Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978
Bretar banna
allar sfldveiðar
London. 18. ÍKÚst. Reuter.
BRETAR tilkynntu í gær að allar
síldveiðar á yfirráðasvæði þeirra í
írlandshafi yrðu bannaðar frá 24.
september í síðasta lagi. Þar með
hafa Brctar bannað síldveiðar á
öllu yfirráðasvæði sínu, að undan-
Bandaríki veita
26 milljón dollara
aðstoð til Zaire
Washinjfton, 18. ágúst. Reuter.
FRÁ ÞVÍ var skýrt í Washingtun
í dag að Bandaríkjastjórn hefði
afhent stjúrn Sese Seko forseta í
Zaire 2G milljónir Bandaríkja-
dala í aðstoð. Er þetta í samræmi
við loforð Mobutos um breytingai
á stjórnskipulaginu 1' Zaire og
tilraunir hans til að koma á
bættri sambúð við nágrannaríkið
Angóla.
Tilkynnt var að frekari aðstoð
byggðist á því að haldið yrði áfram
á þeirri braut að bæta efnahags-
mál og fjárhagsstöðu landsins, svo
og að almennum mannréttindum
yrði gefinn meiri gaumur.
skildu smásvæði undan ósum
Clyde-árinnar 1' Skotlandi.
Þá hafa Bretar ákveðið að
skammta kvóta á síldveiðum við
strendur sínar frá og með 21. ágúst
að telja. Leyft verður að veiða 9.000
tonn frá þeim tíma, og miðað við
núverandi veiði verður þeirri veiði
örugglega lokið fyrir 24. september,
segir í fréttaskeytafregnum frá
London.
Tilkynningin um veiðibannið er
birt einhliöa, þar sem Bretar segjast
ekki geta beðið lengur eftir sameig-
inlegum verndunaraðgerðum Efna-
hagsbandalagsins, en löndin komu
sér ekki saman um veiðitakmarkanir
á síðasta fundi sínum um þau mál,
í júlí.
Þetta gerðist
1977 — Bandaríkjastjórn segir
ákvörðun Israels um stofnun
þriggja nýrra byggðarlaga Gyð-
inga á vesturbakka Jórdan,
ólöglega.
1968 — Meira en 100 konur og
börn láta lífið á Honshu-eyju í
Japan þegar jarðvegsskriða ryð-
ur rútubifreiðum sem fólkið var
í út í fljót.
1967 — Páll páfi sjötti gefur til
kynna umfangsmiklar skipu-
lagsbreytingar á páfahirðinni,
curia romana, sem fer með
stjórnun kaþólsku kirkjunnar.
1914 — Woodrow Wilson
Bandaríkjaforseti lýsir yfir
hlutleysi Bandaríkjanna í fyrri
heimsstyrjöidinni. Þjóðverjar
lýsa yfir stríði á hendur Rúss-
18% — Frakkland innlimar
Madagaskar og ieysir landið úr
viðjum annarra ríkja.
1810 — Kari þrettándi Svíakon-,
ungur ættleiðir Jean Bernadotte
hershöfðingja og gerir hann að
erfingja sínum.
1708 — Breskar sveitir her-
nema Sardiníu.
Afmæli — John Russell lávarð-
ur, einn af upphafsmönnum
Frjálslyndaflokksins breska
(1792-1878). Shelly Winters,
bandarísk leikkona (1923 —).
Innlenti Reykjavík fær kaup-
staðarréttindi 1786 — Afnám
einokunar boðað meö auglýs-
ingu 1786 — Fimm farast í
skriðuhlaupi á Seyðisfirði 1950
— Minnisvarði Skúla fógeta
afhjúpaður 1954 — OKumengun
við Reykjavíkurhöfn 1973.
Orð dagsins — Lífsdraumur
minn hefur verið eilíf martröð
— Voitaire, franskur rithöfund-
ur, 1694-1778.
Miles og Gligoric efstir á Spáni
Cordoba, Spáni, 18. ágúst. AP.
BRESKI stórmeistarinn Anthony
Miles og júgóslavneski stórmeistar-
inn Svetozar Gligoric eru efstir og
jafnir cftir tvær umferðir á áttunda
alþjóðlega „Montilla-Moriles“-skák-
mótinu sem fram fer í bænum
Montilla. Miles sigraði Boris
Spassky frá Sovétríkjunum í 28
leikjum í annarri umferð og Glig-
oric sigraði Spánverjann Fernando
Visier í 40 leikjum.
Meðal annarra úrslita má nefna
Viastimil Hort, Tékkóslóvakíu, sigr-
aði Louis Haritver, Kanada, í 29
leikjum, Spánverjarnir Javier Sanz
og Juan Manuel Bellon gerðu jafn-
tefli. Hið sama gerðu Jose Rivas,
Spáni og Victor Ciocaltea, Rúmeníu.
I Tyrstu umferð mótsins vann
Miles Sanz og Gligoric vann Rivas.
Hort og Spassky hafa unnið sína
skákina hvor, og ennfremur tapað
báðir skák.
Flugleiðir h.f. bjóða nú öllum landsmönnum til get-
raunaleiks. Merkið í svarreiti. Klippið út og sendið
skrifstofum félagsins, eða umboðsmönnum þess fyrir
31. ágúst n.k. Aukaseðlar fást á sömu stöðum.
Hver fjölskylduaðili má senda eina lausn.
Rekstrarstærð Flugleiða má m.a. marka af því að saman-
lagður fjöldi þeirra kílómetra, sem allir farþegar félagsins
lögðu að baki s.l. ár, (farþega/km félagsins) var
2.629.681.000. Það svarar til meira en 10.000 km á hvern
íslending.
Hjá Air France er samsvarandi tala 390 km, og hjá KLM
910 km, en það er hæsta þess konar hlutfall, sem vitað er
um hjá erlendu félagi.
m 1. SPURNING
Hvaða þjóð er mesta flugrekstrar-
jdíWfe þjóðin í þessum samanburði?
Aðeins örfá flugfélög í Evrópu geta státað af því að hafa
verið rekin án ríkisstyrkja undanfarin ár.
4.SPURNIHC
Eitt neðangreindra félaga hefur aldrei
,en9'ð ríkisstyrk.
Hvaða félag er það?
Sabena Flugleiðir British Airways
Flugleiðir ýmist eiga, eða eru virkir þátttakendur í rekstri
erlendra flugfélaga, sem vaklð hafa verðskuldaða athygli
á alþjóða vettvangi fyrir öra uppbyggingu og góðan
rekstur.
5. SPURNINC
.3^^'Þetta a við um tvö neðantaldra félaga.
® Þau heita?
Frakkar Hollendingar islendingar
Cargolux Iberia SAS Luxair Air Bahama
Þótt starfsmannafjöldi Flugleiða sé sá lægsti, sem við
þekkjum, miðað við selda farþega/km, starfar þó einn af
hverjum hundrað vinnandi íslendingum hjá félaginu.
í Vestur-Þýskalandi vinnur einn af hverjum 1700 hjá Luft-
hansa og á írlandi einn af hverjum 400 hjá Air Lingus.
Það er hæsta erlenda hlutfall, sem okkur er kunnugt um.
2. SPURNINC
< Hvaða flugfélag veitir samkvæmt
r. jyS&bm þessu, hlutfallslega mesta atvinnu í
t>Xj0í33í&&á sínu þjóðfélagi?
Þrenn aðalverðlaun
A) 3ja vikna fjölskylduferð til Florida. I
B) 2ja vikna fjölskylduferð til Parísar. e
C) 2ja vikna fjölskylduferð til Alpafjalla
kj&Jjrty’ Hótelgisting innifalin í öllum ferðunum.
BsS&míf Til fjölskyldu teljast forráðamenn hennar og
þau börn þeirra sem hjá þeim búa.
Tuttugu aukaverðlaun:
1 — 10 Tvelr farmiðar með vélum 11 — 20 Tvelr farmiðar með vélum
félagslns tll elnhvers áætlunar- félagsins tll elnhvers áætlunar-
staðar erlendis — og heim aftur. staðar innanlands — og helm aftur.
Air Lingus Flugleiðir Lufthansa
Undanfarin ár hafa Flugleiðir h.f. haft hæsta hleðslunýt
ingu allra flugfélaga á Norður-Atlantshafsleiðum.
Árið 1977 varð hún 76.1%.
3. SPURNINC
á&ff Hvað er hleðslunýting?
Heimilisfang
Nýting framboðinnar
hleðslugetu flugvélanna
Hámarks flugtaks-
þyngd flugvélanna
Tím!nn sem fór í
afgreiðslu flugvélanna
FLUGLEJÐIRHF
Aðalskrifstofa Reykjavikurflugvelli
Lögreglumenn
sakaðir um morð
á svertingja
ÞRÍR lögreglumenn verða á
næstunni dregnir fyrir rétt,
en þeim hefur verið gefið að
sök að myrða svartan mann
sem þeir höfðu í haldi. Á
skömmum tíma hafa því níu
lögreglumönnum verið born-
ar slíkar sakir á brýn.
Neitar aðild
að morðinu
á Martin
Luther King
Washington. 18. ágúst. Reuter.
JAMES Earl Ray, sem
dæmdur var 1969 fyrir
morð á blökkumannaleið-
toganum Martin Luther
King, neitaði við yfirheyrsl-
ur hjá þingskipaðri nefnd
að hafa átt aðild að morðinu
á King.
Ray sagðist hafa áreiðan-
legar heimildir fyrir aðild
bandarísku alríkislögregl-
unnar, FBI, að morðinu, en
baðst þó undan frekari
spurningum þann daginn
þegar spyrja átti hann nánar
út í þær fullyrðingar hans.
Ray sagði fyrrverandi lög-
fræðing sinn hafa pínt sig til
að gangast við morðinu á
Martin Luther King, en
segist nú vera saklaus.
Blaðamenn fyr-
ir rétt í Moskvu
Moskvu. 18. ágúst. AP.
BANDARÍSKU blaðamönn-
unum Craig R. Whitney og
Harold Brown hefur verið
stefnt fyrir rétt í Sovétríkj-
unum á föstudag, en réttur-
inn fann þá seka fyrr í
sumar um óhróður um so-
vézka sjónvarpið. Dómstóll-
inn hefur tvisvar sinnum
skipað blaðamönnunum,
sem hafa aðsetur í Moskvu,
að birta yfirlýsingu þess
efnis að þeir hafi farið með
fals á hendur sjónvarpsstöð-
inni.
Blaðamennirnir hafa
ekki orðið við þeim tilmæl-
um.
Hætt við
„hægagang*
París, 18. áKÚst. AP.
FRANSKIR flugumferðar-
stjórar ákváðu í gær að
hætta við fyrirhugaðar
„hægagangs" aðgerðir sínar
um næstu helgi þar sem
forystumenn þeirra munu
eiga viðræður við franska
samgöngumálaráðherrann á
föstudag og laugardag.
Farber
afhend-
ir skjöl sín
New York, 18. áKÚst. Reuter.
MYRON Farber fréttamaður
New York Times sendi í gær
dómara í máli gegn honum
skjöl og handrit greina sinna
um dauðsföll í sjúkrahúsi
einu í New Jersey. Dómarinn
mun skýra frá því á morgun
hvort hann taki skjölin góð
og gild, en greinar Farbers
leiddu til morðákæru á
hendur lækni við sjúkrahús-
ið. Læknirinn heimtaði að fá
aðgang að öllum skjölunum
og uppköstum greina Farb-
ers svo hann gæti sannað
sakleysi sitt, en hann telur
Farber vera aðila að sam-
særi gegn sér.