Morgunblaðið - 07.10.1977, Side 22

Morgunblaðið - 07.10.1977, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÖBER 1977 22 raöauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar þakkir Innilegar þakkir öllum þeim sem glöddu mig á 70 ára afmælinu 28. sept. s.l. með blómum, skeytum og ýmsum góðum gjöfum. Sérstaklega þakka ég hjartanlega Borg- hildi, Smáraflöt 2 sem gerði mér daginn ánægjulegan. Guð blessi ykkur öll. Reykjavík 28. sept. 1977 Jón Guðni Pá/sson Skarðsh/íð 16, a Akureyri. Öllum þeim, sem heiðruðu mig með komu sinni, gjöfum og skeytum, á níræð- isafmæli mínu 24 september, og gerðu mér daginn ógleymanlegan, sendi ég mínar alúðar þakkir. He/gi Jónsson, Krókatúni 15, Akranesi. Ibúð Til sölu er hjá byggingafélagi Alþýðu í Hafnarfirði 4ra herb íbúð við Öldugötu Uppl. í síma 53590. Iðnaðar- skrifstofu- verzlunarhúsnæði Ca. 900 —1000 fm til leigu á mjög góðum stað. Leigist í einu lagi eða smærri einingum. Tilboð sendist Mbl. fyrir 12. október merkt: ,,l — 4302". fundir — mannfagnaöir Árensingar Steinþór Gestsson alþingismaður verð- ur staddur í Sjálfstæðishúsinu á Sel- fossi n.k. föstudag W. 4 — 7 s.d. Reykjaneskjördæmi Fundur verður haldinn í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi sunnudaginn 9. október kl. 15 að Hlé- garði í Mosfellssveit. Fundarefni: Á að viðhafa prófkjör til vals frambjóðenda á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi við næstu alþingis- kosningar? 1 . Prófkjörsreglur. 2. Ákvörðun um prófkjör. 3. Ákveðinn prófkjörsdagur ef samþykkt verður að viðhafa prófkjör. 4. Kosning kjörnefndar. 5. Almennar stjórnmálaumræður. Framsögumaður fjármála- ráðherra. Matthías Á. Mathiesen. Fulltrúar mæti vel og stundvíslega. Stjórn kjördæmisráðs. Landsmálafélagið Vörður: Ráðstefna um skóla- og menntamál ^ Landsmálafélagið Vörður, samband félaga Sjálfstæðis- manna í hverfum Reykjavíkur efnir til ráðstefnu um skóla- og menntamál laugardaginn 8. október kl. 14 í Valhöll, Háaleitis- braut 1. % A ráðstefnunm verður fjallað um einstaka þætti skóla- og menntamála og verða fluttar fjórar framsöguræður en síðan fara fram frjálsar umræður og fyrirspurnir. Framsögumenn. Guðmundsson Hannes Gissurarson, verkfræðingur. háskólanemi. 9 Allt áhugafólk um skóla- og menntamál er sérstaklega boðið velkomið. 0 Kaffiveitingar verða á boðstólnum. LAUGARDAGUR 8. OKT. — KL. 14:00 — VALHÖLL Stjórn Varðar. Vesturland Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisflokksins i vesturlands- kjördæmi verður haldinn i Hótel Stykkishólms laugardaginn 8. október n.k. og hefst kl. 14 Dagskrá: 1 Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Sturla Böðvarsson sveitarstjóri kynnir málefm Stykkis- hólms. 3. Rætt um undirbúning alþingiskosninga 1978. Stjórnm Fella og Hóla- hverfi Aðalfundur Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í Fella og Hólahverfi verður haldinn mánudaginn 10. október '77 kl. 8.30 að Seljabraut 54 (húsi Kjöt og Fisks). 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Á fundinn kemur Ragnar Júlíus- son, borgarfulltrúi og mun hann ræða um borgarmálefni. Félagar eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Kjördæmisráð Norðurlands-eystra heldur aðalfund sinn á Hótel Varðborð sunnudaginn 16. októberkl. 13.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Framboð til alþingiskosninga. 3. Önnur mál. Stjórnin. Fulltrúaráð sjálfstæðisfé- laganna í Eyjafirði, heldur aðalfund sinn á skrifstofunni, Kaupvangsstræti 4, laugardaginn 8. október kl. 14. Fundarefm: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Jón G. Sólnes alþingismaður mætir á fundinum. Stjórnin. Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Norður-Þingeyjarsýslu verður haldinn laugardaginn 8. októ- ber kl. 1 6 á Hótel Norðurljós. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Lárus Jónsson og Halldór Blöndal mæta á fundinum. Stjórnin. — Minning Sæmundur •- Framhald af bls. 13 þegar getið sér það orð, að þar færi eínn af duglegustu stýri- mönnum togaraflotans, og voru þar þó engir aukvisar á ferðinni, úrvalsmenn í hverju plássí, og ekki heiglum hent að stunda tog- arasjómennsku á þessum árum frekar en endranær, Það, sem vakti þó ennfremur athygli mína, auk hins mikia dugnaðar, var einstök heiðurs- mennska prúðmannlég framkoma og hin mikla athyglisgáfa. Hann var manna veðurglöggastur, hafði reyndar alist upp við sjómennsku frá unga aldri. Og hin mikla þekk- ing, sem hann hafði aflað sér, um allt það er laut að sjómennsku og á fyrirbærum náttúrunnar, bæði á legí og láði, var á þann veg að minnti á vísindamennsku. Hann kenndi mér snemma að þekkja merkustu stjörnukerfi himinhvolfsins og bentí mér á þann stórkostlega heim, sem þar er að finna. Svipað var seinna þegar við fórum sanan í skoðunar- ferðir eða á kræklingafjöru, alltaf sá hann eitthvað nýtt i skauti náttúrunnar og benti mér á hvað dýralífið var margbrotið og ein- stakt. Ég hefi aldrei farið með nokkrum öðrum í ferðir, sem opn- aði augu mín jafnvel fyrir hinum ýmsu dásemdum móður náttúru. Þess vegna hafði ég stundum orð á því við hann, að vísinda- mennska hefði staðið honum nær en sjómennskan, sem honum var þó í blóð borin. Sæmundur varð fyrir þeirri þungu reynslu, aðeins 15 ára gam- all, að lenda í strandi á b/v Skúla fógeta, og sjá þar á eftir mörgum skípsfélögum sínum hverfa í haf- ið, en sjálfur bjargaðist hann við illan leik. Á stríðsárunum varð B/v Vörður fyrir árás þýzkrar sprengjuflugvélar, og var einn maður skotinn til bana. Þá gerði hann það, sem réttast var, sneri skipinu ýmist hart i stjórn eða bak, þannig að erfiðara var fyrir vélina að hitta skipið, en vélbyss- urnar skutu látlaust á meðan, þanníg að þrátt fyrir allt sluppum við tiltölulega vel. Sama haust, 1942, urðum við á Verði þó fyrir því happi að bjarga 4 mönnum af enskri herflugvél, það var mið- nætti og svartaþoka. Vélin sendi neyðarmerki með vasaljósi, allt annað var bilað. Það tók alllangan tíma að finna mennina, sem voru í gúmbát, enda svartamyrkur, og þar held ég að Sæmundur hafi átt ejnn stærsta þátt í því, hversu vel tókst til, með árvekni og snar- ræði. Allt þetta, og margt margt fleira, varð til þess, að vinátta okkar hélzt, allt til hins sviplega fráfalls hans. Og þá átti hann ein- ungis 5 daga eftir til að ná sex- tugsaldri. Fjölskylda mín og ég sendum konu hans, Arndísi Thoroddsen og börnunum, Auðunni og Ingi- ,björgu, og allri hini stóru fjöl- skyldu hans. systrum og bræðrum djúpar samúðarkveðjur fyrir langa og trygga vináttu. Kristján Jónsson loftskeytamaður. „Fótmál dauðans fljótt er stijíið fram af myrkum grafarreit mitt er hold til moldar hnigið ihaske fvrr en af eg veit.“ (B. Ilalldórsson) Þegar lífsbók Sæmundar Auð- unssonar hefur lokast er mér efst í huga bakklæti fyrir að fá að kynna.st og starfa með sjómannin- um Sæmundi Auöunssyni. Okkar kynni hófust fyrir 30 ár-' um er ég gerðist háseti á b/v Kaldbak frá Akureyri vorið 1947, en það vor hóf Utgerðarfélag Akureyringa starfsemi sína og var Sæmundur fyrsti skipstjóri þess félags. Tel ég að á engan sé hallað þótt ég fullyrði að með aflasæld. reglusemi og góðri stjórnun hafi hann átt sinn stóra þátt í að móta og byggja upp út- gerðarfélagið, því lengi býr að fyrstu gerð. Árið 1964 lágu leiðir okkar saman að nýju er hann var framkvæmdastjóri fyrir útgerðar- félagið Blakk h.f er gerði út b/v Bjarna Ólafssön og var ég þar stýrimaður en skipstjóri var Þor- steinn Auðunsson bróðir hans. Þetta voru erfið ár í togaraútgerð, en þá kom best í ljós hans góða stjórnsemi. Síðastliðin 4 ár höfum við haft náið og gott samstarf um borð í r/s Bjarna Sæmundssyni. Þar kynntist ég honum best, hann var mikill bókamaður, víðlesinn og vel heima á flestum sviðum, skák- maður með ágætum. Að mínu mati var hann afburða skipstjóri, afar gætinn gagnvart áhöfn sinni og skipi, hélt uppi góðum aga og var sérstaklega veðurglöggur maður. Að lokum vil ég þakka honum samveruna á liðnum árum, frú Arndísi Thoroddsen og börnum þeirra sendi ég innilegar samúð- arkveðjur og bið þess að hann hljóti gott leiði að landi lifenda. Blessuð sé minning hans. Sigurður Árnason. Terylenebuxur frá kr. 2400.00. Leðurlíkijakkar kr. 5500.00. Terylenefrakkar kr. 5500.00. Skyrtur nýkomnar o.fl. ódýrt. Opið til kl. 7 á föstudag og 12 laugardag. Andrés Skólavörðustíg 22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.