Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 19 Guðrún Guðjónsdótt- ir — Minningarorð Fædd 2. desember 1891. I)áin 3. september 1977. Ég kynntist henni fyrst, þegar ég kom heim frá námi. Það var 1935. A milli heimilanna að Öldu- götu 17 og Ránargötu 21 lágu gangvegir. Þar bjó Guðbjörg Jónsdóttir með börnum sinum og fósturbörnum. Hún hafði þá misst mann sinn fyrir stuttu. Öldugötu- hjónin báru mikla virðingu fyrir húsmóðurinni að Ránargötu 21, frú Guðbjörgu Jónsdóttur Þess vegna var ég mjög feiminn, þegar ég var leiddur til þessarar konu sem sýningargripur. Ekkert þótti gott, nema frú Guðbjörg legði blessun sína yfir það. Mér er minnisstætt, þegar ég gekk innúr dyrunum: við mér blasti öldruð, virðuleg kona á drottningarstóli. Ég gekk að henni, heilsaði og kynnti mig. Hún sagði: „Vertu velkominn. Guð blessi þig.“ Við töluðum lengi saman. Hún spurði um fjarlæg lönd, siði þar og háttu. Hún virtist kunna skil á flestu og var sérstaklega fróðleiksfús. Það var fyrri kona mín, Karítas Jochumsdóttir, sem leiddi mig á fund frú Guðbjargar. Hún trúði á blessun hennar, enda hefur sú orðið raunin. Þetta var móðir Guðrúnar. Hún á ekki langt að sækja tryggð, höfðingslund og vináttu. Bræðrum Guðrúnar, Jóni og I Þorbirni, kynntist ég mjög vel. | Fór vel á með okkur enda voru þeir eins og Guðrún, góðir tryggir og umburðarlyndir. Minninguna getur enginn frá manni tekið. A æviferli minum hefi ég ekki kynnzt slíkri öðlingslund, sem Guðrúnar. Hún var alltaf bæt- andi, á hverju sem bjátaði. Guðrún hefur reynzt mér og mínum betur en orð fá lýst. Hjartahlýja hennar í minn garð verður aldrei fullþökkuð. Kona min og börn sakna góðs vinar. Ég votta Ólafiu Jochums- dóttur mágkonu minni, samúð mina. Þær voru uppeldissystur og bjuggu saman meirihluta ævinn- ar. Svo lengi sem ég man voru þær samstilltar í prúðmennsku og háttvísi. Með hjartans þökk fyrir það, að hafa átt þvi láni að fagna að kynn- ast Guðrúnu, þá kveð ég hana í bili. Gústaf A. Ágústsson. + Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HJÁLMARSÞÓRÐARJÓNSSONAR, Efstasundi 7 verður gerð frá Fossvegskirkju, mánudaginn 1 2 september kl 15 Þeim, sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Hjartavernd Kristín Ingimarsdóttir, Anna Hjálmarsdóttir, Baldvin Magnússon, Aðalsteinn Hjálmarsson, Margrét Árnadóttir, Guðbjörg Hjálmarsdóttir, Pétur Þorleifsson, og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðirokkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR ÓLAFSSON vörubflstjóri, Sæviðarsundi 21, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavik, mánudaginn 12 september kl 13.30 Þeim, sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaðra ög lamaðra Helga Oddsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, BirgirR. Gunnarsson, Sigurður Gunnarsson, og fjölskyldur. Erlendur Erlendsson, Auður H. Finnbogadóttir, Elin Magnúsdóttir, + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR SVEINGJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR, verður jarðsungin þriðjudaginn 13 sept kl 10.30 árdegis frá Fossvogskirkju Skarphéðinn Eyþórsson, Sigurmunda Guðmundsdóttir, Sigurður Skarphéðinsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Hólmfríður Skerphéðinsdóttir, Agnar Magnússon, Sigmunda Skarphéðinsdóttir, og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir sendum við þeim fjölmörgu ættingjum og vinum sem á margvíslegan hátt auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar. tengdamóður og ömmu LÚÐVÍKU LUND, Einnig þökkum við félagasamtökum á Raufarhöfn, í Garðabæ og Reykjavík auðsýnda virðingu og vinsemd í þessu sambandi Leifur Eiríksson Eysteinn Leifsson ína Guðmundsdóttir Rannveig Leifsdóttir Haraldur Sigurjónsson Ingibjörg Leifsdóttir Erlingur Leifsson Arndis Gunnarsdóttir. og barnabörn + Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vinsemd og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS RÓSINKRANZ fyrrverandi Þjóðleikhússtjóra, Guð blessi ykkuröll, Sigurlaug Rósinkranz og börn. Kristín S. Rósinkranz Gunnar Rósinkrans Mikael Magnússon, og börn. Jóhanna Rósinkranz og böm Bergljót Rósinkranz. Þegar þú kaupír málningu fyrir tugþúsundir þarf hún aó vera peninganna virði Nýtt Kópal er ný plastmálning frá Málningu hf., framleidd eftir nýjustu forskrift Dyrups. Nýtt Kópal býdur nýtt litakerfi meó fjölbreyttari tónalitum en nokkru sinni fyrr. Nýtt Kópal er níösterkt og eftir því endingargott! Nýtt Kópal hylur betur en aörar sambærilegar málningartegundir. Nýtt Kópal er létt í vinnu, og gefur fletinum fallega áferö. Nýtt Kópal lengirtímann þartil þú málarnæst! Þegar þú leggur saman verö, gæöi og endingu ^ veróur útkoman peninganna virói: Nýtt Kópal! | málnínglf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.