Morgunblaðið - 14.04.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
Frá afhendingu styrkjanna úr Menningarsjóði í gær. Frá vinstrii Þorbjörg Höskuldsdóttir listmálari,
Baidvin Halldórsson leikari, Elísabet Erlingsdóttir söngvari, Sigrún Eldjárn grafíker, fulltrúar
Kaldalónsútgáfunnari Jón Gunnlaugsson, Ester Kaldalóns og Sigvaldi Snær Kaldalóns, Arni
Tryggvason leikari. Þóroddur Guðmundsson skáld. Stefán Hörður Grímsson skáld og Kristján
Benediktsson, formaður menntamálaráðs. Einn listamannanna, Sigríður Björnsdóttir listmálari, var
ekki viðstödd. Ljósm. Mbl.i RAX
Menntamálaráð í tilefni 50 ára afmælisins:
Sigurður Jón-
asson skógar-
vörður látinn
SIGURÐUR Jónasson. skógar
vörður í Varmahli'ð í Skagafirði,
lézt síðastliðinn þriðjudag 68 ára
að aidri.
Sigurður hóf störf hjá Skógrækt
ríkisins 1944, en var skipaður
skógarvörður í Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslum 1950. Gegndi
hann því starfi til dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Sigrún Jóhannsdóttir.
Rit um þjóðgarða, fólk-
vanga og friðlýst svæði
2 sjómenn slasast
alvarlega á hendi
Árni Tryggvason leikari, til
að kynna sér leiklist á Norður-
löndum og í Englandi.
Baldvin Halldórsson leikari
til að kynna sér leiklist í Dublin
og London.
Elisabet Erlingsdóttir söngv-
ari til dvalar í Miinchen þar sem
hún mun sækja einkatíma í
einsöng hjá óperusöngkonunni
Ruth Nehek.
Sigriður Björnsdóttir listmál-
ari til að kynna sér myndlist í
Finnlandi og að undirbúa sýn-
ingu, sem hún ætlar að halda
þar í nóvember n.k.
Sigrún Eldjárn grafíker til
Póllandsfarar, þar sem hún
ætlar að kynna sér grafíklist
Pólverja.
Stefán Hörður Grímsson
skáld til Svíþjóðarfarar, þar
sem hann ætlar að vinna að
ritstörfum.
Þorbjörg Höskuldsdóttir list-
málari til ítaliufarar, þar sem
hún ætlar að kynna sér mynd-
list.
Þóroddur Guðmundsson skáld
til Svíþjóðarfarar þar sem hann
ætlar að kynna sér nútíma
sænska ljóðlist, með það í huga
að þýða sænsk ljóð á íslensku.
Um 700 þúsund króna styrk til
tónverkaútgáfu sóttu 6 aðilar.
Menntamálaráð veitti Kalda-
lónsútgáfunni styrkinn til end-
urútgáfu á sjö af niu sönglaga-
heftum Sigvalda Kaldalóns.
TVEIR fiskibátar komu í
fyrradag inn til Hafnar í
Hornafirði með slasaða
menn, sem báðir voru flutt-
ir til Reykjavíkur. Voru
þetta færeyski línubátur-
inn Bláfossur og Lyngey
SF 61 frá Hornafirði.
Á færeyska skipinu hafði
einn skipverja slasast illa á
hendi og var óttast að hann
missti þumalfingur. Skip-
verjinn á Lyngey var illa
brotinn um úlnlið.
Samkvæmt upplýsingum
Elísar Jónssonar, fréttarit-
ara Morgunblaðsins á Höfn,
hefur afli báta þar eystra
verið misjafn en yfirleitt
góður. Hafa skip fengið
rúmlega 50 lestir af eins til
þriggja nátta fiski. Algengt
mun að bátar fái um 30
lestir.
8 dvalarstyrk-
ir og styrkur til
tónverkaútgáfu
afhentir í gær
MENNTAMÁLARÁÐ hefur
samþykkt í tilefni af 50 ára
afmæli Menningarsjóðs og
menntamálaráðs að efna til
útgáfu bókar um þjóðgarða
íslands, fólkvanga og friðlýst
svæði. Gísli Jónsson, mennta-
skólakennari á Akureyri, hefur
verið ráðinn ritstjóri verksins
og í útgáfunefnd eru Baldvin
Tryggvason sparisjóðsstjóri,
Björn Th. Björnsson listfra'ð-
ingur, Jónas Jónsson, for
maður Skógræktarfélags ís-
lands, og Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur.
í samþykkt menntamálaráðs
segir, að bókin skuli vera „eins
konar hringferill um landið og
einstakir menn fengnir til að
rita um ákveðinn stað, eða
staði". Bókin verði hugsuð „sem
stofn er síðar megi endurskoða
og bæta við eftir því sem
aðstæður breytast og friðlýstum
svæðum fjölgar.
Umbroti bókarinnar verði
hagað með tilliti til þess, að
unnt sé að gefa hana út með
tvenns konar umbúnaði, sem
leiðarbók og einnig í vandaðri
myndskreyttri útgáfu".
Gísli Jónsson. ritstjóri afmælis-
verks menntamálaráðs.
Kristján Benediktsson, for-
maður menntamálaráðs, skýrði
frá þessu í gær og sagði hann þá
m.a.: „Við væntum okkur mikils
af starfi þessara manna og
vonum, að þetta ritverk geti
orðið verðugt framlag í menn-
ingarsögu þjóðarinnar."
Við sama tækifæri og skýrt
var frá framangreindri útgáfu
voru afhentir átta dvalarstyrkir
listamanna úr Menningarsjóði
og styrkur til tónverkaútgáfu.
Um átta dvalarstyrki að
upphæð 250 þúsund krónur
hvern sóttu 32 listamenn. Þessir
hlutu styrki:
Ferðamenn mega
nú taka með sér
1 lítra af sterku
Andvirði tollfrjáls varnings
aukið í 32 þúsund krónur
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ gaf
hinn 12. apríl siðastliðinn út nýja
reglugerð um tollfrjálsan farang-
ur ferðamanna og farmanna við
komu frá útlöndum og er ferða-
mönnum nú heimilt skv. hinni
nýju reglugerð að taka með sér
einn lítra af sterku áfengi í stað
% lítra áður. Þá er andvirði
varnings, sem heimilt er að flytja
inn án aðflutningsgjalda aukið
úr 14 þúsund krónum f 32 þúsund
krónur.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá fjármálaráðu-
neytinu um þessa reglugerðar-
breytingu. Þar segir:
„Fjármálaráðuneytið hefur hinn
12. apríl s.l. gefið út nýja
reglugerð um tollfrjálsan farangur
ferðamanna og farmanna við
komu frá útlöndum.
Helstu nýmæli reglugerðarinnar
eru þau að því er ferðamenn
varðar, að andvirði varnings, sem
ferðamönnum er heimilt að hafa
með sér frá útlöndum án greiðslu
aðflutningsgjalda hækkar úr
14.000 kr. í 32.000 kr. miðað við
smásöluverð erlendis. Af þeirri
fjárhæð má andvirði annarra
vara en fatnaðar þó ekki nema
meiru en 16.000 kr. og andvirði
matvæla, þar með talið sælgæti,
ekki meiru en 3.200 kr. í stað 1.400
kr. áður. Andvirði myndavéla,
sjónauka, útvarpstækja og segul-
bandstækja má nema 24.000 kr.
Framhald á bls. 18
Dagblöðum
heimiluð
hækkun
RÍKISSTJÓRNIN hefur stað-
fest samþykkt verðlagsnefnd-
ar frá þvf á miðvikudag um
heimild fyrir dagblöðin til að
hækka áskriftarverð úr 1.700
krónum f 2.000 krónur á
mánuði. Ennfremur er blöðun-
um heimilað að hækka lausa-
söluverð úr 90 í 100 krónur og
auglýsingaverð úr 1.020 krón-
ur f 1.200 krónur hvern
dálksentimetra.
50 ár frá stof n-
un Félags mat-
vörukaupmanna
„BEIN sala heildsala á sinum tima
til neytenda er aðalhvatinn aö
stofnun Félags matvörukaup-
manna fyrir 50 árum,“ sagöi Jónas
Gunnarsson formaöur félagsins á
blaðamannafundi sem félagið
boöaöi til í gær í tilefni afmælisins.
Jónas gat pess einnig aó sam-
skipti pessara aðila væru nú
komin í mjög eðlilegt horf.
Á fundinum rakti Jónas nokkuð
þróun félagsins frá stofnun og sagði
meöal annars að snemma heföi
farið að gæta offjölgunar í stéttinni,
en yfir 100 félagar hafi verið í
felaginu í upphafi. Síðan haföi oröiö
umtalsverð fækkun í kreppunni
miklu og haldist nokkuö gott
jafnvægi í fjölda ára þar til aö nú
væri farið aö gæta offjölgunar á
nokkrum stöðum í bænum og ættu
skipulagsyfirvöld þar nokkurn hlut
aö máli. Nefndi Jónas í því sam-
bandi að þeir kaupmenn sem væru
búnir að koma sér vel fyrir í
Breiðholtshverfum í þeirri trú að
þau væru endanlega skipulögö. Svo
kæmi þaö upp úr dúrnum aö nú
væri þúiö aö veita leyfi fyrir stórum
markaöi í Breiöholtshverfi sem
gjörbreytti myndinni.
Um verðlagsmálafrumvarp þaö,
sem nú liggur fyrir Alþingi, sagöi
Jónas, aö matvörukaupmenn teldu
þaö spor í rétta átt en engan veginn
fullnægjandi væri þaö sums staöar
í hæsta máta loðið, þannig aö erfitt
væri aö túlka þaö. Þá væri á
mörgum stööum um aö ræöa algera
endurtekningu á því sem þegar væri
komið í frumvarpinu. Þá kom einnig
fram hjá Gunnari Snorrasyni for-
manni Kaupmannasamtaka íslands,
sem sat fundinn, aö Kaupmanna-
samtökin ásamt hinum samtökum
verzlunarinnar heföu fengið frum-
varpiö til umsagnar. En þegar þaö
heföi veriö lagt fram kæmi þaö
einfaldlega í ijós aö lítiö sem ekkert
heföi veriö fariö eftir umsögn þeirra
um máliö.
Þá kom innheimta söluskatts til
umræöu og sagöi Jónas matvöru-
kaupmenn sem aöra kaupmenn
mjög óhressa með aö fá alls enga
þóknun fyrir þetta mjög svo tíma-
freka starf.
Meðal þeirra mála, sem félagið
hyggst vinna aö á næstu árum, er
fullt verzlunarfrelsi, jafnrétti á viö
aörar stéttir í landinu til handa
kaupmönnum, mótmæla þeirri
þegnskyldu sem í innheimtu sölu-
skatts fælist svo og yröi unniö aö
innri uppbyggingu stéttarinnar.
Væri fyrsta skrefið þegar stigiö meö
byggingu sumarhúss fyrir félags-
menn.
Þá kom þaö fram aö lokum að
Félag matvörukaupmanna er eitt 18
sérgreinafélaga innan Kaupmanna-
samtaka íslands, en innan vébanda
þess eru um 700 verzlanir.
Núverandi stjórn félagsins skipa
þeir Jónas Gunnarsson formaöur,
Ólafur Björnsson, Jón Þórarinsson,
Helgi Viktorsson, Ingibjörn Haf-
steinsson, Baldvin Eggertsson,
Bragi Kristjánsson og Örn Ingólfs-
son.