Morgunblaðið - 10.12.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977
Tillaga til þingsályktunarfrá Eyjólfi K.Jónssyni og Pétri Sigurðssyni:
Fækkun starfsmanna
Framkvæmdastofnunar
og ríkisbanka um 10%
- Skorður við óhóflegum byggingum, samræmdar að-
gerðir til sparnaðar og fækkun afgreiðslustöðva
ÞINGÍVIENNIRNIR Eyjólfur
Konráó Jónsson og Pétur Sigurós-
son hafa flutt tillögu til þings-
ál.vktunar um sparnaó í fjármála-
kerfinu. „Skal ríkisst jórnin,"
segir í tillögunni. „aó loknu jóla-
leyfi þingmanna leggja fram til-
lögur um fa'kkun starfsmanna
ríkishanka, Framkva*mdastofn-
unar ríkisins og opinberra sjóóa
um allt aó tíunda hluta og sam-
ra*mdar aðgeróir til sparnaóar og
hagkvæmari rekstrar, þ. á m. um
sameiningu lánastofnana skoróur
vió óhöflegum byggingum og
fækkun afgreióslustöóva."
I greinargeró segir:
„Alþjóö er ljóst, aö nú er þörf
aðhaldsaðgeróa í fjármálum. Sú
kaldhæðnislega staðreynd blasir
þó við, að fjármálastofnanir hafa
þanist einna mest út allra ríkis-
fyrirtækja á sama tíma sem spari-
fjármyndun minnkar. Leiðir hér
sem oftar óstjórn af ofstjórn. Við
þetta verður ekki unað.
Tillögumönnum er ljóst, að
meðal stjórnenda bankamála eru
ýmsir hæfileikamestu menn
þessarar þjóðar. Flutningur þessa
máls er ekki aðför að þeim,
heldur liðveisla við þá, enda
engum ljósara en þeim, hvar skór-
inn kreppir. Þó bendir flest til
þess, að aðgerðir á borð við þær.
sem hér er lagt til að ríkisstjórnin
hafi forustu um séu nauðsyn-
legar, ef úr úlfakreppunni á að
brjótast.
©MJMSfM ° “
Amnesty Inter-
national veitt
friðarverðlaun
Nóbels
íslandsdeildin með
samkomu í dag
ÍSLANDSDEILD Amnesty Inter
national efnir til samkomu ! Nor-
ræna húsinu i dag klukkan 14.00
! tilefni að þvi að i dag verða
samtökunum afhent friðarverð-
laun Nóbel i Ósló. A samkomunni
flytja ávörp Halldór Laxness rit-
höfundur. Björn Þ. GuSmundsson
borgardómari, Hjörtur Pálsson
les Ijó8. félagar úr samtökum
visnavina syngja og Manúela
Wiesler og Helga Ingólfsdóttir
leika samleik á flautu og sembal.
Auk samkomuhalds ýmissa
landsdeilda viða um heim markar
aðalstjórn Amnesty International í
London þessi tímamót með ýmsu
móti Siðastliðinn miðvikudag ef-
henti fulltrúi samtakanna i aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna Kurt
Waldheim framkvæmdastjóri S Þ
lista með undirskriftum rúmlega
milljón manna undir áskorun um.
að allir hugsjónafangar i heiminum
verði látnir lausir Meðal þeirra.
sem skrifað hafa undir þessa áskor-
un. eru ellefu stjórnar- og ríkisleið-
Framhald á bls. 22.
9eNlN6ÍÍNH
m LSW*
6ERlL^tfpn»
1LÍTRI
o
Eftirspurn lánsfjár er ótak-
mörkuð við rfkjandi iánskjör.
Bankar hafa einn og sama
verðmæli, óraunhæfan verðmæli.
Samkeppni þeirra verður því um
það eitt að ná til sín stærri hlut-
deild sparifjárins. Herkostnaður-
inn í stríðinu við aö afla auranna
vex, verömætaaukning er engin,
en kostnaðaraukning mikil.
Hagur viðskiptamanna versnar
við þá andhverfu heilbrigðrar
samkeppni, sem hér er á ferðinni,
og aðstaöa skömmtunarstjóra
nútímans er ekki aólaðandi.
Sjóðakerfið og hagstjórnar-
báknið í heild þarf líka að taka til
gagngerðrar endurskoðunar,
enda enginn efi á því, að þann
frumskóg má grisja, engunt Ul
meins, en öllum til góðs. Þessi
aðgerð þyrfti að spanna alit sviðið
frá Þjóðhagsstofnun til minnsta
sjóðsins.
Játað skal, aö hægara er hér um
að tala en í að komast. Tilraunina
ber þó að gera. Kannske ber hún
takmarkaðan árangur — þá er að
taka því. En enginn héraðsbrest-
ur yrði, þótt markmiðunum sem
tillagan miðar að, yrði að fullu
náð."
Ekkja Haralds Björnssonar ásamt barnabarni sínu, Haraldí Jóns-
svni, sem afhjúpaói styttuna.
Stytta af Haraldi Bjömssyni
afhjúpuð í Þjóðleikhúsinu
STYTTA af Haraldi Björnssyni leikara var í gærdag afhjúpuö og
afhent Þjóðleikhúsinu til varðveizlu aö vióstöddum gestum.
Fyrir hönd gefenda, sem eru afkomendur Haralds, mælti Stefán
Haraldsson, sem gat þess m.a. aö mynd þessi hefói verið gerð
þegar Haraldur var 70 ára og þá í fullu fjöri.
Fyrir hönd Þjóðleikhússráðs og Þjóðleikhússins tók Vilhjálmur
Þ. Gíslason við styttunni og þakkaði hann ættingjum Haralds og
þá sérstaklega ekkju hans, Júlíönu, sem var viðstödd athöfnina.
Hann gat þess í ávarpi sinu að Haraldur hefði verið einn helzti
brautryðjandi leiklistar á íslandi og hefði hann verið fyrsti
íslendingurinn sem lauk leiklistarnámi erlendis 1927, fyrir rétt
hálfri öld. Þá gat Vilhjálmur þess að Haraldur hefði stjórnað og
Framhald á bls. 22.
Albert Guðmundsson í útvarpsþætti:
Hlynntur þátttöku vam-
arliðsins í verkleg-
um framkvæmdum
Albert Guðmundsson alþingis-
maóur er hlynntur því, aö varnar-
lióið taki þátt í verklegum fram-
kvæmdum hér á landi, en segir,
aö þaö sé aðeins „einhvers konar
sértrúarhópur" innan Sjálfstæö-
isflokksins sem standi gegn slíku,
og er Geir Hallgrímsson forsætis-
ráöherra í þeim hópi aö mati Al-
berts. Kom þetta fram í út'varps-
þættinum Spurt í þaula, sem var á
dagskrá sl. fimmtudagskvöld og
voru spyrjendur Einar Karl Har-
aldsson og Baldur Óskarsson. í
þessum þætti sagói Albert enn-
fremur aö hann vildi fara leið
niöurskuröar við lausn efna-
hagsvandans, en vildi ekki svara
spurningu um það, hvort hann
ætti hankainnstæóu í Frakklandi.
I upphafi þáttarins var Albert
spurður út í niðurstöður próf-
kjörs Sjálfstæðisflokksins á dög-
unum og hvernig hann ætlaði að
bregðast við því þegar Morgun-
blaðið og Geir Hallgrímsson for-
Herferð gegn slysum á
bömum í heimahúsum
BARNADEILI) Heilsuverndar-
stöóvarinnar í Reykjavík hefur
ákveöiö aö beita sér fyrir auk-
Minnisatriði
SLYSAVARNIR
vegna barna í heimahúsum
1 Stigar — troppur — gluggar ■—dyr
2 Hmfar — skæri
3 Rafmagn
4 Eldavél — heitir pottar og ponnur
heitt vatn — heitt kaffi
5 Lyf
6 Tærandi og eitraðir vokvar
7 Eldspytur — tobak
8 Burðarrúm — barnavagn
9 Fot — skartgripir
10 Leikfong
11 Plastdukar og pokar
12 „Snuð
Ekki lata born leika sér uti á gotu
Ekki látcj^born leika ser nalægt vatni
inni fræöslu og vekja ath.vgli á
helstu orsökum sl.vsa á börnum
á heimilum og benda á leiöir til
úrbóta.
Af þessu tilefni hefur Heilsu-
verndarstöö Reykjavfkur látið
prenta biaö meó minnisatrið-
um um sl.vsavarnir vegna
barna, þar sem upp eru taldir
helstu slysavaldar. Hjúkrunar-
fræðingar Heilsuverndarstööv-
ar Reykjavíkur munu ræöa um
þessi atriði í heimsóknum
sínum til foreldra ungbarna.
Með aukinni velferð á undan-
förnum áratugum og með til-
komu sýklalyfja og ónæmisað-
gerða, hefur baráttan gegn
mörgum alvarlegum smitsjúk-
dómum gefið góðan árangur og
dauðsfölium af vöidum sniit-
sjúkdóma fækkað verulega, en
á sama tíma hefur dauðsföllum
af völdum slysa fjölgað.
Aukin tækni og vélvæðing
nútíma þjóðfélagsins og aukin
notkun hættulegra efna, hefur
gert umhverfi barnsins marg-
brotnara og hættulegra Iífi þess
og heilsu.
Slys valda nú fleiri dauðsföll-
Framhald á bls. 22.
sætisráðherra hefðu afneitað úr-
slitum skoðanakönnunar sem fór
fram samhliða prófkjörínu, eink-
anlega varðandi svonefnda
aronsku.
Albert svaraði því þar til, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði beðið
kjósendur sína að ganga að kjör-
borði í prófkjöri og það væri ekki
unnt fyrir Geir Hallgrímsson, Al-
bert sjálfan og þó sérstaklega
ekki fyrir utanaðkomandi aðila
eins og Morgunblaðið að neita að
taka tillit til skoðana yfir 80% af
kjósendum. Albert tók reyndar
fram síðar, að í prófkjörinu hefði
ekki verið spurt um aronskuna,
þ.e. hvort taka ætti gjald fyrir
veru varnarliðsins hér á landi,
heldur hafi verið um þaö spurt
hvort varnarliðið ætti að taka þátt
i verklegum framkvæmdum hér á
landi. Fram hefði komið að yfir-
gnæfandi fylgi væri fyrir því inn-
an flokksins og hann sjálfur væri
hlynntur þeim skoðunum er iðn-
Framhald á bls. 22.
Prófkjörið í Eyjum:
Kjörfundur í dag
og á morgun
PRÖFKJÖR sjálfstæöismanna í
Vestmannaeyjum um skipati ann-
ars sætis á lista Sjálfstæóisflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi, fer
fram í dag og á moígun. Kjör-
fundur hefst í dag klukkan U5 og
stendur til klukkan 21. A morgun
verður kjörfundur oþinn frá
klukkan 11 til 20. Kjörstaóur er í
Samkomuhúsinu, litla sal.
Frambjóðendur í prófkjörinu
eru þrír: Arni Johnsen blaðamað-
ur, Björn Guðmundsson' útgerðar-
Framhald á bls. 26