Morgunblaðið - 07.09.1977, Page 17

Morgunblaðið - 07.09.1977, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 17 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjawtk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson Auglýsingastjóri Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiösla Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. ÁskriftargjaId 1300.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70.00 kr. eintakiS. Óánægja með Kerfið Olánægja almennings og kvartanir einstaklinga og at- Ivinnufyrirtækja vegna samskipta við hið svonefnda Kerfi er komin á það stig að tímabært er orðið fyrir þá, sem æðstu ábyrgð bera á þessu Kerfi að huga að því, hvernig unnt er að breyta viðmóti þess gagnvart hinum almenna borgara í landinu. Þessi óánægja hefur margfaldazt á undanförnum árum eftir því sem yfirbygging samfélagsins hefur orðið viðameiri og flóknari. Ber- sýnilegt er, að almúgamaðurinn telur, að hann eigi mjög undir högg að sækja í hvert skipti, sem hann leitar eftir þjónustu hjá því opinbera bákni, sem hann stendur undir með skattgreiðslum sínum. Þess vegna er nú svo komið, að líta verður á þessa óánægju og umkvartanir sem meiriháttar pólitískt mál og á herðum hins pólitíska valds hvílir sú ábyrgð að gera ráðstafanir til þess að Kerfið líti á sig sem þjónustuaðila við almenning en ekki sem yfirvald, sem hafi þann tilgang fyrst og fremst að þvælast fyrir og koma í veg fyrir að hinn almenni borgari fái úrlausn sinna mála. Ótal dæmi er hægt að nefna þessum staðhæfingum til stuðnings, en hér skal látið við það sitja að vitna einungis til stuttrar greinar eftir Óskar Teitsson, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann gerir grein fyrir tilraunum sínum til þess að fá úr því skorið, hvort sjúklingur eigi að greiða hjúkrunaraðstoð í sjúkraflugi eða hvort tryggingarkerfið eigi að greiða hluta af því. Sagan hefst á árinu 1974, en nú síðsumars 1977 er henni ekki lokið enn og er hér ekki lengur um að ræða peningaupphæðina, sem nam 6.000,- kr. heldur rétt hins almenna borgara. Málið hefur gengið milli sýslumanns og Tryggingastofnunar ríkisins og greinarhöfundur segir í lok greinar sinnar: ,,Mig skiptir ekki máli peningaupphæðin heldur hver er réttur minn og einnig, hvort hinn almenni borgari eigi ekki rétt á sómasamlegri afgreiðslu hjá opinberum starfsmönnum á erindum, sem til þeirra berast, eða hvort þeir geti einfaldlega afgreitt þau í ruslakörfuna." Þetta er aðeins lítið dæmi af fjölmörgum um þá tilfinningu, sem almenningur fær fyrir því, að hann fái ekki þá þjónustu, sem honum ber hjá þeim stofnunum og aðilum, sem hafa tekið að sér að annast hana fyrir greiðslu úr vasa skattborgaranna. Hér hefur verið nefnt dæmi um tryggingamál. Eins væri hægt að ræða um gang mála í dómstólakerfinu, um afgreiðslu mála hjá sveitarfélögum eða í ráðuneytum eða yfirleitt í hvaða opinberri þjónustu, sem um erað ræða. Þeir starfsmenn sem hér eiga hlut að máli, vilja áreiðanlega gera vel, sem einstaklingar. En á löngum tíma hefur áreiðanlega þróazt almenn afstaða eða öllu heldur hugarfar, sem er á þann veg, að starfsmenn Kerfisins líta ekki á sig sem þjónustuaðila við almenning, sem beri að leggja sig í lima við að greiða fyrir erindum og málaleitun borgaranna eftir því sem lög og reglur segja til um, heldur álíta þeir sig valdaaðila, sem hefur tilhneig- ingu til þess að beita valdi sínu, sem frá borgurunum errunnið, þannig að óánðegju veldur. Hér er þörf hugarfarsbreytingar og bersýnileg^/nauðsynlegt að þjálfa starfsfólk hins opinbera kerfis í því að líta á sig sem þjónustuaðila en ekki valdaaðila. Vel má vera, að starfsmönnum Kerfisins þyki þessi gagnrýni ósanngjörn og þeim þyki nærri sér höggvið með fullyrðingum af þe^u tagi, en ef svo er, þá hefur af einhverjum ástæðum mýndazt djúp gjá skilningsleysis á milli þeirra og þess almenn- ings, sem þeír hafa tekið að sér að þjóna, og þá er að ráða bót á því. Ekki ber að draga í efa, að opinberir aðilar fá oft tilmæli eða málaleitan, sem á engan hátt samrýmist landsins lögum og reglum um opinbera þjónustu. í sumum tilvikum kunna slík lög og reglur að vera úrelt og þá er það löggjafarvaldsins að breyta þeím. í öðrum tilvikum er vafalaust um að ræða órökstuddar óskir af hálfu borgaranna og þá ber að svara þeim með viðeigandi hætti. En svo almennar eru þessar kvartanir orðnar og svo mikil óánægja manna, jafnt einstaklinga sem atvinnufyrirtækja, með samskipti sln við Kerfið, hvort sem það er á landsmælikvarða eða I sveitarstjórnum, að hinir kjörnu fulltrúar fólksins geta ekki lengur leitt þessa óánægju hjá sér og hljóta að leita leiða til þess að tryggja, að skattborgararnir, sem með skattgreiðslum af aflafé sínu standa undir öllu þessu bákni, fái í staðinn það sem þeim ber, góða þjónustu, skjót svör og afgreiðslu mála sinna og að hugarfarið, sem að baki liggur, sýni vilja og skilning á því, að um þjónustustarfsemi er að ræða en ekki valdboð Falldh í heimsókn hjá íslenzk- um ráðamönnum í gær murujurii r aiiuni r*uir viu uiauauicnu. Opinberri heimsókn sænska forsætisráðherrans. Thorbjörns Fálldin, og konu hans, Sólveigar, lauk í gærkvöldi, en forsætisráðherrahjónin héldu heimleiðis til Svíþjóðar ásamt fylgdarliði í morgun. í gærmorgun ræddi sænski forsætis- ráðherrann við forseta íslands, herra Kristján Eldjárn, og síðan átti hann viðræðufund með Geir Hallgrlmssyni forsætisráðherra i Stjórnarráðinu. Stóð sá fundur í um tvær klukkustundir, en aðstoðarmenn forsætisráðherranna sátu einnig fundinn. Gestirnir sátu hádegisverðarboð forsetja hjónanna á Bessa stöðum i gær og rómuðu menn veðurbliðuna þegar rennt var i hlað á forsetasetrinu. Glampandi sólskin, logn og bliða og land og húsakostur speglaðist í haffletinum. Um miðjan dag i gær tók Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri ásamt konu sinni, Sonju, á móti sænsku gestunum i Höfða, en þar voru einnig borgarfulltrúar Reykjavikur og aðrir forsvarsmenn. Síðdegis í gær heimsótti Fálldin Ólaf Jóhannesson og aðra framámenn Framsóknarflokksins, en það hefur verið siður Fálldins i heimsóknum hans til Norðurlanda að undanförnu að hitta að máli fulltrúa miðflokka i hverju landi. Var þessi heimsókn samkvæmt ósk Fálldins, en ekki liður í opinberu heimsókninni. _ . , ,, ... . . , ... ,. , . .. « , . . ■ r* . Sænsku torsætisraóherrahjonin koma í heimsókn í Hofða f gær, þar Síðan hélt Falldm til blaðamannafundar . Norræna husinu áður en haldið var til sem Bjrgir lsleifur kona hans og borgarful,trúar tóku á m6ti móttöku i sænska sendiráðinu og siðan til kvöldverðar sem sænsku forsætis- gestunum. Frá vinstri: Birgir tsleifur, Sonja, Sólveig, Thorbjörn, ráðherrahjónin buðu til i Þingholti í gærkvöldi. Erna Finnsdóttir og Geir Hailgrfmsson. Thorbjörn Fálldin, Geir Hailgrfmsson og Björn Bjarnason á blaðamannafundinum í Norræna húsinu f gær. Frú Halldóra Eldjárn og dr. Kristján Eldjárn taka á móti Sólveigu og Thorbjörn Fálldin á Bessastöðum í gær. Frá viðræðufundi Fálldins og Geirs Haligrlmssonar I Stjórnarráðinu í gær. Ljósmyndir Mbl. Friðþjófur. Thorbjörn Fálldin og Björn Bjarnason, skrifstofustjóri f forsætisráðuneytinu, á leið í Norræna húsið f gær, en Björn var, ásamt konu sinni, Rut Ingólfsdóttur, sérlegur fylgdarmaður sænsku forsætisráðherrahjónanna f tslandsheimsókninni. Gutenberg- málið: Ríkiðfórekki út fyrir mörkin” — segir Halldór E. Sigurðsson ráðherra „ÉG HELD ég muni það rétt, að þarna var ekki um það að ræða að hagræða neinu fyrir seljendurna, heldur sótti ríkið fast á um kaup- in og að viðskiptaþættirnir hafi þá sameinazt á þessum punkti“, sagði Halldór E. Sigurðsson, fyrr- verandí fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann, hvort ríkið hefði greitt fyrir því við kaup á húsnæði fyrir Ríkisprentsmiðj- una Gutenberg, að söluhagnaður seljenda yrði ekki skattskyldur. Halldór E. Sigurðsson kvaðst telja, að af hálfu rikisins hefði verið farið „út fyrir þau mörk, sem gátu talizt hæpin“ í málinu, sem hefði verið „viðskiptalegs eðlis“. Kvaðst hann telja, að ríkið hefði ekki tapað á kaupunum, þar sem harn héldi, að ekki hefði verið um hagnað seljenda að ræða í skattalegu tilliti. „Það var fyrst og fremst ríkið, sem sóttist eftir þessum viðskipt- um' vegna erfiðleika við rekstur Gutenbergs og ég held, að það hafi verið gætt fyllstu varúðar í málinu“, sagði Halldór E. Sigurðs- son. Morgunblaðið hafði einnig sam- band við Magnús Kjartansson, fyrrverandi iðnaðarráðherra og staðfesti hann, að hann hefði tek- ið ákvörðunina um að húseignin við Síðumúla yrði keypt fyrir Rík- isprentsmiðjuna Gutenbérg, en hins vegar hefði sér ekki verið kunnugt um með hverjum kjör- um húseignin var keypt, þar sem það hefði verið fjármálaráðuneyt- ið, sem gekk frá fjármálahlið málsins. Iðnkynning í Reykjavík 19. sep. - 2. okt: Verður umfangsmesta kynningarstarf sem fmmkvæmt hefut verið á einum stað á íslandi — segja forráðamenn Iðnkynningar í Reykjavík „EG HELD að þetta sé vfðtækasta sýningin sem efnt hefur verið til í þessari borg. Það er von okkar í iðnkynningarnefnd Reykjavfkur að hún verði til að hrífa borgarbúa, og reyndar landsmenn alla, og verði til þess að auka skilning á þörfum iðnaðarins í landinu, en iðnaðurinn er fjöregg þjóðarinnar og fái hann þá aðhlynningu og skilning sem hann á skilið, og þarfnast, þá á iðnaðurinn eftir að verða þjóðinni heilladrjúgur“. Þannig fórust orð Albert Guðmundssyni, formanni iðnkynningarnefndar Reykjavíkurborgar, er hann, ásamt öðrum nefndarmönnum og aðilum, sem máiið er skylt, k.vnnti fjölmiðlum skipulag Iðnkynningarinnar í Reykjavík en hún hefst 19. september nk. og lýkur 2. október. Iðnkynning í Reykjavík hefst með hátiðlegri athöfn í Austur- stræti. Þar munu Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri og Hjalti Geir Kristjánsson, formaður verk- efnaráðs íslenzkrar Iðnkynningar flytja ávörp, en að þeim loknum mun Björn Bjarnason, formaður landssambands iðnverkafólks setja iðnkynninguna. Sem ytra tákn iðnkynningarinnar verður gerður gosbrunnur í Austurstræti og mun hann verða innan í 8 metra háum turni sem bera mun merki Iðnkynningar og Reykja- vikurborgar. Annar ámóta turn verður reistur á eyju á Miklu- brautinni vestan Elliðaánna, og líkan af turninum og gosbrunnin- um verður á miðju gólfi Laugar- dalshallar á sýningu á Reykvísk- um iðnaði sem standa mun frá 23. september til 2. október. Forráðamenn Iðnkynningarinn- ar i Reykjavik telja að Iðnkynn- ing þessi verði umfangsmesta kynningarstarf sem framkvæmt hefur verið á einum stað á Is- landi. Stendur Iðnkynningin yfir í tvær vikur og verður Reykja- víkurborg í hátiðarbúningi þann tima. Megin tilgangur Iðnkynn- ingarinnar í Reykjavík, er þátt- taka Reykjavíkurborgar, iðnrek- enda, iðnaðarmanna, iðnverka- fólks og verzlunarfólks í Reykja- vík i starfi íslenzkrar iðnkynning- ar. Hún verður jafnframt kynn- ing á þeim framleiðsluiðnaði, þjónustuiðnaði og byggingariðn- aði sem starfræktur er í Reykja- vik og loks er tilgangur hennar að auka sölu á islenzkum iðnvarn- ingi og stuðla að jákvæðri afstöðu almennings til íslenzks iðnaðar, svo almenningur geri sér grein fyrir mikilvægi hans í dag, þeirri miklu atvinnu sem hann veitir og hve mikið hann sparar af hinum dýrmæta gjaldeyri, segir í upplýs- ingum frá Iðnkynningu í Reykja- vik. Jafnhliða opnun Iðnkynningar- innar i Austurstræti verður efnt til útisýningar á ýmsum reykvísk- um iðnaðarvörum þar, í Lækjar- götu og á Lækjartorgi. I þessu tilefni verður þetta svæði sérstak- lega skreytt, með fánum og með útstillingum i gluggum verzlana. Möguleiki er að Hótel Islands planið svonefnda bætist við þetta svæði. Þá verður efnt til iðn- minjasýningar í Árbæjarsafni. Mun forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, opna þá sýningu 22. september, en sem öðrum liðum Iðnkynningar í Reykjavik lýkur þeirri sýningu 2. október. 20 ára afmælis Árbæjarsafnsins verður jafnframt minnzt með þessari sýningu. Iðnkynning í Laugardalshöll verður, sem fyrr segir, opnuð 23. september. Avörp flytja þá Albert Guðmundsson, formaður Iðnkynningarnefndar, og Gunnar Guðmundsson, formaður sýningarnefndar, og að ávörpun- um loknum mun Davíð Sch. Thorsteinsson formaður Félags islenzkra iðnrekenda opna kynn- inguna. Efnt verður til iðnnámskynn- ingar í Iðnskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24. september, en þá verður farið með nemendur i 9. bekk grunnskóla i kynnisferð um skólann. Dagana 28. og 29. september munu alþingismenn, borgarfulltrúar og embættismenn heimsækja iðnfyrirtæki i Reykja- vík í boði Islenzkrar iðnkynning- ar og Iðnkynningarnefndar Reykjavíkur. Dagur iðnaðarins, sá áttundi á landinu, verður haldinn hátiðleg- ur 30. september, en þá verður m.a. efnt til fundar um iðnaðar- mál. Iðnkynning í Reykjavík verður að einhverju leyti færð inn i skóla höfuðborgarinnar eftir að sýning- unni i Laugardalshöll lýkur. A sýningartimanum verður þó efnt til skipulegra heimsókna nem- snda 7. 8. og 9. bekkjar grunn- skólastigsins á kynninguna í Laugardalshöll, og að sögn Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.