Morgunblaðið - 07.10.1977, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977
Fimmtugur:
Björn Jónsson sókn-
arprestur á Akranesi
Séra Björn Jónsson, sóknar-
prestur á Akranesi, er fimmtugur
í dag. í tilefni þessara tímamóta i
lifi hans langar mig til að senda
honum kveðju mína og alúðar-
þakklæti fyrir margþætt samstarf
og vináttu síðustu árin.
Séra Björn er Skagfirðingur að
ætt og uppruna, fæddur á Þverá i
Blönduhlíð hinn 7. október árið
1927. Foreldrar hans voru Jón
Stefánsson bóndi, látinn fyrir
tæpu ári, og kona hans, Gunnhild-
ur Björnsdóttir frá Miklabæ, sem
enn er á lífi. Hún er í hópi hinna
mörgu, fjölgáfuðu og glæsilegu
Miklabæjarsystkina, barna séra
Björns Jónssonar prófasts og
konu hans, frú Guðfinnu Jens-
dóttur.
Séra Björn lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
vorið 1949 og kandidatsprófi i
guðfræði við Háskóla íslands
þremur árum síðar, þá aðeins 24
ára gamall. Hann var ágætur
námsmaður, enda gæddur góðum
og fjölþættum gáfum og miklu
starfsþreki.
En séra Björn lauk guðfræði-
prófi vorið 1952, höfðu nýlega
verið gerðar lagabreytingar um
skipan prestakalla í landinu. Ein
þeirra breytinga var sú, að Út-
, .Smáauglýsingaþjónusta”
heitir nýja þjónustudeildin
okkar.
Setjir þú smáauglýsingu í
Dagblaðið getur þú beðið um
eftirtalda þjónustu hjá smá-
auglýsingaþjónustu blaðsins
þér að kostnaðarlausu:
Tilboðamóttöku í síma. Við
svörum þá í síma fyrir þig og
tökum við þeim tilboðum sem
berast. Tilboðin afhendum við
þér svo á lista þegar þér
hentar að sækja þau.
Upplýsingar í síma. Við
veitum fyrirspyrjendum
upplýsingar um það sem þú
auglýsir, þegar þeir hringja til
okkar.
Að sjálfsögðu aðstoðum við
þig, ef þú óskar þess, við að
orða auglýsingu þína sem
best.
Njóttu góðrar þjónustu
ókeypis.
BIAÐIÐ
Er smáauglýsingablaðið
þverholti T1 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld
skálaprestakalli var skipt og
stofnað nýtt prestakall í Keflavík
og Njarðvíkum, enda þá þegar
orðið fjölmennt á þeim slóðum.
Um þetta nýja prestakall sótti
hinn ungi kandidat ásamt nokkr-
um reyndum og góðum prestum.
Kosningabaráttan þótti hörð, og
úrslit voru talin tvísýn. Úrslit
urðu þó þau, að séra Björn sigraði
keppinauta sína með yfirburðum
og var vígður til Keflavíkur-
prestakalls hinn 27. júlí 1957.
Með glæsilegum hætti hófst fer-
ill unga prestsins í helgri þjón-
ustu, og síðan hefur leið hans
verið frægðarferill og sigurganga.
Sú ganga hefur ávallt verið geng-
in í heilagri trú og öruggri fylgd
með Kristi. Séra Björn þjónaði
Keflavíkurprestkalli við miklar
vinsældir og af miklum glæsibrag
nokkuð á þriðja tug ára, unz hann
sótti um Garðaprestakall á Akra-
nesi í lok ársins 1974 og hlaut
kosningu með miklum yfirburð-
um.
Séra Björn Jónsson er tvimæla-
laust i hópi fremstu presta á Is-
landi í dag og einn af skörungum
stéttarinnar. Hann er mikill
ræðumaður, flóðmælskur og frjór
og flytur mál sitt mað orðsins
krafti og kynngi. Þá er séra Björn
prýðilega ritfær. Hann hefur rit-
að fjölda greina um kirkjumál og
fleira og flutt fjölda erinda i út-
varp.
Séra Björn hefur jafnan verið
manna ötulastur og virkastur i
starfi. Hann hefur ávallt gegnt
annasömu embætti og haft víðan
og starfsmikinn verkahring. Auk
prestþjónustu í fjölmennum
prestaköllum hefur hann lengst
af haft með höndum kennslustörf
og hefur enn. Þá hefur hann unn-
ið mikið að félagsmálum, einkum
á sviði bindindismála, þar sem
hann hefur innt af höndum mikið
og fórnfúst starf. Hann er mikill
og starfsfús félagsmálamaður,
ráðhollur, réttsýnn og tillögugóð-
ur. Séra Björn er i rauninni
margra manna maki til allra
starfa. Afköst hans og starfsgeta
verða meðal annars skýrð með
því, að honum lætur einkar vel að
vinna á siðkvöldum og jafnvel
vaka og vinna um nætur, þá aðrir
sofa. Þá eins og endranær er
hugsunin skýr og frjó, hugurinn
opinn og viljinn sterkur og ein-
beittur.
Séra Björn Jónsson er haldinn
einni áráttu umfram flesta aðra
menn. Sú árátta er fólgin í því að
safna bókum, enda er nú svo kom-
ið, að hann á eitt af mestu og
beztu bókasöfnum í einkaeigu hér
á landi. Og allar þessar bækur,
ekki sízt þær gömlu og þær, sem
hafa að geyma trúarboðskap og
ljóð, eru miklir vinir hans, sem
honum þykir inniiega vænt um og
umgengst af einstakri nærfærni
og alúð. Auk þess að vera mjög
bókelskur, er séra Björn með bók-
fróðustu mönnum þessa lands.
Um sumt hefur hann sérþekkingu
fram yfir flesta aðra, svo er til
dæmis um allt, er lýtur að vestur-
íslenzkum ritum og vestur-
íslenzkri kristni. Hann hefur afl-
að sér mikillar þekkingar um
kristnisögu landa okkar vestan
hafs og flutt gagnmerk erindi um
þau efni. Séra Björn er einnig
mjög fróóur í sögu yfirleitt, ekki
sizt íslenzkri kirkjusögu. Hann er
einnig vel að sér í guðfræði og
hefur aflað sér viðbótarþekking-
ar, meðal annars með framhalds-
námi í Þýzkalandi.
Kona séra Björns er frú Sjöfn
Jónsdóttir, prófasts á Akranesi
Guðjónssonar.
Við hjónin færum þeim Birni
og frú Sjöfn, börnum þeirra og
fjölskyldunni allri, innilegustu
hamingjuóskir á þessum heilla-
degi. Við þökkum hlýhug þéirra
og góðvild í okkar garð og biðjum
þeim blessunar Guðs um framtíð
alla.
Jón Einarsson, Saurbæ.
Þegar ég lít til baka, einkum til
bernsku— og æskuáranna, finn
ég vel, að fáir vinir hafa skipað
hærri sess í huga mínum, en
Björn Jónsson, frændi minn. Við
erum jafnaldrar, ég fæddur að
vori, hann að hausti. Við
kynntumst snemma á bernsku-
dögum, vorum um tíma á sama
heimili og lengst af í sömu sveit,
og síðast en ekki sísi áttum vió, að
mig minnir, ætíð sömu áhuga-
málin.
Það er margs að minnast frá
þessum gömlu, góðu dögum. Ein
fyrsta bernskuminning mín er sú,
að Björn gerðist prestur, fór í pils
af ömmu og messaði yfir okkur
krökkunum, mér og Ragnheiði
frænku minni. Við sátum hljóð á
kofforti fram í skála, en Björn
klifraði upp á stól og hóf upp
raust sína .. .
Á bernskudögum áttum við
frændurnir ætið sömu áhugamál.
Við upptendruðum hvor annan. A
timabili voru það hetjur
lslendingasagnanna, sem heill-
uðu hugann, í annan tíma grísk
goðafræði eða herkóngur ' sög-
unnar: Gústaf Adólf, Karl 12 og
Napóleon. Það voru engin smá-
menni, sem hugurinn snerist um.
Þetta var skemmtilegur tími. Við
fundum myndir af hetjunum
okkar, Björn tálgaði grisku goðin
i stein, og átti hann og við mikið
safn steinmynda, og allt fékk
þetta lit og líf, svo að úr varð
ævintýraheimur, sem ennþá ber
Ijóma á í minningunni. Engir dag-
ar eru eins bjartir og fagrir og
heiðir og bernskudagarnir,
hugurinn er þá svo ósnortinn af
allri tilgerð eða mannasetningi,
sem síðar kann að koma og spilla.
Þegar æskudögum sleppti
Nýlega voru teknar ( notkun 48 nýjar fjölskylduíbúðir hermanna á
Keflavfkurflugvelli. Þetta er annar áfangi f byggingu samtals 180
fbúða sem samið var um 1974 milli Islands og Bandarfkjanna.
Myndin sýnir þegar Captain Jack T. Weir opnar íbúðirnar formlega að
viðstöddum gestum.