Morgunblaðið - 10.12.1977, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977
Kanadamenn efstir í
HM kylfinga, fimm
lönd á eftir Islandi
ÞESSA DAGANA berjast þeir Björgvin Þorsteinsson og Ragnar Ólafsson á iðagræn-
um golfvelli í miklum hita í Manilla á Filippseyjum í Heimsmeistarakeppni
k.vlfinga í golfi. Er þetta í fyrsta skipti, sem íslendingar senda lið í þessa keppni, og
eins og vitað var fyrirfram er róðurinn erfiður fyrir þá félaga. Að keppninni
hálfnaðri eru þeir Ragnar og Björgvin í 44. sæti af 49. með 337 högg. Er Björgvin í
79. sæti af 98 þátttakendum í einstaklingskeppninni. Hefur hann samtals notað 167
högg, en Ragnar 180 högg.
Að keppninni hálfnaðri eru Kan-
.adamennirnir Knudson og Barr í
efsta sæti með 286 högg. S-Afríka
er i öðru sæti með 290 högg og er
Garry Player efstur í einstakl-
ingskeppninni með 140 högg, en
félagi hans, Barr, hefur notað 150
högg. Filippseyjar eru í þriðja
sæti með 291 högg, en síðan koma
Egyptar og Bandaríkjamenn í
næstu sætum með 296 högg. Sá
einstaklingur, sem mest hefur
komið á óvart i keppninni til
þessa er Uthai Dhappavibul frá
Thailandi, en hann hefur leikið á
141 höggi og er í 2. sæti í einstakl-
ingskeppninni ásamt þeim Hu-
bert Green frá Bandaríkjunum og
George Knudson frá Kanada.
í liðum flestra þjóðanna eru
tveir atvinnumenn og auk íslend-
inga, eru það Tékkar og ísraelar,
sem eru með tvo áhugamenn í
keppninni. Þær þjóðir, sem eru
fyrir aftan íslendingana 1 keppn-
inni eru Nígería, Tékkóslóvakía,
Nepal, Libya og Júgóslavía. Vek-
ur það athygli að júgóslavneski
kylfingurin Vovk hefur notað 202
högg á 36 holurnar. i næstu sæt-
um fyrir framan Björgvin og
Ragnar eru Sviss og Holland á 335
höggum, Frakkland og Portúgal á
333 höggum, Austurríki og Grikk-
land á 331 höggi.
Hinn harðskeytti Ingi Stefinsson, sem sést hér taka frákast! leik ÍS og ÍR um
siSustu helgi. mun vafalaust fara i stúfana. ef stúdentar komast til Akureyrar
og þá er betra fyrir Þórsara aS gæta sín. því ef Ingi er i stuði er illt að töðva
hann. Aðrir á myndinni eru Erlendur Markússon. ÍR, Jón Héðinsson. ÍS. og
Stefán Kristjánsson, ÍR. en si siðastnefndi fékk rauða spjaldið i þessum leik
og verður honum þvi meinuð keppni það sem eftir er ársins. Ljósm ÁG)
Súkkulaóitex með kremi
KEXVERKSMIÐJAN FRON
% f,
■Wt á jygÉl£ J
STÚDENTAR
NORÐUR?
FJÓRIR leikir eru fyrirhugaðir í ís-
landsmótinu í körfuknattleik um
þessa helgi. í dag ætla ÍS-menn og
konur að freista þess, að komast til
Akureyrar og leika við Þór. Er áætlað
að karlaleikurinn hefjist klukkan
13.00, en kvennaleikurinn að hon-
um loknum, eða um klukkan 14.30.
Þórsmenn hafa verið erfiðir heim að
sækja. því enn hefur engu liði tekist
að komast norður, en takist stúdent-
um það, má búast við því að Þórs-
menn verði anzi harðskeyttir. Stúd-
entar ættu þó að eiga góða mögu-
leika á að hafa bæði stigin með sér
suður.
A morgun, sunnudag, verða tveir
leikir á dagskrá í íþróttahúsi Haga-
skóla. Klukkan 13.30 hefst leikur
Ármanns og UMFN. Má þar mikið
ganga á ef Njarðvíkingar fara ekki
með öruggan sigur frá leiknum. Að
leik Ármanns og UMFN loknum, eða
um klukkan 15.00, munu Fram og
KR eigast við og gæti það orðið
hörku-viðureign. KRingar unnu
sannfærandi sigur á Val fyrir stuttu,
en misstu Kolbein Pálsson og Birgi
Guðbjörnsson úr liði sínu vegna
meiðsla, sem þeir urðu fyrir i þeim
leik. Framarar töpuðu naumt fyrir
Val um siðustu helgi, en i þeim leik
sást, að Guðsteinn Ingimarsson og
Sigurður Hjörleifsson, sásamt fleir-
um nýjum mönnum, hafa virkað sem
vitaminssprauta á liðið og ef Simon
Ólafsson nær sinu besta, þá kemur
Fram-sigur ekki svo mjög á óvart.
Það dugar því enginn sparileikur hjá
KR-ingum.
Þróttur
á móti
Fylki í
2. deild
UM HELGINA veröa leikir í 2.
deild karla og 1. deild kvenna í
handknattleiknum, auk fjöl-
margra leikja í öórum deildum og
aldursflokkum.
í 2. deild karla leika klukkan
17.05 í dag lið Leiknis og Þórs í
Laugardalshöllinni og strax aö
þeim leik loknum mætast lið
Fylkis og Þróttar og er þar um
mikilvægan leik f.vrir báöa aóila
að ræóa. Á morgun klukkan 15
leika sfóan Grótta og Þór á Sel-
tjarnarnesi.
í 1. deild kvenna leika á morg-
un klukkan 15.30 FH og Fram í
Hafnaríirói og síöan Haukar og
Ármann. A sunnudaginn leika
einnig Valur og Víkingur, hefst
leikur þeirra klukkan 20 í Laug-
ardalshöll.