Morgunblaðið - 21.07.1977, Síða 12

Morgunblaðið - 21.07.1977, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júll 1977 Y estfj arðaglefsur Grein og myndir „Það kemst í vana að eiga svona mörg börn, þetta venst ágætlega“, sagði Sigurður Friðfinns- son, bóndi á Ketilseyri í Dýrafirði, í samtali við Morgunblaðið, en hann og Fríða kona hans eiga 17 börn. „Já, þetta hefur gengið einhvernveginn", sagði Fríða sem heitir fullu nafni Björnfríður Magnúsdóttir. Sigurður benti á að hjón í sveit með svona mörg börn hefðu ef til vill ekki eins mikið fyrir því að ala þau upp og hjón með 2—3 börn í þéttbýli. Börn þeirra Fríðu og Sigurðar eru fædd i öllum Ami Johnsen erum með svona 400—500 fjár á fóðrum eftir því hvernig árar. Einnig höfum við verið í svolitlum vélarekstri í félagi, ég og tveir synir minir, en alls eru nú synirnir 11, fullskipað knattspyrnulið eða skips- höfn á bát. Við erum með gröfur og ámoksturstæki í vélaútgerðinni". „Svo fjölskyldan vinnur mikið saman“. „Líklega er það nú óvenju mikið miðað við nú til dags. Yfirleitt eru öll uppkomnu börnin búsett hér í firðinum og á Þingeyri, en þau eru á aldrinum 7—31 árs. Ein Á Ketiiseyri hlá Friðu og Sigurði ____„ByggÖM 7 sinnum viö, jafnoft og börnin fæddust” Nýja og gamla húsið. mánuðum nema desember, janúar og marz, en í sveitinni geng- ur sú þjóðsaga að Friða hafi átt flest börnin um leið og ærnar báru á vor- in. „Það þýðir ekkert annað en taka þetta með trukki meðan maður er ungur“, sagði Sigurður um bjarnaf jöldann. Ketilseyri er innsti bær í byggð við sunnan- verðan Dýrafjörð og þar er að rísa nýtt og glæsi- legt íbúðarhús fyrir framan gamla bæinn sem Sigurður sagðist hafa byggt við 17 sinnum, eða jafn oft og barnsfæðing- arnar urðu. Fríða dró nú í land með þ: ð og sagði að svo slæmt hefði það ekki verið. Það er rekin stórútgerð frá Ketilseyri ekki sjósókn, heldur vinnu- vélaútgerð og nýting nágrannajarða sem eru í eyði. „Við erum að reyna að nýta þessi jarðakot sem fara í eyði, heyja þau“, sagði Sigurður, „við dóttir okkar býr í Reykja- vík“. Ekki kvaðst Sigurður vera viss um hvað þau væru mörg i heimili um þessar mundir, þetta væri svo breytilegt. „Ætli við séum ekki 10—12 viðloðandi núna“, sagði Fríða, „Þetta er fljótt að breytast". Þau heyja af 6 kotum, alls 45—50 hekturum. „Þar með er ekki sagt að ágóðinn sé eftir því, eins og það hefur viðrað", sagði Sigurður, „það er aðallega vinnugleðin sem kemur út úr þessu. Sumarið hefur verið kalt og óhagstætt til búskapar. Annars mætti hafa aðeins stærra bú hér miðað við það land sem við nýtum, en maður leig- ir sumar jarðirnar aðeins til eins árs og veit aldrei hvenær eigendurnir vilja taka þær aftur“. „Sezt unga fólkið að í firðinum"? „Það sezt talsvert að hér, en sveitirnar eru orðnar ákaflega þunn- skipaðar. Það hefur verið litið um það á undanförn- um áratugum að það fylltist í skörðin hér í Þingeyrarhreppi þegar fólk hverfur á braut. Það er aðeins einn ungur bóndi sem hefur byrjað búskap hér á s.l. ári i hreppnum. Búskapurinn er ekki talinn arðvænleg atvinnugrein hér, sér- staklega ekki eftir að næg vinna varð við fisk- vinnslu á Þingeyri. Hitt er svo að fólk virðist heldur leita út fyrir frystihúsin á sumrin til þess að vinna við önnur störf. Þá er fyllt í skörðin með aðkomufólki og unglingum". Það er verið að vinna við nýja húsið á fullum krafti og þau ætla að flytja inn seinnipartinn í sumar, ákváðu að ljúka algjörlega við húsið áður en þau flyttu inn „svo það verði örugglega gert“, sagði Sigurður. Unga fólkið hjálpar til, því Sigurður sagði að það væri ekki síður viljugt að ganga i verkin en eldri systkinin þegar þau voru yngri og svo er oft gest- kvæmt á bænum því barnabörnin eru orðin 8 talsins og þau setja sinn svip á bæinn á góðviðris- dögum. Krakkarnir á bænum með tvo beimalninga. Frfðá og Sigurður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.