Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 Skoðanakannanir hjá flokksfélögum Æ » *....... ! : < V.V' • Þad er meira en að nefna það þegar borgararnir panta reykháf til þess að bæja frá sér óþef og/ eða skaðlegum efnum. Hér er „smádæmi“ Menn- irnir eru að auka og endurbæta reykháfinn þeirra á sementsverks- miðjunni uppi á Akranesi. „ÞAÐ HEFUR engin ákvörðun verið tekin í framboðsmálum ennþá“, sagði Steinþór Þorsteins- son, kaupfélagsstjóri i Búðardal og formaður kjördæmisráðs Framsóknarflokksins í Vestur- landskjördæmi, er Mbl. spurði hann um það mál, en sem kunnugt er hefur Asgeir Bjarna- son alþingismaður sem skipaði efsta sæti listans við síðustu Alþingiskosningar, ákveðið að verða ekki aftur f framboði. „Nei, ég hef ekki hug á slíku“, sagði Steinþór, þegar Mbl. spurði hann, hvort hann hygðist keppa að efstu sætum listans við næstu kosningar. Steinþór sagði, að engin tilmæli um prófkjör hefðu borizt ennþá, en hins vegar starfaði nefnd, sem hefði verið falið að undirbúa framboð og myndi hún væntan- lega skila af sér fyrir kjördæmis- þingið, sem haldið verður i nóvember n.k. „Ég hef ekki starfað með það í huga eða haft uppi neinn áróður til þess“, sagði Steinþór Þor- steinsson, þegar Mbl. spurði hann um það, hvort hann ætti von á áskor.unum um að gefa kost á sér. „Það hefur ekki komið til þess pg kannski verður það ekki. En slíkri spurningu er ég á þessari stundu ekki tilbúinn til að svara með jái eða neii“, sagði Steinþór, þegar Mbl. spurði hann, hvernig hann myndi bregðast við áskorun- um þar um. Ólafur Sverrisson, kaupfélags- stjóri í Borgarnesi og formaður nefndarinnar sem er að undirbúa framboðið, sagði Mbl. að nefndin biði nú eftir uppstillingagögnum frá flokksfélögum í lögsagnarum- dæmunum gömlu, en þau eru Útflutningsgjöld á sjávar- afurðir 3200 millj. í fyrra MORGUNBLAÐIÐ birti á fimmtudaginn niðurstöður samanburðarútreikninga sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hafði látið gera á raunverulegu fiskverði í Færeyjum og á is- landi. Þar kom fram að fisk- vinnslan á islandi verður að greiða ýmis lögboðin gjöld til sjóða, stofnana og samtaka. Morgunblaðið hefur aflað sér upplýsinga um hlutverk þessara aðila og hve miklar upphæðir fiskvinnslan á Íslandi greiddi til þeirra á síðastliðnu ári. Samkvæmt lögum á fiskvinnsl- an að greiða 10% ofan á skipta- verð i Stofnfjársjóð. Sjóðurinn hefur það hlutverk að greiða upp lán viðkomandi báta hjá Fisk- veiðasjóði — sem tekin voru Afhenti trún- aðarbréf INGVI S. Ingvarsson afhenti hinn 8. þ.m. Karli XVI Gústaf Svíakonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra í Svíþjóð. þegar bátarnir eru keyptir. Til að tryggja greiðslur er 10% gjald lagt ofan á skiptaverð hvers báts og rennur greiðslan inn á reikn- ing bátsins og ef fé verður um- fram þegar greiðslur hvers árs hafa verið inntar af hendi við Fiskveiðasjóðinn endurgreiðir Stofnfjársjóður peningana til út- gerðarinnar, þannig að greiðslan fer að öllu leyti í þágu útgerðar- innar. Samkvæmt upplýsingum Svavars Armannssonar fram- kvæmdastjóra hjá Fiskveiðasjóði, runnu tæplega 3,282 milljónir til sjóðsins árið 1976 í formi lögboð- inna gjalda, umframgjalda sem innheimt eru af skípum keyptum með rikisábyrgð og- vaxta. Af þessarri fjárhæð greiddi innlend fiskvinnsla rúmar 2.286 milljónir króna til sjóðsins. Samkvæmt lögum no 5 frá 13. febrúar 1976 voru lögð útflutn- ingsgjöld á útfluttar sjávaraf- urðir, 6% af fob. verði, og í sömu iögum er skipting fjársins ákveð- in. Langmestan hluta af þessu fé hefur Tollstjórinn í Reykjavík innheimt og siðan greitt út sam- kvæmt lögunum. Heimilissýningunni Heimilið 77 lýkur í Laugardagshöll í kvöld ÞAÐ ER ekki hægt að segja ann- að en þetta hafi bara gengið vel frá upphafi, þrátt fyrir ýmis smá- vandamál sem alltaf koma upp þegar svona sýning er sett upp, sagði Bjarni Olafsson, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar Heimilið '77 er Morgunblaðið ræddi við hann vegna loka sýn- ingarinnar, sem eru í kvöld. Aðsókn hefur verið mjög góð og þegar tveir dagar voru eftir höfðu 64.000 manns séð sýninguna. Og miðað við að svipuð aðsókn verði síðustu dagana er ekki fráleitt að láta sig dreyma um að hér verði aðsóknarmet á íslenzkri sýningu. Sú sýning sem fjölsóttust hefur verið var landbúnaðarsýningin en þá voru gestir um 75.000. Okkar mesta vandamál er auð- vitað hversu allur kostnaður fer úr böndum þegar líða tekur á sýninguna, sagði Bjarni að lokum. Samkvæmt upplýsingum Gamalíels Sveinssonar hjá Þjóð- hagsstofnun nam fob. verðmæti útflutnings sjávarafurða í fyrra 53,4 milljörðum króna og 6% af þeirri upphæð eru um 3200 millj- ónir króna. Erfitt er að meta hluta hráefnisverðs í heildar- kostnaði við fiskvinnsluna en það er venjulega metið á bilinu 50—60% og með því að reikna út meðaltal þar af hefur SH áætlað að bæta megi 11% ofan á saman- lagða greiðslu til útgerðarinnar vegna útflutningsgjaldanna. Utflutningsgjöldin skiptast þannig að 48% fara til Aflatrygg- ingasjóðs, 22% til almennrar deildar og 26% áhafnadeildar. Al- menn deild, en til hennar runnu Leiðrétting 1 GREIN Péturs Sveinbjarnar- sonar, formanns Knattspyrnu- deildar Vals, féll niður setning þannig að niðurlag greinarinnar raskaðist verulega. Niðurlagið átti að hljóða svo: „Stjórn Knattspyrnusambands tslands er þjónustuaðili íslenzkra knattspyrnufélaga en ekki drottn- ari. Ekki verður með nokkru móti séð hvernig stjórn KSÍ getur afhent tslandsmeistarabikarinn 1977 á úrslitaleik bikarkeppni KSt þegar bæði liðin, sem leika eiga, óska eftir því að svo verði ekki gert. Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum stjórnar KSt nk. sunnudag, ef það lið sem bikarinn hlýtur óskar eftir því að hann verði afhentur á næsta úr- slitaleik tslandsmótsins." um 700 milljónir í fyrra, greiðir þeim bátum bætur, sem ekki ná meðaltali undangenginna ára. Er þetta til að tryggja þessum bátum ákveðinn aflahlut. Ahafnadeild- in, sem fékk um 830 milljónir í fyrra, sér um að greiða fæði sjó- manna. 27% ganga til vátrygg- ingafélaganna til greiðslu vá- tryggingagjalda fiskiskipaflotans og voru það um 860 milljónir í fyrra. Til lánadeildar Fiskveiði- sjóðs renna 21 % eða um 650 millj- ónir og veitir deildin lán bæði i þágu útgerðar og fiskvinnslu. Til styrkveitingasjóðs Fiskimálasjóðs renna 0,9 + eða um 29 milljónir í fyrra en þessi deild hefur heimild til að veita styrki til nýjunga i vinnslu og útgerð. Til Rannsókna- stofnana sjávarútvegsins, þ.e. Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins og Hafrannsóknastofnunar renna svo og til Framleiðslueftir- lits sjávarafurða renna 2,3% og nam sú upphæð um 73 milljónum i fyrra. Loks renna 0,4% til Landssambands íslenzkra útvegs- manna og samtaka sjómanna og voru þetta um 13 milljónir til hvors aðila í fyrra. Framangreindar upplýsingar eru flestar fengnar hjá Hjalta Einarssyni framkvæmdastjóra SH. fimm í Vesturlandskjördæmi. Sagðist Ölafur vita að á vegum flokksfélaga hefðu farið fram skoðanakannanir á Snæfellsnesi, i Dölum og á Akranesi og slíkar kannanir færu fram á næstu dögum í Borgarnesi og á Mýrum. — Sumarleyfi. . Framhald af bls. 32. yfirvinnu, sem nær 250 þúsund krónum. Haraldur Steinþórsson kvað skýrari ákvæði sett um það að tryggja mönnum 8 klukkustunda lágmarkshvíld skilyrðislaust og fái menn hana ekki eða hafa unnið lengur en 16 tíma í lotu, þá greiðist yfirvinnukaup ofan á önnur laun, sem þeir höfðu fyrir. Er þetta í raun öllu rýmra ákvæði, en í gildi er á almenna vinnumarkðinum, þar sem tækni- legur möguleiki er á því að með þessari skipan geti menn fengið yfirvinnukaup ofan á yfirvinnu- kaup og vaktaálag. á>á varð að samkomulagi að samið yrði um fæði og mötuneyti í sérkjara- samningi. Um orlofsákvæði kjara- samningsins segir: „Lágmarksor- lof er 24 virkir vinnudagar, þ.e. 192 vinnuskyldustundir miðað við fullt ársstarf. „Þetta þýðir að lág- marksorlof er 4 vikur og 4 dagar. Síðan bætast við eftir 8 ára starfs- aldur eða 40 ára aldur 3 vinnu- dagar og aftur við 12 ára starfs- aldur eða 50 ára aldur aðrir 3 vinnudagar. Þessi ákvæði voru í samningum við Kópavog og tvo aðra kaupstaði og nú liggur fyrir að þessi ákvæði verða boðin þremur öðrum kaupstaðastarfs- mönnum eða félögum þeirra, þ.e. Keflavík, Seltjarnarnes og Garðabær. Samkvæmt þessu er lengsta orlof orðið 6 vikur. Hins vegar er orlof af yfirvinnu 8!4%. Laugardagar teljast ekki til or- lofsdaga Þá er ákvæði í kjara- samningnum að orlof lengist að vetri til um H, ef leyfið er tekið að ósk yfirmanns. Trygginga- upphæðir samningsins hækkuðu verulega og eru talsvert hærri en tryggingaupphæðir í almennu kjarasamningunum bæðí hvað varðar slysa- og örorkutryggingar og eins við dauða. Samið var um endurmenntun, og skal setja sér- staka nefnd á fót, sem athuga á skipulag framhaldsnáms og endurmenntun starfsmanna. Uppsagnarákvæði samningsins eru þau, að samningstíminn sé til 1. júlí 1979, en siðan eru ákvæði sem segja: „Verði röskun á um- saminni vísitölutryggingu eða veruleg rýrnun á kaupmætti launataxta frá þvi sem samningurinn gerir ráð fyrir, er heimilt að segja upp kaupliðum samningsins með mánaðar uppsagnarfresti." Haraldur sagði að um þetta giltu öll ákvæði laga kjarasamnings opinberra starfs- manna um verkfall og atkvæða- greiðslu. M.ö.o. um er að ræða verufallsrétt um kaupliðinn á miðjum samningstíma, ef röskun verður á kaupmætti þeim er samningurinn gerir ráð fyrir. Haraldur Steinþórsson kvað BSRB telja þetta síðasttalda atriði mjög veigamikið. Siðasta ákvæði þessa samnings hljóðar svo: „Þetta er þannig samþykkt sem hluti aðalkjarasamnings, að und- anskildum greinum um Iauna- stiga, launaþrep og verðlags- bætur, en um þau atriði er samningum ekki lokið.“ Neskirkja Guðsþjónusta kl. 11 árdegis Guðmundur Óskar Ólafsson ■ Sr. Bræla hjá hvalbátunum — 290 hvalir komnir á land HVALVEIÐIBATARNIR voru frá veiði í gær vegna brælu á miðunum, en Eggert f Hvalstöðinni sagði, að sumarið hefði verið erfitt til veiða vegna sffelldrar þoku og bræluskratta úti á hafinu. 1 gær höfðu borizt alls 290 hvalir á land í Hvalstöðinni. Þar af voru 118 langreyðar, 66 búrhvalir og 106 sandreyðar. I gær lágu tveir hvalbátanna í Reykjavík vegna veðurs á miðunum og einn lét reka á Kirkjuvoginum úti af Höfnum. Eggert kvað veiðina hafa verið ágæta þegar gæfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.