Morgunblaðið - 07.09.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.09.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 23 Minning: Gísli Guðmunds- son bifreiðarstjóri Mikill vinur okkar hjá Leikfé- lagi Reykjavikur og samstarfs- maður er fallinn i valinn langt fyrir aldur fram, Gisli okkar Guð- mundsson. Hann var jafnan sem einn úr okkar hópi þótt hann ynni ekki með okkur að staðaldri. Um árabil var hann sjálfkjörinn liðs- maður i öllum leikferðum Leikfé- lags Reykjavíkur um landið, bill- inn hans tvískipti með rými fyrir leiktjöldin eins og annað heimili fyrir leikhópinn, þar sem oft hef- ur verið setið þröngt á löngum og erfiðum ferðalögum og hann traustur og öruggur undir stýri. A áningarstöðum gekk hann til hvers þess starfs, sem þurfti við að undirbúa leiksýninguna og var af langri reynslu orðinn öllum hnútum kunnugur í tæknimálum leiksviðsins og rekstri leiksýn- inga. I leikhúsinu sjálfu í Iðnó hljóp hann iðulega undir bagga i vandasömu starfi sýningarstjóra, sem hann innti af hendi af þeirri nákvæmni, alúð og hlýju, sem honum var gefin til allra starfa og daglegrar umgengni við starfsfé- laga. Hann hafði og mikla gleði af góðri leiklist. Gísli Guðmundsson var Rangæingur að ætt og uppruna, fæddur í Króki i Holtum 9. októ- ber 1930, þar sem hann ólst upp með 14 systkinum. Hann var næstyngstur þeirra, en fellur nú þeirra fyrstur frá. Hann fór ung- ur að heiman og var um 16 ára skeið bifreiðarstjóri fyrir Kaupfé- lagið á Hellu og varð þannig hverjum manni kunnur í sinni sýslu. Arið 1966 eignaðist hann fyrsta langferðabíl sinn, hóf sjálf- stæðan atvinnurekstur og varð traústur og gegn hópferðahagi. Ferðalög um landið með fólk í bílum sínum voru líf hans og yndi, ekki sizt ferðir um óbyggðir. Mér er i minni hve gaman var að vera leiðsögumaður með Gísla við stýrið. Hann var hafsjór af fróð- leik um örnefni, bæjarheiti, menn og málefni á hverjum stað, ratvis svo af bar og minnugur á allt, sem hann hafði einhvern tíma heyrt. Gísli kvæntist árið 1966 Dag- björtu Snæbjörnsdóttur, föndur- kennara sjúklinga, sem ættuð er úr Húnavatnssýslu. Sambúð þeirra einkenndist af þeirri hlýju, sem var aðalsmerki Gisla sjálfs. Þau áttu sameiginlega þennan mikla áhuga á leiklist, sem tengdi þau Leikfélagi Reykjavíkur og Dagbjört fylgdi Gísla oft á ferða- lögum. Þegar Leikfélagið fór í leikför til Færeyja í fyrrahaust voru þau bæði með okkur, og yngsta dóttir þeirra. Þau óku leik- tjöldum austur i Seyðisfjörð, sigldu með þau og bilinn til Fær- eyja, þar sem þau voru fyrir sem fulltrúar Leikfélagsins þegar leikhópurinn kom. Síðan gengu þau frá öllu að leikförinni lokinni og héldu sömu leið heim aftur. Þannig var jafnan liðsinni Gísla Guðmundssonar, að áhyggjulaust mátti fela honum ýms vandasöm verkefni, — hann kom þeim far- sællega i höfn. Dagbjört og Gísli eignuðust þrjú börn: Guðrúnu Snæfriði, sem brautskráðist frá Leiklistarskóla Islands sl. vor, og þann dag sá ég Gísla glaðastan, Pétur Blöndal, sem hefur verið i siglingum og Elínu Sigriði, 12 ára námsmey. Gísli Guðmundsson var glæsi- legur að vallarsýn, friður maður og hýr og handtakið þétt. Hann er okkur öllum harmdauði. Leikfélag Reykjavíkur minnist Gísla Guðmundssonar með þökk fyrir störf hans og vináttu. Fjöl- skylda hans og ættmenn eiga ein- læga samúð okkar. Vigdís Finnhogadóttir. ,,Dáinn horfinn harmafregn" Þessi ljóðlina Jónasar kom mér í hug, er mér var tilkynnt skyndi- legt andlát vinar míns og svila, Gísla Guðmundssonar. Ég hafði kvatt hann kvöldið áð- ur, kátan og hressan. Hann var að koma úr 3ja daga ferð með fjöl- skyldu sína og venzlafólk, en í slíka ferð bauð hann oftast einu sinni á ári, i þeim tilgangi að halda fjölskyldunni saman og sýna henni okkar fagra land, sem hann hreifst mjög af. Sérstaklega hafði hann gaman af öræfaferð- um og vildi láta vini og vanda- menn njóta öræfafegurðarinnar með sér. Valdi hann þá oft staði, sem höfðu hrifið hann á ferðum hans um landið með innlent og erlent ferðafólk. Síðustu ferðinni var þó heitið til að kanna ókunna stigu, en veðurguðirnir komu í veg fyrir að komizt yrði á þann langþráða stað. Þrátt fyrir það vorú allir ferðalangarnir kátir og glaðir jafnt ungir sem aldnir, Gisli hélt uppi góðu ferðaskapi með lipurð sinni og góðvild og hugsa nú allir til hans með trega og þökk. Þannig var líf Gísla heit- ins, hann reyndi að létta byrði samferðafólksins eftir beztu getu. Sérstaklega má minnast þess, hversu vel hann hugsaði um tengdamóður okkar síðustu árin sem hún lifði og bjó ein fyrir utan borgina, og reyndist henni sem bezti sonur. Veit ég að börnum hennar finnst þau hafi aldrei full- þakkað Gísla fyrir þá einstöku umhyggju. Það er okkur ekki sársaukaláust, að sjá nú á bak svo ágætum manni sem Gísli Guð- mundsson var. Minningarnar hrannast nú upp í huga manns um liðnar samverustundir bæði á heimili okkar og þeirra hjóna, Gísla og Dagbjartar konu hans. Þar rikti sönn gestrisni og öllum fagnað af sérstakri hjartahlýju og góðvild. Gísli var fæddur að Króki í Asa- hreppi í Rangárvallasýslu 9. októ- ber 1930, næst yngstur 14 syst- kina er öll lifa, hann var sonur hjónanna Guðrúnar Gísladóttur og Guðmundar Ölafssonar er þar bjuggu. Móðir hanns lézt 1934 frá börnunum ungum, en faðir hans bjó áfram með aðstoð barna sinna og ól upp allan barnahópinn með sæmd. Það hlýtur að hafa verið áfall fyrir 4ra ára drenginn að missa móður sína, en systur hans gengu honum í móðurstað og var kært með þeim systkinum öllum. Guðmundur faðir hans lifir enn, 88 ára gamall, og er vel ern og má nú sjá á bak sinum yngsta syni. Gisli dvaldi i föðurgarði til tvi- tugsaldurs er hann hóf bifreiða- akstur hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu og varð bifreiðaakstur sið- an hans ævistarf. Hann var gæt- inn og góður ökumaður og hlekkt- ist aldrei neitt á. Síðustu árin gerði hann út eigin bifreiðir og fór hópferðir með fólk um landið m.a. ók hann leikurum leikhús- anna er þeir ferðuðust út á lands- byggðina með leiksýningar. Gísli var mjög samvizkusamur maður og nákvæmur og vildi aldrei halla réttu máli. Það var gott að hafa hann í vinnu, honum var óhætt að treysta. Gisli kvænt- ist 1956 eftirlifandi konu sinni Dagbjörtu Sóley Snæbjörnsdótt- ur, mestu myndar- og dugnaðar- konu. Bjuggu þau sér indælt heimili og voru sérstaklega sam- hent að snyrta það og fegra, enda var Gísli mjög laginn í höndun- um, vandvirkur og duglegur, og reyndar þau bæði hjónin. Þau eignuðust 3 börn, Guðrúnu Snæ- fríði, er lauk námi við leiklistar- skóla ríkisins s.l. vor, Pétur Blön- dal og Elínu Sigriði, sem bæði eru í foreldrahúsum. Gísli Guðmunds- son verður jarðsunginn frá Lang- holtskirkju í dag og vil ég nú að leiðarlokum fyrir mína hönd, konu minnar og fjölskyldu okkar, votta konu hans og börnum inni- legustu samúð og biðjum algóðan Guð að styrkja þau og styðja í raunum þeirra. Megi minningin um kærleiksríkan eiginmann og föður verða þeim huggun í sorg- inni, er svo óvænt barði að dyrum. Við vottum einnig öldruðum föð- ur hans og systkinum hluttekn- ingu okkar. Að síðustu þökkum við Gísla allar samverustundir liðinna ára. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd væri hennar þörf. Hann var óvenju skilningsríkur á cannarra erfiðleika, sem er sjaid- gæfur eiginleiki. Við munum sakna hans, en geyma minning- una um góðan og glaðan dreng og þökkum fyrir að hafa átt hann að vini. „Far þú f friði Friður Guðs þig blessi Hafðu þökk fvrir allt og alIt“ H.J. t Móðurbróðir minn, ELÍAS pálsson, Seglbúðum, sem lést sunnudaginn 4 september. verður jarðsunginn frá Prest- bakkakirkju á Síðu laugardaginn 10. september kl. 2 e.h. Jón Helgason. t Bróðir minn, JÓN INGIMARSSON. Álftamýri 46, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 8. september kl. 1.30. Fyrir hönd systkinanna, Kristln Ingimarsdóttir. Lokað frá hádegi vegna jarðarfarar, Verzlunin Krónan, Vesturgötu 35 Mýrarbúðin, Mánagötu 18. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUOMUNDUR PÉTUR GUÐJÓNSSON, skipstjóri Hringbraut 107 Andaðist að Landakotsspítala 24 ágúst s.l Að ósk hins látna fór bálför hans fram i kyrrþey ... .. . Pálina Helgadóttir, Helga GuSmundsdóttir, JensÓI. Eysteinsson, Erna I ris Jensdóttir. Faðir okkar, fósturfaðir og afi, SIGURÐUR J. ÞORBERGSSON Snorrabraut 33 er lést sunnudaginn 4 september, verður jarðsunginn frá Langholts- kirkju föstudaginn 9 septemberkl. 10.30 SigrtSur SigurSardóttir, GarSar Jónsson, GuSrún Freysteinsdóttir, og barnaböm. t Móðir okkar og tengdamóðir. KATRÍN GUÐNADÓTTIR Hringbraut 45 andaðist 5. september s.l. Margrét Kristinsdóttir. Magnús Danielsson. Sjöfn B. Kristinsdóttir. GrétarG. Nikulásson. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR EIRÍKSSONAR, vélstjóra, Brunnstig 4, HafnarfirSi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Landakotsspltala Jenný Ágústsdóttir. Þorsteinn Sigurðsson, í ris Dröfn Kristjánsdóttir, Steinvör SigurSardóttir, EinarB. Þórðarson, Ágúst SigurSsson, Guðrún H. Lárusdóttir, Garðar Sigurðsson, Erla Jónatansdóttir. Sigrún Sigurðardóttir, Kristján Þórðarson, Reimar Sigurðsson. Gislina Jónsdóttir, Hafsteinn SigurSsson, Ágústa Hjálmtýsdóttir, Bergur Sigurðsson. Sylvfa Elíasdóttir, Gestur Sigurðsson, Elsa Hauksdóttir, Sigurður Sigurðsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Kolbrún Sigurðardóttir, Benedikt Steingrimsson. barnabörn og barnabamabörn. t Bróðir okkar, GUÐMUNDUR ÍNGÓLFSSON RauSalæk 13, lést af slysförum mánudaginn 5. september Sígrún Ingólfsdóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir. Móðir min, tengdamóðir og amma,1 ÞURÍÐUR SVEINBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, frá SviSningi verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni Hafnarfirði föstudaginn 9 sept kl SvanfriSur Arnkelsdóttir, Arnar GuSlaugsson. Amór Arnórsson, ÞuriSur Arnórsdóttir, Guðbjorn Arnórsson, Faðír okkar, GUNNAR H. KRISTJÁNSSON fv. KaupmaSur lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 31 ágúst. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9 september kl 13 30 GuSrún H. Gunnarsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir. Kristján Gunnarsson. Gunnar Gunnarsson. t Ástkær dóttir okkar, og dótturdóttir. ÞÓRA BALDURSDÓTTIR, Fornuströnd 4, verður jarðsungin frá Neskirkju, fimmtudaginn 8 september kl 13 30 Þórunn Ólafsdóttir, Baldur G. Ásgeirsson, JarþrúSur Jónsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.