Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978 11 viö þá aðila, sem ynnu að þessum málum í viðkomandi löndum. Auk þessara 2ja aðalmála voru flutt 2 erindi: 1) Við og framtíðin — framtíðin og við (flutt af prófessor H. Riesenfeld). 2) Að vera norrænn samborgari — norrænn þegn (flutt af Harry Granlund fulltrúa frá Norður- landaráðinu). Farið var í skoðunarferð tii Uppsala og skoðaðar þar gamlar minjar, gamla kirkjan og dóm- kirkjan — einkar fögur kirkja. Þar flutti ungur prestur hugleiðingu og sagði einnig frá sögu kirkjunn- ar. Auk þess voru að sjálfsögðu skemmtilegar samverustundir, þar sem mikið var sungið og spjallað — því þarna hittust gamlir vinir og ný vináttubönd voru knýtt. Siglt var á skemmtiferðabát um Máleren — ekið til Sigtuna og skoðuð Rosersberghöll. Varðeldur var eitt kvöldið og kom þá hvert land með sitt skemmtiatriði. Einnig önnuðust löndin morgunbænir til skiptis. Fundur landsgildismeistara Norðurlanda var einnig haldinn einn daginn, en slíkir fundir eru haldnir einu sinni á ári. Næsta Norðurlandamót verður á íslandi 1980. Tilkynnti íslenski landgildismeistarinn, að þegar væri búið að festa hótel, sem tæki 400 gesti — og var þá mikið klappað, því mikill áhugi er fyrir því að koma til íslands. Svíar höfðu lagt mikla vinnu í allan undirbúning og skipulagt vel. Eitt er okkur öllum ljóst, en það er, að við verðum að sameinast um vandamál og verkefni og styðja hvert annað, og að ekkert fæst fyrirhafnarlaust, eða eins og prófessor Riesenfeldt komst að orði: „Engin framtíð án fórnar af einhverju tagi. Maður má ekki gera ráð fyrir því, að allt fáist fyrirhafnarlaust með því að styðja á einhvern takka. Nei — höfuð og huga þarf að nota, maður þarf aöhugsa. standa á verði — vera frjáls — lifa — hafa sjálfstæðar skoöanir — halda vörð um frelsið og friðinn — ekki hvað síst um friðinn hið innra. Varast kapp- hlaupið við tímann og vélamenn- inguna, sem hindrar okkur í því að vera manneskjur." Við fengum eflaust nóg að hugsa um, en við erum bjartsýn og hlökkum til að undirbúa næsta Norðurlandamót í Reykjavík. 1980. Skrifað í Noregi Hrefna Tynes. sem loftsteinar, og hnullungar á stærð við Tunguska hnullunginn valda aðeins tjóni á yfirborði jarðar- innar í gróðurlaginu, en landrask verður ekki, þar sem hnullungarnir molna á leiðinni niður. En öðru máli gegnir með járn- steina. Þeir molna ekki og lenda því á jörðinni á ógnarhraða og með miklu afli og valda miklu landraski. Slíkur steinn, á stærð við hnullunginn sem olli Tunguska fyrirbærinu, skilur eftir sig gíg á stærð við loftsteinsgíg- inn í Arizona sem er 1200 metrar að þvermáli og 200 metra djúpur. Á síðustu árum hafa menn haft nokkrar áhyggjur af því að gervi- hnettir og önnur tæki, sem skotið er upp frá jörðinni, kunni að falla til jarðar. Þessir hlutir eru léttbyggðir og tvístrast í fallinu í andrúmsloft- inu. Tvístruðu málmhlutirnir, sem kunna að ná til jarðarinnar, falla á hana með harða sem nemur um 160 km/klst. Það er skoðun vísindamanna að jarðarbúar eigi frekar á hættu að verða fyrir baröinu á náttúrulegum loftsteinum en á hlutum úr gervi- hnöttum. Þó fara ekki sögur a'" því að nokkur maður í veröldinni hafi orðið fyrir loftsteini. Athugun Kresaks bendir til þess að fleiri lausahlutum úr geimnum rigni yfir jörðina en menn héldu áður. Þá bendir hún til þess að annað atvik á við Tunguska geti átt sér stað kringum 30. júní og 9. nóvember ár hvert sem jörðin er í nánd brautar Encke. Hins vegar eru möguleikarnir á slíkum árekstrum svo óra litlir, að líftryggingarfélög veita þeim ekki einu sinni athygli. Ú tsala T orgsins Iðnaðarmannahúsinu Hallveigarstíg 1 Ný jar birgðir GLUGGATJALDAEFNI STÓRES ÖNNUR METRAVARA Flónel Rifflað flauel Denim-efni Léreft köflótt KVENFATNAÐUR Kjólar frá kr. 2990 Pils „ „ 3500 Blússur „ „ 1350 Peysur „ „ 1450 Buxur „ „ 2900 Gallabuxur „ „ 1990 Sokkabuxur 3 stk. í pk. „ „ 750 HERRAFATNAÐUR Föt „ 17900 Jakkar stakir „ „ 9900 Skyrtur „ „ 1500 Terelinebuxur „ „ 4900 Gallabuxur „ „ 1990 Peysur „ „ 3500 Hattar „ „ 1200 Mittisjakkar „ „ 2900 BARNAFATNADUR Mittisblússur Peysur Gallabuxur Skyrtublússur „ Skyrtur Sumarbolir SKÓR Kvenskór Karlmannaskór „ Barnaskór Strigaskór Stígvél Kuldaskór 2900 1350 1750 1250 1250 645 1900 1900 1500 395 950 1900 IÐNAÐARMANNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.