Morgunblaðið - 07.09.1977, Side 32

Morgunblaðið - 07.09.1977, Side 32
YSINGASIMINN ER: 22480 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1977 Nautakjöt hækkar um 24 til 25% AKVEÐIÐ hefur verið nýtl verð á nautakjöti_í kjölfar þess bráða- birgða samkomulags, sem varð um verðlagsgrundvöll landhúnað- Slæðingur af útlendingum á miðunum Allmörg erlend fiskiskip eru hér við land um þessar mund- ir, samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæzlunnar. Reynd- ar eru aðeins átta færeyskir handfærabátar hér við land en voru flestir um 26 og auk þess eru 7 færeyskir línuveiðarar og einn togari. Ovanalega margir v-þýzkir togarar eru hér eða 19 talsins, en auk þess 5 belgískir togarar og 3 norskir bátar. BÚR vill suðurenda Bakka- skemmu „ÞAÐ ER ekki rétt með farið hjá hafnarstjóra að einungis standi nú á Bæjarútgerðinni að innrétta kæligeymslur fyrir kassafisk f Bakkaskemmu," sagði Ragnar Júlfusson, stjórnarformaður BÚR, f viðtali við Morgunhlaðið, þegar borin voru undir hann um- mæli hafnarstjóra í frétt Mbl. sl. laugardag, en þar kvað hafnar- stjóri þegar búið að rýma hluta Bakkaskemmu og afhenda Bæjar- útgerðinni en sfðan hefði ekkert verið unnið að framgangi málsins af hálfu B(JR. Ragnar kvað það að vísu rétt, að höfnin væri búin að rýma hluta Bakkaskcmmu, en ekki þann hluta hennar sem Bæjarútgerðin vildi fá. Ragnar kvað BÚR hafa augastað á suðurenda Bakka- skemmu, þvi að þaðan væri bein- ust akstursleið með fískinn yfir i fiskvinnsluhús BÚR og minnst truflun frá annarri umferð um Grandann. í þessum hluta Bakka- skemmu er nú Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem er ríkis- stofnun, og sagðist Ragnar telja Framhald á bls 18. arvara um mánaðamótin og áður hefur verið sagt frá. Samkvæmt þessu nýja verði hækkar smásölu- verð nautakjöts að mcðaltali um 24 til 25%. Hvert kíló af nauta- kjöti í 1. verðflokki í heilum og hálfum skrokkum kostar eftir hækkunina 663 krónur í heild- sölu en 896 krónur i smásölu. Vcrð á öðrum verðflokki í heilum og hálfum skrokkum verður eftir ha-kkunina 560 krónur í heild- siilu og 757 krónur í smásölu. Sem dæmi um verð á einstökum hlutum nautgripsskrokks má nefna að hvert kíló af afturhluta, 2. verðflokki, hækkar í smásölu úr 801 krónu í 1001 og framhlutar hækka úr 454 í 566 krónur. Hryggstykki úr afturhluta, stéik, hækkar út 1255 krónum í 1564 krónur hvert kíló, og er þá miðað við annan verðflokk. Bóndinn fær eftir hækkunina 660,41 krónur fyrir hvert kíló af nautakjöti í 1. verðflokki og 564,09 krónur fyrir 2. verðflokk. Engar breytingar voru að þessu sinni gerðar á nið- urgreiðslum. Enn er litið sem ekkert nauta- kjöt á markaði í verzlunum en að sögn söluaðila kjötvara er þess að vænta að upp úr næstu mánaða- mótum fari framboð á nautakjöti að verða með eðlilegum hætti en þá fara bændur á láta slátra þeim gripum, sem þeir hafa látið gang úti í sumar. 53 íslend- ingar hafa látizt af slysförum í ár SAMKVÆMT upplýsingum Óskars Þórs Karlssonar hjá Slysavarnafélagi Islands hafa 53 Islendingar látizt af slysför- um hér á landi það sem af er árinu, en á sama tíma í fyrra höfðu 52 tslendingar látið lífið í slysum. Enda þótt tölurnar séu svip- aðar hefur tíðni banaslysa ver- ið allmiklu hærri á þessu ári en í fyrra, því þá varð eitt mannskætt sjóslys þegar vél- báturinn Hafrún fórst með 8 mönnum. Komust ómeidd úr brakinu MJÖG HARÐÚR árekstur varð um hádegisbilið í dag á blind- hæð á þjóðveginum skammt innan við Flateyri. Rákust þar á Land-Rover jeppi og lítil fólksbifreið. Skemmdust bíl- arnir mjög mikið og er fólks- bíllinn talinn gerónýtur, enda kastaðist hann 60 metra eftir veginum frá þeim stað, sem áreksturinn varð. 1 jeppanum voru 5 ungmenni og 3 í fólksbílnum og sluppu þau öll að mestu ómeidd. Eins og myndin ber með sér þykir mikið lán að þeir sem sátu í fólksbflnum skyldu komast ómeiddir úr brakinu. Smábátasjómenn í Höfnum og á Seyðisfirði: Mikil óánægja með svæða- rýmkun fyrir dragnótabáta MIKIL óánægja er nú meðal smá- bátasjómanna bæði á Seyðisfirði og í Höfnum á Suðurnesjum með að dragnótabátum hefur verið hleypt inn á hefðbundnar veiði- BSRB um samningamálin: Miðblik launastigans þarf að hækka um 20% auk ASÍ-hækkana BANDALAG starfsmanna rfkis og bæja skýrði blaðamönnum f gær frá margháttuðum rannsókn- um, sem fram hafa farið á launa- kjörum starfsmanna f opinberum störfum og fólks á hinum al- menna vinnumarkaði. f kröfu- gerð BSRB leggur handalagið höfuðáherzlu á verulegar bætur á lægstu launin, svo og miðbil launastiga sambandsins, sem bandalagið telur að hafi dregizt mjög aftur úr á sfðustu árum. Samningamcnn BSRB segja að niðurstöður þeirra rannsókna, sem fyrir liggja slái föstu að um miðju launastiga BSRB þurfi laun að hækka um 20% eingöngu til leiðréttingar. Þar við bætist sfðan hækkanir sfðustu ASÍ- samninga. Á blaðamannafundi BSRB höfðu aðallega forsvar þeir Kristján Thorlacius, formaður bandalagsins, og Haraldur Stein- þórsson, framkvæmdastjóri þess. Á fundinum kom fram, að nefna má fjölmörg dæmi því til stuðn- ings að verulegur launamunur er milli opinberra starfsmanna og annarra launþega. Þeir BSRB- menn segja að athugun Hagstofu Islands á kjörum skrifstofufólks leiði i Ijós, að skrifstofufólk hjá BSRB, sem þiggur laun um mið- bik launastigans, þurfi að fá um 18% launahækkun til þess að ná þeim launum, sem greidd eru fyrir sambærileg störf á almenn- um vinnumarkaði og beri þá að athuga sérstaklega að samanburð- urinn er miðaður við laun í janú- ar sfðastliðnum, þ.e.a.s. áður en sfðustu samningar almenna vinnumarkaðarins komu til fram- kvæmda. Þá kom fram á fundinum, að niðurstöður þeirrar sameiginlegu nefndar, sem skipuð var af BSRB og fjármálaráðuneytinu 2. júní Framhald á bls 18. slóðir þeirra og telja þeir það mjög spilla fyrir aflabrögðum smábátanna. Smábátasjómenn frá báðum þessum stöðum ka*rðu þessar dragnótaveiðar til Land- helgisgæzlunnar en fengu þar þau svör að þessar veiðar drag- nótabátanna væru nú reglum samkvæmt og með heimild fiski- fræðinga. Forsendur Hafrann- sóknastofnunar fyrir þessari heimild til dragnótaveiða á grunnslóð eru þær, að kolastofn- inn sé nú vannýttur en koli verði ckki veiddur með góðu móti nema í dragnót en með því skil- yrði að möskvar á poka séu f stærra lagi til smáfiskur sleppi þar í gegn. Morgunblaðið náði í gær tali af Hinrik ívarssyni, hreppsstjóra í Merkinesi í Höfnum, en hann kærði dragnótaveiðar út af Höfn- um til Landhelgisgæzlunnar. „Já, við erum mjög óánægðir með þessar dragnótaveiðar núna,“ sagði Hinrik. „Venjulega hefur verið leitað til hreppsstjórnar Hafnarhrepps um það hvort hún telji koma til mála að leyfa drag- nót fyrir Hafnarlandi, og það hef- ur alltaf verið samþykkt að leyfa hana ekki nær landi en 4 sjómíl- ur. Síðan kom alllangt tímabil þar sem engin dragnót var leyfð, en svo urðum við núna allt f einu varir við að búið er að opna svæði í linu frá Garðskagavita í Lóns- dranga en áður var alltaf miðað við línu frá Reykjanestá i Lóns- dranga. En svo núna einn daginn sjáum við bara allt i einu hvar 2—3 dragnótabátar eru komnir hérna eiginlega upp i kartöfiu- garða og þegar við höfum sam- band við Landhelgisgæzlu fáum við þau svör að núna 1. september hafi línunum verið breytt." Hinrik sagði, að svæðið, sem dragnótabátarnir væru nú komn- ir á, væri grunnsævi en þar séu hefðbundnar slóðir Hafnabáta, sem einungis séu smáir bátar og fiski á grunnslóð með landi. Hins vegar sé það reynsla þessara smá- bátasjómanna af dragnótinni, að henni fylgi mikið grugg og þegar skipti úr norðurfalli i suðurfall valdi það því að þessir litlu bátar fái ekki bein úr sjó. Kvað Hinrik nú ekki annað til ráða en að fá oddvita til að taka málið upp við stjórnvöld, því að þetta væri mik- ið hagsmunamál fyrir Hafnarbúa. Að sögn talsmanns Landhelgis- Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.