Morgunblaðið - 09.11.1977, Side 5

Morgunblaðið - 09.11.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1977 5 Þingmenn þingrækir eftir 1980 noti þeir ekki fornan framburð Tillaga frá Magnúsi Kjartanssyni um rétt- ritun og íslenzkt mál MAGNÍJS Kjartansson (Abl) hef- ur flutt breytingartillögu við til- lögu til þingsályktunar um fs- lenzka stafsetningu, sem 11 þing- menn úr fjórum þingflokkum fluttu nýverið. Fjallar tillaga Magnúsar um fastar ritreglur um notkun einstakra stafa I íslenzku. Þar sem sumir þessara stafa eru ekki tiltækir f stafrófi nútíma prentsmiðja verður að vísa til meðfylgjandi myndar af þing- skjali svo efnisatriði þess komist til skila. Þá leggur Magnús til að sett skuli „löggjöf er banni mönnum að rita islenzkt mál nema þeir beiti rétt öllum reglum íslenzkra stjórnvalda um stafsetningu og greinarmerkjaskipan. Skulu brot á reglum um stafsetningu og greinarmerkjaskipan varða refs- Framhald á bls. 23 1977 <99. löggjafarþing) — 58. mél. Sþ. 82. Breytingartillaga við till. til þál. um íslenska stafsetningu. Frá Magnúsi Kjartanssyni. Aftan við tillögugreinina bœtist: ^ Settar skulu fastar reglur um að rita skuli æ og œ samkvæmt uppruna og fram- ' burði sem tiðkaðist hérlendis frain á 13du öld. I 1 staðinn fyrir bókstafinn ö skal rita q og 0 samkvæmt sömu reglum um upp-1 runa og fornan framburð. | l'stað þess að einhafa bókstafinn k, skal rita c, k eða q, samkvæmt reglum sem lærðustu málvísindamenn finna um notkun þessara bókstafa í elstu handritum islenskum. Sett skal löggjöf sem banni mönnum að rita íslenskt mál nema þeir beiti rétt ^ öllum reglum íslenskra stjórnvalda um stafsetningu og greinarmerkjaskipan. Skulu brot á reglum um stafsetningu og greinannerkjaskipan varða refsingu og hámarks- refsingu beitt ef menn rita ekki y, z, æ, re, q og 0 samkvæmt settum reglum. Skipuð skal nefnd hinna lærðustu hljóðfræðinga til þess að setja reglur um J breytingar á framburði' tslendinga, svo að hann verði sem likastur framburði land- ' námsmanna, og nefnist þær reglur samræmdur framburður fom. Síðan skal gerð ^ tiu ára áætiun um að kenna þjóðinni þennan framburð, en að þeim tima liðnum skal beitt refsingum, ef talfærin móta önnur hljóð en reglurnar mæla fyrir um. \ Skulu þingmenn vera brautryðjendur um þessar breytingar og menn gerðir þing- krækir eftir 1980 ef þeir nota ekki samræmdan framburð fornan innan þings og lutan. Eftir þann tima skal engin fá að bjóða sig fram til þings nema hann standist f framburðarpróf að mati hinna lærðustu hljóðfræðinga. Ný heilsugæzlustöð hefur tekið til starfa á Höfn í Hornafirði og var hún vígð af Matthíasi Bjarnasyni heilbrigðisráðherra. Mvndin er af hinni nýju heilsugæzlu- stöð. Ljósm: Jens Mikaelsson. Vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 9 milljarða fyrstu 9 mánuðina segir Valgarður Stefánsson hjá Orkustofnun VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN við útlönd var óhagstæður um 2.730.0 millj. kr. f september- mánuði s.I. og er því óhagstæður frá áramótum um 9.020.2 millj.kr. I septembermánuði I fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður um 881.8 millj.kr. og fyrstu níu mánuði þess árs óhag- stæður um 5.201.0 millj.kr. að því er segir í frétt frá Hagstofu ls- lands. í frétt Hagstofunnar segir, að i sept s.l. hafi ál og álmelmi verið flutt út fyrir 901.1 millj.kr. og fyrstu níu mánuði ársins hafi ál og álmelmi verið flutt út fyrir 11.389.5 millj.kr., en fyrir 9.494.5 millj.kr. á sama tíma í fyrra. í septembermánuði 1976 var ál og álmelmi flutt út fyrir 2.246.6 millj.kr. í september-mánuði s.l. nam innflutningur til Íslenzka járn- blendifélagsins 0.4 millj.kr. og hafa verið fluttar inn vörur til félagsins á árinu fyrir 117.6 millj.kr. Vörur til Landsvirkjun- ar, að mestu v/Sigölduvirkjunar, voru fluttar inn fyrir 79.5 millj.kr. i sept. s.l. og fyrstu níu mánuðina fyrir 558.8 millj.kr., en á sama tíma i fyrra nam innflutn- ingur til Landsvirkjunar 1.209.2 millj.kr. Vörur til Kröflu- virkjunar hafa nú verið fluttar inn fyrir 416.7 millj.kr. en á sama tíma í fyrra fyrir 760.0 millj.kr. og nú hefur tslenzka álfélagið flutt inn vörur fyrir 5.336.0 millj.kr. á móti 5.077.0 millj.kr. í fyrra. „ÉG held að það sé bezt að hafa sem fæst orð um þetta mál“, sagði dr. Valgarður Stefánsson eðlisfræðingur hjá Orkustofnun, í samtali við Mbl. í gær, en í sjón- varpsþætti í fyrrakvöld sagði Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, að út- varps- og sjónvarpsfréttir fyrr um kvöldið, þar sem haft var eftir Valgarði, að ekki væri unnt að bora næstu vinnsluholur á Kröflusvæðinu fyrr én á árinu 1979, væru rangar og stönguðust á við bréf, sem iðnaðarráðuneytinu hefði borizt frá vísindamönnum, þar á meðal Valgarði. „Málið er það", sagði Valgarð- ur, „að ýmsar rannsóknir, sem unnið hefur verið að, hafa leitt í ljós ýms atriði varðandi hegðan jarðhitasvæðisins við Kröflu. Ein niðurstaða þessara rannsókna er að færa boranir austur fyrir nú- verandi borsvæði og út fyrir nú- verandi vinnslusvæði á Kröflu. Og þá er skynsamlegast að byrja þar með vissan fjölda hola. Sá misskilningur virðist hafa komið upp milli mín og ráðherr- ans, hvernig eigi að skilgreina þessar holur; hvort kalla eigi þær rannsóknaholur eða vinnsluhol- ur. Ég ætla að við séum í raun að tala um sama hlutinn, þó ég kallaði holurnar rannsóknarholur en ráðherrann vinnsluholur, þvi að ég tel tilganginn með borun allra hola að afla gufu fyrir Kröfluvirkjun." Vel klædd og ánægð í MOKKAKÁPU Skuttogarinn Runólfur landaði 155-160 tonnum (iundarf jöröur 8. nóvember. 1 DAG landaði skuttogarinn Runólfur 155—160 Iestum af þorski og ufsa, þ.e.a.s. 90 tonn voru þorskur og 65—70 tonn ufsi. Aflaverðmæti er um 10 milljónir króna. Frá áramótum hefur Runólfur landað alls 3100 tonnum í 30 veiðiferðum. Skiptaverðmæti þessa afla er 214 milljónir króna. Af þessum 30 veiðiferðum hefur skipið fengið yfir 140 tonn í átta ferðum, en aðeins i tveimur veiði- ferðum á fyrra ári fékk hann meira en 140 tonn. Þetta afla- magn, sem hér barst á land í dag, þykir mönnum bera nokkurn vott unt það, að ennþá, sem betur fer er um allmikinn fisk i sjónum að ræða. Fréflaritari. Grundarfjörður: Verð: 76.985,- Austurstræti -.27211 Misskilnmgur varðandi skilgreiningu holanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.