Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978 Laugardalshöll 7. júní, kl 21.00: Ein vinsælastapopphljóm- sveitin í Evrópu ídag Fáar pophljómsveitir njóta meiri vinsælda meðal táninga á meginlandi Evrópu um þessar mundir en brezka hljómsveitin Smokie. Allar plötur henn- ar, litlar sem stórar, þjóta upp vinsælda- listana og uppselt er á hverja einustu hljómleika hennar. í Bretlandi eru vinsældir þeirra að vísu ekki eins miklar, nýbyljíjutónlistin hefur séð fyrir því, en eijíi að síður hafa níu lön þeirra komist hátt á vinsældalistann þar og sum þeirra jafnvel komizt í 1. sætið. Hljómsveitina skipa þeir Chris Nor- man, gítar, Terry Uttley, bassi og söngur, Alan Silson, gítar og söngur, og Pete Spencer, trommur og söngur. Norman, Uttley og Silson gengu saman í skóla og hafa þekkst allt frá þeim tíma. Spencer gekk í hljómsveitina stuttu eftir að hún var stofnuð, en hann hafði þekkt hina hljómsveitarmeðlimina frá skólaárum sínum. Allir fjórir eru frá borginni Bradford í Englandi og þar léku þeir framan af í klúbbum og á öðrum stöðum. Það var þó ekki fyrr en fyrir fjórum árum að hljómsveitin fór fyrst að vekja athygli. Þá gerðist Bill Hurley umboðs- maður hljómsveitarinnar og hans fyrsta verk var að fá lagasmiðina Nicky Chinn og Mike Chapman til að semja lög fyrir Smokie. A eftir fylgdi hljómplötusamn- ingur við RAK-útgáfufyrirtækið og nú tóku hjólin að snúast. F.vrsta lag þeirra, „Pass it around", náði að vísu ekki hátt á vinsældalistum, en lagið þar á eftir, „Something's been making me blue“, rauk upp listana og gerði Smokie fræga á augabragði. Lögin sem í kjölfarið fylgdu treystu stöðu hljómsveitarinnar og nú er svo komið að þeir eru í fremstu víglínu pop-tónlistar- manna í Bretlandi. ísland hefur ekki farið varhluta af vinsældum Smokie, það er ekki lengra síðan en í fyrra að lög eins og „1*11 meet you at midnight“, „Living next door to Alice" og „Lay back in the arms of someone" tröllriðu þáttum eins og „Lögum unga fólksins" „Laginu mínu“ og „A frívaktinni". Um leið og lög þeirra urðu vinsæl, tóku breiðskífur þeirra mikinn fjörkipp og nú seljast þær í hundruðum þúsunda eintaka. Má sem dæmi nefna að plata þeirra, „Greatest hits“, hefur selzt í yfir einni og hálfri milljón eintaka í Evrópu. Hljómleikaferðalög hafa verið mörg hjá Smokie og þær eru fáar borgirnar þar sem hljómsveitin hefur ekki komið fram. Fjölmenni á hljómleikunum er æði misjafnt en eitt skiptið léku Smokie þó fyrir 12.000 manns á einum hljómleikum. Hljómsveitarmeðlimirnir hafa þó ekki látið frægðina stíga sér til höfuðs og þeir búa enn í Bradford ólíkt flestum öðrum stórstjörnum í tónlistarheiminum, sem hafa flúið Bretland vegna hárra skatta þar í landi. Eftirtaldar breiðskífur hefur Smokie gefið út: „Pass it around“ (SRAK 510), „ChanKÍng all the time“ (SRAK 517), „Midnight cafe“ (SRAK 520), „Greatest hits“ (SRAK 52G), „Bright !i(íhts and back alleys“ (SRAK 530). Litlar plötur þeirra eru eftirfarandh „Pass it around" (RAK 192), „If you think you know how to love mc“ (RAK 206), „Don't play you rock'n'roll to me“ (RAK 227), „Wild, wild ant?els“ (RAK 233), „I‘ll meet you at midnight" (RAK 241). „LivinK next door to Alice" (RAK 244), „Lay back in the arms of someone" (RAK 251), „It‘s your life“ (RAK 260), „Needles and pins“ (RAK 263), „For a few dollars more“ (RAK 267). Laugardalshöll 10. júní k/. 13.00: Maraþonsöngur, lúðraþytur og dans Eitt fjölmennasta atriði Lista- hátíðar ef svo má að orði komast verður í Laugardalshöll 10. júní og hefst klukkan 13.00, en það eru maraþontónleikar íslenzkra kóra með þátttöku unglingalúðrasveita, Þjóðdansaflokksins og Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Alls munu koma þarna fram um 1000 manns, söngvarar, hljóðfæraleikarar og dansarar. Ragnar Ingólfsson, formaður Sambands íslenzkra karlakóra,. sagði að þetta atriði væri tilkomið vegna þess að ýmsir áhugamenn um listir hefðu lýst áhuga sínum á þátttöku í Listahátíð og ákveðið að setja þetta atriði á einn dag og hafa það með nokkuð sérstöku sniði þannig að aldrei yrði hlé á milli atriða. Einnig væri tilefnið 50 ára afmæli Sambands íslenzkra karlakóra og taka alls 11 karlakór- ar þátt í tónleikunum. Syngja fyrst sér, en síðan sameiginlega. Annars sagði Ragnar að dagskráin yrði þannig að milli kl. 13—15 syngju barnakórar, milli kl. 15—17 karlakórar og væru það jafnframt 50 ára afmælistónleikar. Klukkan 17 blandaðir kórar, kl. 19.00 Lúðrasveitir unglinga og síðan klukkan 20.00 Þjóðdansaflokkur. Gera mætti ráð fyrir að í Laugar- dalshöllinni yrðu stöðug atriði á dagskrá fram til kl. 21-22.00 um kvöldið. Frrí tónhikum Samhanda íslenzkra karlakóra 1975

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.