Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 25 Efri myndin sýnir Antonsbragga, heimili Gústa. Hinar eru teknar í setustofu kristniboðans, þar sem hann er að blaða í erlendum sendi- bréfum og af rúmbálki hans þar sem hann biður með starfsfélögum sínum v(ða um heim Byssa veiðimannsins hangir fyrir ofan rúmgaflinn. mörgum löndum. Það er ekki svo nauið með landið, orðið er allra landa. Fyrir nokkru sendi ég nokkur hundruð þúsund krónur til Brezka Bibliufélagsins og þannig fer þetta i ýmsar áttir. Ég hef stutt kristniboð i heiminum siðan 1950 og það sem ég hef aflað fyrir á sjónum'hefur farið i það.“ „Það hefur verið drjúgur pen- ingur,“ skaut ég inn i. „Nei, það er voða litið, voða litið. En það var blessað þegar það kom til útlanda, blessað hjá heið- ingjunum og þar varð það mikið, þvi þar er viðmiðunin allt önnur. Þetta var sáðgjöf. Ég set pening- ana sem sæði inn i kristniboðið svo að það deyi ekki út og þannig geta jafnvel 100 dollarar hér og þar i heiminum orðið að gagni svo um munar. Það sem lifir af ellilif- eyrinum ásamt aflafé fer i þetta. Hér er bréf frá Aron. Ég veit ekkert hvaða trúflokki hann fylgir, en hann fylltist af heilögum anda i kringum 1960 i Noregi og fór út á akurínn, lagði fótspor Meistarans yfir Afriku.“ „Fer eftir því hvern- ig Guð gefur styrk þann dag” Talinu vék nú að sjósókn Gústa. „Já, vélin er búin að vera biluð hjá mér i eitt ár og ég býst við að ég verði að fá mér vél i bátinn eða hætta bara. Maður er orðinn svo slappur, 80 ára. Það er erfitt að róa með árum á miðin, en ég hef nú gert þaö siðan vélin bilaöi og áöur rérí ég alltaf hluta leiðarinnar með „Hitti Guð á Akureyri” árunum til þess að spara oliuna. Það kostar nokkur þúsund áratog að róa 2—3 milur og þann kraft sækir maður i orðið, en peningana sem sparast set ég i kristniboðið.“ „Þetta hlýtur að vera erfitt?“ „Já, ja, það veit ég ekki. Það fer eftir þvi hvemig Guð gefur styrk þann dag. Hann gefur stanzlaust styrk og nýjan þrótt og þótt gigtin hafi stundum verið að drepa mig, þá hefur hún hjaðnað niður þegar ég hef róið og einkanlega þegar ég hef gengið skart og mikið. Liklega rennur blóðið ekki nógu skart i gegnum æðarnar, það getur ver- ið.“ „Þú lýtur handleiðslunni?“ „Já, það hefur aldrei brugðizt. Einu sinni var ég i svartnætti uppi á heiði, svartaþoku og snjór á veginum. En Guð visaði mér. Svo gegndi ég ekki að fara nógu hátt i hliðina og allt I einu veit ég ekki fyrr en ég svif fram af hraunbrún, hafði runniö á svelli og sveif nú bara i loftinu, en það er ekkert með það, mér er hreinlega kippt aftur inn á bakkann og allt i þessu fina. En þetta er ekki nema það sem er alvanalegt, þvi Guð hefur gætt min svo vel og látið engla sina gæta min á öllum leiðum. Þetta atvik var einmitt þegar ég var að koma frá þvi að biðja Sigurgeir biskup um Nýja testa- mentið til dreifingar. En það gekk nú ekki þá, að vantaði bækurnar. „Tregur í lallið fyrir Guð fyrst” En svo sagði Guð mér að fara i nóvember 1946 að Markarfljóti i Hlið og aðvara fólkið fyrir eldgos- ið sem kæmi. Ég var þá að koma frá prédikun i Hnappadals- og Dalasýslu og Barðaströnd. Guð fór þá að tala til min og segja mér að fara i þessa för. Ég var ósköp tregur til að fara þetta lall: En þá tók hann bara frá mér matarlyst- ina til þess að knýja á, það var ekkert annað, svo það endaði með þvi að ég sagði: „Já, Drottinn, ég skal fara þetta, en þú verður að skaffa mér nóg af Nýja testament- um. „Svo sagði hann mér að það kæmi mikill vikur yfir, en ef fólkið treysti Guðs orði þá myndi hann bægja virkinum frá þannig að hann yrði ekki eins mikill. Þetta kom allt fram árið eftir i Heklu- gosinu 1947. Já, hann kvaðst mundu senda sunnanstorm og feykja öllum vikrinum svo það sæist ekki urmull eftir af honum. Nú voru þessir ungu menn að spotta þetta, náttúrulega, en gömlu konumar og eldri menn gerðu það ekki. Sérstaklega var einn ungur meður i spottinu, mál- ari, en móðir hans var trúuð og trúði þessu vel. Hún átti Guðs orð svo að það þurfti ekki að bæta við hana og hún sagöist búa sig undir það að taka á móti þessu og biðja Guð að lægja.“ Og áfram streymdu bréfin upp úr kössunum, eitt frá Ástraliu, annað frá Bolivíu, land af landi, yfirlit yfir ársstarfið, persónulegar frásagnir, farsæld i starfinu. „Já, það er eiginlega á Akureyri sem Guð kallaöi mig til kristni- boðs,“ hélt Gústi áfram. Ég var á leiðinni norur frá Reykjavik þegar hann sagði mér að fara til Akur- | eyrar. Ég hitti svo Guð á Akureyri og þar sagöi hann mér að ég ætti að fara i kristniboð með bát og hann skyldi gera okkur út. Þar með var ég kominn i fast pláss hjá honum. Það var i Glerárhverfinu sem hann benti mér á bátinn, sagði að hann yrði dýr, en ég skyldi samt kaupa hann og fara norður til Siglufjarðar þar sem útgerðin átti að hafa aðsetur til þess að koma orðinu um heim- inn.“ „Hvenær frelsaðist þú?“ „Þá var ég 13 ára, 1910. Ég var óþægur i skólanum, svona strákur sem aldrei vildi gefa sig, en hefði snemma þurft að fá aga. Það vant- aði agann, þennan aga sem nægði sko. Sumir geta skilið það. En þetta kom allt saman og upplaukst fyrir mér. Þá orti ég ljóðið sem ég sagði þér frá i rigningunni úti á Torgi i gær. Ég var þá endurfædd- ur og hafði talað um Guð ég veit ekki hvað lengi, en þegar ég sá Jesúm á krossinum fékk ég Ijóðið þegar heilagur andi opnaði það: Lofaður veri og lofsunginn, (þá er það sem andinn fer aö tala) mannkynsfrelsarinn Jesú minn. Huggi og hressi mig hveija stund, efli og magni kvikka lund. Hann styrki minn vilja svo ég sjái að stærsta sælan er að honum ég nái og veki mér skilning og sér- hvem minn þrótt i hans heilaga orði dag hvem og nótt. („Þetta er nokkurn veginn úr Bibliunni, eins og talað er um i 103 sálmi,“ skýtur Gústi inn i upplestur sinn) Lofsyngi siðan minn munn- ur og mál þann himneska föður af alhuga sál. Lofa þeim dásemdum hönd min og fætur, tökur og blóðæð um daga og nætur. Svo að mig hungri og þyrsti i hans vilja i huganum áköllun Drott- ins aö skilja. Þvi það að lifa þér er hér i heimi, æðsta mark, sálin, að frá henni streymi. Orð þitt að lesa, gefi mér hjarta, er hjá mér bærist i ljósinu bjarta. Og þig að finna, i gjartanu búa, vekja mér skilning, að sál- inni hlúa. Það er sá straumur af sæt- leikans friði, sem sál minni lyftir á há- leitara sviði, og mátt þann svo stóran, sem hana i heldur, himneski Jesú við sál mina stendur. Já, þetta er ekkert nema hlýðnin þetta starf, aðeins hlýðni. Við getum ekki neitt, heil- agur andi getur allt. Og oft þegar mesta mótstaðan hefur verið, einkanlega þegar ég var að préd- ika meðal Færeyinga, þá gerðu þeir allt til þess að eyðileggja það með spotti. Þá lagðist ég oft á hné hér við beðið og fór svo aftur til þeirra samdægurs, alveg eins og Páll gerði þegar hann sneri aftur inn i borgina, galvaskur. Maöur verður aö taka á móti mótlætinu, takast á við það, og þetta varð til þess að þeir tóku á móti Guðsorð- inu, það er lifsseigt, hitt gefst upp. Að snúast gegn hinu andlega og veraldlega grjótkasti, hvort sem er i borg eða bæ, i fjöru eða á fjalli, það er að leggja Guðs orð fyrir fólk og fá það til að meðtaka það.“ „Hún er gegnum- streymandi af heilögum anda” Á meðan við töluðum saman fletti Gústi stanzlaust bréfum til að sýna mér. Þama var eitt frá Nýju-Guineu þar sem Gústi hefur lagt hönd á plóginn i rekstri yfir 100 trúboðsstöðva, annað frá Alaska þar sem hann styrkti boð- un orðsins meðal Indiána og Eskimóa með nokkur hundruð dollurum. Hann fletti bréfi sem sagði frá starfinu i Nýju-Guineu. Ég spurði hann um eigin upp- runa. „Dýrfirðingur," svaraði hann, „fæddur á Hvammi fyrir innan Þingeyri, en var alinn upp á tsa- firði þar til ég fór til sjós suður.“ „Aldrei kvænzt?" „Nei, nei, nei, nei, nei, er þetta ekki gott bréf, hann er ágætur þessi sem stjómar þama i Nýju- Guineu og hann á huggulega konu sem getur sett sitt kristilega hugar- far svo vel fram að hún er gegn- umstreymandi af heilögum anda. Hún er sekratere, ritari hans.“ „Prédika til að halda mér við” Hann talaði stundarkorn um hana Margit i Bungaraville, eyju i Kyrrahafinu, en svo var aftur rennt i höfn á Siglufirði. „Það var þorskur hér i firðinum áður fyrr, en þeir em löngu búnir að uppræta hann, algjöriega. Ann- ars hef ég alltaf verið algjörlega óháður allri vinnu hér og geri ekkert á þeirra kostnað. Þeir eru lika algjörlega andstæðir kristni- boðinu, en Siglufjörður er bara litill hluti af minu umdæmi.“ „Er þér ekki leitt hve fáir hlusta á þig á Torginu til jafnaðar?“ „Nei, mér er alveg sama, ég prédika bara til þess að halda mér við, minnst einu sinni i viku svona álika lengi og messutimi stendur yfir. Maður verður að halda sér við i andanum, það er fyrir öllu. Það þarf ekki að vera nema eitt bam sem gripur orðið og fer með það heim, þá er það gott. Ég segi bömunum oft sögur, þau eru svo ljómandi bömin. Það var til dæm- is stúlkan i Oklahoma sem lenti i þurrkunum. Ég er svo þyrst, sagði hún við foreldra sina, ég þarf að fá vatn. Svo fóm þau að biðja um regn, en litla stelpan hlustaði á og segir siðan: Góði Jesú, þar sem þú ekki viit gefa okkur regn, viltu þá ekki vera svo góður að gefa okkur vatn i brunninn okkar. Og þetta gerir Jesú á svipstundu. Hann lét æð úr jörðinni opnast inn i brunn- inn. Bamið gerði meira heldur en heildin, 8 ára bam. Trúin var þvi eins og Biblian segir, fyrir trúna þú öðlast það, þetta var nákvæm- Sjá nœstu síðu A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.