Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978 Björn Björgvinsson löggiltur endur- skoðandi — Minning Fæddur 12. sept. 1916. Dáinn 12. ágúst 1978. Björn Björgvinsson löggiltur endurskoðandi andaðist 12. þ.m. og verður jarðsettur í dag. Hann varð tæplega 62 ára gamall, fæddur 12. september 1916 hér í Reykjavík. Kona hans er Erla Jónsdóttir og áttu þau fjögur börn, einn son og þrjár dætur, eru þau öll uppkomin. Björn var verzlunarskólageng- inn og löggiltur endurskoðandi og vann við þau störf. Mér er nú, að leiðarlokum, efst í huga þakklæti til Björns Björg- vinssonar fyrir frábær störf í þágu hússtjórnar Oddfellowhússins í Reykjavík en hann hefur annazt um árabil gjaldkerastörf og bók- hald fyrir hana. Starf hans var unnið af frábærri samvizkusemi og nákvæmni og er nú skarð fyrir skildi. Ég kynntist Birni fyrst fyrir nokkrum árum, sá kunnigs- skapur leiddi til vináttu, sem aldrei bar skugga á. Björn var ljúfur maður, velviljaður og vildi hvers manns vanda leysa og lagði mikið í sölurnar fyrir aðra þótt hann flíkaði því lítt. Slíkir menn eru ekki of margir meðal sam- ferðamannanna en að leiðarlokum er þeirra sárt saknað. Björn var mikið karlmenni, það sýndi hann bezt síðustu vikurnar, er hann barðist við dauðamein sitt. Ég og margir aðrir sakna nú vinar í stað. I huga okkar lifir minningin um góðan félaga, hlýjan og traustan mann, sem var vammlaus og vítalaus búinn góðum kostum og hæfileikum og með einstakan gerðarþokka. Ég flyt Erlu og börnunum innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Björn er flekk- laus eins og hann var sjálfur. Friðfinnur Ólafsson. Nú þegar vinur minn Björn Björgvinsson er horfinn sjónum okkar, kemur margt upp í minn huga frá liðnum árum. Það mun hafa verið árið 1954 er ég sá Björn fyrsta sinni og kynni okkar hófust. Þau 24 ár er leiðir okkar lágu saman urðu kynni okkar all náin eftir því sem á leið. Ég mun ekki rekja ættir hans né uppruna frá æsku til manndóms- ára. Við höfðum þá báðir stofnað okkar heimili og börnin voru í frumbernsku, svo margt var því til að starfa. Björn vann alla tíð langan vinnudag. Á hann hlóðust verkefni sakir traustleika hans og vilja til að ljúka þeim öllum, af þeirri nákvæmni sem af endur- skoðenda er krafizt. Þó gaf hann sér ávallt tíma til félagsmála þeirra er hugur hans stóð til. Hann mun hafa verið gjaldkeri lífeyrissjóðs Félags endurskoð- enda frá stofnun til dánardags. Björn vann mikil og margvísleg störf í þágu Oddfellow-reglunnar á íslandi og hann var einn af stofnendum stúku nr. 11, Þorgeirs I.O.O.F. í Reykjavík og fyrsti féhirðir hennar, og er hans sárlega saknað af félögum hans þar. Við áttum margar hamingju- og gleðistundir með eiginkonum og börnum okkar. Við hjónin fórum saman í ótalin ferðalög, sem minningin mun nú geyma. Þá eru og stundir margar góðar við spil, tafl og veiði í ám og vötnum. Björn varð þeirrar hamingju aðnjótandi að eiga afbragðs lífs- förunaut, mannvænleg og góð börn, er öll urðu honum til hamingju, einnig barnabörnin, sem nú eru orðin 7 að tölu. Björn háði harða baráttu við þann sjúkdóm er heltók hann á skömm- um tíma. Hann var geiglaust karlmenni til hinztu stundar og drengur hinn bezti í hinni fornu merkingu þess orðs. Hann var þeirrar gerðar er geymist en gleymist ekki þeim er áttu vináttu hans. Þegar ég nú lít yfir forna samleið minnist ég manns, sem var óvenju traustur og mikill vinur vina sinna. Manns, sem var gáfaður og gamansamur í góðra vina hópi, en lét lítið yfir sér hversdagslega. Manns, sem bar virðingu fyrir lífinu og því, sem honum var trúað fyrir. Eiginkona hans Erla Jónsdóttir bar fagurt vitni um fórnfýsi, ást og umhyggju í veikindum hans. Ég kveð svo kæran vin um stund með þeirri tilhlökkun, að hitta hann aftur handan við strönd hinnar miklu móðu. Hálfdán Steingrímsson. Oft er minnst á fámenni ís- lenskrar þjóðar, einnar hinnar fámennustu meðal þjóða, sem þó byggir stórt land og að ýmsu leyti harðbýlt. Af þeim sökum skipar hver einstakur meira rúm hér í landi en meðal fjölmennari þjóða. Að sjálfsögðu er því misjafnt farið, hvernig menn rísa undir því að renna stoðum undir samfélagið í landinu. Þar veldur hvort tveggja atgervi hvers einstaks svo og hvernig hann skynjar og skilur hlutverk sitt. Svo virðist sem fjölmargir leggi meginþunga á að kerfjast sér til handa frá samborg- urunum og jafnvel að slíkum fari fjölgandi. Hinir finnast líka, sem vinna störf sín í kyrrþey og eru oftar en ekki burðarásar hins fámenna þjóðríkis. Sem betur fer finnast þeir einnig, sem meta slíka einstaklinga miklum mun meira en kröfugerðarfólkið, sem krefur oft sér til handa án tillits til eigin verðleika. I dag verður borinn til grafar Björn Björgvinsson, löggiltur endurskoðandi, mætur maður sem gerði strangar kröfur til sjálfs sín, harðar kröfur og hafði þrek og dug til að uppfylla þær. Þess nutu margir, skyldir og vandalausir. Björn var fæddur 12. september 1916 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Kristín Jóhannesdóttir og Björgvin Guðmundsson trésmiður. Björn ólst upp með móður sinni og strax á barnsaldri fór hann að styðja við bak móður sinnar og afla heimilinu tekna, en hún átti auk Björns þrjár yngri dætur og eina eldri. Þegar Björn hafði aldur til fór hann að vinna fyrir heimili móður sinnar og var raunar hennar stoð og stytta alla tíð, en hún lifir son sinn. Björn braut- skráðist úr Verslunarskólanum tvítugur að aldri 1936. Á skólaár- um sínum vann hann öllum stundum, þegar tóm gafst frá námi, hjá Kjötverslun Tómasar Jónssonar, svo og í nokkur ár eftir að verslunarskólanáminu lauk. Síðar hóf hann störf hjá Endur- skoðunarskrifstofu N. Mancher & Co. Löggiltur endurskoðandi varð Björn 1949. Næstu ár vann hann sem endurskoðandi en stofnsetti eigin endurskoðunarskrifstofu árið 1963, sem hann rak af atorku og við vaxandi vinsældir og traust til dauðadags. Hann andaðist að morgni 12. þ.m. Hinn 10. september 1949 gekk Björn að eiga Erlu Jónsdóttur, ættaða frá Djúpavogi, og var það mikill gæfudagur í lífi hans. Erla er, eins og þeir vita glöggt sem hana þekkja, elskuleg og mikil mannkostakona. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn, en þau eru: Guðlaug lyfjafræðingur, gift Helga Árnasyni verslunarmanni og eiga þau 1 dóttur. Árni, við nám í endurskoðun hjá föður sínum, kvæntur Unni Dóru Kristjánsdótt- ur hjúkrunarkonu og eiga þau tvö börn. Anna húsmóðir, gift Ólafi Jóelssyni stýrimanni og eiga þau 3 börn. Kristín, er við nám í hjúkrun, hún á 1 son. Eins og hér kom fram, vann Árni einkasonur þeirra hjóna með föður sínum hin síðustu ár. Sömuleiðis vann Erla með manni sínum lengst af það árabil, sem hann rak endurskoðunarskrifstöf- una. Samstarf við þau var Birni ómetanlegt. Það var honum óblandið gleðiefni að Árni hyggst feta í fótspor föður síns í starfi. Björn Björgvinsson endurskoð- andi var mikill afkastamaður við dagleg störf og segja má að hann hafi verið margra manna maki. Þegar hann er nú fallinn frá í miðju starfi, er skarð fyrir skildi. Störf endurskoðenda eru vanda- söm. Gæta þarf hagsmuna skjól- stæðinga en jafnframt að fylgja settum reglum. I rúma tvo áratugi lágu leiðir okkar Björns saman, fyrst samstarfsmenn á sama vinnustað og síðar, eftir að hann stofnsetti eigin endurskoðunar- Sigríður Þorgilsdóttir veitingakona-Minning Fædd 30. ágúst 1891 Dáin 8. ágúst 1978 Sigríður Þorgilsdóttir veitinga- kona, Stórholti 31, Reykjavík, lést í Landakotsspítala þriðjudags- kvöldið 8. ágúst, tæplega 87 ára að aldri. Lengst af ævinni hafði hún verið heilsuhraust og sterkbyggð. Það var ekki fyrr en á níræðis- aldrinum sem vanheilsa og elli vitjuðu hennar að nokkru marki. Sigríður fæddist daginn eftir höfuðdag árið 1891 í Stekkatúni, einu býlanna á Svínafelli í Öræf- um. Foreldrar hennar, Guðrún Sigurðardóttir og Þorgils Guðmundsson, bjuggu þar meðan bæði lifðu en Þorgils dó árið 1900. Erfiður tími gekk í garð hjá ungri móður með lítil börn. En með ráðdeild og dugnaði bæði móður og barna tókst giftusamlega að koma öllum til manns. Sigríður var elst þeirra systkina sem lifðu. Eftir að Guðrún hafði flust með börnin vestur yfir Skeiðatársar.d hleypti Sigríður snemma heimdraganum. Hún var í vinnumennsku í Mýrdal og Vestmannaeyjum og lærði jafn- framt til sauma. Hún kynntist myndarlegum heimilum og rekstri þeirra. Rótgróin námfýsi hennar glæddist við kynnin. Hana langaði til að læra margt fagurt og gagnlegt: söng, hannyrðir, hús- stjórnarfræði. Til Reykjavíkur kom Sigríður árið 1927. Bjó hún þar síðan óslitið. Hún lærði fatasaum. Og i Kvennaskólann komst hún og lærði hússtjórn og hannyrðir. Af söngnámi varð ekki. Að námi loknu hóf hún ævistarf sitt, veitingasölu. Hún rak matsölu á ýmsum stöðum í bænum. Á mesta umsvifaskeiðinu var hún í Aðalstræti 12. Hafði hún þar löngum hátt í hundrað kostgang- ara auk þess sem hún sá oft um veislur og fundaveitingar. Síðustu árin var matsalan rekin heima í Stórholti 31. Starfsemin var stunduð af myndarskap, rausn og reglusemi. ATHYGLI skal vakin á því. að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í miðvikudagshlaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. skrifstofu en ég fór að fást við eigin atvinnurekstur. Hann var hollráður og traustur, heiðariegur og drenglyndur. Þegar ég hóf eigin rekstur gaf hann mér góð ráð, sem stuðluðu að því að allt væri unnið samkvæmt settum leikreglum. Björn var karlmenni í sjón og raun, glaður og skemmtilegur á góðri stund. En fyrst og fremst var hann maður skyldunnar, þeirrar skyldu að stuðla að hag sinna nánustu, vera þeim skjól og hlíf. Þess naut aldurhnigin móðir hans í ríkum mæli, þess naut ágæt kona hans og börn og síðar barnabörn, sem voru yndi Björns og eftirlæti. Þess nutu systur hans og þeirra börn einnig og segja má að hann hafi verið þeim sem annar faðir. En Björn var fyrst og síðast maður starfsins, hraðvirkur og afkasta- mikill, að svo var sem margar hendur væru á lofti, þegar hann fór höndum um skjöl og pappíra. Hann var fljótur að átta sig á flóknum tölum, glöggur á að skilja kjarna bókhaldsdæma og vand- virkur. Þrátt fyrir langvarandi veikindi að undanförnu, gekk hann að daglegum störfum oft sárþjáð- ur, meðan nokkur kostur var. Það eru margir, sem sakna vinar í stað við fráfall Björns Björgvinssonar. Sá, sem þessar línur ritar, er í þeirra hópi. Stuðningur af honum við dagleg störf var einstakur, traustvekjandi karlmennskulund hans gleymdist ekki þeim sem kynntust. Það var átakanlegt að verða vitni að því, hvernig ólækn- andi sjúkdómur náði loks að yfirbuga þrek hans og einstakan viljastyrk. Ég votta eiginkonu hans og öilum ættmennum ein- læga samúð. Sigurður E. Haraldsson. Skapgerð og framgöngu Sigríðar Þorgilsdóttur er vel lýst með þeim orðum að þar hafi fornar íslenskar dyggðir skipað öndvegi. Hún var dugmikil og ósérhlífin. Trygglynd var hún þeim sem hún kynntist, traust, hreinskilin og orðheldin. Hún var stórbrotin í fasi og framkomu. Það leyndi sér ekki þegar henni þótti. Höfðingi var hún í lund. Hún kunni vel að meta mikils háttar menn ef henni féll við þá. Henni þótti vænt um lítilmagna og var góð og fórnfús þeim er hún þekkti. Rausnarkona var hún heim að sækja svo að af bar. Sigríður giftist aldrei. Ekki var hún þó einræn heldur félagslynd, enda var hún bæði vinmörg og vinaföst. Það var að vonum að hún kynntist mörgu fólki vegna starfs síns. Einnig var hún frændrækin mjög. Þá var heimili hennar í Stórholtinu aðalheimili , ýmissa þeirra sem hún leigði herbergi. Og ungur drengur, Ævar H. Guðbrandsson ólst upp þar hjá henni að verulegu leyti. I veikindum sínum síðustu árin dváldist Sigríður um tíma í Hveragerði. Síðar lá hún á Landa- kotsspítala þar sem hún lést. Hún hlaut góða umönnun og mat hana mikils. Var það ósk hennar að starfsfólki' Landakotsspítala, sem annaðist hana, bæði læknum og hjúkrunarliði, yrðu færðar sér- stakar þakkir fyrir góð störf, nærgætni og elskusemi. Jafnframt Kveðja írá Félagi liiggiltra endurskoðenda Hinn 12. ágúst síðastliðinn andaðist Björn Björgvinsson lög- giltur endurskoðandi í Reykjavík og verður hann jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag. Félag löggiltra endurskoðenda hefur nú séð á bak fjórum félögum á skömmum tíma, sem allir hafa fallið frá langt um aldur fram. Björn Björgvinsson hóf nám í endurskoðun á árinu 1944 hjá Jóni Guðmundssyni og Sigurði Jóns- syni á endurskoðunarskrifstofu N. Manscher og Co. og varð hann löggiltur endurskoðandi árið 1949. Hann starfaði hjá N. Manscher & Co. til ársins 1954 en þá hóf hann störf við fyrirtæki Magnúsar Víglundssonar. Á árinu 1963 færði Björn sig um set en þá setti hann á fót eigin endurskoðunarstofu að Tjarnargötu 4. Hafði hann þá um skeið haft með höndum endur- skoðunar- og bókhaldsþjónustu fyrir ýmsa aðila auk starfa sinna hjá Magnúsi. Að Tjarnargötu 4 rak Björn sína endurskoðunar- stofu allt til dauðadags en í því húsi ráku þeir Olafur J. Olafsson og Sigurður Stefánsson einnig endurskoðunarstofur. Björn var með afbrigðum vinnusamur maður og harður af sér. Þrátt fyrir þau veikindi sem hann hefur átt við að stríða undanfarin ár stundaði hann sína vinnu af mikilli hörku allt þar til í vor að hann lagðist á sjúkrahús. Hann var þó með hugann við rekstur fyrirtækis síns allt til dauðadags þar sem hann lagði alltaf áherslu á að veita viðskipta- mönnum sínum sem besta þjón- ustu. Björn tók þátt í ýmsum félags- störfum þar sem honum voru falin ýmis trúnaðarstörf. Það hefur ýmsum þótt gott að eiga slíkan hauk í horni. Þegar Tryggingar- sjóður löggiltra endurskoðenda var stofnaður árið 1956 var Björn kjörinn í stjórn sjóðsins og átti sæti í stjórninni allt til dauðadags. Það má segja að framkvæmd allra verkefna sjóðsins hafi hvílt á herðum Björns í þessi 22 ár sem liðin eru. Hann sá um allar fjárreiður sjóðsins af stakri kost- gæfni allt frá stofnun hans. Við fráfall Björns Björgvinsson- ar sér Félag löggiltra endurskoð- enda á bak góðum félaga sem lagt hefur mikið af mörkum fyrir félagið. Löggiltir endurskoðendur þakka störf hans og minnast hans með virðingu. Við sendum Erlu, eftirlifandi eiginkonu Björns, börnum þeirra og móður hans hugheilar samúðarkveðjur. Félag löggiltra endurskoðenda. var hún þakklát fyrir hvernig starfsfólk spítalans hliðraði til fyrir systur hennar, Þorgerði, svo að hún gæti stutt hana. Þær höfðu jafnan verið samrýndar, systurnar, og Þorgerður var öðrum fremur trúnaðarvinur Sigríðar, stoð hennar og stytta þar til yfir lauk. Nú, á hinstu kveðjustund, leita til Sigríðar hlýjar kenndir og þakklæti okkar vandamanna hennar, ættingja og vina. Við þökkum henni samferöina, við geymum vel í huga okkar minninguna um stórráðan persónuleika hennar og við óskum henni friðar og hvíldar á ókunnum slóðum. Andri ísaksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.