Morgunblaðið - 21.07.1977, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977
21
Ingólfur Arnarson (t.v.) og Sigurjón Haraldsson.
Helgi Pétur, Fanney og Kristbjörn.
Robert Carey
Fórnarlfkneskið sem bjargaði veðrinu.
Jóhannes Fossdai og fleiri Blönduósingar þvo buxur.
Hallur Helgason, kokkur hjá Hraunbúum.
stjórnar.
á staðnum þar sem skátahöfðing-
inn, Páll Glslason læknir, myndi
hjúkra ef eitthvað kæmi fyrir.
Að lokum sagði Arnfinnur okk-
ur að öll kvöld væri eitthvað
skemmtilegt að gerast, t.d. var
varðeldur fyrir allt mótið á mánu-
dagskvöld, og á föstudagskvöld
verður tlvolí o.fl. o.fl.
Við ráfuðum um svæðið, alls-
staðar var llf, og ef það var ekki,
var það vegna þess að skátar lágu
I sóibaði, máttiausir af hita.
„Maður er alveg dasaður I öll-
um þessum hita, það er búið að
vera grenjandi rigning, svo allt I
einu svona sól“, þetta voru orð
Ingólfs Arnarssonar, tvltugs
Hafnfirðings, sem er I Hraunbú-
um, Hafnarfirði. „Við færðum
likneskinu okkar fórn, fransk-
brauð og rækjuost I gærkveldi og
breiddum yfir það I nott, þess
vegna er sól núna“. Líklega voru
ekki allir sammála þessari skýr-
ingu, en Hafnfirðingar trúðu
þessu statt og stöðugt og ætluðu
að halda áfram fórnum tii
iíkneskisins. „Við fórnum þó ekki
gltarnum" sagði Ingólfur að lok-
um, en þeir Hraunbúar kvöddu
okkur með þeim orðum að við
yrðum að koma um kaffileytið og
fá hjá þeim kakó, sem við lofuð-
um.
„Hér er gott að vera, alveg
ágætt" sagði Robert Carey, 19 ára
bandarfskur piltur, sem kemur
frá Keflavlkurflugvelii.
Hann sagði okkur að frá Kefla-
víkurflugvellinum væru 25
manns, þ.e. 15 strákar og 10 stelp-
ur, en þau eru á aldrinum 11—40
ára.
„Þetta er fallegt land, og veðrið
I dag er frábært" sagði Robert að
lokum.
Næst rákumst við á Ægisbúa úr
Reykjavík, og voru tvær stelpur
að þvo upp eftir matinn. „Við
skiptumst á að þvo upp en annars
eru hér tvær eldabuskur. Jú, hér
er ofsa gaman, I morgun fórum
við i safariferð, það var farið á
fleka, og skriðið I gegnum ræsi og
svoleiðis," sögðu þær Katrín
Guðjónsdóttir 13 ára og Sigrlður
E. Arngrímsdóttir, 12 ára.
„Kannski koma pabbi og mamma
á laugardaginn og verða I fjöl-
skyldubúðum" og þær bættu við
að þær hlökkuðu til þess.
Norski fáninn blakti við hún
við eitt torgið ög gerði blm. innrás
I það þorp. Þar varð fyrir svörum
Qivind Ekne, 24 ára gamall. „Við
vorum fyrst 2 daga I Reykjavik,
en fórum sfðan I ferð um Hval-
f jörð, Reykhoit og Þingvöll og slð-
an beint hingað".
öivind lét vel af ferðinni en
sagði að það hefði rignt heldur
mikið, annars væri landið fallegt,
en taldi það mjög óllkt Noregi.
„Við erum 72 manns frá Noregi,
þar af 40 frá Oslo. Eftir mótið
ætlum við til Hveravalla, vera þar
I eina viku og ganga á jökia."
Við komum þar að er fólk þvoði
buxur slnar I grið og ergi, og kvað
einn skáti þá við „Við skátarnir
drepumst nú ekki ráðalausir".
Þetta var Jóhannes Fossdal, 17
ára, einn 11 manna frá Blönduósi.
„Við erum búin að skrlða I gegn-
um hinar og þessar þrautir I
safarileiðangri, svo maður verður
að þvo buxurnar slnar".
Grænlendingar hafa sótt mótið
heim og fannst okkur upplagt að
lita inn til þeirra. Blm. spurði á
Framhald á bls 22.
öivind Ekne
Hluti Grænlendinganna, Hendrik Jacobsen lengst t.v.