Morgunblaðið - 07.09.1977, Page 12

Morgunblaðið - 07.09.1977, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 12 / Arbæjarsafn heimsótt Solveg Falldin, for- sætisráðherrafrú Svíþjóðar, fór í kynnis- ferð um Árbæjarsafnið í gærmorgun undir leið- sögn Nönnu Hermanns- son, forstöðukonu Árbæjarsafns. Nanna Hermannsson (t.v.) sýnir Solveg Fálldin strokk. Solveg Fáildin og Nanna Hermannsson skoða út- skorinn ask. Kirkjan og bærinn voru skoðuð. Þótti frú Fálldin sérstaklega gam- an að sjá fjósið, og lét í ljós undrun sína yfir hve langt fjárhúsin væru frá bænum, en eins og kunn- ugt er eiga þau hjónin búgarð í Svíþjóð. Næst var haldið í hús- ið, sem áður stóð í Þing- holtsstræti 9, og fór þar fram dálítil tóvinnusýn- ing fyrir gestina. Fékk frú Fálldin þar handgert sjal að gjöf, og einnig band til að hekla eða prjóna úr. Síðan var farið í skemmuna til að sjá eim- reiðina, og lét frú Fálldin í ljós undrun yfir henni, en sýndi áhuga gömlum myndum af Reykjavík, eftir Jón Helgason, sem eru til sýnis í skemm- unni. , Að lokum var drukkið kaffi í Dillonshúsi, og þar voru á boðstólnum pönnukökur upp á gamla móðinn. Síðdegis var svo Solveg Fálldin boðið að skoða ís- lenzkan Heimilisiðnað í Hafnarstræti. Gekk hún um verzlunina og sýndi mörgum íslenzkum mun- um áhuga. Keypti hún þar fimm lopapeysur, húfu og vettlinga. Gestirnir fyrir utan Árbæ. Frú Fálldin ritar nafn sitt í gestabók Arbæjarsafns. „Metum mikils þann áhuga á því að efla tengsl Norðurlandanna” Ræða Geirs Hallgrímssonar forsætis- ráðherra í kvöldverðarboði til heið- urs sænsku forsætisráðherrahjónunum Svíþjóð skipar heiðurssess í fornnor- rænni menningararfleifð — i sam- eiginlegri menningararfleifð okkar — sem heimkynni Ása á jörðu. I Yng- lingasögu Snorra Sturlusonar — hin- um goðfræðilega inngangi að frásögn- um Heimskringlu um konungaættir Norðurlanda — er þessari forsögulegu Svíþjóð goðfræðinnar lýst á ógleyman- legan hátt, sem landi árs og Fróðafrið- ar, þar sem þeir sátu í friði og velsæld, Óðinn að Sigtúnum og Freyr að Upp- sölum. Það erþví sérstakt fagnaðarefni að bjóða velkominn til íslands Thor- björn Fáildin, forsætisráðherra Svi- þjóðar, einnig sem bónda í Ramvik í Adalen, er með glæsilegum hætti sam- einar arfleifð og nýjan tíma i sænsku þjóðfélagi. Við bjóðum einnig velkomna frú Soiveig Fádin og föru- neyti þeirra. Það er von mín, að á þeim dögum, sem þau dveljast hér, takist okkur að kynna þeim sem flesta þætti íslenzks þjóðlifs, auk þess mun gefast tækifæri til að ræða um sameiginleg áhugaefni. Með íslandsferð sinni hefur Thor- björn Fálldin heimsótt öll Norðurlönd- in á fyrsta starfsári sínu sem forsætis- ráðherra. Við metum mikils þann áhuga á þvi að efla tengsl Norðurland- anna, sem hann sýnir með þessu. Hing- að til lands kemur hann í miklum önn- um eftir að hafa beitt sér fyrir róttæk- um efnahagsráðstöfunum til styrktar atvinnu- og efnahagslífi Svíþjóðar. Það er hlutskipti stjórnmálamanna að velja og hafna leiðum til að auka velsæld þjóða sinna inn á við og út á við. Þori þeir ekki að takast á við aðsteðjandi vanda, eru þeir ekki trausts verðir. Hins vegar mega ákvarðanir manna sín lítils, ef þær njóta ekki skilnings. Nú á tímum, þég- ar þjóðirnar eru hver annarri jafn háð- ar og dæmin sanna, er ekki síður nauðsynlegt að skilningurinn eflist þjóða á milli en meðal einstaklinga sömu þjóðar. Engin vandamál hafa komið upp í samskiptum Svíþjóðar og íslands um langan aldur. Annað er, að færa má ýmis rök að því, að heimsmynd þjóð- anna sé að nokkru leyti ólík. Má ekki sizt rekja það til ólikrar landfræðilegr- ar legu. Heimsmynd okkar íslendinga tekur mið af legu okkar i miðju Atlantshafi á vesturmörkum Evrópu, ef þannig má að orði komast. Svíar eru miklu bundnari öðrum Norðurlöndum og ríkjunum við Eystrasalt. En nú á tímum, þegar fjarlægðir eru orðnar að engu, tengjast lönd okkar með nýjum hætti. Þrátt fyrir að þjóðir okkar hafa valið mismunandi leiðir í öryggismál- um, eru þær báðar hluti af hinu nor- ræna jafnvægi á því sviði og tekur þannig hvor tillit til hagsmuna hinnar. Án þess brysti mikilvæg forsenda fyrir sjálfstæði þeirra. Bæði innan vébanda hinnar eigin- legu norrænu samvinnu og í samstarfi Norðurlanda á vettvangi Sameinuðu þjóðanna höfum við greinilega fundið til þeirrar samstöðu, sem á rætur að rekja til þess sameiginlega stjórnmála- lega ásetnings okkar að tryggja sjálf- stæði þjóðar okkar og lýðræðislega þjóðfélagsskipan og að stuðla að friði, frelsi og réttlæti til handa öllum þjóð- um heims. Einmitt vegna legu okkar viljum við Islendingar rækta tengsl okkar við Norðurlönd eins og kostur er. Við ger- um okkur grein fyrir þvi, að það liggur ekki í hlutarins eðli, að aðrir telji okk- ur til Evrópuríkja. I þeim hópi viljum við vera og leið okkar til Evrópu liggur um Norðurlöndin. Þar höfum við og mætt skilningi. Þegar við gerðumst samaðilar Svía og annarra Norðurlandaþjóða að EFTA, var Norræni iðnþróunarsjóður- inn stofnaður til að auðvelda íslenzk- um iðnaði aðlögun að hinum nýja markaði. Hefur sú ráðstöfun reynzt okkur heilladrjúg, eins og hjálpar- höndin, er okkur var rétt við eldgosið í Heimaey. íslendingar hafa einkum frá þvi á fjórða tug þessarar aldar sótt þekkingu af mörgu tagi í háskólagreinum og ýmiss konar sérmenntun annarri til Svíþjóðar. Þá hefur fjöldi íslenzkra nemenda stundað nám i sænskum lýð- háskólum og notið til þess stuðnings af sænskri hálfu fyrir atbeina Norræna félagsins i báðum löndunum. Sænsk stjórnvöld og einstakar mennta- stofnanir hafa oft sýnt mikinn velvilja til að greiða fyrir islenzkum umsækjendum um nám sem ekki er unnt að stunda hér á landi. Sænskir námsmenn á Islandi eru eðlilega mun færri en islenzkir i Svíþjóð, en engu að síður ávallt nokkrir . Er Það ósk min, að þessi samskipti landa okkar megi þróast og dafna enn á komandi tímum og hvetur það vonandi til þess, að sænska hefur nú verið viðurkennd sem valgrein i almennu kennaraprófi við Kennaraháskóla tsiands. Virðulegu gestir, Lýsing Snorra á Svíþjóð goðsagn- anna sem landi Fróðafriðar og Upp- salaauðs hefur bersýnilega reynst for- spá. Sænska þjóðin hefur hér á Islandi, eins og hvarvetna um heiminn, notið aðdáunar sem friðsöm þjóð, er jafn- framt hefur gerzt brautryðjandi á sviði tæknilegrar, efnahagslegrar og félags- legrar þróunar. íslendingum þykir því sérstaklega vænt um að forsætisráðherra Svíþjóð- ar, Thorbjörn Fálldin, og frú Solveig Fálldin skuli komin í heimsókn hingað til lands. Bið ég ykkur að lyfta glösum þeim til heiðurs með ósk um að vinátta Svíþjóðar og Islands megi enn eflast um alla framtið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.