Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjörar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjald 1500.00 í lausasölu 80. hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. kr. á mánuði innanlands. 00 kr. eintakið. Náttúruhamfarir þær, sem orðið hafa við og í námunda við Mývatn, hljóta aö verða okkur um- hugsunarefni og áhyggju- efni. Óhjákvæmilega leið- um við hugann að því, hvort hér sé um endur- tekningu að ræða á þeim náttúruhamförum, sem urðu í þessu byggðarlagi fyrir 250 árum. Sérfræð- ingar okkar segja, að of snemmt sé að segja nú að svo sé, en óneitanlega er margt líkt með því, sem hefur verið að gerast síð- ustu tvö árin á Mý- vatnssvæðinu og þeim hamförum, sem þar urðu fyrir 250 árum. Vísindamenn eru ber- sýnilega þeirrar skoðunar að til tíðinda muni draga á ný á þessu landsvæði jafn- vel fyrr en seinna. Sumir telja, að það muni verða fyrir lok þessa árs og þá sé hætta á alvarlegri atburð- um en urðu að þessu sinni. Reynslan hefur sýnt okk- ur, að vísindamenn okkar geta sagt fyrir um með næsta ótrúlegri nákvæmni, hvenær búast megi við eldsumbrotum þarna og því ber að veita því eftir- tekt, sem þeir segja um hugsanleg eldsumbrot jafnvel fyrir áramót. Athygli okkar hlýtur fyrst og fremst að beinast að byggðinni við Mývatn og þeim mannvirkjum, sem þar eru, og Kröfluvirkjun. Eins og nú standa sakir virðist byggðin við Mývatn og mannvirki þar vera á meira hættusvæði heldur en Kröfluvirkjun. Kísiliðj- an hefur nú þegar orðið fyrir verulegum áföllum. Umtalsverðar skemmdir hafa orðið á verksmiðjunni enda þótt þær hafi ekki enn sem komið er valdið tjóni á vélabúnaði hennar, heldur fyrst og fremst skrifstofuhúsnæði og geymsluþróm fyrir hrá- efni. Ekki liggur enn fyrir, hvort Kísiliðjunni mun takast að safna nægilegu hráefni fyrir veturinn til þess að rekstur hennar geti gengið snurðulaust af þeim sökum fram á næsta vor. Hitt er alveg ljóst, að það mundi verða mikið áfall fyrir byggðarlögin á þessu svæði, ef Kísiliðjan yrði fyrir slíkum skemmdum af völdum náttúruhamfara, að verksmiðjurekstur legð- ist niður. Slík þróun mála mundi ekki aðeins hafa neikvæð áhrif i þessu norð- lenzka byggðarlagi heldur mundi alvarleg truflun á starfsemi þessa fyrirtækis hafa víðtækari áhrif. Slíkt atvinnufyrirtæki þarf á margvíslegri þjónustu að halda, sem skapar víða at- vinnu fyrir fólk. Næstu þrjá mánuði þarf að nota til skipulagðra að- gerða í því augnamiði að verja byggðina við Mývatn og mannvirki og þ.á m. Kís- iliðjuna fyrir áföllum, ef nýjar og alvarlegri nátt- úruhamfarir láta á sér kræla. Sá er munurinn nú, að vísindamenn geta sagt fyrir um hvað líklegt er að gerist og jafnvel nokkurn veginn hvenær. Þess vegna er hægt að undirbúa varn- araðgerðir, sem byggðar eru á mun meiri vitneskju en ella. Sambúð okkar við náttúruöflin í þessu landi hefur gert það að verkum, að við höfum hlotið umtals- verða þjálfun í að umgang- ast þau og fást við þau. Vestmannaeyjagosið var stórkostleg reynsla fyrir þjóðina alla í þeim efnum en þó fyrst og fremst Vest- manneyinga. Þá reynslu, sem fékkst í Vestmanna- eyjum, eigum við að not- færa okkur til þess að verja byggðina og mannvirkin við Mývatn, ef til alvar- legri atburða dregur þar. Kannski, og vonandi, kem- ur ekki til þess, en allur er varinn góður. Það er betra að gera slíkar varúðarráð- stafanir, jafnvel þótt þær kosti nokkurt fé, enda þótt þeirra verði kannski ekki þörf en láta það vera og sitja svo uppi hjálparvana, ef eitthvað ber að höndum. Þetta er mál sveitar- stjórna fyrir norðan, al- mannavarna og ríkisstjórn- ar. Þessir aðilar eiga nú þegar að skipuleggja starf, sem miðar að því að verja byggð og mannvirki við Mývatn, ef á þarf að halda. Til þess þarf að leggja þá fjármuni, sem duga. Þekk- ing vísindamanna, reynsl- an frá Vestmannaeyjagos- inu, starfsreynsla al- mannavarna og fjármunir eiga að stuðla að því að draga úr hugsanlegu tjóni af nýjum Mývatnseldum. Með þessum orðum vill Morgunblaðið ekki efna til ótta meðal íbúa við Mývatn enda veit Morgunblaðið, að þessi varnaðarorð verða ekki tekin á þann veg. Ná- býli okkar við náttúruöflin hefur hert þessa þjóð og hún tekur því, sem að höndum ber. Hún hefur í gegnum aldir orðið fyrir miklum búsifjum af völd- um náttúruhamfara en herzt við hverja raun. Svo mun einnig verða nú. En við skulum beita þeirri þekkingu og tækni, sem við höfum yfir að ráða, til þess að draga eins mikið úr hugsanlegu tjóni og mögu- legt er. Nýir Mývatnseldar? j Reykjavíkurbréf l ♦♦♦♦♦♦♦♦♦-Laugardagur 10. september* Undirbúningur kosninga Starf stjórnmálaflokkanna mótast nú í æ ríkara mæli af því, að tvennar kosriingar verða á miðju næsta ári. Allir hafa flokkarnir bersýnilega tekið þá ákvörðun að ganga snemma frá framboðum til alþingiskosninga og má gera ráð fyrir, að nokkuð almennt iiggi fyrir hvernig þing- framboðum verður háttað fyrir áramót. Þetta eru skynsamleg vinnubrögð, sem bæði er ætlað að gefa þingframbjóðendum kost á að kynna sig og síefnumál sín fyrir kjósendum með góðum fyr- irvara og ekki síður, að komast hjá því, að uppstilling til þings og sveitarstjórna fari fram á sama tíma. Sjálfsagt verða ekki veru- legar hreyfingar í sambandi við sveitarstjórnakosningar fyrr en upp úr áramótum Prófkjör eru að breiðast út og verða almennari innan flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn er frumkvöðull þeirra almennu og opnu prófkjara, sem nú ryðja sér æ meir til rúms. Slík prófkjör höfðu tíðkast innan Sjálfstæðis- flokksins í sambandi við borgar- stjórnarkosningar áratugum saman, með nokkrum hléum þó, en fyrir sveitarstjórnakosningar 1970 og þingkosningar 1971 var efnt til skipulegra, opinna prófkjöra með mjög víðtækri þátt- töku. Til marks um þann mikla undirbúning sem liggur að baki slíkum prófkjörum má nefna, að til þess þarf á þriðja mánuð. Ekki er óliklegt, að prófkjör til þíng- lista Sjálfstæðismanna i Reykja- vik fari fram í nóvembermánuði n.k. en til þess að svo megi verða þarf undirbúningur að hefjast nánast strax og er sá mála- tilbúnaður allur mjög opinn og lýðræðislegur, allt frá því að undirbúningur að kosningu kjör- nefndar hefst og þar til prófkjör- um lýkur. Framsóknarflokkurinn fylgdi á eftir Sjálfstæðisflokknum með takmarkaðri prófkjör — skoðana- kannanir — sem'fram fara innan mun takmarkaðri hóps. Engu að síður sýndu prófkjör í Sjálf- stæðisflokknum og skoðana- kannanir Framsóknarflokksins, að báðir stóru flokkarnir fundu mjög sterka þörf fyrir að taka upp lýðræðislegri vinnubrögð við upp- stillingu framboðslista og gefa þar með hinum almenna flokks- manni tækifæri til að hafa meiri áhrif en ella á val frambjóðenda. Öðrum þræði hefur þessi þörf líka vafalaust sprottið af óánægju kjósenda með það fyrirkomulag kjördæmaskipunar, sem nú ríkir og gefur kjósendum fá tækifæri til að hafa meiri áhrif en ella á val frambjóðenda. Öðrum þræði hefur þessi þörf líka vafalaust sprottið af óánægju kjósenda með það fyrirkomulag kjördæma- skipunar, sem nú ríkir og gefur kjósendum fá tækifæri til þess að láta hug sinn í ljós í garð ein- staklinga á framboðslistum. Nú hefur Alþýðuflokkurinn fylgt í kjölfarið o;f tekið upp opin og almenn prófkjör. Það er skynsam- leg ákvörðun hjá Alþýðuflokkn- um og likleg til þess að efla flokkinn á ný. Prófkjör skapa lif og starf innan flokkanna og i tengslum við þá og þeir leysa úr læðingi í flokkanna þágu krafta, sem þar hafa ekki áður komið við sögu. Þau skapa áhuga almennings á viðkomandi flokki og hleypa í hann nýju lífi. Alþýðuflokknum veitti ekki af, að svolitlum lífsanda yrði blásið í brjóst hans og það hefur undir- búníngur að prófkjörum innan hans sannarlega gert. þótt próf- kjörum fylgi líka ókostir eins og síðar verður að vikið. Þetta þýðir hins vegar, að nú er aðeins eftir einn stjórnmálaflokkur á íslandi, sem ekki gefur stuðningsmönnum sinum tækifæri til að taka á lýð- ræðislegan hátt þátt i vali fram- bjóðenda. Það er Alþýðubanda- lagið, sem allra flokka mest hefur á orði nauðsyn „atvinnulýð- ræðis“, „virks lýðræðis“ „lýð- ræðislegra vinnubragða" o.sv. frv. Ef gerð væri sérstök rann- sókn á notkun orða í málgögnum stjórnmálaflokka og meðal stjórn- málamanna mundi vafalaust koma í ljós, að engum er tamara að lýsa í orði stuðningi við lýð- ræði og lýðræðisleg vinnubrögð — og engum er tamara að sýna i verki fyrirlitningu á slíkum vinnubrögðum en einmitt Alþýðubandalaginu. Þetta er ekkert einstakt fyrirbrigði með Alþýðubandalagið á íslandi. Þvert á móti er það svo, að þeir, sem berjast fyrir sósialisma og þeir, sem telja sig hafa byggt upp sósíalískt þjóðskipulag tala allra manna mest um lýðræði og allir hafa þeir það að engu í verkum sínum. Val frambjóðenda Alþýðu- bandalagsins við næstu þing- kosningar stendur yfir og nú þegar hefur raunar verið tilkynnt um einn framboðslista. Að þessum ákvörðunum standa ekki innan Alþýðubandalagsins þúsundir flokksmanna og stuðningsmanna eins og í Sjálf- stæðisflokknum, Framsöknar- flokknum og Alþýðuflokknum heldur örfáir menn, fámennar flokksklíkur. Ekkert er við því að segja, þótt í stöku kjördæmum verði niðurstaðan sú, að beita ekki prófkjöri eða skoðana- könnunum eins og vafalaust verður i sumum kjördæmum hjá fyrstnefndu þremur flokkunum en þetta er algild stefna hjá Alþýðubandalaginu. Þar er þess vendilega gætt, að engir komist að til þess að taka þátt í vali frambjóðenda nema fámennar flokksklíkur. Ástæðan er auðvitað sú að Alþýðubandalagið er, eins og allir stjórnmála- flokkar, sem kenna sig við sósíalisma, einræðissinnaður flokkur, það prédikar lýðræðisleg vinnubrögð, hampar lýðræðis- legum flokkslögum (alveg eins og Sovétrikin hampa lýðræðisleg- ustu stjórnarskrá heims!) en í verki er það einræðishugarfarið ng fámennisstjórnin, sem ræður ríkjum. Er það þetta, sem hin unga vinstri sinnaða æska hefur áhuga á? Eru þetta hennar hug- myndir um ,,virkt“ lýðræði? Tæp- lega. Annmarkar prófkjöra Enginn skyldi halda, þótt hér hafi verið bent á kosti hinna almennu og opnu prófkjöra og lýst velþóknun á þeirri ákvörðun Alþýðuflokksins að taka upp slik prófkjör, að þau séu gallalaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.