Morgunblaðið - 21.06.1978, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978
53
Afmæliskveðja:
Björg Magnúsdótt-
ir ljósmóðir - Níræð
Björg Magnúsdóttir, ljósmóðir
írá Túngarði, Dalasýslu varð
níræð 8. júní síðastliðinn.
Undir Felli hefur forðum stór-
býli heitið norðan Hvammsfjarðar
í Dalasýslu, nú er sá bær nefndur
Staðarfell. Fellið sjálft stendur
þar föstum fótum. Um aldaraðir
mun það hafa hlýtt með hógværð
og rósemi á tímans þunga nið.
Alltaf viðbúið að veita staðarbúum
skjól gegn norðannæðingnum. Það
er því í huga mínum á þessari
stundu sem tákn trúmennskunnar.
Þann eiginleika má ekki vanrækja
í uppeldi þjóðarinnar ef vel á að
fara. Ef Island, sem við elskumöll,
á að eignast trausta og göfuga
þjóðfélagsþegna þarf hver ein-
staklingur að halda dyggan vörð
um það bezta sem með honum býr
svo það megi vaxa og verða til
sóma. Sérhver góður Islendingur
þarf að muna hin fornu orð:
„Hvorki skal eg á þessu níðast og
á engu öðru því, sem mér er til
trúað“.
Eitt sinn uxu fjögur mannvæn-
leg ungmenni við rætur Staðar-
fells. Þar munu þau hafa unað vel
hag sínum í fögru umhverfi sem
átti yfir að ráða myndauðgi
breiðfirzkra byggða. Að líkindum
mun það hafa gefið ungmennum
þessum lífsþroska og bjarta fram-
tíðardrauma. Þar hefur ekki sízt
að verki verið sambýlið við hafið
sem fært er um að minna manns-
andann á hverfleika jarðlífsins og
rödd hins eilífa sem aldrei hverf-
ur. Æskufólk það, sem hér um
ræðir, voru systkinin Björg, síðar
Ijósmóðir Fellsstrandarhrepps um
40 ára skeið, mannkostakona sem
bar starfsheitið með sæmd, Þuríð-
ur, síðar húsfreyja á Akri í
Hvammssveit, vinsæl gáfukona,
Gestur bróðir þeirra, glæsilegur
ungur maður, gagnfræðingur frá
Akureyri og var talinn vel til
forystu fallinn, og fóstbróðir og
náfrændi þeirra systkina, Magnús
bróðir Björns Guðfinnssonar mál-
fræðings og þeirra vel gefnu
systkina. Var hann talinn efnis-
maður eins og hann átti kyn til.
Foreldrar Staðarfellssystkin-
anna voru bændahöfðinginn
Magnús Friðriksson oddviti og
Soffía Gestsdóttir kona hans, bæði
af góðu breiðfirzku bergi brotin.
Þau bjuggu um langt skeið um-
svifamiklu stórbúi á forna höfð-
ingjasetrinu Staðarfelli unz sjó-
slys dró úr þeim alla löngun til
framtíðarbúsýslu.
Árið 1920 fórust á Hvammsfirði
Gestur frá Staðarfelli og Magnús
fóstbróðir hans, sem fyrr er getið,
ásamt tveim dyggðaríkum vinnu-
hjúum þeirra Staðarfellshjóna.
Nokkrum árum eftir þann sorg-
lega viðburð fluttust þau Staðar-
fellshjón alfarin til Stykkishólms
og þar gerðist Magnús hreppstjóri.
Höfðu þau hjón áður gefið ríkinu
jörð sína, Staðarfell, til minningar
um son sinn og fósturson. Skyldi
á Staðarfelli verða starfræktur
húsmæðraskóli fyrir breiðfirzkar
konur og þannig rennt styrkum
fjárhagslegum stoðum undir sjóð
þann sem frú Herdís Benediktsen
í Flatey gaf til minningar um
Ingileif dóttur sína. Skyldi þeim
sjóði varið til byggingar mennta-
seturs breiðfirzkra kvenna.
Fyrsti skólastjóri Húsmæðra-
skólans á Staðarfelli var hin
duglega og vel menntaða kona,
Sigurborg Kristjánsdóttir frá
Múla við Isafjarðardjúp. Hófst
skólastarfið í steinsteyptu vönd-
uðu íbúðarhúsi þeirra Staðarfells-
hjóna en það var síðar stækkað
allmikið og notað sem skólaheirm
ili. Var skólinn vígður árið 1928. í
vígsluljóðum skólans eftir Jóhann-
es skáld úr Kötlum komst hann
svo að orði:
Yfir stoltu Staðarfelli
stórra merkja vakir dfs.
Hýrt f bragði. hátt að velli
höfuðbólið forna rfs.
Brosir hlýtt mót bænda lýði,
breiðir faðminn móti sól,
borið giftu, búið prýði,
býður íslands dætrum skjó).
Um Magnús Friðriksson komst
hinn snjalli hagyrðingur, Steinunn
Þorgilsdóttir svo að orði:
Ber þinn hróður bjart og h&tt
breiðfirzk grund og saga.
l.ands og þjóðar þakkir átt
þú um alla daga.
Minnist ég undirrituð Magnúsar
Friðrikssonar og Soffíu konu hans
ávallt með þakklæti og virðingu.
Það er oft gaman að ganga á vit
fortíðarinnar og aðgæta þræðina
sem hún hefur spunnið í örlaga-
klæði hins ókomna. í litlum dal
bak við Staðarfellið er býlið
Túngarður. Þar var fyrir 40 árum,
þegar ég fyrst hafði kynni af þeim
stað, gamall bær sem mér þótti
vænt um því þar bjuggu vinir
mínir: Björg Magnúsdóttir ljós-
móðir og maður hennar Magnús
Jónasson. Að honum stóðu traust-
ir breiðfirzkir ættstofnar. Mjög
virtist mér þau hjón vera samvalin
og áþekk. Bæði voru þau góðum
gáfum gædd, glaðleg og skemmti-
leg í viðræðum og traustvekjandi
enda báðum falin trúnaðarstörf í
þágu sveitarinnar sem þau leystu
vel af höndum. Gestrisin voru þau
og skilningsrík í garð samferða-
fólksins, mér fannst bærinn í
Túngarði alltaf fullur af hlýrri
góðvild og hljóðlátri gamansemi.
Þar var í skemmtilegum samruna
forn og ný íslenzk sveitamenning
enda kunni húsmóðirin vel til
verka og allrar búsýslu. Vel sómdu
sér fallegar heimagerðar ábreiður
á rúmum og bekkjum í gömlu,
hlýlegu baðstofunni í Túngarði og
skáru þær vel af við hvítskúruð
gólfin. Þar sátu þrifnaður og
snyrtimennska að völdum. Hús-
móðirin var mjög hög, vandvirk og
lærð saumakona og gerði marga
fallega muni úr íslenzku ullinni.
Gestastofan í Túngarði var búin
vönduðum og fallegum húsgögnum
og fagrar og vel unnar hannyrðir
báru vott um smekkvísi húsfreyj-
unnar. Ég hafði matarást á
þessari Túngarðsstofu. Þar sat ég
oft í veizlufagnaði því gestrisni
þeirra Túngarðshjóna var við
brugðið.
Ekki voru miklir möguleikar á
því að reka stórbú í Túngarði sem
þó mun hafa borið góðan arð
vegna hagsýni og góðrar meðferð-
ar á búpeningi enda hafði Magnús
gert þar miklar jarðabætur með
aukinni túnrækt.
Fjölskyldan frá Túngarði flutt-
ist til Reykjavíkur árið 1951. Þá
hefur Fellsstrandarhreppur mikið
misst, en minningin um konuna
með ljósið og mann hennar mun
lengi geymast þeim er til þekktu.
Gestrisnin frá Túngarði gekk á
veg með þeim og fylgdi þeim í
nýjum heimkynnum.
Magnús, maður Bjargar, andað-
ist árið 1965. Þar hvarf af sviði
jarðlífsins merkur sæmdarmaður
sem margir hafa saknað. Börn
þeirra hjóna eru Gestur kennari í
Reykjavík og Soffía sem starfar
hjá Lyfjaverzlun ríkisins. Bæði
eru þau systkin vel mennt.uð og
traustir þjóðfélagsþegnar eins og
foreldrarnir. Virðist mér alltaf
hvíla yfir þeim menningarblær frá
góðu æskuheimili.
Björg Magnúsdóttir varð níræð
8. júní síðastliðinn. Hún er barn
hamingjunnar, hún hefur borið
gæfu til að vinna með hógværð og
trúmennsku þýðingarmikil störf í
þágu þjóðfélagsins. Megi Island
eignast sem flestar dætur henni
líkar. Þá munu kærleiksríkar
fornar dyggðir í heiðri hafðar.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
frá Löngumýri
Indverskur jógi
heldur fyrirlestra
Indverski jóginn Dada Karun-
anda.
INDVERSKI jóginn Dada
Karunanda dvelst á íslandi á
vegum samtakanna Ananda
Marga dagana 23,—30. júní
n.k. Heldur hann fyrirlestra
um andleg og þjóðfélagsleg
málefni á ráðstefnu mannúð-
arsálfræðinga í Reykjavík og
að auki þrjá fyrirlestra fyrir
almenning um sama efni.
Fyrsti fyrirlesturinn
verður að Laugavegi 42 í
fundarsal á 3. hæð, mánudag-
inn 26. júní. Síðan heldur
hann fyrirlestur á Akureyri
þriðjudaginn 27. júní og
fimmtudaginn 29. júní á
Hótel Esju. Allir fyrirlestr-
arnir hefjast kl. 20.30 og eru
öllum opnir. Aðgangur er
ókeypis.
Dada Karunanda hefur
dvalist á Vesturlöndum í
fimm ár og hefur því öðlast
innsýn í vestræna lifnaðar-
hætti í starfi sínu fyrir
Ananda Marga samtökin.
Framsetning hans á þessari
hugmyndafræði er því skýr
og auðskilin vesturlandabú-
um að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Ananda Marga
samtökunum.
IILUTAVELTA var haldin fyrir nokkru að Efstasundi 13 hér í
bænum til ájfóða fyrir StyrktarfélaK vanjíefinna. Krakkarnir sem
stóðu fyrir því. Kristín Sigríður Halldórsdóttir. Lára Jóhannesdótt-
ir og Si»jrún Guðfinna Björnsdóttir. söfnuðu alls rúmleKa 1100
krónum.
ÞESSAR telpur. sem allar eiita heima í Fossvogshverfinu. efndu
fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir StyrktarfélaK lamaðra
ok fatlaðra. Þær söfnuðu 7100 krónum en hlutaveltan fór fram að
Traðarlandi 12. Telpurnar heita. Ilrund Magnusdóttir. Guðfríður
Svala Ólafsdóttir. llelga Kristinsdóttir. Ravna Vala Kjartansdóttir
og Berulind Kristinsdóttir.
FYRIR nokkru var haldin hlutavelta að Kónirsbakka 8 í
Breiðholtshverfi til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra ok fatlaðra.
Þessir krakkar. sem stóðu fyrir þessu fyrirta'ki. söfnuðu 9500
krónum. en þau heita: MarKrét Guðmundsdóttir. Ólafur Ilrafnsson.
Ilrönn Ilrafnsdóttir og Louise Guðmundsdóttir.
STÖLLUR þessar afhentu nýlena Krahhameinsfél. Reykjavíkur
6900 krónur. sem þær söfnuðu til félajjsins er þar efndu til
hlutaveltu til ágóða fyrir það. Telpurnar heita Linda Líf ok ÁKÚsta
SÍBurjónsdóttir.