Morgunblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
Lokaumferð Lone Pine-skákmótsins:
Jafnt hjá Mar-
geiri — Haukur
og Helgi töpuðu
SKÁKMÓTINU í Lone Pine í
Bandaríkjunum, sem kennt er við
milljónerann Louis D. Statham er
lokið.
Eins og fram hefur komið í Mbl.
tefldu fimm íslenzkir skákmenn i
mótinu og stóðu þrír peirra sig með
miklum ágætum, Oeir Haukur
Angantýsson, Margeir Pétursson og
Helgi Ólafsson. Sá síðastnefndi
krækti sér í nafnbótina albjóölegur
meistari en hinir náöu í fyrri hluta
titilsins.
í 9. og síðustu umferðinni urðu
úrslit þau að Haukur tapaöi fyrir
stórmeistaranum Timman, Helgi tap-
aði fyrir stórmeistaranum Miles en
Margeir gerði jafntefli við stórmeist-
arann Georghiu frá Rúmeníu.
Þeir Haukur og Margeir hlutu 5
vinninga í mótinu, Helgi 4'A vinning,
Ásgeir 2 vinninga og Jónas 1 vinning,
en þeir tveir tefidu saman í síðustu
umferðinni og geröu jafntefli.
Úrslit uröu annars þau aö Bent
Larsen varð efstur með 7'A vinning
og hlaut aö launum væn peninga-
verðlaun. Larsen sigraöi Rogof í
síðustu umferöinni. Annar varð Lev
Polugaevsky sem einnig hlaut með
71/j vinning en hafði lægri stigatölu,
en hann vann Lein í síðustu umferð.
Báöir tefldu þessir kappar á Reykja-
víkurskákmótinu. Árangur Larsens er
mjög athyglisveröur fyrir þá sök að
hann tapaði fyrstu skákinni en hlaut
síðan 7V4 vinning úr 8 síöustu
skákunum, sem er frábær árangur.
Stúdentahljómsveit í
Bústaðakirkju í kvöld
í KVÖLD kl. 23.30 hcldur stúdcnta-
hljómsvcit frá Noregi tónleika í
Bústaðakirkju. en hljómsvcit þcssi
cr hcrlcndis á vcgum Háskóla-
kórsins. Á cfnisskrá tónlcikanna
cru cinKönttu vcrk eftir norsk
tónskáld, m.a. kaflar úr Pétri Gaut
eftir Grieg.
Innan hljómsveitarinnar starfa
síðan minni hópar, svo sem blásara-
kvartettar, kammerhópar o.fl. og
gömludansahljómsveit og mun hún
koma fram á hátíð Landssambands
blandaðra kóra um helgina.
Stúdentahljómsveitinni stjórnar
Stein Ratkje.
Rannsóknarlögreglan á að
flytja í nýja húsið í ágúst
NÝLEGA voru opnuð tilboð í
innréttingar hins nýja húss
Kannsóknarliigrcglu ríkisins við
Auðbrekku í Kópavogi.
Samkvæmt upplýsingum Eiríks
Tómassonar aðstoðarmanns dóms-
málaráðherra hefur verið ákveðið
að semja við þann verktaka, sem
átti lægst tilboð. Er við það miðað
að verkinu ljúki um miðjan
júlímánuð n.k. Mikil undirbún-
ingsvinna hefur þegar farið fram
m.a. hefur verið skipt um glugga
og vinnu við múrverk er lokið.
Kvað Eiríkur vonir standa til að
Rannsóknarlögreglan flytti í hið
nýja húsnæði um mánaðamótin
júlí—ágúst n.k.
Kór kvenstúdenta frá Drándhcimi. Stjórnandi er Else Marie Lund.
Tónleikar stúdenta-
kóra frá Þrándheimi
IIÉR Á landi eru nú staddir tveir
stúdentakórar frá Drándhcimi á
vegum Iláskólakórsins. Eru það
karlakór og kvennakór og halda
þeir í dag tónleika í sal Mennta-
skólans við Hamrahlíð kl. 19.
Kórarnir syngja saman og sinn
í hvoru lagi og kynna norska
tónlist gamla og nýja, verk eftir
Grieg og Thomas Beck. Auk
þessara tónleika taka kórarnir
þátt í söngleikum Landssambands
blandaðra kóra og sækja Laug-
vetninga og Kópavogsbúa heim.
Stjórnendur kóranna eru Per
Hjort Albertsen og Else Marie
Lund.
er vor i
Karnabæ!
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 20. Laugaveg 66 Austurstræti 22. Glæsibæ. Simi 28155