhæft. Hann sigraði sjálfan
dauðann.
Þarna gerðist algerlega óvænt-
ur atburður. Engin vanabundin
viðbrögð dugðu lengur. Þetta var
nýtt. Þeir voru sem ölvaðir af
ósegjanlegri undrun og ham-
ingju, en vissu ekki, hvernig þeir
áttu að bregðast við. Það varð
upprisa innra með þeim sjálfum,
fyrirbrigði, sem enn í dag gerist
með þeim mönnum, sem lifa þetta
sem trúarlegan veruleika.
Hvað svo? Það getið þið líka
lesið um í sömu bók. Þar greinir
frá því, að krossfesting og upprisa
nægðu ekki til að gera þá að virk-
um og sönnum boðberum Kær-
leikans. Ritninguna höfðu þeir og
upprisuna með. Samt hefðu þeir
verið álíka ráðviiltir og kristnir
menn, sem deila sín á milli um
heim allan einnig f dálkum ís-
lenskra blaða ef þeim hefði ekki
verið gefið fyrirheit um að þeir
mundu iklæðast krafti af hæðum.
En þetta fyrirheit er raunveru-
lega í fullu gildi einnig nú. Þess-
vegna ættu þeir, sem eignast hafa
trú á veruleika upprisunnar, að
fara sér hægt að því er varðar
deilur við aðra kristna menn og
horfa fram til þess, sem á eftir að
gerast i þeim sjálfum, svo að þeir
geti íklæðst kraftinum að ofan og
orðið þannig sannir boðberar þess
Guðs, sem er Kærleikurinn.
Allur hinn svonefndi kristni
heimur er þjakaður af þeirri
áráttu kristinna manna, sem ekki
hafa íklæðst kraftinum frá hæð-
um, að deila á meðbræður sina
fremur en sameinast þeim i anda
Krists. Það er eins og myrkra-
höfðingjanum bjóðist á þessu
stigi þróunar enn eitt tækifæri til
að villa um fyrir þeim, sem vilja
þó i djúpi hjartans ganga Kristi
Framhald á bls. 34
Reisugilli!
Áfangi sem allir húsbyggjendur
fagna. Einkum þó ef allt gengur
samkvæmt áætlun. Am.k. leggjum
viö mikiö upp úr því. Bjóöum hús-
byggjendum hagkvæmar
rafteikningar þegar viö önnumst
raflagnir. Eins og allir sem skipta
viö Rafafl njóta þeir einnig 10%
afsláttar af öllu því raflagnaefni
sem unniö er úr. Gerum sérstök
föst tilboö ef óskaö er.
RAFAFL
Barmahlíö 4 Reykjavík
Símar 21700 2 8022
Leggjum nýtt -
lögum gamalt
Surform, hefilraspurinn frá Stanley, er án nokkurs
vafa fjölhaefasta verkfærið, sem Stanley verk-
smiðjurnar framleiða, — enda hefur hefilraspurinn
orðió vinsælasta Stanley verkfærið á ótrúlega
skömmum tíma.
Hefilraspurinn er sannkaliað undratól, sem hægt er
að nota betur en hefil, rasp og þjöl í flestum tilvikum.
En Surform blaðiö hefur 450 beittar stáltennur, sem
vinna hver um sig eins og lítiö sporjárn.
Surform hefilraspurinn er því verkfærið, sem oftast
þarf að grípa til, t.d. þegar þarf að raspa ryö, hefla af
gluggabrún, ná af gamalli málningu, snikka til borðs-
enda, liðka eldhússkúffuna eða jafna plastfyliingu á
bílbrettinu.
Segðu Surform við járnvörukaupmanninn og vittu
hvað hann segir!
STANLEY
JL—^
ir L li / .
r ^ * . -
■ ’i * •[
'-dÆ )r~ 'if
T f ( jí