Morgunblaðið - 21.06.1978, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978
Stuttar umsagnir
TÓNABÍÓ: SJÖ HETJUR (endursýning)
Það er virkilega ánægjulegt að rifja upp gamlar minningar
í Tónabíó þessa dagana, og sjá þar aftur einn ágætasta vestra
sem maður sá á unglingsárunum. En mikið ósköð hefur
veröldin verið saklaus þá! Eftir allt það blóðbað og ofbeldi
sem flætt hefur yfir áhorfendur síðan skal viðurkennt að
„töffarastælar" þeirra Yul Brynner og félaga, sem þóttu
æðislegir í „þá daga“, hafa bliknað með aldrinum, því miður.
Á NÆSTUNNI
REGNBOGINN, THE BOYS
FROM BRAZIL
Vonandi líður ekki á löngu
áður en þessi mynd, sem byggð er
á metsölubók Ira Levins
(ROSEMARYS BABY), verður
tekin til sýninga. Hún fjallar um
óhugnanlega tilraun þýsks lækn-
is og stríðsglæpamanns til að
endurholdga Ilitler. Með aðal-
hlutverk fara m.a. Gregory Peck
og Sir Laurence Olivier. (Þess
skal og getið að mvndin hefur
ekki enn verið frumsýnd erlend-
is).
Lucas, Spielberg, Milius, Coppola og co.
Að undanförnu hefur
hópur þekktra. ungra
handritahöfunda / leik-
stjóra, náð umtalsverðum
áhrifum í höfuðhorg kvik-
myndaiðnaðarins. Holly-
wood. Samstaða þeirra cr
ærið sérstæð og eftirtekt-
arverð, þeir skiptast á
hugmyndum. útvega hver
öðrum vinnu og eiga jafn-
vel hlutabréf í kvikmynd-
um hvers annars.
Að þessu sinni verður
Kvikmyndasíðan helguð
þessum ágætismönnum og
er að miklu leyti hyggð á
grein eftir Robert Lindscy
sem birtist í New York
TIMES MAGAZINE þ. 28.
síðasta mánaðar.
Sunset Beach, Hawaii.
John Milius kann vel við
líkingar úr hernaðarsög-
unni. Brimbrettið, sem
hann geysist á eftir fjallhá-
um öldukömbunum um leið
og hann leikstýrir mynd-
inni BIG WEDNESDAY
sem einmitt fjallár um
þessa æsilegu íþrótt, kallar
hann Bismarc. A ströndinni
liggja þrjú önnur, það eru
Scharnhorst, Graf Spee og
von Tirpitz, öll skýrð eftir
kunnum, þýskum herskip-
um.
Flokkur kvikmyndagerð-
armannanna er kallaður „A
Team“, en það var notað
yfir flokka návígisher-
manna í Viet Nam. Og
þegar hann er að lýsa áliti
sínu á framleiðendunum í
Hollywood þá grípur hann
enn til hernaðarlíkinganna:
„Ég er hershöfðingi, mér
hefur gengið vel að stjórna
liðssveitum mínum á orr-
ustuvellinum. Ég lít ekki
einu sinni á yfirmenn kvik-
myndaveranna sem
ofursta. Sumir þeirra eru
ekki einu sinni nægilega
hæfir til að kallast liðsfor-
ingjar".
Þegar hinn stæðilegi, 34
ára gamli, svartskeggjaði
leikstjóri brunar eftir öldu-
földunum utan hinnar
heimsfrægu norðurstrand-
ar eyjarinnar Oahu — en
þar er talin vera einna
besta aðstaðan til þessarar
íþróttar á jarðkringlunni —
þá líkist hann ekki beinlínis
þeim manni sem kvik-
myndaverin og Wall Street
hafa mikinn áhuga á þessa
dagana. En Milius er
einmitt einn af þeirri kyn-
slóð kvikmyndagerðar-
manna sem skyndilega eru
í miklum metum bæði í
kvikmynda- og fjármála-
heiminum vestan hafs í
dag. Hann tilheyrir hópi
ungra handritahöfunda /
leikstjóra sem skína hvað
skærast í gömlu Hollywood,
greiða jafnan götur hvers
annars og eiga jafnvel
hlutdeild í myndum hvers
annars — myndum sem
hafa skilað svo geipiiegum
ágóða á síðustu árum að
kaupsýslumenn í Banda-
ríkjunum keppast nú við að
komast yfir hlutabréf í Fox
eða Columbia en frekar t.d.
A.T.T. eða Ford. í Holly-
wood merkir velgengni völd
þó hverful séu og um þessar
mundir hefur þessi hópur
náð umtalsverðum völdum.
Flestir eru þeir bekkjar-
félagar úr kvikmyndadeild-
um háskólanna U.C.L.A eða
U.S.C.; skrifa handrit
mynda sinna sjálfir; nokkr-
ir þeirra hafa og náð því
marki uppá síðkastið að
framleiða myndir sínar
sjálfir og fengið þar með að
ráða meiru um útlit þeirra
og margir þeirra gefa
stjörnum Hollywood langt
nef. Og það sem kannski er
meira um vert, þá eru þeir
að sanna að kvikmyndir
þarfnast ekki stjarna til að
njóta vinsælda.
Milius minnist þess að
fyrir einum sjö eða átta
árum lét Francis Ford
Coppola svo ummælt við
George félaga sinn Lucas:
„Allt í lagi við skulum
breyta þessu. Við George
leggjum undir okkur kvik-
myndaverin og þú sérð um
afganginn." Þetta hefur
náttúrulega ekki ræst bók-
staflega en þeir félagarnir
hafa stefnt í þá átt. Og með
þessari framþróun hefur
þessum nýkynslóðarhóp
gefist tækifæri til að gefa
óþekktum hæfileikamó'nn-
um möguleika á að koma
hugmyndum sínum í fram-
kvæmd í frumskógi kvik-
myndaiðnaðarins.
Coppola komst fyrstur á
flot og kom þessum sam-
tökum á laggirnar. Árið
1969 sannfærði hann Warn-
er Bros um að kaupa
handritið APOCALYPSE
NOW sem fjallar um Viet-
nam striðið. Það var samið
af Milius og þar með var
hann kominn inn fyrir múr
kvikmyndaveranna og
nokkru síðar var hann
sjálfur farinn að leikstýra,
(DILLINGER, THE WIND
AND THE LION). Þá gaf
Coppola einnig George
Lucas sitt fyrsta verkefni
sem leikstjóri með mynd-
inni THZ 1138 sem hlotið
hefur góða dóma hvarvetna
en hefur lítið sem ekkert
verið sýnd utan Bandaríkj-
anna. Skömmu síðar gerði
Lucas myndina
AMERICAN GRAFFITI en
Coppola framleiddi. Hún
kostaði innan við 750 þús.
dala í framleiðslu en hefur
gefið einar 55 millj. $ í aðra
hönd.
Um þessar mundir er
Coppola innilokaður í San
Fransisco þar sem hann er
önnum kafinn við að klippa
eina umtöluðustu mynd
síðari ára, APOCALYPSE
NOW, sem byggð er á
handritinu sem Milius
samdi fyrir einum átta
árum. Kvikmyndatakan
dróst verulega á langinn
sökum ofviðra og annarra
vandræða á Filipseyjum og
framleiðslukostnaðurinn
hefur farið langt fram úr
áætlun; kominn yfir $ 26
milljónir! Coppola hefur
orðiö að veðsetja flestar
eigur sínar til að geta lokið
við myndina sem, vegna
nýrra aðsteðjandi vanda-
mála, mun ekki verða tilbú-
in til sýninga fyrr en á
næsta ári.
Aðrir í þessum öndvegis-
hópi eru m.a. kona Lucas
kvikmyndaklipparinn
Martha, Paul Schrader,
Willard og Gloria Huyck,
Matthes Robbins og Hal
Barwood, Robert Zameckis
og Robert Gale. Williard
Huyck segir: „Það eftirtekt-
arverðasta er að það er
engin innbyrðis samkeppni
okkar í millum. Allir eru
boðnir og búnir til að veita
aðstoð ef með þarf og við
óskum hver öðrum hins
besta.“
Lucas er upptekinn þessa
dagana við að undirbúa
gerð næstu myndar um
sögupersónurnar í STAR
WARS, (en leikstýrir ekki,
aðeins framleiðir og hefur
hönd í bagga með handriti
ofl.). í dag er þessi mest
sótta mynd allra tíma búin
að færa honum í hendur
hvorki meira né minna en
röskar 50 millj. $; auðlegð
sem tekið hefur fleiri en
eina kynslóð olíufursta eða
stórglæpamanna að komast
yfir.
Framhald á bls. 63.
> r . warl\ * ' 7} C f ^ ,
wBmÉ ÉMÉÍ
m
IfSðMPSL. ,
■
j , ' * w vv< - -V.
* '> /w \ , v. \ « í* T
- ; , ■ ^
Þrír þekktir leikstjórar. Spielberg. (JAWS. CLOSE ENCOUNTER ... ), Coppola, (TIIE GODFATIIER, I OG
II) og George Lucas. (AMERICAN GRAFFITI. STAR WARS). Þeir eru einnig þungamiðja þess hóps listamanna
í kvikmyndaborginni Hollywood sem fjallað er um í greininni.
Litla myndin
Paul Schrader er. eins og hinir meðlimir hópsins, íyrrverandi handritahöfundur. (TAXI DRIVER). Hann er nú
að byrja á sinni þriðju mynd sem leikstjóri.