Morgunblaðið - 10.12.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.12.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977 Helgi Ágústsson frá Birtmgaholti - Mimiing Einn af mætustu vinum mínum, Helgi Agústsson frá Birtirigaholti, er látinn. Hann fæddist á Gelti í Gríms- nesi, en þar bjuggu þá foreldrar hans um skamman tíma, en fluttu sírtan að föðurleifð Agústs að Birtingaholti, en þann garð gerðu þau hjón mjög frægan og þar ólst Hglgi upp í stórum systkinahópi með miklum gleðibrag og við mikla vinnu. Þeim hjónum húnaðist þannig, að þau gátu séð börnum sínum fyrir góðu uppeldi. Þ'au höfðu lært að meta gildi vinnunnar, en i uppvextinum sáu þau örbirgðina allt í kringum sig. Þetta var sjönarmiðið sem Helgi ólst upp við og hann lét ekki á sér standa, og var alla ævi bæði vel- virkur og mikilvirkur, enda hafði hann miklu meiri líkamsburði en almennt var. Ekki vildi Helgi gera mikið úr eigin atgerfi, en taldi ævinlega að Skúli bróðir sinn hafi staðið sér miklu framar. Þetta gat hafa verið rétt, en fyrir fáum árum var ég að skyggnast um í gömlu Suðurlandi, eða frá 1916, en fann þar þá allt annað en það sem ég var að leita að. Þá sá ég litla frétt um að á Skarphéðins- möti hafðí Helgi Ágústsson unnið fyrstu verðlaun fyrir fallegasta glímu og drengilegasta, en þá var sú íþrótt iðkuð af almenningi. Helgi hafði það fyrir sið að flíka ekkí afrekum sínum, en svo var hann mannlegur, að hann hafði greinilegá gaman af næst þegar við hittumst og ég minntist á þetta, sem mér þótti í rauninni merkisfrétt. Hann sýndi mér þá verðlaunapeninga, er hann hafði unnið til í æsku. Helgi hóf búskap á Syðra-Seli 1917, hafði áður lokið prófi frá Hvanneyri og mun þá hafa hugsað sér búskap sem æfistarf, enda hafði hann flest það til að bera sem prýða má góðan bónda, hafði þó meiri áhúga á ræktun jarðargróða en búpenings. Hann varð ungur oddviti í Hruna- mannahreppi og einnig var hann orðinn hreppstjóri, en það verður ekki umtalsefni þessarar greinar. Búskapurinn að Syðra-Seli varð skemmri en ætlað hafði verið. Sagði hann mér að hann hafi verið svo hræddúr um heilsu kon- unnar, að hann hafi ekki þorað að halda húskap áfram. A Selfosssi réðst hann jtil starfa hjá K.Á. og þar varð hans æfistarf Upp frá því. Um störf hans þar f.vrir samvinnufélögin verður ekki frekar rætt hér. en með þeim skapaði hann sér míkið álil og vinsældir. Trúi ég naumast öðru en að sú saga. er verið var að skipuleggja flutningakerfi samvinnufélag- anna verði skráð. eri þar mun Helgi gegna stóru hlutverki, ef rétt verður með farið. Móeiður Skúladöttir læknis, Thorarensen á Möeiðarhvoli, en móðir Helga sem minnst er í dag var afbragðs söngkona eins og hún átti kyn til. Helgi hlaut því í vöggugjöf mikla hæfni til söngs og er mér ógleymanlegt, er ég barn að aldrei heyrði á Álfskeiði bassarödd þeirra bræðra við helgistund þar, mér fannst þá að slíkam söng hefði ég aldrei heyrt áður. Hreppakórinn hóf starfsemi sina 1925. Sigurður Ágústsson varð stjórnandinn þá innan við tvítugt, en Helgi var allan tímann sem hann starfaði önnur aðal driffjöðrin í honum. Það var eins og hann gæti ekki lifað, ef Helga naut ekki við, en það var reynt fyrst eftir að hann flutti að Sel- fossi. Sem betur fór gat Helgi einnig illa án hans verið, sagði sjálfur að án þátttöku í þeim söng væri búið með að hann tæki nokkurn tíma lagið. Ég held, að ég tali fyrir munn okkar allra, sem vorum félagar f þeirri söngsveit, að þar áttum við einhverjar bestu stundir ævi okkar, það áttum við ekki síst Helga að þakka. Hann var gjarn- an hrókur alls fagnaðar, en þó svo hófstilltur, að hann hélt okkur í skefjum svo að ekki yrði úr því of mikil ærsl. Oft kom fyrir að við æfðum á heimili þeirra hjöna. Húsfreyjan Anna Oddsdöttir tók vel á möti okkur og þá skynjaði ég að hún hefði góða dómgreind og sjálfstætt mat á söng. Það kom fyrir að við urðum að syngja aftur og aftur sama lagið, ef það hafði heiilað hana. Á Selfossi náðu þessi hjón svo miklum árangri við ræktun garð- jurta og inniblóma, að þar hafa fáir staðið þeim jafnfætis. Var garður þeirra viðkunnur og oft var fengið leyfi til að sýna hann, þegar vanda þurfti til þess sem kynna þurfti utanhéraðsmönnum og útlendingum. Konu sína Önnu Oddsdóttur frá Eyrarbakka missti Helgi fyrir 12 árum. Þau höfðu verið mjög samhent og átt frábært heimili. Börn þeirra voro þrjú sem upp komust, voru þá iill flutt að heiman, en höfðu þó alltaf gott samband við föður sinn, svo að hann hafði af þeim mikla gleði. Eitt af gæfusporum Helga var það að þau hjón tóku til fósturs syst- urdóttur Önnu og dvaldi hún hjá þeim alla tíð eftir það. Er Önnu missti við, tók hún að sér heimilið fyrir fóstra sinn og gerði það svo vel að ekki verður annað sagt, en að Helgi hafi í rauninni átt ágæta elli. Alltaf var nög að starfa, ýmist í garðinum eða þá við smíðar inni við. Þaö var mjög ánægjulegt að koma á heimili þeirra, er Helgi hætti að sækja vinnu út af heimilinu. Hann sat þá á Frið- stöli, virtist bera hlýjan hug til allra samferðamannanna og lét sér mjög annt um Kaupfélagið, sem hann hafði átt svo mikinn þátt i að byggja og leit á það sem óskabarn. Langt mun nú vera síðan að hann kenndi fyrst meins þess, sem nú hefir riöiö honum að fullu. Þetta bar hann með svo miklu æðruleysi og af svo mikilli karlmennsku, að jafnvel fáir vissu um þetta, en þeir sem áttu til hans erindi sáu að hann stóð jafnan við vinnu sína og hafði látið gera pult ofan á skrifborðið, þá hafði sjúkdómurinn leikið hann svo, að hann gat ekki setið. Hann tók á móti kalli dauðans eins og hann hafði lifað lífinu, alltaf reiðubúinn. Síðast hitti ég hann á sjúkrahúsinu, þá bað hann mig fyrir kveðju til systkina minna og annara sameiginlegra vina. Ég hef ekki séð mann verða betur við dauöa sínum. Fjöl- skyldu hins látna vinar bið ég blessunar drottins. Einar Gestsson. Það gerist nú skammt stórra högga á milli í ætt Birtingaholts- manna, Hinn 3. þ.m. var Helgi í Hvammi jarðsettur í Hruna, en sama dag andaðist bræðrungur hans, Hélgi Ágústsson frá Birt- ingaholti eftir langvarandi veik- indi. Segja má, að gott sé fjör- gömlum og þjáðum mönnum að fá hvíldina, en það hugsa ég að mörgum vinum þeirra og frænd- um þyki nú allt svipminna austur þar, þegar þessir afbragðsmenn eru horfnir af sviði lífsins. Sökn- uður fyllir hugann. en minningin um frábæra víni dregur úr svið- anu m. Helga Agústsson sá ég fyrst á Hvanneyri haustið 1911, þegar ég settist þar á skólabekk. Halldór skólastjóri hafði eitt sinn orð á því við okkur nýsveina, að hann ráðanlegt við fyrstu sýn. Að nóttu sem degi, helgidaga sem aðra daga var brugðið við kalli sinnt með hraða slökkviliðs eða lög- reglumannsins. Erfiðustu verk- efnin voru leyst án tafar þau „óleysanlegu" tóku svolítið lengri tíma. Guðjón Tfyjiasson var óvenju laginn og dugmikill stjórn- andi, í senn trúr sfnu starfi og hollur sinni stofnun, en jafnframt traustur vinur, félagi og hjálpar- hefði nýlega ráðið einn besta nemanda sinn frá síðasta vetri, sem yfirmann á hinu stóra kúabúi staðarins. Hann kvað manninri vera gáfað glæsimenni afburða- duglegan og mikið karlmenni. Og þaö átti nú við Halldór Vilhjálms- son. Hann dáði hreysti, karl- mennsku og drengskap öðru fremur. — Ég hygg að löng æfi Helga Ágústssonar hafi sannað þessi ummæli Halldórs skóla- stjóra. — En við Hvanneyringar nutum ekki lengi samvista Helga að þessu sinni. Hann veiktist hast- arlega nokkru fyrir jólin 1911 og varð að hætta s.törfum á Hvann- eyri, en náði góðri heilsu síðar. Þegar fundum okkar Helga bar næsta Saman eftir tiu ár, höguðu örlögin því svo til að ég var kenn- ari á Eyrarbakka, en hann bóndi á Syðra-Seli í Hrunamannahreppi. Báðir vorum við kvæntir konum frá Eyrarbakka, sem voru leik- systur í bernsku og tryggðavin- konur æfilangt. Það leiddi því af sjálfu sér, að kynni okkar urðu náin og þó nánust þau tvö ár, sem við vorum sveitungar. Bændur í Hrunamannahreppi byggðu heimavistarskóla fyrir 20 börn sumarið 1929. Ég var ráðinn skólastjóri, en Helgi var þá odd- viti hreppsins og sá um byggingu skólahússins. Byrjað var á bygg- ingu um vorið, en kennsla hófst síðast í október. Margir dugnaðar- menn lögðu þar hönd að, én ég hygg að dugnaður og fyrirhyggja oddvitans hafi verið þyngst á met- um, svo vinsæll sem hann var og vel metinn. Hann reyndist mér hinn traust- asti vinur og hjálparmaður í hví- vetna. Þessi vetur var mikill veik- indavetur á Flúðum. Meðal ann- ars veiktist kona mín mikið eftir barnsburð 21. nóv. þá sýndu þau Syðra-Selshjón okkur þá einstöku velvild að taka hvítvoðunginn í fóstur, meðan erfiðast var. Þann drengskap þeirra fæ ég aldrei fullþakkað. — Síðan hefi ég talið Helga í höpi minna tryggustu og bestu vina og metið hann því meir, sem árin liðu. En áður en lengra er haldið, skal ég lýsa hér í fáum orðum æviatriðum Helga Ágústssonar. Hann fæddist að Gelti í Gríms- nesi 6. febrúar 1891, sonur hinna þjóðkunnu hjóna Ágústar Helga- sonar í Birtingaholti og Móeiðar Skúladóttur. Eru ættir þeirra al- kunnar. 9 voru börn þeirra hjöna. Á lífi eru: Ásdís, húsfrú hér í borg, Magnús, læknir í Hvera- gerði og Sigurður, tónskáld fv. bóndi í Birtingaholti. Látin eru auk Helga, húsfreyjurnar Guðrún í Ölvesholti, Ragnheiður á Löngu- mýri og Sigríður í Keflavík, Skúli, verslunarmaður í Reykjavík og Guðmundur, stöðvarstj. Rvík. Öll voru þessi systkini mikið mann- dómsfólk, vinsæl og vel metin. Og sjaldgæft mun það vera, hve sterkt var sambandió milli þéirra og foreldranna. Sést það m.a. á bréfaskrá Agústar bónda, þar sem hella sinna undirmanna. Osér- hlífni hans og lífsþróttur var smitandi og starfsandinn því allt- af eins og be/.t var á kosið i kring- um hann. Hans samhenta og vaska sveit drjúpir nú höfði, en foringi þeirra er fallinn. Og það gerum við öll, sem unn- um með Guðjóni og nutum vin- áttu hans og dáðum hann sem mann og starfsfélaga. Það er mikill heiður að starfa með og fá að bera ábyrgð á störf- um afreksmanna. Mitt stærsta lán í lífinu er, að það hefur oft oröið mitt hlutskipti að Guðjón Tómas- son var framarlega í þeirra fríðu fylkingu. Að tíunda hin mörgu störf Guð- jóns Tómassonar í þágu íslenzkra flugmála er algjör óþarfi. Vin- sældir hans í starfi og álit allra, sem til þekktu, gerir slíka upptalningu fánýta. Endurminningin um Guðjón Tómasson verður öllum, sem kynntust honum og störfuðu með honum ógleymanleg. Sjálfur mun ég geyma endur- minninguna um traust vináttu hans og samstarf sem óforgengi- legan fjársjóð. Aþenu 4. desember 1977 Agnar Kofoed Hansen mörg hundruð bréfa eFU skráð frá börnunum til hans. Helgi lauk námi i Flensborgar- sköla 1907 og á Hvanneyri 1911. Síðan vann hann um tíma heima á búi föður síns eða vann að jarða- bótum á Suðurlandi og kenndi plægingar um tíma. íþróttir kenndi hann 1913 — '14, því að þeir Birtingaholtsbræður voru íþróttamenn góðir. Má i þvi sam- bandi nefna. að þeir Skúli og Helgi gerðu það eitt sinn að gamni sínu að hlaupa frá Birt- ingaholti til Reykjavikur á einum degi, sem er eftir þjóðveginum um 100 kílómetra leið. Þeir fóru af stað árla morguns (kl. 4—5) og voru komnir til Rvíkur, áður en búðum var lokaö um kvöldið. Frá þessu er sagt í Lesbók Morgun- blaðsins sl. vor. Árið 1916 kvæntist Helgi ágætri konu, Önnu Oddsdóttur, gull- smiðs á Eyrarbakka. Þau reistu bú á Syðraseli í Hrunamanna- hreppi 1917 og bjuggu þar góðu búi í 14 ár, þótt oft væru þau ár erfið bændum, sem kunnugt er. Fluttust þau þá að Selfossi. Þessi bústaðaskipti urðu vegna þess, að Anna var heilsubiluð, hafði i æsku fengið berklaveiki, sem þá æddi um allt og hafði verið á Vífilsstaðahæli um tíma. Svo var líka sótt eftir Helga í fulltrúastarf hjá Kaupfélagi Arnesinga, sem þá var nýstofnað. Egill Thorarensen þekkti vel dugnað og mannkosti frænda sins og vissi því vel, hví- likur fengur var ungu félagi að slíkum manni, sem Helgi var enda reyndist svo. Hann tók að sér að stjórna flutningakerfi félagsins svo og mjólkurflutningum Flóa- búsins. Einnig tók hann árum saman á móti öllum vörubeiðnum, sem þá voru alltaf sendar með mjólkurbílunum. Um þetta segir einn vinur hans í grein um hann sjötugan: „Margir munu senda honum (H. Ág.) vinarkveðju þennan dag . . þvi að svo mörg og margháttuð kynni hefur hann haft við viðskiptamenn K.Á. og fleiri um nær 3 tugi ára, auk þess sem hann hefir verið eins og föð- urleg forsjón fjölda manna í sinu umfangsmikla starfi með þeim ágætum sem allir lofa“. Ennfrem- ur segir sami maöur (Öskar Jóns- son) „Vegna hinna beinu tengsla, sem Helgi hafði við alla viðskipta- menn K.A., hafa þeir á öllum tim- um snúið sér til hans með allskon- ar bónir og útveganir, sém hann hefur leyst af hendi með mikilli kostgæfni og skyldurækni, er hef- ur áunnið honum óskorað traust, virðingu og vináttu alls almenn- ings, svo að segja um allt Suður- land. En það eru ekki aðeins við- skiptamenn K.Á., sem dá þennan drengskaparmann, heldur og einnig allir hans samstarfsmenn, jafnt yfirmenn sem undirgefnir". Þetta er dýrmætur dömur sam- timamanns, sem Bjarni skóla- stjóri Bjarnason á Laugarvatni tekur undir í grein um Helga hálfáttræðan. Auðvitað var það mikil áreynsla fyrir Helga að verða að við bóndaslarfiö. svo mikill ræktunarmaður og bóndi, sem hann var. En í starfi sínu í K.Á. hélt hann áfram aö vinna fyrir bændum og með þeim í þrem sýslum Suöurlands. Um þetta segir Bjarni i nefndri grein enn fremur: „Nú er sýrit, að Helgi gerði sunnlenskum bændum miklu meira gagn með merkilegu lífsstarfi sem fulltrúi í K.Á., en þó að hann hefði allan þann tfma verið mektarbóndi í sveif. Geta má nærri, að glæsilegur hæfileikamaður eins og Helgi Agústsson hefir orðið aö taka. á sig aukastörf fyrir samtíðamenn sína enda var svo. Kann ég það ekki allt upp að telja, en ég veif að hann var bæði oddviti og hreppstjóri Hrunamannahrepps um árabil. hreppstjöri Selfoss- hrepps lengi, endurskoðandi Uti- bús Landsbankans á Selfossi mörg ár og formaður skólanefnd- ar Héraðsskólans að Laugarvatni á þriðja áratug og formaður nefndarinnar fyrstu 15 árin. Vann hann þar mikið og ömetan- legt menningarstarf. Gleðimaður var Helgi, listrænn og listelskur. Einkum átti hljómlistin ítök í honum. Hann var niörg ár starf- andi í Hreppakórnum, sem Sigurður þróðir hans stjórnaði. Guöjón Tómasson —Minningarorö Fréttir geta stundum veríð svo fjarri öllu viti og sanngirni, að maður neiti að trúa þeim. Jafnvel áratugir geta liðið svo, að maður sætti sig ekki við skyndilegt fráfall vinar og félaga. Þannig er mér nú farið, er ég i fjarlægu landi fæ þá sorglegu frétt, að einn nánasti samstarfs- maður minn og vinur um áratugi sé allur. Daginn áður kvaddi ég hann heilan og hughraustan þrátt fyrir þá mikiu sorg, er hann svo stuttu áður hafði orðið fyrir. Að sjá nú á bak Guðjóni Tómassyni réttri viku eftir að hann fylgir ástríkri eiginkonu sinni til grafar er þungbært áfall fyrir eftirlifandi bÖrn þeirra hjóna, fyrir ættingja, vini og samstarfsfólk. Með sanni má segja, að Guðjón Tómasson hafi sjálfur skapað það starf, er hann gegndi með svo mikiHi prýði sem deildarstjóri tæknidcildar flugöryggisþjónust- unnar. Starfið óx því með honum og hann með því. Að loknu námi og starfi á vegum póst- og síma- málastjórnar réðist hann ungur að árum til embættis flugmála- stjóra. Sökum óvenjulegrar starfsorku, þekkingar og stjórn- semi varð hann og hinn sam- hennti starfshópur hans brátt óaðskiljanlegur hluti fslenzks flugöryggis. Hann bætti stöðugt við þekk- ingu sína og manna sinna með tiðu sérnámi austan hafs og vest- an og það var ánægjulegt að hitta sérfræðinga, sem haft höfðu hönd í bagga með slíku námi, því að þeir voru undantekningarlaust störhrifnir af Guðjóni og báðu fyrir hlýjar kveðjur til hans jafn- vel þótt fjöldi ára væri liðinn frá fundum þeirra. Guðjóni Tómassyni óx aldrei neitt verkefni í augum. Aldrei andartaks hik eða undanbrögð, þótt verkefnið virtist jafnvel óvið-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.