Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. AGUST 1978 MORöJlV- KAfr/NO ^ (() Ég get Blatt yður með því, frú, mín. að allir þeir sjúkdómar sem þér teljið hrjá yður, hrjá yður! Elskir þú mig enn, þá er það bara vegna þess að þú ert svo iatur, að þú ncnnir ekki að standa í því að stinga af? l>etta er í fyrsta skipti sem ég vinn í fegurðarsamkeppni, strákar! Ekki fyrir íslenzk lið? BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Bridgespilarar eru oft sakaðir um óvandvirkni þegar eitthvað fer öðruvísi en ætlað var við spila- borðið. Venjulega er slík ásökun réttlætanleg þegar reyndir spilar- ar eiga hlut að máli. En í mun fleiri tilfellum er skammsýni orsök slíkra ávirðinga. Gjarnan nefnd léleg úrspilsáætlun. Norður gaf, allir á hættu. Norður S. ÁG3 H. K5 T. ÁKD3 L. Á642 Vestur S. 76 H. D1043 T. G976 L. DGIO Austur S. 542 H. ÁG97 T. 105 L. K983 Suður S. KD1098 H. 862 T. 842 L. 75 (OPIB M ,6,0 Það verður örugglega fínt Rigningin er hætt að dynja á veður á rúðunni. morgun. „Það taldist til meiri háttar tíðinda þegar íslenzk lið fóru að taka þátt í hinum ýmsu Evrópu- bikarmótum í knattspyrnu og í þeim leikjum hefur ýmislegt gerzt á undanförnum árum. Það er mín skoðun að íslenzk lið hafi ekkert erindi í keppni sem þessa, fjár- hagslegur ágóði af leikjum þessum hefur enginn verið og oft um stórtap að ræða hjá félögunum. Þá er heldur ekki hægt að neita því að sú útreið, sem íslenzk lið hafa fengið í keppni sem þessari, er ekki til uppörvunar íslenzkri knattspyrnu og virðist stöðugt síga á ógæfuhliðina í þeim efnum. Það er ekki óalgengt að íslenzk lið hafi tapað leikjum sínum með 10 marka mun í keppni þessari og er því ekki að undra þótt áhugi hér á landi fyrir leikjum þessum sé mjög lítill, en hvað skyldi nú stjórn K.S.I. meina með þessu? Það má vera að áhugi áhorfenda yrði meiri ef aðeins yrði einn Evrópuleikur hér á landi árlega, í stað þriggja eins og nú er. • Mót fyrir 30 ára og eldri Nú er búið að koma af stað svokallaðri úrvalsdeild í knatt- spyrnu hér á landi fyrir knatt- spyrnumenn 30 ára og eldri, og vil ég með þessum orðum þakka þeim fyrir sem áttu sinn hlut að því að líoma á þessari skemmtilegu ný- breytni. Eg vil skora á stjórn K.S.I. að koma af stað strax á næsta ári Islandsmóti fyrir þá leikmenn sem eru 30 ára og eldri og eru hættir að leika með fyrstu deildar liðum eða öðrum liðum aldurs síns vegna. Það má geta þess að keppt er í Islandsmóti í öllum aldurflokkum unglinga í knattspyrnu og þvi er ekki nema sanngjarnt að þeir eldri fái líka að spreyta sig í stað þess að þurfa að hætta að leika knattspyrnu þegar þeir eru ekki taldir vera nógu góðir til að leika í fyrstu eða annarri deild, en það hlýtur þeim að svíða sárt. Væri fróðlegt að fá álit fleiri á þessu máli. • Greiða þarf vinnutap Kominn er tími til þess að farið sé að greiða leikmönnum fyrstu deildar í knattspyrnu laun vegna vinnutaps sem þeir verða fyrir vegna æfinga og leikja. Það kemur einnig vel til greina að greiða leikmönnum fyrstu deildar hér á landi sérstaka þóknun fyrir að skora mörk í leikjum sem lið þeirra vinna eða gera jafntefli í o.s.frv. en þetta myndi hafa mjög hvetjandi áhrif á leikmennina og þeir legðu sig meira fram í leikjum en ella. Þessar greiðslur eiga að .. ' ■ ( i r Kirsuber í nóvember Framhaldssaga eftir Mariu Lang Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði Eftir að norður hóf sagnir með tveim gröndum varð suður sagn- hafi í fjórum spöðum og fékk út laufdrottningu. Níu slagir voru öruggir og sá tíundi gat fengist á tígul eða á hjartakóng ætti vestur ásinn. Sagnhafi sá einnig að spila þyrfti að hjartakóngnum meðán enn var tromp í borði. Hjarta- möguleikann þyrfti því að reyna fyrst og samkvæmt því tók hann útspilið með ás, spilaði spaða heim á kónginn og spilaði hjarta. Austur tók kónginn með ás og spilaði trompi. Suður spilaði aftur hjarta því trompun í borðinu gæfi tíunda slaginn. En ekki tókst það. Austur fékk slaginn, spilaði þriðja trompi og þegar í ljós kom, að tígullinn lá ekki 3—3 urðu níu slagir hámarkið. Einn niður. Vissulega var spilaririn óhepp- inn að austur átti hjartaásinn. En hann sá ekki nógu langt fram í tímann og að vörnin gat komið í veg fyrir hjartatrompunina. Það var ekki gott því til var einföld og örugg vinningsleið. Til að vörnin gæti ekki spilað trompunum nógu oft varð að taka útspilið með ás og spila strax hjartakóng. Ein tromp- un í borðinu yrði þá örugg og spilið þar með unnið. 42 Leo Berggren var höfðinu lægri en ekki síður umfangs- mikill. Þeir svolgruðu af áfergju í sig snapsana og gerðu sér gott af síldarréttunum og til að byrja með voru ekki fleiri gestir í klúbhnum. — Þessi síldarlögur er al- deilis frábær... þetta hefur hún amma þin kennt þér. — Hugsa sér að þú skulir muna það, sagði Klemens, — og hvað má svo bjóða ykkur á eftir? — Nautasteik með hrís- grjónum, sveppum og sjerrí- sósu. — Buffsteik fyrir mig, muldraði Severin og Christer kinkaði kolli til merkis um að hann vildi það sama. — Rauðvínsbrasaða hrein- dýrasteik með veiðimannasósu, sagði yfirlögregluþjónninn. Svo lagði hann frá sér hnífapörin og starði á starfs- bróður sinn sem sat á móti honum við borðið. — Og þú, sagði hann, — stekkur til og frá um bæinn og minnir fólk á málið með Matta Sandor. Hvers vegna snýrðu þér ekki til fólks sem á að heita að hafi vit á þessu? — Ég er að því núna, sagði Christer — Ég þurfti fyrst að átta mig örlítið á aðstæðum og sjá máiið frá ýmsum sjónar hornum áður en ég færi að hlusta á sérfræðingaskýrslur og slíkt. — Þú skalt ekki tala háðs- lega um slikar skýrslur. Við sem sitjum hér getum miðlað þér af athyglisverðum fróðleik. Severin læknir var reiðubú- inn að staðfesta orð hans. — Ég skal taka að mér að byrja. Éí ég má segja mína skoðun var lögreglan átakan- lega áhugalaus og klúðraði allri rannsókn málsins. — Vitleysa, hreytti Leo Berggren út úr sér. — Rann- sóknin var framkvæmd eftir öllum venjulegum reglum, en hún var óhemju erfið. Það úði og grúði af vitnum, en hvcrt vitni hafði á hraðbergi lygasög- ur og þvætting. — Lögreglan, sagði læknir- inn, — neitaði að trúa því að þarna hefði verið framið morð. — Auðvitað er ekki útilokað, sagði Christer — að um sjálfs- morð hafi verið að ræða. — óhugsandi, sagði Daníel einarðiega. — En það var afstaðan sem lögreglan tók? — Máiið var ein vitleysa, sagði Leo Berggren. — Allir virðast haía unnið út frá kenningu um morð að yfir- lögðu ráði. Og iögrcgluna skorti mann- afla og þeir scm voru grunaðir gáfu yfirlýsingar scm stönguð- ust á og það var óhugsandi að ákæra nokkurn fyrir glæp vegna þess að hin tæknilega sönnunargagnahiið var of ófullkomin. Þess vegna komst lögreglan aldrei nálægt því að handtaka neinn. Og það get ég fjarska vel skiiið. Ilelena Wijk sagði hægti — En þú heidur að Matti hafi gert það sjáifur, er það ekki? — Ég held, sagði Berggren yfirlögregluþjónn, — að hann hafi stoiið eitrinu í verksmiðj- unni. Og ég veit að hann tók sjáifur silkipappírinn utan af eitraða molanum áður en hann stakk honum upp f sig. — Hvernig veiztu það, spurði Christer Wijk. Móðir hans sagði hægti — Matti var með... Hún þagnaði og starði á gulkiæddu veruna sem að óvör- um nálgaðist borð þeirra. Rödd Judith Jernfeidts hafði óhugnanlegan hljóm þegar hún hotnaði setningunai — Matti hélt á rauðum siiki- pappír! Ilann hafði hnoðað hann saman í lófanum og fingurnir voru kaldir... og stífir... Ég rcyndi að rétta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.