Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977' 17 Guðmundur Stefánsson skrifar frá Osló: „Valið fremur milli manna en málaflokka Osló, 10. september frá Guð- mundi Stefánssyni fréttaritara Morgunblaðsins. Á morgun, sunnudag, og mánudag verða þingkosningar hér í Noregi. Kosningabaráttan hefur á köflum verið allhörð, en það sem hefur einkennt hana sérstaklega er fyrst og fremst fjöldi hneykslismála, sem komið hafa upp nú siðustu vikurnar. Ber þar að sjálfsögðu hæzt Ny Tids-málið og önnur mál tengd því. Þeir málaflokkar, sem ann- ars hafa sett mestan svip á kosningabaráttuna, eru at- vinnumál, umhverfis- og auð- lindamál. olíumál og skatta- mál. Að auki má nefna fóstur- eyðingar og ellilífeyrismál. Skoðanakannanir fram til þessa hafa bent til að borgara- flokkarnir færu með sigur af hólmi og mynduðu nýja stjórn undir forsæti Lars Korwalds, formanns Kristilega þjóðar- flokksins. Hins vegar breyttist þetta nokkuð í gær, er birt var skoðanakönnun, sem benti fremur til sigurs sósíalistísku flokkanna. Skv. henni myndi Verkamannaflokkurinn fá 44.5% og sósíalíski Vinstri- flokkurinn 4.9% eða samanlagt 49.4% atkvæða. Borgaraflokk- arnir þrir fá hins vegar saman- lagt aðeins 40.6% skv. könnun- 77 Teikning úr norsku blaði: Oddvar Nordli forsætisráðherra með rýting gegnum sig og íeioiogar borgaraflokkanna þriggja, Hægri, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins bfða eftir að hann gefi upp öndina svo að þeir komist að stjórnarstólnum. inni. Hægriflokkurinn 20.2%, Kristilegi þjóðarflokkurinn 10.3% og Miðflokkurinn 8%. Þá hefur það komið í ljós f skoðanakönnunum, að Odvar Nordli forsætisráðherra nýtur mestrar hylli meðal kjósenda af þeim mönnum, sem helzt kæmu til greina sem forsætisráðherra- efni eftir kosningar. Arbeiderbladet fagnar að vonum niðurstöðum þessarar siðustu skoðanakönnunar og bendir í leiðara í dag á ráða- leysi og samstöðuleysi borgara- flokkanna þriggja. Blaðið segir að ástæðan fyrir því að þessir þrír flokkar hafi ekki skýrt frá sameiginlegri stefnu sé sú, að flokkarnir hætti sér ekki út í umræður þar sem samstaða þeirra hangi á bláþræði. Hins vegar séu Verkamannaflokkur- inn og stefna hans öllum ljós og engin leynd yfir þvi hvað flokk- urinn ætli sér að gera næstu 4 árin. Kjöroró flokksins sé „at- vinna handa öllum“ og því sé um að gera að tryggja áfram- haldandi meirihluta Verka- mannaflokksins og þar með Nordlistjórn. Leiðari Dagblad- ets fjallar einnig um kosning- arnar. Segir þar að valið standi um hvaða ríkisstjórn fari með völd næstu 4 árin. Segir blaðið að það hafi einkennt kosninga- baráttuna hve stöðugt þjóðfé- lagið sé, alls konar bólur, sem komið hafi upp i kosningabar- áttunni, háfi fljótlega sprungið og hægriröddin, sem hafi hald- ið því fram, að sósíaldemókrat- ar væru ógnun við lýðræði hafi einnig þagnað fljótt. Segir blað- ið að munurinn á þeim flokkum sem valið standi um sé ekki meiri en svo, að kosningarnar snúist fremur um val milli manna en málefna. Þvert á móti eru gallar á prófkjör- um miklir eins og Sjálfstæðis- menn hafa kynnzt eftir að hafa efnt til t.d. í Reykjavík þriggja mjög víðtækra prófkjöra fyrir tvennar borgarstjórnarkosningar og einu sinni fyrir þingkosningar. ■ í fyrsta lagi spyrja menn sjálfa sig þeirra spurninga, hvort próf- kjörin tryggi þjóðinni hina hæf- ustu menn til setu á Alþingi. Innan Sjálfstæðisflokksins hefur þess orðið vart, að miklir hæfi- leikamenn eru ófáanlegir til þess að gefa kost á sér til þingmennsku vegna þess, að þeir hafa ekki geð i sér til að ganga í gegnum próf- kjörsleikinn. Prófkjörum fylgir mikill undirbúningur og áróður af hálfu þeirra einstaklinga, sem gefa kost á sér og leggja einhverja áherzlu á að ná kjöri. Stundum hefur sá áróður farið út fyrir öll skynsamleg mörk og bersýnilega töluverðum fjármunum varió i því skyni að tryggja viðkomandi kosningu. Það er óheilbrigt og flokkarnir þurfa að reyna að setja leikreglur, sem koma í veg fyrir óheilbrigð og óeðlileg vinnubrögó einstakra frambjóðenda í slíkum kosningum. Menn hafa lika velt fyrir sér áhrifum félagasamtaka á próf- kjör. Það hefur komið i ljós t.d. innan Sjálfstæðisflokksins, að menn, sem starfað hafa innan öfl- ugra félagsmálahreyfinga hafa-að ýmsu leyti sérstöðu i prófkjörum og eiga möguleika á að virkja þau í sina þágu. Þetta getur út af fyrir sig verið í lagi en engu að síður hefur þetta og ýmislegt fleira vakið upp spurningar um það, hvort prófkjörin tryggi þjóðinni beztu og hæfustu mennina til þingsetu eða hvort þau stuðli kannski fyrst og fremst að þvi, að stundarvinsældir eða tímabundin aðstaða fleyti mönnum inn á þing en eins og allir vita þarf ekkert beint samband að vera á milli vinsælda og hæfni. Ef Alþýðubandalagið hefði hafnað prófkjörum á málefna- legum forsendum af þessu tagi og einfaldlega komizt að þeirri niðurstöðu að fenginni reynslu, að prófkjör dugi ekki til þess að velja hina hæfustu frambjóð- endur, væri ekki ástæða til að gagnrýna flokkinn fyrir að fara ekki þessa leið. En þvi fer fjarri að Alþýðubandalagsmenn hafi hafnað prófkjörum á þessum forsendum. Þeir hafa aldrei reynt þau og þess vegna hafnað þeim á allt öðrum forsendum, nefnilega þeim, að þeir einf-aldlega vilja láta fámennar flokksklíkur ráða framboðum. Málefnaleg umbrot Vafalaust mun athygli almenn- ings næstu mánuði beinast mjög að prófkjörum og niðurstöðum þeirra. í stjórnmálum skipta per- sónur miklu máli en málefnin ekki siður. Þess vegna er fróðlegt nú. þegar fyrsti kosningatitringurinn er að fara um hið pólitiska svið að athuga málefnalega stöðu stjórn- málaflokkanna. Við slíka athugun kemur í ljós, að öll málefnaleg umbrot og allar hreyfingar í þeim efnum fara fram innan stjórnar- flokkanna tveggja og á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Það er með ólíkindum hve mál- efnasnauðir stjórnarandstöðu- flokkarnir tveir eru. Þegar mál- flutningur Alþýðubandalagsins síðustu þrjú ár er athugaður, kem- ur i ljós, að hann hefur nær ein- göngu beinzt að því aó berjast gegn samningum, sem tryggðu endanleg yfirráð Íslendinga yfir 200 mílna fiskveiðilögsögu og brottför brezkra togara af islands- miðum og að þvi að berjast gegn þeirri stóriðjustefnu, sem Alþýðu- bandalagið sjálft markaði í rikis- stjórn! Auk þessara tveggja „mál- efna“ hefur málflutningur Al- þýðubandalagsins í efnahagsmál- um einkennzt af þvi, að hægt sé að verða við öllum kröfum allra hags- munahópa i þjóðfélaginu um betri kjör og í gegnurn slikan málflutn- ing sér auðvitað allur almenning- ur. Ekki tekur betra við ef farið er að kanna málefnalega stöðu Al- þýðuflokksins. i raun og veru er ekki hægt að finna neitt, sem hægt er að kalla því nafni. Málefnaleg staða Alþýðuflokks sýnist einfald- lega ekki vera til. Hið eina, sem hægt er að festa hendur á, er að flokkurinn hefur sameinast um það að telja Kröfluvirkjun hneyksli. Öðru er ekki til að dreifa hjá Alþýðuflokknum. Gagnvart þessari málefnasnauðu stjórnar- andstöðu sitja svo stjórnarflokk- arnir tveir, sem vissulega hafa ekki átt rólega daga siðustu þrjú árin. Það hefur ekki verið tekið út með sældinni að sitja við stjórnvöl- inn á íslenzku þjóðarskútunni þennan tima. En hvað hefur áunn- izt? i fyrsta lagi hefur festa skap- ast á ný í utanrikis- og öryggismál- um þjóðarinnar. i öðru lagi hefur unnizt mesti sigur í sjálfstæðis- málum þjóðarinnar frá stofnun lýðveldis á Islandi 1944. Sá sigur vannst, þegar brezku togararnir sigldu á brott af íslandsmiðum í siðasta sinn 1. desember 1976. 1 þriðja lagi hefur tekizt að koma efnahagsmálum þjóðarinnar á réttan kjöl og finna fast land undir fótum, þótt við séum ekki komin á þurrt enn. i fjórða lagi hefur kom- izt festa og ró í þjóðlífið á ný eftir óróleika og öryggisleysi vinstri stjórnar tímabils. En jafnframt þessum málefnalega árangri er öll- um ljóst, að mikil málefnaleg um- brot eiga sér nú stað innan stjórn- arflokkanna beggja sem líkleg eru til þess að setja mark sitt á stjórn- málaþróunina á næstu árum. Það sem helzt hefur vakið athygli i þessum efnum eru í fyrsta lagi þær miklu umræður um fisk- verndarmál, sem orðið hafa á þessu ári, sumpart vegna þeirra viðtæku ráðstafana, sem rikis- stjórnin hefur gripið til i fisk- verndarmálum og að öðru leyti vegna óánægju í einstökum lands- hlutum með suma þætti þeirra ráð- stafana. Fiskverndarmálin eru eitt stærsta mál þjóðarinnar i dag. Þau eru viðkvæm og margslungin. En ríkisstjórnin hefur undir forystu Matthiasar Bjarnasonar, sjávarút- vegsráðherra, markað ákveðna stefnu í þeim málum. Sú stefna fellur ekki öllum í geð og til þess er ekki ætlast og við því var ekki búizt. En stefnumótunin og fram- kvæmd hennar hefur verið hik- laus og ákveðin. Stjórnarandstað- an hefur enga stefnu i fiskvernd- armálum og hefur aldrei haft. i öðru lagi má nefna þær miklu umræður, sem orðið hafa um byggðastefnu og suðvesturhornið undanfarna mánuði. Þessar um- ræður rista mjög djúpt hjá fólki i öllum landshlutum og skoðanir eru bæði sterkar og skiptar. En er ekki ljóst i hvaða farveg þessar umræður munu falla en þær munu setja svip sinn á stjórnmálin næstu misseri. Þær sýna, að menn telja timabært að stokka spilin upp, sjá hvaða árangur hefur náðst og hvert næst á að stefna. Spá Morgunblaðsins er sú, að smátt og smátt muni nást samstaða um að leggja stóraukna áherzlu á samgöngubætur og uppbyggingu félagslegrar aðstöðu í dreifbýlinu og atvinnuuppbyggingu á suðvest- urhorninu, ekki til þess að forða frá yfirvofandi atvinnuleysi vegna vanrækslusynda, þvi er ekki til að dreifa, heldur til þess að koma i veg fyrir, að vandi skapist i fram- tiðinni, eins og borgarstjórinn i Reykjavík, Birgir isl. Gunnarsson, bendir réttilega á í athyglisverðri grein í Morgunblaðinu í dag. Stjórnarandstaðan hefur enga stefnu í þessum málum. Hún hef- ur það eitt til málanna að leggja að allt það sem aflaga fer sé Sjálf- stæðisflokknum að kenna. Það er ekki málefnaleg afstaða og mun þvi engu skipta í augum kjósenda. í þriðja lagi er sýnt, að baráttan við verðbólguna og efnahagsvanda sem leiðir af henni mun enn standa yfir næstu árin. Rikis- stjórnin hefur náð verulegum árangri og þarf að ná enn meiri árangri. Sá er munurinn á þessari ríkisstjórn og t.d. þeirri, sem á undan fór, að þessi rikisstjórn gefst ekki upp við vandann, hún seiglast áfram í stríðinu við verð- bólguna, þótt hægt fari og stund- um verði hún fyrir áföllum. Hún hefur ákveðna stefnu í efnahags- málum, sem hún fylgir fram smátt og smátt, þótt hægt fari á stund- um. Hún mun að lokum ná því marki, sem að er stefnt. Stjórnar- andstaðan hefur allt kjörtimabilið verið gersamlega stefnulaus í efnahagsmálum. Hér hafa aðeins verið nefnd þrjú stór málefnasvið en af mörgu fleiru er að taka. Kjarni málsins er sá, að hin málefnalegu umbrot og þær málefnalegu umræður, sem einhverju máli skipta fara fram i herbúðum stjórnarflokkanna. Það sem frá stjórnarandstöðunni heyr- ist eru hávaðasöm upphlaup og hjóm eitt. Og það er þessi staö- reynd, sem mun skipta sköpum, þegar að kosningum kemur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.