Morgunblaðið - 10.12.1977, Síða 39

Morgunblaðið - 10.12.1977, Síða 39
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977 METAREGN FRJÁLSÍÞRÓTTAFÓLKIÐ hefur verid idid viö aö setja met uhdanfarna daga og er ekki ofmælt aö um sannkall- aö metaregn hafi veriö aö ræöa. i fyrrakvöld setti Þórdís Gísladóttir, ÍR, islandsmet í hástökki, er hún fór yfir 1,73 m og átti heiöarlegar tilraunir viö 1,76. Er met hennar, um leið og það er islandsmet, einnig met í meyja- og stúlknaflokki. Guðmundur R. Guðmundsson, FH, náði öðrum bezta árangri Is- lendings er hann stökk 2,01 m og er það nýtt drengja- og unglinga- met. Að sjálfsögðu er það kappinn Jón Þ. Ólafsson sem á bezta árangur íslendings í hástökki, innanhúss og utan. Hann stökk á sínum tima 2,11 innanhúss. Stefán Þ. Stefánsson, ÍR, setti sveinamet í hástökki er hann stökk 1,82 metra. Á miðvikudaginn var frjáls- íþróttafólkið einnig á ferðinni og þá setti Birgir Þ. Jóakimsson bróðir Gunnars Páls, piltamet i 50 metra grindahlaupi, hljóp á 7,5 sekúndum og bætti hann met Stefáns Þ. Stefánssonar, en það var 7,6 sek., og varð Stefán annar í hlaupinu á þeim tima. Þorvaldur Þórsson jafnaði unglingametið í greininni er hann hljóp á 6,9 sek. og er það 1/10 frá Islandsmetinu. Ingunn Einarsdóttir hljóp þessa vegalengd á 7,6 sek. Þórdís Gfsladóttir. Landliöshópur í körfuknattleik LANDSLIÐSNEFND Körfuknattleikssambands íslands hefur valið 17 manna landsliðshóp, sem hefja mun æfingar bráðlega undir stjórn Helga Jóhanns sonar, sem nýlega var ráðinn landsliðsþjálfari. Helzta verkefni vetrarins er að sjálfsögðu Polar Cup. sem fram fer hér á landi i lok apríl, en fyrsta verkefnið verða leikir við bandaríska háskólaliðið Luther College sem hingað kemur um áramótin. Landsliðshópurinn er þannig skipað- ur: Frá Fram: Símon Ólafsson Frá ÍR: Agnar Friðriksson, Erlendur Markússon, Kristinn Jörundsson. Frá ÍS: Bjarni Gunnar Sveinsson, Jón Héðinsson Frá KR Bjarni Jóhannesson, Einar Bollason, Jón Sigurðsson, Kolbeinn Pálsson, en hann meiddist i leik gegn Val og leikur ekki meira í vetur. Frá UMFN: Gunnar Þorvarðarson, Jón- as Jóhannesson, Kári Marisson, Stefán Bjarkason, Þorsteinn Bjarnason Frá Val: Ríkharður Hrafnkelsson, Torfi Magnússon Ætlunin er, að í hópnum verði 20 leikmenn, þannig að eftir eiga að bæt- ast 4 leikmenn, þar sem Kolbeinn Pálsson fellur út Nokkra furðu vekur, að sjá í hópnum þá Jónas Jóhannesson UMTN og Agn- ar Friðriksson ÍR á meðan leikmenn eins og Geir Þorsteinsson UMFN og Kristján Ágústsson eru ekki valdir Jónas hefur mjög lítið verið notaður í leikjum UMFN i vetur og Agnar hefur ekki átt góða leiki með ÍR ÁG/GG Blakaö gegn Fær- eyingum ISLENDINGAR leika landsleik í blaki við Færeyinga í dag og hefst leikurinn klukkan 14 í Haga- skóla. Aö öóru le.vti verður lítið uin að vera í blakinu um helgina. Tveir leikir verða þó í 2. deild, IMA og UMSE leika á Akure.vri og á morgun klukkan 17 leika Breiðahlik og Víkingur í Ifaga- skóla. skýrðist í 2. deild kvenna UM SlÐUSTU helgi voru leiknir tveir leikir í 2. deild kvenna í handknattleik og Fylkir dró lið sitt úr deildinni, en það hafði engan leik leikið ennþá. Þessir viðburðir skýrðu veru- lega stöðuna í deildinni, sem var í óljósara lagi, vegna leikjaröðunar fyrst og fremst, en þar var Fylkir I sérflokki eftir á. UMFG — ÞRÓTTUR 9:9 UMFG (Grindavík) og Þróttur (Reykja- vík) léku á laugardaginn í Iþróttahúsi Njarðvíkur. Þróttur hafði nokkurt frumkvæði í leikn- um, en UMFG náði að jafna undir lokin. IBK — UMFN 11:5. IBK (Kefla- vík) og UMFN (Njarðvík) börð- ust einnig í Iþróttahúsi Njarðvík- ur á laugardaginn. en í þessum leik hafði ÍBK talsverða yfirburði frá upphafi til enda. Eins og nú er komið keppni f 2. deild kvenna, bendir allt til þess, að UBK og IBK muni berjast um sigur, en það eru einmitt þau félög, sem áður hafa verið í 1. deild. ÍBK missti sæti í 1. deild í fvrra og UBK í vor. Lið þessara félaga eigast ekki við í deildinni fvrr en eftir áramót. STAÐAN: UBK 4 3 1 0 62:34 7 IBK 4 3 0 I 60:38 6 KA 5 2 1 2 60:66 5 UMFN 4 1 1 2 31:43 3 IR 2 1 0 I 17:27 2 UMFG 4 0 2 2 41:55 2 Þróttur 3 0 1 2 17:25 1 NÆSTU LEIKIR: Laugardag 10.12.: Þróttur—IR í Laugardalshöll kl. 15.30, UMFN — UMFG í Iþróttahúsi Njarðvík- urkl. 14.15. — herb.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.