Morgunblaðið - 07.10.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1977
5
Afmælisrit Verzlunar-
ráðs íslands komið út
I TILEFNI af 60 ára afmæli
Verzlunarráðs tslands er komið
út afmælisrit ráðsins. Fjöldi
greina er í ritinu, lýst er stefnu-
málum og starfsemi Verzlunar-
ráðsins og sagt frá helztu verkefn-
um fyrr og nú. Ritstjóri var Pétur
Eiríksson.
Verz|unarráð
Islands
60ára
Forsfða afmælisrits Verzlunar-
ráðs íslands.
Af efni ritsins má nefna viðtal
við Gisla Einarsson, formann
Verzlunarráðsins, þar sem hann
lýsir tilgangi með starfsemi ráðs-
ins; að vinna að hagsmunamálum
viðskiptalifsins og efla skilyrði
fyrir frjálst framtak einstaklinga
og samtaka og stuðla að frjálsum
viðskiptaháttum i landinu, eins og
segir í fréttatilkynningu frá út-
gefanda. Þá greinir Þorvarður
Eliasson, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðs, fráýmsum þáttum
i starfseminni og skýrt er frá
starfi upplýsingaskrifstofu
ráðsins, en forstöðumaður hennar
er Grímur Jósafatsson.
Þá er greint frá viðskiptaþingi
Verzlunarráðs er haldið verður
12. og 13. okt. n.k. og fjallar um
skipulag og starfsemi fjármagns-
markaðar á Islandi. Að lokum má
nefna upplýsingar um ýmsar
stofnanir tengdar Verzlunar-
ráðinu, svo sem Verzlunar-
bankanum, Lifeyrissjóði
verzlunarmanna, Tollvörugeymsl-
unni, Fjárfestingafélaginu,
Verslunarskóla Islands og fyrir-
huguðu húsi verzlunarinnar.
Nýlega var lokið malbikunarframkvæmdum við Austurmörk I Hvera-
gerði, en hún liggur til austurs út frá Breiðumörk. Gatan er 7 m breið
og um 500 m löng og eru þetta því alls um 3500 fermetrar. Að sögn
Magnúsar Magnússonar tæknifræðings er þetta ein af mestu umferðar-
götum þorpsins, aðallega ekin af ferðamönnum, fremur en Hveragerð-
ingum og sagði Magnús að um helgar á sumrin gæti umferð um þorpið
komist upp í 15—20 þúsund bifreiðar. Magnús sagði að nú væri unnið
að undirhúningi malbikunar I vesturhluta þorpsins og yrði malbikað
þar í haust ef tíðarfar leyfði.
Ljósm CieorR
Höskuldur Skagfjörð
með bamaskemmtanir
UM NÆSTU helgi hefst annar
áfangi hringferðar Höskulds
Skagfjörðs leikara um landið þar
sem hann heldur barna- og ungl-
ingaskemmtanir. Fyrsta skemmt-
un hans að þessu sinni verður á
Kirkjubæjarklaustri á laugar-
dagskvöld og á sunnudag verður
Höskuldur Skagfjörð.
hann í Ilöfn og uni kvöldið I
Suðursveit.
A síðast liðnum vetri og fram á
vor var Höskuldur á ferð um
Vestur- og Norðurland og
skemmti hann þá á samtals 40
stöðum, þorpum og bæjum og
gerði Höskuldur ráð fyrir aö í
þessum áfanga, sem veröur Suð-
urland nú fram að áramótum og
siðan Austurland eftir áramót,
veíiði skemmtanirnar hátt í 40.
Á dagskrá hjá Höskuldi eru
tvær kvikmyndir, bandarískar og
rússneskar verðlaunateiknimynd-
ir og síðan eru fimm atriði þar
sem Höskuldur skemmtir og-fær
til liðs við sig áheyrendur.
Selfoss:
Sýningu Péturs
Friðriks að ljúka
Málverkasýningu Péturs
Friðriks í Safnhúsi Árnes-
sýslu á Selfossi lýkur n.k.
sunnudagskvöld.
45 málverk eru á sýningunni,
en 11 myndir hafa selzt. Aðsókn
hefur verið góð aö sýningunni
sem opnuð var laugardaginn 1.
okt. Sýningin er opin daglega frá
4—10, en 2—10 um helgina.
Dömufötin margumtöluðu
nú komin með buxum eða pi/si
Fjöibreytt úrva/efha, /ita og sniða
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
Tifif.Wi.'Wíl
AUSTURSTRÆTI 22
LAUGAVEG 66
LAUGAVEG 20a
Simi frá skiptiborði 28155
Hausttískan