Morgunblaðið - 07.10.1977, Síða 32

Morgunblaðið - 07.10.1977, Síða 32
p \uí;lvsim;asíminn er: 22480 2H*rgimbIabit> AUGLÝSINíiASÍMINN ER: 22480 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1977 Kjaradeila BSRB; Sáttafundur í dag eft- ir nær mánaðarhlé SÁTTASEMJARI ríkisins bodadi í gær deiluaðila í kjaradeilu Bandalags starfsmanna rikis og bæja vió fjármálaráðherra til sáttafundar árdegis í dag klukkan 10. Fundarboö þetla kom í kjölfar viðræðufundar, sem ráðherrarnir Matthías A. Mathiesen og Halldór E. Sigurðsson áttu við formann BSRB, Kristján Thorlacius. A fundi hjá BSRB var í gær sam- Karpov: Sé ekki fram á þátttöku mína í Reykjavík- urskákmótinu „ÉG sé ekki fram á að ég komi því við að taka þátt í Reykja- víkurskákmótinu í febrúar, því miður, því mig langar mjög að tefla á Íslandi," sagði Anatoly Karpov, heimsmeist- ari í skák, er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi eftir sigur hans á Interpolis-skákmótinu í Hoilandi. Karpov sagði að úr- slitin, hvað hann sjálfan snerti, hefðu ekki komið sér á óvart, en hins vegar hefði slæleg frammistaða Friðriks Olafssonar komið sér mest á óvart í mótinu, en Friðrik hafnaði í neðsta sæti. Þá sagði Karpov, að Miles hefði „teflt mjög vel“ og að Timman hefði „verið óheppinn að missa af þriðja sætinu". Þegar Mbl. spurði Karpov, Framhald á bls 18. þykkt að koma á fót verkfalls- vörzlu, ef til verkfalls kemur og ennfremur var óskað eftir sam- vinnu við kjaradeilunefnd um þau atriði verkfallsmálanna sem háðir aðilar fjalla um. Sáttafundurinn i dag verður í Háskóla íslands, m.a. í hátiðar- salnum. Á sameiginlegum fundi stjórnar, samninganefndar og verkfallsnefndar BSRB var hins vegarákveðiði gær að skipuleggja víðtæka verkfallsvörzlu bæði á vegum bandalagsins, svo og ein- stakra bandalagsfélaga. Skipulag og yfirstjórn verður nánar ákveðin af verkfallsnefnd BSRB. í fréttatilkynningu frá BSRB, sem Morgunblaðinu barst í gær, segir m.a.: „Hlutverk verkfalls- vözlunnar verði að koma í veg fyrir verkfallsbrot bæði af hálfu viðsemjenda bandalagsins og annarra og fylgjast með því að hvergi sé farið út fyrir löglegar ákvarðanir kjaradeilunefndar eða undanþáguheimildir verkfalls- nefndar. Samkvæmt lögum á kjaradeilu- Framhald á bls 18. Ljósm.: RAX. STEFAN tSLANDI átti sjötugsafmæli í gær og af þvf tilefni voru sérstakir afmælistónleikar í Þjóðleikhúsinu honum til heiðurs. Fjölmargir söngvarar komu fram á tónleikunum og þrír kórar. Fyrst söng Karlakór Reykjavíkur islenzk lög undir stjórn Páls P. Pálssonar. Síðan söng Jón Sigurbjörnsson, Guðrún A. Símonar, Guðmundur Jónsson, Þuriður Pálsdóttir, þá sungu Þuríður og Guðmundur dúett, og síðan söng Þjóðleikhússkórinn. Þá söng Magnús Jónsson, Sigurveig Hjaltested, Kristinn Hallsson, þá Magnús og Kristinn saman dúett, og loks söng Skagfirzka söngsveitin undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnardóttur. Undirleikarar voru Carl Billich og Agnes Löve. Að loknum tónleikunum flutti Sveinn Einarsson þjóðleikhússstjóri ávarp til afmælisbarnsins, sem kallaður var upp á sviðið og hylltur með ferföldu húrrahrópi. Myndin er tekin í Þjöðleikhúsinu i gærkveldi, er Stefán tslandi var hylltur. Stöðva húsverðir rekst- ur æðri menntastofnana? Lífeyrisþegar fá lífeyrinn fyrir verkfall LJÓST varð síðari hluta dags i gær, að starfsfólki Trygginga- stofnunar ríkisins tækist að undirbúa útborgun lífeyris- greiðslna til lífeyrisþega áður en til verkfalls kemur hinn 11. október næstkomandi. Sam- kvææmt upplýsingum Sigurð- ar Ingimundarsonar, forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins, var Ijóst að unnt yrði að greiða 60% lífeyrisþega, sem fá Framhald á bls 18. NOKKUR vafi er nú á því hvernig háttað verður starfsemi mennta- skóla, fjölbrautaskóla og Háskól- ans, ef til verkfalls Bandalags starfsmanna ríkis og bæja kemur eftir helgina. Kennaraliðið við þessa skóla mun allt teljast til Bandalags háskólamanna en hins vegar eru húsverðir í skólum þessum auk skrifstofuliðs innan BSRB. Hefur því vaknað sú spurning hvort verkfall þessara aðila skuli lama algjörlega starf- semi þessara skólastofnana. Arni Gunnarsson, deildarstjóri hjá menntamálaráðuneytinu, sagði i samtali við Morgunblaðið i gær að verið væri að kanna þetta mál af hálfu ráðuneytisins en kvaðst vænta þess að málin skýrð- ust í kringum helgina. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um þetta atriði en benti á að af hálfu ráðuneytisins væri að sjálfsögðu talið óeðlilegt að aðeins fámennur hópur lamaði starfsemi heilla stofnana þar sem yfirgnæfandi meirihluti starfsliðsins væri í öðru stéttarfélagi og ekki í verk- falli. Morgunblaðið spurði Harald Steinþórsson framkvæmdastjóra BSRB um þessi vandamál í sam- bandi við menntaskólana, fjöl- brautaskólana og Háskóla Is- Framhald á bls 18. Varnir fluttar í Guðmundarmálinu í gær: Verjendur rannsókn □ □ Sjá nánar á bls. 16 «g 17. gagnrýna harkalega VERJENDUR Tryggva Rúnars Leifssonar og Sævars Marfnós Ciesielskis, hæstaréttarlögmenn- irnir Hilmar Ingimundarson og Jón Oddsson fluttu varnarræður sínar í Guðmunarmálinu fyrir sakadómi Reykjavíkur í gær. Krefjast báðir að skjólstæðingar þeirra verði sýknaðir af ákærum um að hafa orðið Guðmundi Ein- arssyni að bana. Gligoric í samtali við Mbl.; Ihuga að draga til baka framboð mitt til forsetastarfs FIDE „JÚ. ÉG er að hugsa um að draga framboð mitt til forseta- embættis FIDE til baka, en endanlega ákvörðun í málinu mun ég ekki taka fyrr en eftir áramót," sagði júgóslavneski stórmeistarinn Svetosar Glicoric í samtali við Mbl. f gærkvöldi. Gligoric sagði, að það hefði aldrei verið sin ósk að fara í framboðið, en hann hefði orðið við eindregnum óskum skáksambands sfns þar um. Síðan framboðið var tiikynnt hefðu svo önnur framboð litið dagsins ljós, þar á meðal fram- boð Friðriks Ólafssonar, og þar sem hann væri viss um að eftir embættinu sæktust menn, sem gætu ekki síður en hann orðið verðugir forsetar FIDE, þá myndi hann nú endurskoða af- stöðu sfna til eigin framboðs. Þegar Mbl. spurði Gligoric, hvort hann myndi styðja fram- boð Friðriks, ef hann sjálfur tæki sitt aftur, svaraði hann: „Ég er aðeins einstaklingur, en ekki skáksamband. En Friðrik Ölafsson er góður vinur minn og ég met hann mjög mikils og ber mikla virðingu fyrir hon- um.“ Framhald á bls 18. Gligoric ásamt Karpov. í ræðum beggja verjenda kom fram mikil gagnrýni á fram- kvæmd rannsóknar Guðmundar- málsins og sérstaklega á frum- rannsókn málsins. Til dæfnis lét Hilmar Ingimundarson þau orð falla, að við rannsóknina hefðu verið þverbrotnar allar þær meg- inreglur, sem eigi að tryggja rétt hinna grunuðu. Málflutningi verður haldið áfram í dag i Guðmundar- og Geir- finnsmálum. Nálarstungu- aðferð beitt á knattleik HAUKAR léku handknattleik við kfnverskt handknattleikslið í íþróttahúsinu f Hafnarfirði í gær- kveldi. Þegar leikurinn stóð sem hæst féll einn áhorfenda skyndi- lega niður f flogaveikiskasti. Með kfnverska liðinu voru læknar, sem brugðu skjótt við og aðstoðuðu þeir flogaveikis- sjúklinginn með nálastungu- meðferð. Framhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.