Morgunblaðið - 21.07.1977, Side 29

Morgunblaðið - 21.07.1977, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júlí 1977 29 Frá Jóhannesarborg. lund: „ÍJtlægur maður talar í kirkju hollenzkra endurbótasinna ... Hjartanlegar móttökur fyrir Morrison." Á ýmsum sviðum hafa málin þróast til betri vegar i Suður- Afríku. Til dæmis var ég furðu lostinn yfir því, hversu margir úr hópi blaðamanna eru þeldökkir. Þegar ég var siðast I Suður- Afriku, birtu engin blöð fréttir, þar sem blökkumenn komu við sögu, og mín hefði aldrei verið getið með nafni, hvorki í blöðum enskumælandi manna né Búa. Mér þótti það mjög undarlegt og jafnframt ánægjulegt að vera orð- inn fréttamaður hjá blöðum, sem %aldrei höfðu nefnt mig né nokk- urn annan blökkumann með nafni um það leyti er ég fluttist frá landinu. Þar sem hvitir menn og blökku- menn starfa saman, hafa þeir ekki sameiginlegt mötuneyti, enda er gert ráð fyrir þvi í lögum, að mötuneyti þeirra séu aðskilin. Percy Qoboza, ritstjóri hins virta blaðs blökkumanna The World, skýrði mér frá því, hvernig hann hefði brugðizt við þessum fyrir- mælum: „1 fyrstu þurftum við að setja upp skilvegg í matstofunni, þvi að prentararnir voru hvitir. Um leið og umsjónarmaður húss- ins gekk í burtu, gef ég hins vegar skipun um að skilrúmið yrði fjar- lægt. Prentararnir neituðu að matast á sömu matstofu og blökkumenn og kvörtuðu við um- sjónarmanninn. Hann hafði þegar í stað samband við mig og hótaði mér öllu illu, ef ég léti ekki skil- rúmið á sinn stað aftur. Ég neit- aði, og sagði honum, að engin aðskilnaðarstefna skyldi vera við lýði á blaði, þar sem ég væri rit- stjóri. Ég spurði hvort hann vildi ekki kæra mig og láta senda mig í fangelsi. Ég var ekki handtekinn, og skilrúmið var ekki sett upp aftur. t fyrstu neituðu prentar- arnir að matast með blökkumönn- unum, en hafa nú látið undan síga og allir borða saman á matstof- unni. Heimurinn stendur samt enn, og enginn hefur látið lit, að þvi er ég bezt veit.“ Hins vegar kom mér á óvart afstaða hinna svokölluðu frjáls- lyndu blaða, the Rand Daily Mail og Sunday Times. Fréttamenn frá báðum þessum blöðum áttu við mig löng viðtöl, en birtu ekki staf- krók úr þeim. Þeir vildu, að ég hellti úr skálum reiði minnar, ysi formælingum yfir stjórn Suður- Afríku, yrði hetja og sendur úr landi á nýjan leik. Þeim fannst litið til um það, að ég var þakklát- ur stjórnvöldum fyrir að fá að koma heim aftur, og fyrir að lengja dvalarleyfi mitt um þrjár vikur. UMGENGISVENJUR ÖÞVINGAÐRI EN AÐUR Það orkaði mjög undarlega á mig að vera aftur i Suður-Afriku. Flest kom mér kunnuglega fyrir sjónir, en samt fann ég fyrir tals- verðum breytingum. Ef einhver hefði séð mig á gangi með hvítum manni fyrir 17 árum, hefði öllum þótt það mjög grunsamlegt. Blökkumenn hefðu talið, að ég hefði gengið hvitum mönnum á hönd og hvítir menn hefðu grun- að mig um hin óþokkalegustu bolabrögð. Nú orðið er það ekki óalgeng sjón að sjá hvíta menn og svarta i hrókasamræðum á götum úti. Sums staðar virðast umgengnis- venjur miklu óþvingaðri en ég átti að venjast. Nú er ekki lengur sérstakir afgreiðslusalir fyrir hvíta menn og svarta, — hvim- leiður minnisvarði um fyrri tíð. Dag nokkurn, þegar ég var á hraðri ferð, stöðvaði ég leigubil, sem hvitur maður ók. Hann varð dálitið hvumsa, en ók mér samt þangað, sem ég bað hann um. Enda þótt engin merki séu á leigubílum um að þeir séu aðeins ætlaðir hvitum mönnum, ber fólki ef til vill að skilja að svo sé. Þegar ég kom til London, var ég orðinn því svo vanur að leita að skiltum, þar sem stóð „Aðeins fyr- ir hvita“, „Aðeins fyrir aðra en hvita,“ að það tók mig 6 mánuði að venja mig af því. En þegar ég kom aftur heim til Suður-Afríku, fór ég óafvitandi á svig við ýmsar reglur um aðskilnað kynþáttanna, sem enn eru við lýði og kunnugir vara sig á. GREINILEGT MERKI UM BREYTTAN TlMA Eitt sinn fór ég inn á al- menningssalerni og veitti þvi at- hygli, að menn horfðu á mig undr- unaraugum. Eg minntist á þetta atvik við mág minn, og hann skýrði mér þá frá þvi, að salernið væri einungis ætlað hvítum mönnum. Ef ég hefði komið inn á slíkan stað fyrir 17 árum, hefði ugglast einhver hrópað upp yfir sig, kallað á lögregluna eða ráðizt á mig með svívirðingum. Þetta er greinilegt merki um breytta tima. Stundum var ég gripinn skelf- ingu, sem átti rót sina að rekja til unglingsára minna I Suður- Afríku. Eitt sinn var ég t.d. í veitingavagni i lest, og áttaði mig skyndilega á því, að ég var þar einn innan um hvíta menn. Þá varð ég allt í einu heltekinn ótta við að verða rekinn út eða svivirt- ur, laminn eða sendur i fangelsi. Það sem hrærði mig einna mest, var að sjá blökkumenn við störf, sem þeir hefðu alls ekki getað fengið hér áður fyrr. I bönkum og stórverzlunum starfa nú hvitir og svartir hlið við hlið og sinna sömu viðskiptavinunum. Ung frænka mín starfar við afgreiðslu i stórri og virtri verzlun, og hún varð mjög undrandi, þegar ég sagði henni, að það kæmi mér á óvart, að hún hefði getað fengið þar vinnu. Hún fékkst ekki til að trúa því, að áður fyrr hefði blökku- mönnum verið óheimilt að vinna með hvítum mönnum. Þegar á allt er litið, er það greinilegt, að blökkumenn eru miklu betur sett- ir í Suður-Afríku, en. þegar ég fluttist þaðan. En hversu djúpt rista þessar breytingar og hvað skipta þær í rauninni miklu máli? Utlending- um kann að virðast þær harla ómerkilegar, en að mati margra blökkumanna, eru umbætur þess- ar, þótt litlar séu, verulegt fram- faraspor, og hafa kveikt þeim vonir í brjósti um, að þeirra bíði ný og betri kjör. En þeim er víða bannaður aðgangur. Þeir eru handteknir og hafðir í haldi fyrir litlar sem engar sakir. Fréttir ber- ast um, að mönnum sé enn mis- þyrmt í fangelsum, og fangar halda áfram að „falla út um glugga" á lögreglustöð John Vorsters með dularfullum hætti. Þrátt fyrir allt þetta, virðist það ekki almenn skoðun meðal blökkumanna i Suður-Afríku, að þeim beri að hrifsa til sín völdin með blóðugri byltingu. Það kom mér verulega á óvart er ég komst að raun um að samtök, er starfa erlendis t.d. Afríska þjóðarráðið og Afríska þjóðarráðið eiga sér fáa formælendur I Suður-Afriku. VILJA SJALFSTÆÐA LAUSN — EKKI ERLENDA HUGMYNDAFRÆÐI Að undanförnu hafa komið fram á sjónarsviðið ungir, fram- sæknir blökkumenn, sem vilja breytingar, en eru bjargfastir í þeirri trú, að þeir geti knúið þær fram sjálfir. Þeir visa á bug öllum fullýrðingum um, að þeir séu verkfæri erlendra samtaka og hreyfinga, og þeim er sérlega uppsigað við þá staðhæfingu, að það hafi verið Afríska þjóðarráð- ið, sem skipulagði uppreisnina i Soweto. Kynblendingar og annað litað fólk I Suður-Afríku er um tvær milljónir talsins, og þeir hafa ávallt verið eins og á milli steins og sleggju í átökum hvitra manna og svartra. Afstaða þeirra verður stöðugt erfiðari, enda.gerast mót- mælaraddir þeirra æ háværari. Og hversu lengi munu svartir menn og kynblendingar láta sér nægja að mótmæla? Það er ljóst, að gera verður þegar gangskör að róttækum breytingum i landinu. Búar, sem ég átti samræður við, spurðu mig m.a. þessarar spurn- ingar: „Hversu lengi munu svart- ir menn halda vinarhönd sinni útréttri?" Hvítir menn gera sér grein fyr- ir því, að þær endurbætur, sem gerðar hafa verið, eru allsendis ófullnægjandi, og meira verður að fylgja á eftir, þótt það kosti mikla eftirgjöf og fórnir af þeirra hálfu. Pik Botha, utanríkisráð- Framhald á bls. 33 Sprengdu 1 tonn af dynamiti í í»verölduvatni Þessa mynd tók Ernst Kettler kvikmyndatöku- maður hjá KVIK við Þverölduvatn í fyrradag þegar verið var að sprengja í vatninu í sam- bandi við bergrannsóknir þær sem nú standa yfir við landið á vegum ís- lendinga, Þjóðverja og Rússa. Sprengt er í línu gegn um landið, fyrir sunnan land, i Þveröldu- vatni, við Kröflu og út af norðausturhorni landsins. í þessari sprengingu í Þveröldu- vatni var notað eitt tonn af dynamiti. Var því kom- ið fyrir á botni vatnsins á 15 m dýpi, en vatnssúlan sem steig upp var um 15 m á hæð og 50 metrar í þvermál. Ernst er að kvikmynda sprengingarnar fyrir þýzka sjónvarpið sem er að gera leikna kvikmynd um margs konar fyrir- bæri í náttúrunni og not- ar hann m.a. kvikmynda- vél sem tekur 200 myndir á mínútu þannig að þegar fyrst örlar á vatns- súlunni er hún eins og lítil vatnsbóla, en smátt og smátt ris hún upp í fullt veldi. Minni myndin sýnir bát fara með dynamit- hleðslu út á vatnið, en mest hafa þeir sprengt 1,5 tonn af dynamiti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.