Morgunblaðið - 07.10.1977, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.10.1977, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977 — Lífeyrisþegar Framhald af bls. 32. greidslur sínar í gegnum banka, en erfiðara viðfangs var, er fólk sækir greiðslur sínar til Tryggingastofnunar- innar. Sigurður kvað tölvuvinnslu hafa verið komna það langt í gær, að ljóst væri að lífeyris- þegar gætu komið og sött pen- inga sína í dag og næstkom- andi mánudag. Er þetta 40% lífeyrisþega, sem sækir lífeyri sinn mánaðarlega. Kvað Sig- urður að takast ætti að greiða út lífeyrinn fyrir 11. október, sem er f.vrsti verkfallsdagur- inn. Sigurdur kvað lífeyris- þega mikið hafa hringt í Tryggingastofnunina til þess að spyrjast fyrir um þetta, en það var sem sagt ekki fyrr en síðdegis í gær, að ljóst var að útborgun myndi takast. — Stöðva húsverðir;.. Framhald af bls. 32. lands. Haraldur kvað þessi atriði óleyst, en um það myndi verk- failsnefnd BSRB fjalla. Hún er enn ekki farin að ræða þessi mál, en hins vegar barst á fund BSRB í gær sérstakt bréf frá Bandalagi háskólamanna, þar sem þeir lýsa því yfir, að þeir styðji kjarabar- áttu BSRB og hvetja félagsmenn sína til þess að gæta þess vei að ganga ekki inn á starfssvið félags- manna BSRB, ef til verkfalls kemur. Kaus BHM nefnd til þess að fjalla um hugsanleg vafaatriði í þessu sambandi. Haraldur kvað BSRB fagna þessari yfiriýsingu BHM. Hins vegar kvað hann eftir að ræða þessi vandamál gagnvart Al (il.VSINOASÍMINN Klt: ^22480 j jRiorflimbtnbiíi hinum æðri skólum og þvi kvaðst hann ekki geta fullyrt neitt á því stigi, sem máiið væri á nú. — Gligoric Framhald af bls. 32. Mbl. spurði Gligoric þessu næst, hvort úrslit Interpolis- skákmótsins sýndu að Karpov væri sterkasti skákmaður heimsins nú, og svaraði hann þá, að Karpov væri tvímæla- laust sá sterkasti þeirra skákr manna, sem tefidu opinberlega. Hann kvaðst leggja möguleika Spasskys og Kortsnojs á áskor- andaréttinum að jöfnu og að- spurður um möguleika þeirra gegn Karpov, sagði Gligoric, að þeir ættu sína möguleika gegn honum, þannig að hvorugur væri fyrirfram dæmdur til að tapa einvígi við heimsmeistar- ann. Um Interpolis-skákmótið sjálft sagði Gligoric, að það hefði verið mjög sterkt og erfitt möt. „Það var greinilegt, að Friðrik Olafsson fann aldrei sjálfan sig, en þetta mót var svo sterkt, að með minnsstu mistök- um gátu menn sveiflast milli efstu sæta og þess að lenda neð- arlega i mótinu. Árangur Karpovs er eins og við mátti biíast, en hins vegar kemur frammistaða Miles á óvart og einnig tefldi Timman mjög vei. Um aðra keppendur má segja að frammistaða þeirra hafi verið að vonum og um sjálfan mig get ég sagt, eð ég er alls ekki svo óánægður með ár- angurinn," sagði Svetosar Glicoiric. — Karpov Framhald af bls. 32. hvorn hann teldi líklegri áskoranda, Spassky eða Kortsnoj, sagðist hann álíta þá hafa jafna möguleika. Karpov sagði, að hann myndi ekki taka þátt i fleiri skákmötum á þessu ári, en ef til vill myndi hann taka þátt í einhverju móti áður en að heimsmeistaraeinviginu kæmi. Þegar Mbl. spurði Karpov um keppnina að forseta- embætti FIDE, kvaðst hann hafa mikið álit á bæði Friðrik Ólafssyni og Gligoirc, en kvaðst ekki treysta sér tíl að gera upp á milli möguleika þeirra til embættisins innbyrðis eða á móti öðrum. Spurningu um það, hvort hann teldi æskilegra að næsti forseti Alþjóðaskáksambandsins kæmi úr röðum skákmanna en ekki, svaraði Karpov: „Það er erfitt að setja dæmið upp á þennan hátt, en þó held ég að það hefði fleiri kosti en ókosti." — Nálarstungu- aðf erðin... Framhald af bls. 32. Einn viðstaddra tjáði Morgun- blaðinu, að furðulegt hafi verið að sjá hve krampaköstin hættu skyndilega, er læknarnir tóku tii sinna ráða með nálunum. Þetta mun vera fyrsta sinni, sem slikri nálarstunguaðferð er beitt á mannamóti sem knattleik hérlendis. Lögreglan flutti sjúklinginn í sjúkrahús. Leiknum mun hafa lokið með sigri Kínverja, 32 mörkum gegn 25. — Sáttafundur Framhald af bls. 32. nefnd að tryggja „að haldið verði uppi nauðsynlegri öryggisvörzlu og heilsugæzlu". Hún skal ákveða „hvaða einstakir menn skuli vinna í verkfalli." I greinargerð með lagafrum- varpinu er þetta verksvið þrengt ennþá meira, því að þar er einungis miðað við ,,að öryggi og heilsu fólks verði ekki stefnt í hættu“. BSRB teiur allar undanþágur umfram þetta tilheyra samtökun- um og vill leggja áherziu á, að góð samvinna takist milli BSRB og kjaradeilunefndar um lausn þessara mála og um mörkin í verkaskiptingunni þeirra á milli. frasteffens V E ft 21U HIN Laugavegi 58-Slmi 11699 Allar beiðnir um undanþágur þurfa að berast skrifstofu BSRB skriflega, og munu þær afgreiddar á vegum verkfalls- nefndar bandalagsins að fenginni umsögn bandalagsfélaganna.“ Sáttafundurinn í dag er fyrsti sáttafundurinn i tæplega mánuð, en síðasti fundur var föstudaginn 9. september. — Gengur þriðji maðurinn laus? Framhald af bls. 17 skýrt frá því að Gunnar Jónsson hefði tekið þátt í bollaleggingum um hvar bezt væri að fela lík Guðmundar Einarssonar Spurði verjandinn hvers vegna ákæruvaldið teldi þetta ekki upp í sókn sinni i málinu Kannski vegna þess að þá væri hægt að nota fram- burð hans sem vitnis en ekki ákærðs, og væri það miklu sterkara sönnunar- gagn. ..Fannst ákæruvaldinu Gumundarmálið kannski komið i óefni?” spurði Hilmar Hver er þriðji maðurinn? Hilmar Ingimundarson kvað veiga- miklar likur komnar fram i málinu sem bentu til sakleysis Tryggva Rúnars. Veigamikil atriði bendi til þess að Tryggvi sé ekki þriðji maðurinn, sem Erla talar um. Gengur kannski þriðji maðurinn ennþá laus og hefur Erla dregið Tryggva inn í málið til þess að hafa töluna rétta? Þannig spurði verjandinn í varnarræðu sinni i gær- morgun. í varnarræðunni krafðist verjandi sýknu i meintu nauðgunarmáli Tryggva Rúnars, en réttarhald í því fór fram fyrir luktum dyrum. Þá krafðist hann vægustu refsinga i sambandi við íkveikjuna i Litla-Hrauni og þjófnaðar- málin þrjú. Varnarræða Hilmars Ingi- mundarsonar tók tvær og hálfa klukku- stund Eitt sinn sló í brýnu milli verjandans og Braga saksóknara og bað verjandinn dómsforsetann að sjá til þess að hann yrði ekki truflaður í varnarræðu sinni. — SS. — Vörn Sævars... Framhald af bls. 17 fór til útlanda 1 9 janúar s.á og komið heim 23 janúar Þann dag fór hann ekki til heimilis þeirra Erlu, þar sem honum hafi fundist sambúð þeirra tak- ast illa — Hann flytur þó til hennar aftur i byrjun febrúarmánaðar. Vitni um verustað Sævars 23. jan — 1. febr. 1974? Á þessu tímabili bjó Sævar hjá stúlku sem starfaði á Kópavogshælinu, skv samhljóða framburði hans og stúlkunnar Á þessu tímabili var hann einnig undir eftirliti lögreglunnar að einhverju leyti og var handtekinn á Hamarsbraut 4 febrúar 1974 vegna rannsóknar á meintum fíkniefnabrotum hans Stúlkan í Kópavogi og einn annar aðili sem Sævar kveður hafa komið til þeirra, sagði verjandinn ekki hafa verið látin vitna um þennan framburð Sævars. Sævar hélt því fram í byrjun að hann hefði ekki komið á Hamarsbraut fyrr en að kvöldi 27 janúar 1977 og þá með öðrum manni Við þennan framburð heldur hann aftur nú. Verjandinn benti þpssu til stuðnings á skýrslu sem tekin var af Erlu Bolladóttur 29 janúar 1974 fyrir fíkniefnadómstólnum og aftur 7 febrúar s á., þar sem hún skýfði svo frá, að hún hefði ekki hitt Sævar frá því hann fór til útlanda fyrr en 27 janúar Verjand sagði síðan að ferðir Erlu aðfaranótt 27. janúar væru ekki fullkannaðar Hann tók það skýr^ lega fram að enginn annarra íbúa húss- ins að Hamarsbraut hefði orðið, varir við hávaða greinda nótt, né annan sérstakan umgang íbúar efri hæðar- innar hefðu aðgang að sama salerni og sakborningarnir og þá á neðstu hæð hússins. Engin sjálfstæð frásögn Sævars? Hann sagði að eftir að gögnin í málinu hefðu verið unnin í tölvu, hefði komið í Ijós, að um sama og enga sjálfstæða frásögn af atburðum hefði verið að ræða af hendi Sævars Allt sem fram hefði komið frá honum, hefðu einhverjir aðrir sakborninganna áður sagt við yfirheyrslur Hann benti ennfremur á ósamræmið í frásögnum þeirra allra Vitnisburð Erlu um atburði nætur- innar sagði verjandinn vera ótrúlega, þegar tekið væri tillit til þess, að hún setti þá ekki í samband við þann mann sem auglýst var að væri týndur Höfuðpaurinn? Verjandinn deildi harðlega á ákæru- valdið i ræðu sinni fyrir hve skýrlega að sínu mati það kæmi fram í öllu orðavali m.a í ákærunum, að Sævar væri „höfuðpaurinn" í öllum þessum brotum sem þar er getið og benti hann á ýmis atvik, sem mæltu gegn því að svo væri Hann vísaði einnig í óstöðugan framburð Alberts Klahn, þar sem mörg atriði fá sannanlega ekki staðist Verjandinn reifaði einnig meint sam- skipti sakborninganna við Guðmund Einarsson, og nefndi það m a að Sævar hefði á þessum tíma ekki skort peninga Undir lokin í ræðu sinni í gær tók hann fyrir aðra liði fyrri ákærunnar, en málflutningi var slitið kl 4 og framhald hans ákveðið kl 9 30 í dag, og mun verjandinn þá taka fyrir síðari ákær- una Jón Oddsson hefur þegar áskilið sér rétt til frekari lögfræðilegra íhugana um mál skjólstæðings síns og heim- færslu meintra brota hans Til laga- ákvæða í síðari umferð málflutnings- ins Á.J.R. — Sprengjugabb Framhald af bls. 1 Lögreglan vildi ekki segja á hvaða tungumáli var skrifað en gefið var í skyn að þar hefði og verið hótun til flugstjórans um að láta farþegana fara brott og fljúga siðan velinni til Mexico. Kenningar eru uppi um að félagar úr Rauða hernum hafi staðið að þessu, enda gerðist þetta örskömmu eftir að þeir höfðu hótað forsætisráðherra Japans, Takeo Fukuda, öliu illu í hefndarskyni fyrir að vilja að flugræningjarnir frá Dacca og fangarnir sem þeir fengu lausa í skiptum fyrir gísla yrðu sendir aftur til Japans. — Virða ekki mannréttindi Framhald af bls. 1 skiptir máli. Ég hef viljað heyra meira um afvopnun og hernaðar- stöðuna í Evrópu almennt," sagði hann. Vorontsov sagðist ekki telja að andrúmsloftið hefði breytzt vegna þessa og sagðist vonast til að ekki kæmi til neinna beinna deiina milli aðila. Hins vegar væri eðlilegt að andrúmsloftið á ráð- stefnunni væri nokkuð þungt, þar sem viðfangsefni hennar væru mikilsháttar. Orðunum auðljóslega beint að Kremlar bændum I ræðu sinni sagði Arthur Gold- berg að skylt væri að rísa öndvert gegn því þegar ráðstafanir væru gerðar í hvaða landi sem væri er beindust gegn einstaklingum og minnihlutahópum sem væru að vinna að því einu að framfylgja eðlilegum hugsjónum og ná tak- mörkum sem viðkomandi ættu rétt á. Sögðu fréttaskýrendur engan vafa leika á að þessum orðum væri beint til ráðamanna i Sovét- ríkjunum, sem hafa sett allmarga andófsmenn i fangelsi, er þeir hafa verið að reyna að kanna hvort Sovétmenn mundu standa við ákvæði Helsinkisáttmálans. Goldberg sagði að stjórnin í Washington vildi forðast illdeilur og aldrei var neitt land nefnt til sérstaklega þótt engum gæti dul- ist við hvað væri átt. Aður en þeir Goldberg og Vorontsov töluðu höfðu þeir skipzt á ræðum, svo að hvor vissi hvað hinn hafði til mál- anna að leggja. Goldberg ftrekaði einnig þá skoðun sem Carter Bandaríkja- forseti hefur margsinnis sett fram að viðhorfin hefðu ekki breytzt nægiiega mikið sums stað- ar í Evrópu til að vera í anda Helsinkisamningsins. En ekki væri fært að skiija mennréttinda- mál frá framförum í velferðar- málum almennt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.