Morgunblaðið - 09.11.1977, Síða 1

Morgunblaðið - 09.11.1977, Síða 1
32 SÍÐUR 249. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Matthías Á. Mathiesen, f jármálaráðherra í f járlagarædu: Gagnger umskipti í ríkisfjármálum Halli á ríkiss jóði nær horf inn—Hætta á vaxandi þenslu kref st aukins aðhalds □ ---------------------------------------------------□ Sjá fvrri hluta fjárlagaræðu bls. 16 og 17 □ ---------------------------------------------------□ MATTHÍAS A Mathiesen, fjármálaráðherra, flutti fjár- lagaræðu sína á Alþingi í gær og sagði, að á síðustu árum hefðu orðið svo gagnger umskipti í ríkisfjármálum og utanríkisverzlun í átt til jafnvægis að þess væru fá dæmi, þegar litið væri tii nálægra landa, sérstaklega þegar þess væri gætt, að allt þetta tímahil hefði tekizt að tryggja hér fulla atvinnu og fremur hefði borið á vinnuaflsskorti og óhóflegri vfirvinnu en atvinnulevsi. Fjármálaráðherra henti á í ræðu sinni, að í stað hins geigvænlega viðskiptahalla áranna 1974 og 1975 hefði á þessu og síðasta ári tekizt að koma viðskiptahallanum niður í 1—2% af þjóðarframleiðslu og hefðu ríkisfjár- málin átt sinn þátt í því. Halli á ríkisfjármálum hefði numið um 3% af þjóðarframleiðslu, en hann hefði nánast horfið á síðasta ári og þessu ári. Þetta er mikil- vægur árangur, sem við verðum að varðveita, sagði Matthías Á. Mathiesen. Hins vegar sagði fjármálaráð- herra, að verðbólgan hefði reynzt erfið úrlausnar. Þótt dregið hefði úr hraða verðbólgu um nær helm- ing á siðustu þremur árum hefði hann enn verið um 26% um mitt þetta ár. Miðað hefði í rétta átt og vonir um að framhald gæti orðið á Matthías A. Mathiesen fjármálaráðherra þeirri þróun en þær hefðu brugð- izt i bili. Við verðum að vona að hér sé aðeins um hlé að ræða, hlé til þess að undirbúa öfluga sókn gegn verðbólgu, sagði ráðherr- ann. í lok ræðu sinnar sagði Matthí- as A. Mathiesen, að nú væri hætta á þenslu i þjóðfélaginu og gegn þeirri hættu þyrfti að beita rikis- fjármálum. Meðan þetta frum- varp væri til meðferðar i Alþingi yrðu lagðar fram tillögur um að treysta fjárhag ríkissjóðs á næsta ári. Ekki mætti glata því, sem áunnizt hefði á siðustu þremur árum á sviði ríkisfjármála. Vel má vera, sagði fjármálaráðherra að grípa verði til svokallaðra ,,óvinsælla“ ráðstafana i efna- hagsmálum þjóðarinnar en undan þeirri ábyrgð getur hvorki ríkis- stjórn né Alþingi vikizt. 1 fjárlagaræðu Matthíasar A. Mathiesen kom m.a. fram að horf- ur væru nú lakari i efnahagsmál- um en verið hefði frám eftir ár- inu og væru ástæðurnar tvær: # Launasamningar sl. sumar og samningar, sem nýlega voru gerð- ir við opinbera starfsmenn fóru fram yfir þau mörk, sem efna- hagsbatinn gaf tilefni til. # Þess sjást merki, að verðhækk- un útflutningsafurða hafi náð hámarki og sölutregðu gæti á sumum þeirra. Afleiðingar þessa eru: # Erfiðleikar eru í rekstri at- vinnugreina. sem framleiða til út- flutnings eða eiga i beinni sam- keppni við innflutta vöru. # Framleiðsla og atvinna standa þvi ekki eins traustum fótuni og æskilegt er. 0 Hætta er á vaxandi verðbólgu og erfitt kann að reynast að ná jöfnuði í viðskiptum við önnur lönd á næsta ári. Viðbrögð fjármálaráðherra við þessari framvindu mála eru: # Stefnan i fjártnálum og pen- Fi ambald á bls. 22. Tvö mannrán áítalíu á einum sólarhring Yfir 2 milljarða króna lausnar- gjaldskrafa fyrir hertogann H6m — 8. nóvembor — Reuter FORSTJÓRA einnar stærstu vopnaverksmiðju á ltalíu var rænt f kvöld. Réðust vopnaðir menn, sem lögreglan telur að hafi verið að minnsta kosti þrfr tals- ins, að Pietro Fiocchi skammt frá heimili hans í smábænum Lecco, Dræm kjörsókn í New York- fastlega búizt við sigri Kochs New York — 8. nóv. — SLAGVEÐUR olli því að kjör- sókn var mjög drænt f borgar- stjórakosningunum f New York í dag, og þegar lfða tók að kvöldi leit út fyrir að þegar yfir lyki færi hún varl yfir 65%. Niðurstöður skoðana- kannana síðustu daga fyrir kosningarnar hafa verið á þá leið að demókratinn Edward Koch færi með sigur af hólmi f Fratnhald á bls. 22. f námunda við Mílanó, og tróðu honum inn f bifreið, sem falin var í nágrenninu, og óku sfðan af stað með ofsahraða. Þegar sfðast frétt- ist hafði ekkert heyrzt um kröfur mannræningjanna en þegar mannránið átti sér stað var Fiocchi á leið heim til sfn frá vinnu. Þetta er annað mannránið á Italfu á einum sólarhring en f gærkvöldi réðust fimm vopnaðir og grfmuklæddir menn á Massimiliano Grazioli hertoga þar sem hann var á gangi um landareign sfna f nágrenni Róm- ar. Hertoginn er vellauðugur, og hafa mannræningjarnir krafizt 10 milljarða líra lausnargjalds fyrir hann, eða jafngildi um 2.3 millj- arða íslenzkra króna. „Við viljum fá 10 milljarða, annars mun gtsl- inn deyja,“ sagði maður sem hafði samband við lögfræðing Grazioli- fjölskyldunnar i gær. Grazioli hertogi er fyrsti aðals- maðurinn á ítalíu sem verður fórnarlamb mannræningja. Enn er ekki vitað hvernig fjölskylda hans bregzt víð kröfu mannræn- tngjanna, en fjölskylda hans ráð- færði sig við lögfræðinga unt mál- ið í dag i höll sinni í útjaðri Róm- ar i dag. Lufthansi Luftha fthansa e Aeceptance [Baggage Acceptai M Vopnaðir lögreglumenn við afgreiðsluborð Lufthansa á flugvellinum f Frankfurt-am-Main I gær eftir að nýjar hótanir um flugrán höfðu borizt vfirvöldum. (AP-Simamynd) V-Þjóðverjar herða enn öryggiseftirlitið Flugi aflýst til Alsírs Köln — 8. nóvember — Keuter' — AIV V-Þýzka stjórnin skýrði frá því í dag að nýjar hótanir unt flugrán hefðu borizt, og var samstundis hert enn á öryggisi áðsiöfuntmt á öllunt flugvöilum í V-Þýzkalandi. Aflýst var áætlunarflugi Luft- hansa frá Frankfurt til Alsírs, og | bendir nú allt til þess að áætlun- | arflugi þangað á laugardaginn verði einnig aflýst, nema Alsfr- stjórn gangi að kröfum V- Þjóðverja um að þeir fái sjálfir að annast öryggiseftirlit vegna véla Lufthansa á flugvellinum við höfuðborgina. í gær urðu Libýu- menn og Spánverjar við kröfum um slfkl öryggiseftirlit vegna flugs v-þýzka flugfélagsins, og eru Alsír-menn þá þeir einu sei ekki hafa viljað ganga að þeim. A aðalfundi IATA, alþjóðasam bands flugféiaga. i Madrid í dag var samþykkt samhljóða ólyktun þai sem skoraö er ó allar rikis- stjórnir heims aö láta stjórnmála- Framhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.