Morgunblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
Jazztónleikar í
Félagsstofnun
ÁTJÁN manna jazzhljómsveit
heldur á föstudagskvöldið tónleika
á vegum Jazzvakningar í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut í
Reykjavík.
Hefjast tónleikarnir kl.
20. Hljómsveitin er skipuð 18
norskum jazzleikurum og nefnist
Bodega Band.
Hljómsveit þessi var stofnuð
árið 1929 af stúdentum við Tækni-
háskóla Noregs og lá starfsemi
hennar niðri um hríð en laust fyrir
1960 var Bodega Band endurvakin
og hefur starfað síðan. Hefur hún
leikið inn á þrjár hljómplötur
frumsamda tónlist og heldur á
hverju ári fjölmarga tónleika víðs
vegar í Noregi segir í frétt frá
Jazzvakningu.
Á laugardagskvöld
munu félagar Bodega Band taka
þátt í „Jam Session" í Tjarnarbúð.
Norska jazzhljómsveitin Bodega Band.
jœtY
Fjórir frábærir
á hagstæðu verði
ATHUGIÐ!
Leggjum áherslu á aö vera meö sem fjölbreyttast
úrval af alls kyns léttri tónlist. Þær plötur sem fást
ekki annars staöar gætu fengist hjá okkur.
Tökum upp nýjar sendingar í hverri viku.
FÁLKIN N:
Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturveri
S. 84670 S.18670 12110
Kr. 4250 -
Enn sannar Roger Whittaker fjölhæfni sína.
Á þessari plötu eru öll lögin sungin á frönsku
og er þetta tvímælalaust besta platan hans.
LONDON TOWN
Kr. 4350-
Paul McCartney bregst aödáendum ekki
frekar en venjulega. A þessari plötu er aö
finna lög er jafnast á viö þau fallegustu er
hann hefur samiö.
Kr. 4250-
Nat King Cole er einn af hinum ódauölegu
listamönnum. Nú gefst mönnum tækifæri til
aö fá öll bestu lögin hans á einni plötu.
Kr. 4350-
í Melody Maker var Kaya líkt við Sgt.
Peppers Bítlanna og teljum viö þaö ekki of
stór orö. Einstæö hljómlist Bob Marley hrífur
alla.
Leikfélag
Akureyrar
sýnir
Hunangsilm
LEIKFÉLAG Akurcyrar írum-
sýnir á föstudag leikritið
Hunangsilm eftir Shelagh Delan-
ey og er þetta 5. fumsýning þessa
leikárs hjá L.A. Þýðinguna gerði
Ásgeir Hjartarson, leikstjóri er
Jill Brooke Árnason, höfundur og
smiður leikmyndar Hallmundur
Kristinsson og búninga gerði
Freygerður Magnúsdóttjr.
Hlutverkin eru 5 og leikur
Kristín Á. Ólafsdóttir aðalhlut-
verkið og önnur hlutverk eru í
höndum Sigurveigar Jónsdóttur,
Þóris, Steingrímssonar, Gests E.
Jónassonar og Aðalsteins Berg-
dals.
I uppfærslu leikstjórans Jill
Brooke Árnason er leikurinn
látinn gerast á 6. áratugnum, en
Sigurveig Jónsdóttir leikur hlut-
verk Helenar í Hunangsilmi er
L.A. frumsýnir á föstudagskvöld-
ið.
búningar eru í samræmi við tízku
þess tíma og tónlist frá vinsælda-
listum áranna 1950—‘58 og lýsir
verkið viðhorfum ungs fólks fyrir
20 árum, samskiptum ungrar
stúlku við fólk og umhverfi sitt.
Hefst sýningin eiginlega í anddyr-
inu segir í frétt frá L.A. þar sem
leikin verður vinsælasta tónlist 6.
áratugarins og komið verður fyrir
kvikmyndaauglýsingaspjöldum frá
þessum tíma.
íslendingur
varð Málm-
eyjarmeist-
ari í skák
ÞÆR FREGNIR hafa borizt frá
Svíþjóð, að 28 ára gamall íslend-
ingur, Arnþór Sævar Einarsson,
hafi orðið Málmeyjarmeistari í
skák 1978.
Frá þessu segir í sænskum
blöðum nýlega en þar er Arnþór
reyndar kallaður Arthur. Arnþór
hlaut 7'á vinning af 9 mögulegum.
í blöðunum segir að hann starfi
sem sjúkráliði í Malmey en á
Islandi hafi hann unnið við
landmælingar. I viðtali í einu
blaðanna segir Arnþór að hann
hafi fyrst farið að taka skákina
alvarlega á seinni árum og blaðið
getur þess í leiðinni að íslendingar
séu ákaflega mikil skákþjóð.