Morgunblaðið - 21.07.1977, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. júll 1977
39
Blöðrumark gaf
Svíunum sigurinn"
Rabbað við leikmenn og
þjálfara að leik loknum
ÞAÐ VAR döpur stemning i bún-
ingsherbergjum íslenzku lands-
liðsmannanna að loknum leiknum
I gærkvöldi og reyndar voru
Sviarnir ekkert hressir heldur.
Þeir voru að vísu ánægðir með
sigurinn, en gera sér grein fyrir
að þeir verða að standa sig betur
ef þeir ætla að ná árangri í úrslit-
um Heimsmeistarakeppninnar í
Argentinu næsta haust. Við tók-
um nokkra leikmenn og þjálfara
liðanna tali og fer spjall við þá
hér á eftir:
0 — Það næsta, sem ég hef kom-
izt þvi að fá nóg af knattspyrnu,
sagði Knapp landsliðsþjálfari.
— Ég hef sjaldan verið eins
leiður eftir nokkurn knattspyrnu-
leik og ég held ég hafi aldrei verið
eins nærri því að fá nóg af þessari
íþrótt, sagði Tony Knapp. — Þeir
áttu ekki eitt einasta tækifæri í
leiknum, en við sóttum hins vegar
eins mikið og við framast þorðum.
Ég verð bara veikur þegar ég
hugsa um þetta. Svo aðeins 7 min-
útum fyrir leikslok skora þeir
mark, sem ekki kom einu sinni úr
marktækifæri. Boltinn fór bara i
Sviann. I sjálfu sér er ég ánægður
með liðið, við vorum án tveggja af
okkar sterkustu leikmönnum,
Ásgeirs og Jóhannesar, en nýju
mennirnir stóðu sig ágætlega. En
það var ekki sanngjarnt að við
skyldum tapa þessu, þetta er það
næsta þvi sem ég hef komizt að
hætta að hugsa um knattspyrnu,
endurtók Knapp að lokum.
0 — Hálfgert blöðrumark, sagði
Sigurður fyrirliði og markvörður
— Það var sárt að tapa þessum
leik, sagði Sigurður Dagsson,
markvörður, sem nú var i fyrsta
skipti fyrirliði landsliðsins. — Við
verðskulduðum a.m.k. annað stig-
ið í þessum leik. Liðið spilaði
ágætlega í þessum leik, en þetta
var þó enginn stórleikur. Já ég
held að jafnteflið hefði verið
sanngjarnast. Þegar markið kom
þá var ég aðeins of seinn út úr
markinu til að ná fyrirgjöfinni,
Viðar náði síðan aðeins að breyta
stefnu knattarins og af Svianum
Islenzku leikmennirnir voru að vonum óhressir eftir leikinn I gærkvöldi og dauf stemmning I
búningsherberginu. „Þetta var blöðrumark" sem við fengum á okkur, sagði fyrirliðinn, Sigurður
DagSson.
nr. 9 hrökk knötturinn i netið.
Þetta var í rauninni ekkert mark,
hálfgert blöðrur.iark, sagði
Sigurður Dagsson.
0 — Svo kom þessi dreki og
skoraði, sagði Viðar.
— Ég náði rétt aðeins að snerta
boltann þegar hann kom fyrir
markið, en það var ekki nóg.
Knötturinn fór framhjá tveimur
mönnum og sVo kom þessi dreki
og skoraði. Ég held hann hafi þó
ékkert vitað hvað hann var að
gera, boltinn fór bara í hann.
0 — Gáfulegt f ellinni að hugsa
um fyrsta landsleikinn, sagði
Albert.
— Ég hefði viljað fá meiri tíma
I mínum fyrsta landsleik, sagði
nýliðinn Albert Guðmundsson
eftir leikinn. — Eg fór inn á
þegar 2—3 minútur voru eftir og
kom aldrei við boltann i fyrsta
landsleiknum. Það verður gáfu-
legt i ellinni þegar maður fer að
hugsa um fyrsta landsleikinn.
Tvær minútur og engin snerting.
Ef skiptingar eiga að gera eitt-
hvert gagn verða menn að fá
minnst 10—15 mínútur til að ná
að sýna eitthvað.
0 — Átti von á þeim betri, sagði
Matthfas.
— Ég var mjög spenntur fyrir
þennan leik, það hafa verið leið-
indi i kringum landsleiki mina
fyrir Island í Halmia og sú spenna
hrjáði mig i þessum leik, sagði
Matthías Hallgrimsson. — 1 leik-
hléi sá Tony að ég var illa upp-
lagður og spurði mig hvort ég
vildi skipta, ég gat ekki annað en
svarað því játandi, fann að ég var
ekki eins og ég á að mér. Það má
mikið breytast ef ég verð áfram
hjá Halmia, ég hef þegar fengið
eitt tilboð frá liði i 1. deildinni í
Svíþjóð og reikna með að ég taki
því.
— Mér fannst Svíarnir ekki
eins góðir í þessum leik og á móti
Danmörku, en þó voru þeir með
sama lið. Ég átti von á þeim betri.
Við vorum mun betra liðið i fyrra
hálfleiknum, en þeir hins vegar í
þeim seinni, en við áttum þó alls
ekki að tapa þessum leik, sagði
Matthias að lokum.
O — Oánægður með sjálfan mig,
sagði Ingi Björn.
— Ég er mest óánægður með
sjálfan mig i þessum leik, sagði
Ingi Björn Albertsson að leiknum
loknum. — t seinni hálfleiknum
var ég einhverra hluta vegna ekki
I takt við leikinn, e.t.v. hafa stöðu-
breytingarnar gert það, en það
hefði þó átt að hjálpa mér að fá
Guðmund Þorbjörnsson við hlið-
ina á mér. Mér finnst Sviarnir
lélegastir af þeim landsliðum,
sem við höfum leikið gegn i ár og
því enn sárara að tapa fyrir þeim.
Þeir mega taka sig mikið saman í
andlitinu ef þeir ætla sér árangur
í Argentínu.
0 — Vil helst ekkert segja,
sagði Ölafur.
— Ég vil bara helzt ekkert
segja um þennan leik og gleyma
honum sem fyrst, var það fyrsta
sem Ölafur Sigurvinsson sagði er
við ræddum við hann i búnings-
klefanum. — Það var ferlegt að fá
þetta mark á sig þegar svona litið
var eftir og það algjört heppnis-
mark. Við hefðum að minnsta
kosti átt að ná jafntefli i leiknum.
I fyrri hálfleiknum var ég eitt-
hvað slappur i maganum og bað
þvi um að fá skiptingu í leikhléi,
en Knapp vildi það ekki. I seinni
hálfleiknum lagðist krankleikinn
og ég er bara sæmilega ánægður
með minn hlut, sagði Ölafur.
• — Ánægður með sigurinn,
ekki annað sagði Aby.
— Islenzka liðið er mjög gott
lið, sagði Georg Aby Erikson,
þjálfari Svíanna að leiknum lokn-
um. — Ég vissi nokkurn veginn
að hverju ég gekk, það eru ekki
nema góð lið, sem ná þeim
árangri að tapa aðeins með einu
marki gegn liðum eins og lands-
liðum Belgíu ög Hollands. Ég er
ánægður með sigurinn, ekki ann-
að í þessum leik, við getum betur
og verðum að gera það i Argen-
tinu, en þetta er talsvert annað lið
en það sem við höfum þegar at-
vinnumennirnir okkar eru með. I
íslenzka liðinu skar sig enginn
einn útúr, þetta er gott lið, sem
vinnur saman sem heild, sagði
Aby að lokum.
Leikurinn ekki eins
góður og veðrið
ELMAR Geirsson er nýlega
kominn heim til Islands frá
Þýzkalandi, þar sem hann
stundaði nám i tannlækningum
og lék jafnfram knattspyrnu
með atvinnu- og áhugamanna-
liðum. Það er orðið nokkuð
langt siðan Elmar klæddist
landsliðspeysunni siðast, en
hér fyrr á árum þótti hann
sjálfsagður maður I landsliðið.
Elmar var meðal áhorfenda að
leiknum { gærkvöldi og
Morgunblaðið fékk hann til
þess að segja lesendum frá
leiknum, eihs og hann kom
honum fyrir sjónir:
— Maður er að sjálfsögðu
vonsvikinn yfir því að leikur-
inn skyldi tapast því jafntefli
virtist blasa við. En við þessu
er ekkert að segja, svona getur
oft farið i jöfnum leik. Jafn-
tefli hefðu verið góð úrslit fyrir
tsland þvi Sviar eru í fremstu
röð knattspyrnuþjóða eins og
við vitum mætavel. Maður
hafði það á tilfinningunni að
Sviarnir gerðu sig ánægða með
jafntefli og það sýnir vel hve
knattspyrnunni hefur fleygt
fram hjá okkur tslendingum.
VANTAÐI NEISTANN
— Um leikinn sjálfan er það
að segja, að ég varð fyrir svo-
litlum vonbrigðum. Það er vist
óhætt að segja að leikurinn
hafi ekki verið eins góður og
veðrið, þvi miður. Það var eins
og vantaði neistann, sem færði
okkur sigurinn á móti Austur-
Þjóðverjum og fleiri góða
sigra. Neistann, sem kveikir
sigurbálið. Að visu vantaði
sterkustu stoðir liðsins, þá
Asgeír Sigurvinsson, Jóhannes
Eðvaldsson og Guðgeir Leifs-
son, en þrátt fyrir það fór mað-
ur á völlinn með þá von í
brjósti að liðið myndi ná sinum
bezta leik. lslenzka liðið byrj-
aði mjög vel, sóknin var vel
leikin með Matthias sem bezta
mann en brátt komu í Ijós
megingallar fslenzka liðsins f
þessum leik. Miðjumennirnir
féllu of mikið inn i vörnina og
tengslin rofnuðu milli miðju-
manna og sóknarmanna. Vörn-
in var yfirleitt traust og af og
til náði liðið snörpum sóknar-
lotum en ekki eins mörgum og
maður hafði vonað.
DÆMIGERÐ LEIKAÐFERÐ
FYRIRTONY KNAPP
— Um leikaðferð fslenzka
liðsins er það að segja, að þetta
var dæmigerð leikaðferð fyrir
Tony Knapp. Það er mjög áber-
andi að við höfum náð upp
sterkum landsliðskjarna og
gaman hefði verið að sjá alla
okkar fremstu menn með i
þessum leik. 1 gamla daga var
engin festa f þessu, það var
nánst skipt um lið milli leikja
en nú er þetta alveg breytt, sem
betur fer. Þetta hefur smá sam-
an verið að koma sfðan i leikn-
um fræga á móti Dönum 1967,
sem við töpuðum 14:2 og há-
marki hefur landsliðið náð
undir stjórn Tony Knapp.
Kjarninn f liðinu er traustur og
það er áberandi, að strákarnir,
sem átt hafa þess kost að fara
til atvinnuliða, hafa mikið lært
og tekið geysilegum framför-
um. Landsliðið hefur sfðan lif-
að á þessum strákum, ef svo má
segja, og ég tel það alranga
stefnu að hindra það að strákar
komizt til atvinnuliða, ef þeim
stendur það til boða.
MIÐJAN VEIKI
HLEKKURINN
— Það er skrftið fyrir mig, að
sitja núna f dómarasæti, þvf ég
er vanari þvf að hafa verið
dæmdur af blaðamönnum en að
dæma sjálfur. En gagnrýni á
rétt á sér, hvort sem hún er
jákvæð eða neikvæð, hvort sem
hún gleður mann eða særir,
eins og stundum kom fyrir í
gamla daga. Ef litið er á ein-
staka leikmenn og byrjað á fyr-
irliðanum Sigurði Dagssyni,
verður að segja að það er
ómetanlegt að hafa þá gömlu
hetju f markinu. Reynsla hans
vegur þungt á metunum. Það
reyndi ekki mikið á Sigurð I
kvöld en það sem hann gerði
var óaðfinnanlegt. Aftasta
vörnin stóð vel fyrir sínu, þar
„brilleraði“ enginn né heldur
voru gerð afdrifarfk mistök.
Marteinn og GIsli voru. sterku
mennirnir f vörninni að mfnu
mati. Miðjan var veiki hlekkur-
inn f fslenzka liðinu og kannski
var það ósköp eðlilegt. Þetta
eru erfiðustu stöðurnar f liðinu
og ekki hlaupið að þvf fyrir
hvern sem er að taka þar stöður
manna eins og Asgeirs Sigur-
vinssonar og Guðgeirs Leifsson-
ar.
Af miðjumönnunum fannst
mér Atli áberandi frfskastur.
Framlfnumennirnir höfðu Ifka
erfitt hlutverk, þar sem tengsl-
in voru lftil við miðjumennina
og Svfarnir mjög sterkir i vörn-
inni. Matthfas byrjaði mjög vel
og ég hefði viljað sjá hann með
f seinni hálfleik, en hann var
tekinn útaf f hálfleik, hverju
sem það sætti. Ingi Björn og
Teitur börðust vel, sérstaklega
þó Teitur, en uppskáru ekki
árangur erfiðisins. Guðmundur
fékk erfitt hlutverk, að koma
inn f leik þar sem neistann
vantar. Þegar svo er vill maður
fljótt detta niður i sama far og
aðrir þótt maður ætli sér ann-
að.
BJARTSYNN ÞRATT FYRIR
TAPIÐ
— Ég vil Ijúka þessu spjalli
með þvf að endurtaka það, að
við erum búnir að koma okkur
upp góðu liði, betra liði en við
höfum áður átt. Þetta lið getur
náð árangri á móti hvaða liði
sem er, ef allir okkar beztu
menn eru með. Þvf er ég bjart-
sýnn á góðan árangur f leikjun-
um f Hollandi, Belgfu og Norð-
ur-__
Rabbað við Elmar Geirsson um landsleikinn við Svía