Morgunblaðið - 07.09.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977
31
Lands-
liös-
ferðin
Markvörður Belga rétt nðði að stýra þessu þrumuskoti Asgeirs Sigurvinssonar framhjá marki f leiknum á iaugardag. (Ljósm. áij).
Sjönar-
horn
t síðustu viku lék íslenzka landsliðið tvo landsleiki I Evrópu,
gegn Hollandi og Belgíu. Úrslitin eru öllum kunn og fréttamenn
blaða og útvarps hafa gefið glöggar fréttir af ferðinni. Báðum
leikjum er sjónvarpað hér heima, svo segja má að landsliðið sé
undir smásjá meðan á slíkri ferð stendur. Eg þarf því ekki að
rekja ferðasöguna, að öðru leyti en því að taka fram, að fram-
koma leikmanna bæði innan sem utan vallar var til sérstakrar
fyrirmyndar.
Hinu er vert að velta fyrir sér hvaða erindi tsland eigi I
heimsmeistarakeppni og hvaða ál.vktanir megi draga af þessari
keppnisferð. Belgíska knattspyrnusambandið er eitt það smæsta
í Evrópu. Þar eru 500 þúsund skráðir sem knattspyrnumenn.
Sambandið hefur 150 manns á launum. t Ilollandi eru nær 200
manns á skrifstofu knattspyrnusambandsins. Liðin þar skipta
tugum þúsunda. 1 Hollandi og Belgíu er atvinnumennska á
tiltölulega háu stigi, og þegar tsland lék gegn þessum löndum,
fékk hver af leikmönnum þeirra nær 250 þús. króna fyrir
leikinn.
Það er því ólíku saman að jafna og í raun og veru er það ekkert
annað en fífldirfska að leggja til atlögu við þessar þjóðir. En það
er einmitt það skemmtilega við knattspyrnuna. Úrslitin fara
ekki eftir útreikningum og þegar inn á völlinn er komið ráða
úrslitum ýmsir eiginleikar sem ekki verða keyptir: keppnisskap,
hugsun og skipulag í leik, samstilling liðs og metnaður fyrir
hönd sinnar þjóðar. Þegar menn hafa undrazt hversu taslandi
hefur tekizt að tefla fram góðu landsliði, þá bendi ég gjarnan á
þessi atriði. Þau hafa einkennt knattspyrnulandsliðið og eiga
sennilega einnig sinn stóra þátt í velgegni handknattleiks-
manna.
Einhverjum kann að þykja að úrlistin I landsleikjunum I
slðuustu viku séu ekki til að mikia sig af. Það er heldur ekki
gert. En I leiknum gegn Hollandi hitti ég að máli mann, sem
kominn var alla leið frá Brasilíu til að njósna um Hollending-
ana. Hann fullyrti að hollenzka liðið væri það bezta í heiminum í
dag. Eg held að það sé engin skömm að því að tapa gegn slfku
liði, og halda jöfnu I sfðari hálfleik. Sama sagan endurtók sig í
þessari ferrt sem í þeim landsliðsferðum sem farnar hafa verið
síðustu fjögur árin. Fyrsti hálftíminn í fyrsta leiknum er
verstur. Sfðan vex liðið stöðugt.
Astæðan er taugaóstyrkur og reynsluleysi. Ef okkar lið hefði
fleiri tækifæri til að leika erlendis, þá næðist ennþá betri
árangur.
Slíkar ferðir mætti fara í október — nóvember, eða marz —
apríl. þ.e.a.s. eftir og áður en keppnistímabilið hefst hér heima.
Við fslendingar getum ekki reiknað með því að verða heims-
meistarar í knattspyrnu, en leikir eins og þeir sem íslenzka liðið
sýndi í Evrópu f síðustu viku, eru bezta auglýsing sem íslenzka
þjóðin og íslenzk æska getur fengið. fþróttir og þó einkum
knattspyrna er hugðarefni alls almennings í Evrópu og ein slfk
keppnisferð er á við þúsund auglýsingabæklinga. Asgeir Sigur-
vinsson er á við hundrað ambassadora.
Þessi „auglýsingaferð“ kostar KSf sennilega allt að fjórum
milljónum króna, og þó er aliur undirbúningur, fararstjórn og
keppni á herðum manna, sem ekki fá krónu fyrir fram framlag
sitt.
Eg efast um að fslendingar hafi fengið ódýrari landkynningu.
Ellert B. Schram.
Belgar mikl-
ir höfðingjar
ÞAÐ VAR ólíku saman að jafna
móttökum Belga og Hollendinga
er íslenzka knattspyrnulandsliðið
lék gegn þessum þjóðum í sfðustu
viku. fnni á leikvellinum var að
vísu ekkert eftir gefið og bæði lið
settu fjögur mörk hjá tslending-
unum. útan vallar voru Belgarnir
hins vegar mun meiri höfðingjar
heim að sækja og sem dæmi um
það má nefna, að þeir leystu ís-
lenzku landsliðsmennina alla út
með forláta svissnesku úri. Ekki
nóg með það, fararstjórar ís-
lenzka liðsins fengu allir vandað
útvarpstæki að gjöf frá Belgum.
Áhöfn Guðmundar
þakkar handknatt-
leikslandsliðinu
ágætan árangur
SKIPVERJAR á Guðmundi RE,
því mikla aflaskipi, eru greini-
lega miklir áhugamenn um
íþróttir. A laugardaginn buðu
þeir landsliðsmönnum f hand-
þknattleik út að borða með eigin-
konum. Vildu þeir með þessu
þakka góðan árangur handknatt-
leikslandsliðsins og hvetja liðið
til enn meiri afreka á vetri kom-
anda. Kunnu handknattleiks-
menn vel að meta þennan vinar-
hug og sendu þakkarskeyti til
áhafnar Guðmundar frá ftótel
Sögu, þar sem þeir áttu góða
stund saman.
Valsmenn
mæta á sýninguna
HEIHILW77
VALSLIÐIÐ I KARNABÆJAR
FÖTUM ÁSAMT ÞJÁLFARA
NUKOMA
ALLIR í HÖLLINA.
■ Þar munu þeir kynna keppinauta sína í Evrópubikarkeppninni,
sem fram fer á Laugardalsvellinum 15. september n.k.
■ Einnig taka þeir þátt í tízkusýningunni kl. 21.00.
■ Gestir fá allir myndir ásamt eiginhandarár'rtun.
STUÐMENN VALS
[
| 'í-z-
|\ ,