Morgunblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
31
Samvinnuferóir £ LANDSYN
AUSTURSTRÆTI 12 REYKJAVÍK ' *• — --- -
SKOLAVORÐUSTIG 16 REYKJAVIK
aukakeppninni á botni 1. deildar
kvenna.
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik er nú þessi:
Víkingur 12 7 4 1 261,223 18
Haukar 13 7 4 2 267,237 18
Valur 12 7 2 3 250,232 16
Fram 13 4 4 5 267.271 12
FH 13 5 2 5 254.241 12
ÍR 12 4 3 5 243,229 11
KR 12 3 2 7 251,266 8
Ármann 13 2 1 10 240.286 5
Eins og sjá má stendur keppnin
aðeins á milli þriggja efstu liðanna
og getur svo farið að þau verði öll
jöfn að stigum að mótinu loknu. Á
sunnudag leika Víkingur og Haukar
í 1. deild kvenna, en að þeim leik
loknum verða Valur og Fram í 1.
deild kvenna í sviðsljósinu. Sker
leikurinn úr um það hvort þessara
liða nær FH að stigum hjá kvenfólk-
inu. Verði jafntefli í leiknum eru
FH-ingar orðnir Islandsmeistárar.
Klukkan 21 leika síðan KR og
Haukar í 1. deild karla og á
mánudaginn klukkan 21 leika Fram
og Valur.
ÍR MÆTIR
VÍKINGUM
VÍKINGUR leikur gegn ÍR í 1. deildinni í handknattleik í kvöld og
heíst leikurinn klukkan 20. Leikur þessi er mjög þýðingarmikill
fyrir Víkinga og reyndar einnig fyrir lið ÍR, sem enn er ekki með
öllu sloppið úr, fallhættu. Sigur Vflíinga í leiknum í kvöld þýðir að
liðið er öruggt með aukaleik um íslandsmeistaratitilinn fari svo að
Víkingur tapi fyrir Val í síðasta leik mótsins.
Víkingar íhugar að nota Olaf hafa tapað 8 stigum og eiga einn leik
Einarsson í leiknum í kvöld.
Keppnin í 1. deildinni stendur á
milli Víkings, Hauka og Vals. Lið
Víkings á mesta möguleika á sigri,
en það hefur tapað 6 stigum. Haukar
eftir. Valur hefur einnig tajiað 8
stigum, en á tvo leiki eftir. Á eftir
leik Víkings og ÍR í kvöld leika
Víkingur og Ármann í 1. deild
kvenna og er leikurinn liður í
Björn Jóhannesson hefur skorað
flest leikmannanna í 1. deildinni.
HM
'I UUOVMÚKSÚT-
UKJOta', LAOSA.V)tsje
MAe-TAST UfeokioAr
06. eoAtí.,
t«TT/S G-E. H6P©-"
BOkJCSÍlUNJ L-eilCo*
PAot ssm BÆei
UlOlM 6'ltoA.
Ljfeitc.
Björn Jóhannesson, Ármanni, hef-
ur skorað flest mörk leikmannanna
í 1. deildinni, 80 talsins. í íþrótta-
fréttum Morgunblaðsins á þriðju-
daginn voru 8 mörk höfð af Birni og
sagt að hann ætti tæplega möguleika
á markakóngstitlinum í ár. Þetta er
alls ekki rétt og er beðist velvirðing-
ar á þessum leiðu mistökum. Björn
á einmitt mesta möguleika allra á að
hreppa þennan titil, en Jón Karlsson
á eftir tvo leiki og gæti skotizt upp
fyrir Björn. Andrés Kristjánsson
gerði aðeins 2 mörk gegn FH og er
trúlega úr leik í keppninni um
titilinn.
Markahæstir í 1. deildinni eru
eftirtaldir:
Björn Jóhannesson, Árm. 80
Andrés Kristjánsson, Haukum 72
Jón H. Karlsson. Val 71
Brynjólfur Markússon, ÍR 62
Haukur Ottesen, KR 62
Janus Guðlaugsson, FH 51
Páll Björgvinsson, Vík. 49
Sfmon llnndórsson. KR 48
Viggó Sigurðsson. Vfk. 47
bórarinn Ragnarsson. FH 46
Mikilvægur leikur í 1. deildinni í kvöld:
Sex íslend-
ingar á NM
fatlaðra í
borðtennis
UM HELGINA fer fram í
Hróarskeldu í Danmörku NM
í borðtennis fatlaðra. Af hálfu
íslands verða 6 þátttakendur,
þau Elsa Stefánsdóttir, Guðný
Gunnarsdóttir, Guðbjörg K.
Eiríksdóttir, Arnór Péturs-
son, Sævar Guðjónssen og
Viðar Guðnason. Þjálíarar og
fararstjórar verða Sveinn Áki
Lúðvígsson, Júlíus Arnarsson
og Guðni Þór Arnórsson.
Þetta er í fjórða sinn sem
fatlaðir íþróttamenn taka
þátt í móti erlendis. Fyrsta
þátttakan var á alþjóðlegum
leikum í Svíþjóð í nóv. 1976.
Þar kepptu tveir sundmenn
og hlutu þriðja og f jórða sæti
í sínum flokki, annað skiptið
var á heimsleikum fatlaðra f
Stoke Mandeville í Englandi
s.l. sumar. Þar kepptu fimm
manns í sundi, borðtennis,
lyftingum og spjótkasti.
Unnust alls þrenn brons-
verðlaun, tvenn f sundi og ein
í lyftingum. Þriðja mótið var
svo NM f sundi f Þrándheimi
í Noregi í nóv. s.l. Þar keppti
þrennt og unnust tvenn silf-
urverðlaun og tvenn brons-
verðlaun. 6.-7. maí n.k. fer
fram NM í lyftingum fatlaðra
hér í Reykjavík ásamt norr-
ænu kynningarmóti í boccia,
en sú íþrótt hentar einkar vel
fötluðu fólki.
íþróttafélagi fatlaðra hafa
borist góðar gjafir. Lions-
klúbbur Reykjavfkur afhenti
félaginu 250 þús. kr. til
styrktar væntanlegri ferð á
heimsleik fatlaðra. Kiwanis-
klúbburinn Esja afhenti fé-
laginu búninga á þátttakend-
urna í NM í borðtennis, og
lfknarfélag Dómkirkjunnar
afhenti 75 þús. kr. sem renna
til framkvæmda á útiíþrótta-
svæði félagsins sem byggja á
upp á lóðinni við Hátún 12.
- ÞR.
Fjölbreyttasta feröaúrval landsins
---------------
. ferðakynning,
f í Þórscafé
/ Sunnudagskvöldið 16. aprílkl 19
Tvíréttaður matur:
Meistari Stefán kitlar bragólauk-
ana meö:
Aöalréttur:
Filet de Porc tumé Raifort.
Eftirréttur:
Coupe Guadalquivir
Verd aðeins 2.850.-
VIÐ BJÓÐUM UPP Á FERÐIR TIL:
Stóri, fallegi feröabæklingurinn er
kominn og auk bess ótal lýsingar
á sérferöum okkar. Bæklingurinn
er aö vísu seint á ferö, en biddu fyrir
Þér, hann er sko Þess viröi aö beðiö sé
eftir honum.
Spánar, ítalíu, Sviss, Austurríkis, Júgóslavíu, Þýskalands, Sovétríkjanna, Danmerkur, Noregs,
Svíþjóöar og írlands, auk okkar viöurkenndu skipulagningu sérhópferöa og einstaklingsferöa.
Kynnist feröunum sem viö gefum sérstök nöfn, eins og t.d. feröist og fræöist, Enskunóm
á íslandi, feröist og megrist, Sólarferö til fimm landa, Septemberdagar á Ítalíu o.fl. o.fl.
Gestahappdrætti:
Þeir sem koma fyrir kl. 20.00
veröa sjálfkrafa þátttakendur í
ókeypis gestahappdrætti.
Feröavinningur.
VIÐBURÐIR KVÖLDSINS:
Higgaríó lystaukinn:
* Söngflokkurinn Randver, ★ Danssýning frá Sigvalda — ★ Spáný Spánarkvikmynd =
Eysteinn Helgason forstjóri Samvinnuferða kynnir stóra og fallega bæklinginn i stuttu og
hressu máli, ★ Okkar sívinsæli ásadans (ferðavinningur) — ★ Skoöunarferö um Þórscafé,
íslenskur fararstjóri (innifalið í miöaveröi) — ★ Bingó (3 ferðavinningar), ★ Þórsmenn sjá
um fjöriö á dansgólfinu og látum húsiö nötra. Þaö hefur ekki alltaf veriö alveg fullt hjá okkur
í Þórscafé en stemmningin hefur alltaf veriö frábær, viö sjáum sömu andlitin aftur og aftur.
Nú finnst okkur rétt aö þið sem ekki þekkiö þaö af eigin raun komist aö því og hættiö
aö missa af svo góöu gamni. ★ Þaö veröa 6 feröavinningar.
Borðapantanir í Þórscafé í síma 23333 og pantið
snemma pví aö nú verður slegist um borðin.
Þeir sem koma fyrir kl. 20.00 fá
ókeypis okkar rómaöa Higgaríó
lystauka.
Kynnir: Magnús Axelsson.
Ef pú ert hress pá komdu,
ef pú ert óhress pá komdu
líka og pú munt hressast.