Morgunblaðið - 21.07.1977, Síða 23

Morgunblaðið - 21.07.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977 23 ^^^Platan sem selst og selst Tryggið ykkur eintak tímanlega Það borgar sig ina við Elliðaárnar, fyrst og fremst i eigin hagsmuna skyni en ekki til almennrar eflingar fiski- ræktar i stórum vatnahverfum Reykjavíkurborgar, en með slíkri samningsgerð var Veiði- og fiski- ræktarráð um leið útilokað frá aðstöðu við Elliðaárstöðina og af- not af henni. Ég lít svo á, að hér sé um að ræða mjög alvarlegt og um leið vítarvert framferði, sem hlýtur að teljast fara i bága við efni og anda fyrri- og nú nýgerðan samning við Stangaveiðifélag Reykjavíkur um rekstur og afnot af Klak- og eldi- sstöðinni við Elliðaárnar, svo og einnig andstætt grundvallarhug- myndum og efni lax- og silungs- veiðilaganna nr. 76 frá 1970, um fiskirækt og fiskasjúkdóma og meðferð þeirra mála. Fullvist má telja, að slik mistök og gáleysi sem hér um ræðir, gæti ekki hafa átt sér stað, ef Veiði- og fiskiræktarráði væri tryggð að- staða til starfa i Klak- og eldistöð- inni við Elliðaárnar. Það, sem skeð hefur, sannar því betur en orð fá lýst, hve fráleitt það er að hafa útilokað starfsemi ráðsins á þessum vettvangi með þvi að af- henda Stangaveiðifélagi Reykja- víkur þessa einu og þýðingar- miklu aðstöðu Reykjavíkurborgar til áhrifarikra fiskiræktarfram- kvæmda. Það er þvi mín skoðun að borgarráði beri nú þegar að aftur- kalla og ógilda nýgerðan samning við Stangaveiðifélag Reykjavikur um Klak- og eldisstöðina við Ell- iðaárnar, fyrst og fremst vegna þessara mistaka félagsins og jafn- framt til þess að firra sig ábyrgð á því í framtiðinni, að fela félags- samtökum er þannig misnota um- rædda fiskiræktaraðstöðu borgar- innar í Klak- og eldisstöðinni við Elliðaárnar. Þessi bókun mín er gerð til að upplýsa borgarráð um þetta sér- stæða misbrestamál og vara við afleiðingunum af því. Samþ. samhljóða i Veiði- og fiskiræktarráði 18/7 ’77. Veiði- og fiskirækrarráð Reykjavikurborgar samþykkir að beina þeirri eindregnu áskorun til allra alþingismanna borgarinn- ar, að þeir beiti sér fyrir því á Alþingi á hausti komanda, að gerðar verði grundvallarbreyting- ar á núgildandi lögum um lax- og silungsveiði nr. 76 frá 1970 á þann veg, fyrst og fremst, að i nýrri löggjöf verði sundur skilin veiði- málin annarsvegar og fiskirækt- ar- og fiskasjúkdómamálin hins- vegar, og traust og örugg stjórn þessara mála tryggð. Á fundi 1 Veiði- og fiskiræktar- ráði Reykjavíkur 18. júlí s.l. ósk- aði Jakob V. Hafstein eftir eftir- farandi bókun: Út af umræðum þeim, sem fram hafa farið á fundi Veiði- og fiski- ræktarráðs Reykjavikurborgar i dag, mánudaginn 18. júli 1977, í sambandi við væntanlega komu erlendra sérfræðinga í fiskasjúk- dómum til að rannsaka og reyna að komast fyrir um orsakir, upp- runa og eðli sjúkdómsfaraldurs, er herjaði á ársgömul laxaseiði i Klak- og eldisstöðinni við Elliða- árnar á nýliðnu vori, en Veiði- og fiskiræktarráð samþykkti ein- róma tillögu mina í þessum efn- um hinn 26. maí s.l., sem borgaráð staðfesti siðan — óska ég eftirfar- andi bókunar: 1. Stangaveiðifélagi Reykjavikur hlaut að vera vel kunnugt um þessa einróma samþykkt Veiði- og fiskiræktarráðs og staðfestingu borgarráðs á henni, bæði af fjöl- miðlum, af einkaviðtölum fram- kvæmdastjóra ráðsins við fiskeld- ismann félagsins, er sér um og annast rekstur Klak- og eldis- stöðvarinnar við Elliðaárnar, sem og einnig vegna fulltrúa Raf- magnsveitu Reykjavíkur, sem er eigandi stöðvarinnar, og for- manns Elliðaárnefndar Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, sem báð- ir eiga sæti í Veiði- og fiskirækt- arráði. Þá var einnig landbúnað- arráðuneytinu, fiskasjúkdóma- nefnd og veiðimálastjóra send umrædd samþykkt ráðsins, svo að það gat þvi engum dulist, hvert stefndi um framvindu þessa máls og vilja ráðamanna Reykjavikur- borgar í þessum efnum. 2. Það er upplýst og staðfest að af 25000 ársgömlum laxaseiðum, sem í eldi voru upp úr siðustu áramótum i Klak- og eldisstöðinni við EUiðaárnar, drápust rúmlega 20.000 seiði í sjúkdómsfaraldri, er herjaði á stöðina í marz—apríl mánuðum, en um 5000 seiði munu hafa lifað af þennan sjúkdóm. 3. Þrátt fyrir það að fyrrgreind rannsókn erlendra sérfræðinga i fiskasjúkdómum væri i vændum og henni hraðað svo sem framast væri kostur, er nú upplýst og stað- fest, að Stangaveiðifélag Reykja- víkur hefur sleppt öllum þessum eftirlifandi 5000 seiðum eða að langmestu leiti — í eina af leigu- ám félagsins, Leirvogsá, og getur varla nokkrum dulist að hér sé um að ræða mjög alvarlega og gáleysislega ákvörðun frá fiski- ræktarlegu sjónarmiði séð, um leið og ljóst liggur fyrir, að slikt framferði sem þetta, torveldar þá þýðingarmiklu rannsókn, sem vit- að var að væri í vændum i náinni framtíð. 4. Þá liggur ekki ljóst fyrir hvort Stangaveiðifélag Reykjavikur hafi gert Veiðifélagi Leirvogsár ljósa grein fyrir umræddum sjúk- dómsfaraldri, sem herjaði á Klak- og eldisstöðina við Elliðaárnar, sem umrædd 5000 laxaseiði lifðu að visu af og nú hafa verið sett út í Leirvogsá. Ber brýna nauðsyn til að upplýsa þetta atriði. 5. Fiskasjúkdómanefnd og fiski- ræktaryfirvöld vissu vel um þenn- an sjúkdómsfaraldur i stöðinni við EHiðaárnar, þó hljótt færi um nokkurt skeið. Jafnframt vissu þessi yfirvöld að engin niðurstaða eða vissa lá fyrir um eðli, orsök eða uppruna sjúkdómsfaraldurs- ins, þrátt fyrir eigin rannsóknir fiskasjúkdómanefndar í rann- sóknarstofunum að Keldum og rannsóknir i Skotlandi. Samt sem áður settu þessi yfirvöld og emb- ættismenn í fiskiræktarmálum engar hömlur á meðferð um- ræddra eftirlifandi 5000 seiða né heldur gáfu þau út nein fyrirmæli um varúð við útsetningu seiðanna i góðar laxveiðiár. En á sama tfma, sem þetta skeður, neituðu þessi sömu yfirvöld að eiga sam- leið og samvinnu við Veiði- og fiskiræktarráð Reykjavikurborg- ar um það, að fá hið allra fyrsta hingað til landsins erlenda sér- fræðinga f fiskasjúkdómum til rannsóknar á umræddum sjúk- dómsfaraldri og fleiri tilfellum. 6. Allt þetta skeður, meðan fram fer viðkvæm og verulega umdeild samningsgerð um það, hvort áfram skuli falið Stangaveiðifél- agi Reykjavikur í næstu 3 ár að annast og reka Klak- og eldisstöð- Á.Á. hljómplötur ViU ógilda samning vid Stangaveidifélagid Fleiri gistingar en í fyrra hjá Farfuglum Þrátt fyrir óhagstætt veðurfar i sumar hefur gistingum ferðafólks á Farfuglaheimilinu I Reykjavík fjölgað talsvert. Sem dæmi um þessa aukningu má geta þess að nýting farfuglaheimilisins í Reykjavík jókst um 20% í júni- mánuði siðastliðnum, og um 74% á fyrri helmingi þessa árs, frá árinu í fyrra. íslendingar hafa i auknu mæl notfært. sér þessa þjónustu far fuglahreyfingarinnar, bæði Reykjavík og úti á landi. Nú sumar eru starfrækt utan Reykja- vikur 5 farfuglaheimili en þau eru í Fljótshlið, á Berunesi, Seyð- isfirði, Akureyri og i Vestmanna- eyjum. Allir þessir gististaðir hafa upp á að bjóða þá aðstöðu sem ferðafólk þarf á að halda, t.d. eldhús þar sem fólk fær aðstöðu til að hugsa um sinn mat sjálft, upplýsingar um næsta nágrenni, og að sjálfsögðu alla hreinlætisað- stöðu. Gistigjaid á Farfuglaheim- ilum er mjög stillt I hóf til þess að auðvelda fólki að ferðast um land- ið. Einnig hafa farfuglar nú nokk- ur undanfarin ár beitt sér fyrir því að safna saman í einn bækling upplýsingum um öll pokapláss og aðra gististaði á Islandi, og fæst sá bæklingur ókeypis á Skrifstofu farfugla og á flestum ferðaskrif- stofum. (Fréttatilkynning) Ferðir til 9 staða um verslunarmannahelgina EINS og undanfarin ár efnir Ferðafélag Islands til skemmti- ferða um verzlunarmannahelg- ina. Að þessu sinni verður farið til 9 staða víðsvegar á landinu. Efst á listanum er Þórsmörk. Vinsældir Þórsmerkur hafa auk- ist jafnt og þétt hin síðari ár og er hún sá staður i óbyggðum sem flestir heimsækja á sumri hverju. Um verzlunarmannahelgina efnir Ferðafélagið til tveggja ferða þangað, sú fyrri verður kl. 20 á föstudagskvöld, en sú síðari kl. 13 á laugardag. A föstudagskvöld 29. júli verð- ur einnig farið til Veiðivatna og er ætlunin að fara inn á Jökul- heima í þessari ferð. Einnig verð- ur efnt til ferðar í Landmanna- laugar og farið þaðan I Eldgjá. Þá verður farið norður á Strandir. Mun það i frysta skipti í langan tima, sem Ferðafélagið efnir til ferðar þangað um verzl- unarmannahelgi. Fyrsta daginn verður farið i einum áfanga alla leið norður að Klúku í Bjarnar- firði, en þar verður gist í barna- skólanum. Á laugardag verður svo farið norður í Ingólfsfjörð og gist aftur næstu nótt á Klúku. A sunnudag verður svo ekið suður Dali og gist síðustu nóttina i barnaskólanum að Sælingsdals- laug. Ennfremur verður ferð í Skaftafell um verzlunarmanna- helgina eins og undanfarin ár og einnig í Hvanngil. I báðum þess- um ferðum verður gist í tjöldum. Kl. 08 á laugardagsmorgun verður farið inn á Hveravelli, annar hópur fer I Kerlingafjöll og sá þriðji fer vestur í Breiða- fjarðareyjar og um Snæfellsnes, ekið verður kringum nesið og á laugardegi farið með Baldri til Flateyjar. Alla dagana verða farnar styttri ferðir hér i nágrenni Reykjavik- ur, hálfsdags-ferðir og heils- dagsferðir sem auglýstar verða nánar í dagblöðunum um helgina. (Fréttatilkynning).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.