Morgunblaðið - 10.12.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977
19
Mark Goodman, 20 ára, ásamt ömmu sinni, frú Ray Goodman, í
London í gær. Frú Goodman er seinni kona afa Marks og því ekki
blóðskyld honum.
Villgiftast
ömmusinni
Lontlon.!). desember. AF.
TVÍTUGUR Bandarfkjamaður
hefur lýst því yfir að hann vilji
kvænast 77 ára gamaili ömmu
sinni, en skkrifstofa í London
sem gefur út hjúskkaparleyfi
hefur tilkynnt þeim að það sé
ölöglegt.
Síðastliðinn föstudag voru öll
eftirmiðdagsblöðin í London
með þá frétt á forsíðu, að Mark
Goodman sem búsettur er í Los
Angeles hafi beðið ömmu sinn-
ar, frú Ray Gpodman, sem er
fyrrverandi dansmær.
Frúin er seinni kona afa
Marks Goodmans, en sam-
kvæmt brezkum lögum má mað-
ur ekki kvænast eiginkonu föð-
ur föður sins. Þar er ekki greint
á milli þess hvort um fyrstu,
aðra þriðju eða fjórðu eiginkon-
una er að ræða. Nánasti skyld-
leikinn sem má vera milli hjóna
er aó þau væru systkinabörn.
Um neitunina við hjúskapar-
leyfinu sagði Mark Goodman:
,,Við munum gifta okkur, við
erum ekkert skyld. Ef við fáum
það ekki hér í Bretlandi, þá
verður það í Bandaríkjunum.
Astin sem við berum hvort til
annars, er mjög sérstök ást,
sem verður aðeins til einu sinni
á þúsund árum og okkur er
sama hvað fólk segir."
Gráhærð amman sagði við
blaðamenn að bónorðið hefði
komíð sér gjörsamlega á óvart.
„Hann fékk ofboðslegt hláturs-
kast allt í einu og sagði að við
gætum alveg eins gift okkur.
Eg spurði hann hvort hann
væri að biðja mín og þá j»átaði
hann því.
Þegar ég hitti hann fyrst virt-
ist hann bara vera ungur sköla-
strákur, en allt í einu urðum
við miklir vinir og sú vinátta
vex með hverjum deginum. Eg
veit að fólki dettur í hug að
hann kvænist mér til fjár, en
hvorugt okkar á nokkra pen-
inga, ég er aðeins eftirlauna-
þegi.“
Aðspurð um kynlíf þeirra,
sagði Mark Goodman að þegar
ástin væri svo mikil eins og þau
bæru hvort til annars, væri
þörfin fyrir kynlíf engin. ,,Ég
álit kynlíf vera veikleika, og
þegar einhver hefur mikla þörf
fyrir það, er það veikleiki við-
komandi. Þegar þú getur haft
stjórn á þeirri tilfinningu þá er
það mjög gott.“ Gamla frúin
sagðist ekki halda að kynlx'f
væri nauðsynlegt í þeirra sam-
bandi.
Hjónaleysin kynntijst þegar
frúin fluttist til foreldra hans
eftir lát eiginmanns síns. Hún
var viðstödd þegar Mark Good-
man útskrifaðist úr mennta-
skóla, en hann hætti í fram-
haldsnámi hennar vegna.
Foreldrar hans í Bandaríkj-
unum eru mjög æst og reið yfir
ákvörðun sonarins og ömmunn-
ar, en hjónaleysin búa núna
saman í London.
Veður tefur Heyerdahl
Manama, Bahrain, 9. desember. AP.
REYRBÁTUR Heyerdahls var í gær dreginn í örugga höfn á norðaust-
urbakka Persaflóa. Það var rússneskur togari sem dró bátinn.
Embættismenn segja að ekki sé hægt að leggja bátnum endanlega í
höfn í Manama fyrr en á föstudag vegna slæmra veðurskilyrða.
Sovéska skipið Stavsk skildi við bátinn í höndum strandgæzlunnar í
Bahrain, sem flutti hann að landi. Áætlun Heyerdahls hafði verið sú
að ná til Bahrain í síðustu viku, sem fyrsta viðkomustaðar við
Persaflóa, en áfangastaðurinn var óákveðinn. þar sem prófessorinn er
að reyna siglingaþol bátsins, sem er gerður að um 5000 ára gamalli
fyrirmynd frá Súmerum. En það er liður í athugun hans á því hversu
langt þessi þjóðflokkur hefur mögulega breitt út siðmenningu sína.
-
Fræðslu og skemmtispil
í útvegsspilinu geta tveir til fjórir tekið þátt i skemmtilegum leik, sem felst
i þvi að koma sér upp skipaflota, veiða og vinna aflann i eigin vinnsluhús-
um og selja á erlendan markað, en þetta er ekki átakalaust og oft reynir
mikið á útsjónarsemi spilamanns, því teningurinn ræður ekki gangi mála
JÓLAGJÖFIN í ÁR
fyrir alla aldursflokka
Spilaborg
Laugavegi 18a,
pöntunarsimi 53737.
nema að hluta.
hf.
lltvegsspilið er jafn bráðskemmtilegt fyrir unga sem aldna.
FÆST í KAUPFÉLÖGUM OG VERZLUNUM UM LAND ALLT.