Morgunblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
76. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Á heimili Steíáns Jóhanns Stefánssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sfðdegis í gær, en eitt hið
fyrsta, sem K.B. Andersen. utanrfkisráðherra Dana gerði í opinberri heimsókn hingað til lands var
að heimsækja Stefán Jóhann. Áttu þeir nána og árangursríka samvinnu um lausn handritamálsins
þcgar Stefán Jóhann var sendiherra íslands í Danmörku, en þá var K.B. Andersen
kennslumálaráðherra í stjórn Jens Otto Krag. Sjá frétt á baksíðu.
Ljósm. Ól.K.Mag.
Vopnaátökum
hætt í Beirút
Boirút. 13. apríl. AP.
LEIÐTOGAR líbanskra hægrimanna og friðargæzlulið Araba lýstu
yfir vopnahiéi í kvöld. hinu fyrsta sfðan bardagarnir hófust f Beirút
á sunnudaginn og fljótlega dró úr skothrfð f suðausturhverfum
borgarinnar þar sem harðir bardagar geisuðu í dag.
Áður en hlé varð á bardögunum
síðdegis gáfu yfirvöld í skyn að 102
Líbanir og Sýrlendingar hefðu
fallið og 294 særzt síðan bar-
dagarnir hófust á sunnudaginn.
Leyniskyttur létu til sín heyra í
kristna hverfinu Ein Rummaneh
eftir myrkur en Sýrlendingar
hættu eldflauga- og skriðdreka-
árásum á íbúðarhverfi þar sem
hægri menn hafa hreiðrað um sig.
Vegna mikils mannfalls sem hefur
orðið í bardögunum samþykktu
Sýrlendingar og hægri menn að
saudi-arabískir og súdanskir her-
menn úr friðargæzluliðinu tækju
sér stöðu við jaðarinn á kristna
hverfinu. Sýrlendingar manna
stöðvar í aðliggjandi hverfi
múhameðstrúarmanna Chiyah.
Hægri menn halda því fram að
rúmlega 200 íbúðir hafi eyðilagzt
eða skemmzt mikið í skothríð
Sýrlendinga síðustu þrjá daga.
Flestir þeir sem hafa fallið eða
særzt eru óbreyttir borgarar, þar
af margir sem lokuðust inni í
íbúðum sínum eða í kjöllurum þar
sem þeir leituðu hælis vegna
skothríðarinnar. Sex hæða sjúkra-
hús varð fyrir eldflaugum svo að
flytja varð 60 sjúklinga burtu.
Hægrimenn halda því fram að
Palestínumenn hafi tekið þátt í
árásunum á hverfi kristinna
manna en ekkert bendir til þess að
svo hafi verið.
Knýr fram
ströng lög
Bonn. 13. apríl. AP
STJÓRN Ilelmut Schmidts kansl-
ara fékk í dag samþykkt á þingi við
endanlega atkvæðagreiðslu ströng
liig gegn hryðjuverkastarfsemi þótt
stjórnarandsta'ðingar vildu cnnþá
harðari ráðstafanir.
Lögin taka gildi í næstu viku og þá
hafa yfirvöld heimild til:
• að útiloka verjendur frá hryðju-
verka-réttarhöldum aðeins vegna
gruns um að þeir taki þátt í samsæri
með skjólstæðingum sínum,
• leita í heilum fjölbýlishúsum að
mönnum sem eru grunaðir um
hryðjuverkastarfsemi samkvæmt
aðeins einni leitarheimild,
• koma fyrir vegatálmunum og
lögreglueftirlitsstöðvum hvar sem
er.
• handtaka alla, taka fingraför og
krefjast skilríkja af öllum sem eru
nærstaddir þegar alvarlegur glæpur
er framinn, jafnvel áður en rétt-
lætanleg ástæða finnst til að hand-
taka viðkomandi,
• neyða verjendur til að ráðfærast
við hryðjuverkamenn í fangelsi
gegnum glerrúðu svo að komizt verði
hjá því að lögfræðingar smygli
leynilegum skilaboðum, sprengiefni
og vopnum inn í fangelsi.
Sendiför Owens
og V ance í óvissu
Dar Es Salaam. 13. aprfl. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Breta og
Bandaríkjamanna, David Owen og Cyrus
Vance, hefja á morgun viðræður við
rhódesíska skæruiiðaleiðtoga og þar með
Það er von Owens og Vance að
skæruliðaleiðtogar Föðurlands-
fylkingarinnar fáist til að styðja
áætlun Breta og Bandaríkjamanna
um frið í Rhódesíu og að sækja
ráðstefnu allra deiluaðila um
framtíð landsins ásamt Ian Smith
forsætisráðherra og leiðtogum
þriggja blökkumannahreyfinga er
hann hefur myndað bráðabirgða-
stjórn með.
Heimildir í Tanzaníu herma að
ríkisstjórnir þeirra fimm blökku-
mannaríkja sem liggja að
Rhódesíu hafi hvatt leiðtoga Föð-
urlandsfylkingarinnar, Joshua
Nkomo og Robert Mugabe, til að
fallast á áætlunina og þær séu
vongóðar um að þeir muni gera
það. Julius Nyerere Tanzaníufor-
seti, er talinn hafa farið fram á að
fundurinn verði haldinn í Dar Es
Salaaam svo að hann geti beitt
áhrifum sínum ef eitthvert hik
hefst ný samstillt tilraun Vesturveldanna
til að binda enda á skærustríðið í Rhódesíu
og tryggja löglega sjálfstæðistöku lands-
ins, en skiptar skoðanir eru um árangur.
kemur á skæruliðaleiðtogana.
Cyrus Vance fór flugleiðis til
Afríku í dag og bandarískur
embættismaður í flugvél hans
sagði að utananríkisráðherrann
gerði sér litlar vonir um að
tilraunin til að efna til ráðstefnu
allra deilduaðila bæri árangur.
Skæruliðaleiðtogar Föðurlands-
fylkingarinnar virðast reiðubúnir
að samþykkja friðaráætlun Breta
Framhald á bls. 19
Tyrkir
vilja
hörfa
Vín. 13. aprfl. Reutor.
TYRKÍR buðust til þess í dag
að fyrirskipa herliði sínu að
hörfa frá markalínunni milli
svæða grískumælandi og
tyrkneskumælandi manna á
Kýpur og afhenda þar með
hluta af því svæði sem þeir
tóku af Kýpur-Grikkjum í
innrásinni 1974.
Tyrkneskir sérfræðingar
sömdu þessar tillögur sem
fulltrúar Kýpur-Tyrkja af-
hentu Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, í Vín í dag.
Prófessor Mumtaz Soysal,
tyrkneskur lagasérfræðingur
og ráðunautur Rauf Denktash
ieiðtogi Kýpur-Tyrkja, sagði að
Tyrkir mundu hörfa með herlið
sitt jafnskjótt og samkomulag
hefði náðst milli þjóðarbrot-
anna um stjórnarfar á eynni í
framtíðinni.
Samkvæmt áætluninni sem
Framhald á bls. 19
Styður frest
Bonn. 13. aprfl. AP.
IIELMUT Schmidt kanslari lýst
í dag yfir stuðningi við þ:
ákvörðun Carters forseta ai
fresta smíði nifteindasprengjunn
ar og sagði að ákvörðunin vær
hending til mótaðilans um a
draga úr vaxandi vígbúnaði eð;
takmarka hann.
Hann sagði að ákvörðunin gæt
boðið upp á nýja möguleika til þes
að koma á jafnvægi í vígbúnaðar
kapphlaupinu
,Hlítum leikregl-
um og ákvörðun
stjórnarinnar,,
TOR HALVORSEN, formaður alþýðusambandsins, kemur af fundi
Odvar Nordlis forsætisráðherra ásamt Leif Haraldseth, varafor-
manni sambandsins, og Lars M. Skytoen, formanni sambands
j árniðnaðarmanna.
„VIÐ höfum hlítt leikreglunum
allt frá því að samningaviðræð-
ur hófust og það munum við
einnig gera nú,“ sagði Tor
Ilalvorsen, formaður norska
alþýðusambandsins, cftir að
norska stjórnin hafði skýrt frá
þeirri ákvörðun sinni í fyrra-
dag að vísa kjaradeilu þeirri,
sem stefndi í allsherjarverkfall
á föstudag. til gerðardóms.
„Um leið og málamiðlunar
Iciðin lokast er það skylda
stjórnvalda og í samræmi við
þá ábyrgð sem valdið leggur
Framhald á bls. 18