Morgunblaðið - 11.09.1977, Síða 30

Morgunblaðið - 11.09.1977, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 STANLEY Verkfærin sem fara vel í hendi Góð verkfæri þurfa að fara vel í hendi, að öðrum kosti standa þau ekki undir nafni sínu og merki. STANLEY verkfærin hafa frá upphafi verið talin með bestu verkfærum, sem völ er á. Sumir fagmenn vilja alls ekki önnur verkfæri, hvort sem það heitir hefill, hamar, skrúfjárn eða surform, — meðal annars vegna þess hve STANLEY fer vel í hendi! STANLEY Hjálmar Jónsson- Fæddur26. mar\ 1905. I)áinn 2. septembt'r 1977. Á morgun, mánudaginn 12. september, verður Hjálmar Þórð- ur Jónsson lagðurtil hinztu hvílu. Hann lézt i Borgarspítalanum 2. september, eftir langvarandi veikindi. Hann var uppalinn á Stokks- eyri, en bjö lengst af hér i Reykja- vík. Hjálmar var einn af mörgum sinnar kynslóðar, sem ekki hafði tækifæri til skölagöngu, en menntaður var hann þrátt fyrir það. Hann var sérlega góðum gáf- uni gæddur, var sílesandi og fróð- ur um svo ótal marga hluti og hafði mjög einarðar skoðanir á hinum ýmsu málum. Hjálmar starfaði á fjórða tug ára hjá Olíuverzlun Islands, við ýmis störf, sem hann innti af hendi af samvizkusemi. Hann lét mál verkalýðshreyfingarinnar mikið til sín taka, var t.d. lengi trúnaðarmaður Dagsbrúnar á vinnustað og sat mörg A.S.Í. þing. Hjálmar var virtur og elskaður af fjölskyldu sinni, en þó mest að sinni góðu konu, Kristínu Ingi- marsdóttur, en betra og gæfu- legra hjónaband, er vart hægt að hugsa sér. Þau voru gift í rúmlega hálfa öld og stóðu ætið saman, í blíðu og stríðu. Þau eignuðust 4 börn, 3 þeirra komust upp, barna- börnin eru allmörg og barna- barnabörnin sömuleiðis. Við kveðjum hann með trega, en minningin um hann er svo hrein og þægileg; hún mun lifa um ókomna tíð. Fyrir hönd okkar efkomend- anna, þakka ég elskulegum afa mínum fyrir allt, sem hann hefur okkur gott gert. Hann hjálpaði okkur, þegar mikið lá við og er það sérstaklega þakkað hér. Megi göður guð styrkja elsku ömmu, sem sýnt hefur einstakan dugnað á þessum erfiðu timamót- um. Guð blessi minningú góðs drengs; honum er örugglega vel tekið í hinum æðra heimi. Kristín Árnadóttir. Þegar ég nú að leiðarlokum kveð vin minn Hjálmar Jónsson, afgreiðslumann, er vissulega margs að minnast og margt að þakka. Við Hjálmar ásamt fjöl- skyldum okkar bjuggum í sama húsi í hart nær 20 ár. Við slíkar aðstæður fer vart hjá því, að náin kynni skapist við daglega um- gengni og úrlausn sameiginlegra verkefna, sem sambýlið jafnan kallar á. Sagt er, að lengi skuli manninn reyna, en mér og fjölskyldu minni reyndist, að þess þurfti ekki varð- andi Hjálmar og fjölskyldu hans. Betra og ljúfara sambýlisfólk er vart hægt að hugsa sér enda eru minningar minar og fjölskyldu minnar sérstaklega hugljúfar varðandi kynni öll við Hjálmar og hans ágætu konu og börn. Það þakka ég og við og munum lengi muna. Hjálmar var Árnesingur að ætt, en fluttist til Reykjavíkur 1926, og þá kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni Kristínu Ingi- marsdóttur, sem ættuð er úr Eyja- firði, ágætri konu, sem var manni sínum mjög samhent í öllu. Þau stofnuðu heimili hér í Reykjavík og hafa búið þar allan sinn bú- skap. Þau eignuðust fjiigur börn, eitt þeirra dö ungt. en þrjú kom- ust upp hvert iiðru efnilegra og líkjast vissulega foreldrum sín- um, sem sérstaklega elskulegt fölk. Hjálmar og Kristín hófu hér Þóröur -Minning búskap i Reykjavik rétt fyrir kreppuna miklu. Hann var lengi ævi sinnar ekki heilsuhraustur en frá upphafi vega varð hann að brjöta sér braut, sér og fjölskyldu sinni til bjargar. Þetta tókst hon- um með mikilli prýði vegna dugn- aðar, samviskusemi ásamt mörg- um öðrum ágætum hæfileíkum. Mörg síðustu árin starfaði Hjálmar hjá Olíuverzlun Islands og naut þar, eins og annars staðar virðingar og trausts vinnufélaga sinna og var valinn trúnaðarmað- ur á vinnustað. Hann var traustur félagi í stétt- arfélagi sínu Dagsbrún og gegndi þar trúnaðarstörfum. Minningar mínar um Hjálmar eru tengdar minningunni um góð- an mann. Heilsteyptan og sann- gjarnan í skoðunum um menn og málefni, fordómalausan mann sem færði allt tii betri vegar. En lengst minnist ég hans þó, sem sambýlismannsins, þegar við saman litum yfir garðinn okkar og sáum biómin vaxa á vori og sumrí Tilfinning hans fyrir gróðri og lífi, fegurð náttúrunnar og landsins voru einstök. Nú er sá árstími, að brátt fölnar gróður og blikna blóm, en við vitum þó öll að aftur kemur vor á ný. Hjálmar var maður vorsins og lífsins og var svo hamingjusamur að njöta þess í ríkum mæli. Þrátt fyrir ýmsa skugga á lifsleið hans, eins og flestra annarra manna. Hjálmar horfði til lífsins í öllu lífi sínu og því lifði hann ham- ingjusömu lífi. Eg trúi þvi, að ljósið haldi áfram að lýsa honum, þó hann sé farinn héðan og það sama ljós lýsi eiginkonu hans og börnum og öðrum ástvinum á öförnum ævivegum. Gunnar Helgason Starfsmenn í heimilishjálp Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir því að ráða starfsfólk til heimilishjálpar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður heim- ilishjálpar Tjarnargötu 1 1, sími 1 8800. V,____________________________________________ 151 Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar Hafnarfjörður — í smíðum Til sölu 2ja herb. íbúðir ca. 40 — 50 fm. Verð kr 7 millj , og ein 74ra fm íbúð, verð kr. 8 millj íbúðunum verður skilað fullkláruðum með öllum innréttingum á næsta ári. Beðið eftir húsnæðismálaláni kr. 2.5 millj. Mismunur greiðist á 14 —16 mánuðum. Nánari upplýs- ingar og teikningar á skrifstofunni. Árni Grétar Finnsson hr/. Strandgötu 25 Hafnarfirði sími 5 1500.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.