Morgunblaðið - 11.09.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977
Giísti hitti Guð á Akureyri 1948 og þar samdist svo um með þeim að hann keypti bát með
Guði og fœri í útgerð með honum til kristniboðs. Siðan héldu þeir báturinn og Gústi
Guðsmaður til Siglufjarðar og hófu kristniboð viða um heim.
/ Siglufirði þekkja allir Gústa Guðsmann, það er hans nafn i samfélaginu, en fœrri vita
að hann er Gislason, fœddur 29. ágúst 1897 i Dýrafirði og varð þvi 80 ára fyrir skömmu.
Hann hefur haldið sinu striki fram hjá spotti heimsins, nœgjusamur og hlýðinn útvegsbónda
stnum. Hann býr við fábrotið atlceti, hefur engan sima, þvi hann er i beinu sambandi við
heilagan anda og meira þarf hann ekki, en viða um heim hefur sent alla sina peninga til þess
að hlúa að öðrum. Hann prédikar ekki fyrir fagnandi hópum, en prédikar samt, vinnur sitt
starf og ávaxtar pund Drottins.
Gústi Guðsmaður gætir þess
vandlega að taka ekki þátt i gal-
skap heimsins. Hann ferðast um
heiminn i bæninni, hittir hina
strákana sem eru i kristniboðinu á
vettvangi bænarinnar og þannig
vinna þeir saman. Hann hefur pré-
dikað á Torginu á Siglufirði í 30 ár
og sótt sjóinn til þess að afla fjár i
kristniboðið. Viða um heim sendir
hann peninga til starfsins, boðunar
orðsins. Hann hefur að staðaldri
sent peninga til margra landa Af-
riku, Asiu og Suður-Ameriku,
Ástraliu og tii Bibliuútgáfu i Bret-
landi. Til dæmis hefur han'n kost-
að 50 Indiánaböm til náms i Boli-
viu. Hann hóf að styrkja þau kom-
ung til náms, en nú eru þau orðnir
stúdentar og farin að vinna fyrir
sitt fólk. Gústi Guðsmaður er 80
ára gamali og oft hafa þeir Sigur-
vin sótt fast sjóinn til þess að afia
fyrir kristniboðið. Síðasta árið hef-
ur Sigurvin verið vélarvana, en þá
hefur Gústi bara róið með árun-
um, sungið sálma og dýrð Drottni
tii þess að auka kraft sinn og þrótt
við erfiðar aðstæður. I ýmsum
veðraskiptum hefur hann lent til
sjós og lands, en ávallt hefur Guð
ieitt hann i geg um þrautir og
þykkni. Hann býr í Antonsbragga,
i risinu. Þar eru hvorki þægindi né
þykkar voðir á gólfum. Hann vill
heldur hlúa að þvi litla i heimin-
um, villuráfandi manneskjum og
sem þakklætisvott hefur hann
fengið þúsundir sendibréfa frá
fólki um allan heim, alls konar
fólki úr öllum þrepum þjóðfélags-
ins. í koffortinu hjá Gústa Guðs-
manni liggja saman bréf frá villi-
mönnum og, prófessorum, andleg-
um konum og trúarleiðtogum.
Guð hefur séð um útgerðina og
siðan þeir hófu róðurinn saman
hefur Gústi ekki þurft að hafa
áhyggjur af neinu. Hann hefur
haft bátinn, búið í bragganum og
skilað sinu pundi samvizkusam-
lega.
Einn maður
hrópandi á Torginu
Það var laugardagskvöld, úr-
hellis rigning og enginn á ferli um
miðbæ Siglufaarðar. Gústi Guðs-
maður var þó mættur til leiks með
svörtu, snjáðu leðurtöskuna sina,
ræður og Guðsorð i bunkum. f
liðiega klukkustund flutti hann
mál sitt með miklum tilþrifum og
innblásturinn þaut upp, einn mað-
ur hrópandi á torginu. Húsin voru
i kvöldmat og létu ekki raska ró
sinni. Hann lifði sig inn i orðið og
frásögn hans varð spennandi og
athyglisverð. Svo söng hann há-
stöfum, hærra en óperusöngvarar
á bezta aldri. Gústi fletti sálma-
bókinni. „Páskar, það hlýtur að
vera hægt að nota eitthvað úr þvi.“
Hann þeifaði lagið og söng Guði
dýrð, andanum sem einn skiptir
í risherbergi Gústa I
Antonsbragga. Gústi situr
hjð pappakössum fullum af
sendibréfum víða að úr
heiminum.
Prédikarinn á leið á Torgið
með handritatöskuna sína.
máli. Holdið er hismið sem hann
rekst stundum á, i blótsyrði, ásjón
lostafullrar konu eða holdlegum
dansi þar sem bláir vitislogar leika
undir. Nei, það er vissara að kon-
an sé undurfædd, dansinn i tign-
um anda og kærleikurinn i fyrir-
rúmi. Gústi Guðsmaður er svip-
mikið ankeri Siglufjarðar með sitt
strik til Guðs og góðvildar.
Sunnudagurinn rann upp, úr-
hellið gengur yfir, og það var bjart
og tært i firðinum. Bærinn var enn
I blundi, en rankaði þó við sér,
fótur færðist við fót. Gústi kom
stássklæddur á Torgið, seltan úr
yfirskegginu, sixpensarinn á sinum
stað og innan tiðar hóf hann upp
orðið: „Þeir sem eru frelsaðir og
frjálsir i dag og trúa á Jesúm, þeir
eru frjálsir, eiga frið og gleði
hvernig sem heimurinn veltir sér.
Þekkir þú Jesúm Krist, er hann nú
i hjarta þínu?“
Svo vatt prédikarinn sér yfir i 3.