Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.08.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 18. ÁGUST 1978 Sigurður Tómasson — Minningarorð Spurðy mÍK ekki um blikuðu blöðin. scm brotna af lffsins eik. Við skiljum iítið ok skynjum fátt. ok skrifum í vatn ok reyk. (D.Stef.) Sigurður Tómasson lést að morgni 9. ágúst á 65. aldursári. Sigurður var fæddur á Sauðár- króki 31. mars 1914. Foreldrar hans voru Tómas Gíslason, kaupmaður á Sauðár- króki og kona hans Elínborg Jónsdóttir, frá Brennigerði í Skagafirði. Þrjú systkini Sigurðar á lífi eru Guðný, Jón og Gísli, öll búsett í Reykjavík. Árið 1949 kvæntist Sigurður Herborgu Guðmundsdóttur og gekk í föðurstað tveim börnum hennar af fyrra hjónabandi, en þau eru Jónína Herborg leikkona, gift Jónasi Guðmundssyni stýri- manni, og Jón Herbert stýrimað- ur, búsettur í Malmö, kvæntur Guðríði E. Gunnarsdóttur. Börn Sigurðar og Herborgar eru Ingibjörg, gift Guðjóni Sigurðs- syni, fulltrúa hjá Olíuverslun Islands, og Elínborg menntaskóla- nemi sem býr nú með móður sinni. Sjómennsku stundaði Sigurður frá unglingsárum fram á miðjan aldur og lauk hann stýrimannaprófi 1941. Síðastliðin 20 ár starfaði Sigurð- ur hjá Sindra við verkstjórn, sölumennsku og afgreiðsiu frá stálbirgðastöð. Við samstarfs- menn hans hjá Sindra eigum margar minningar úr starfi og leik þessi 20 ár, ungu mennirnir sem í dag lyfta stálbúnti með krana eða lyftara á stóru flutningabílana, hefðu sjálfsagt haft gott af að kynnast því hvernig Sigurður og aðstoðarmenn hans lyftu stöng fyrir stöng með handafli einu — það eru breyttir tímar. Margir koma til með að sakna Sigurðar við störf sem hann hefir stundað með litlum forföllum, fáir sem átt hafa viðskipti við fyrir- tækið þekkja ekki Sigurð Tómas- son. Hann gat verið þurr og snöggur upp á lagið og því ekki vinur allra, en margir vildu engan annan hafa erindi við. Síðast er við áttum tal saman, er ég heimsótti hann á sjúkrahús nokkru fyrir lát hans, bar ég honum kveðju eins þeirra sameiginlegu vina norðan úr landi. Talið snerist þá fljótt að veiðiferð- um er við höfðum farið norður í land, góðum félögum, góðum afla og er við misstum þann stóra. Margar minningar um starf, leik og vinafagnað geymast af okkur sem yngri erum. Við stjórnendur og starfsmenn Sindra-Stál þökkum samstarf og kynni, það væri ekki að hans skapi að hafa um það langt mál. Herborgu, dætrum og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurð kveðjum við með orðum skáldsins frá Fagraskógi. Synir tslands. synir elds ok klaka, sofa ekki. heldur vaka. Allir vilja einu marki vinna Allir vilja neyta krafta sinna, björgum lyfta. biAjast aldrei væKÖar. brjóta leiA til veKs ok nýrrar fræKÓar, fyÍKjast aA ok frjálsir strfAiA heyja fyrir Island lifa ok deyja. Mætti ísland eiga fleiri slíka syni. Blessuð sé minning góðs drengs. Ásgeir Einarsson. Minning: Valdimar Tómasson frá Vík i Mýrdal Móðurbróðir minn Valdimar Tómasson frá Vík í Mýrdal er dáinn. Hann var fæddur 22. nóvember 1914. Ég minnist hans fyrst, þegar ég var barn að aldri á Breiðabólstað á Síðu, er hann kom með vörur frá Halldórsverslun í Vík á stórum vörubíl á þeirra tíma mælikvarða. Valdimar var alltaf hress og kátur og hvers manns hugljúfi, enda sérstakur vinur okkar barn- anna. Hann starfaði lengst af við verslunarstörf í Vík og naut þar mikilla vinsælda. Hann andaðist í Reykjavík 11. ágúst s.l. vegna hjartaáfalls, eftir stutta legu. Valdimar var einstakur maður að allri gerð, tryggur vinur vina sinna og frændrækinn með af- brigðum. Það var eins og hann hefði einhverja æðri sýn, sem hann gat miðlað öðrum af, svo hlýr og yfirvegaður, aldrei óvar- legt orð og alltaf sama umönnunin um hagi annarra. Eftirlifandi eiginkona hans, Sigríður Ólafsdóttir, tengdafor- eldrar hans, Elísabet og Ölafur, þetta öndvegis fólk á nú um sárt að binda, þegar þessi trausti drengur er tekinn frá þeim langt fyrir aldur fram. Mig brestur orð til að túlka tilfinningar okkar frændfólks Valdimars, því að slíkur var hann okkur systkina- börnunum og sárt er hans saknað af eftirlifandi systkinum, frænd- fólki og vinum sem geyma nú minningar, sem enginn skuggi fellur á. Blessuð sé minning hans og Guð gefi Sigríði og ástríkum tengdafor- eldrum hans styrk. Guðmundur Snorrason. Framundan bíða: London • Róm • Karachi • Bangkok • Manila • Tokio Hong Kong • Honolulu • San Fransisco • New York. Frœnka passar blómin, amma börnin og lyklana. í Keflavík kemst fiðringurinn í hámark. Þið leggið frarn farseðla og vegabréf... Svo eruð þið flogin. Umhverfis jörðina á 30 dögum á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu. - Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins Allir sem eru áskrifendur þann 20. ágúst eru Sértu ekki áskrifandi nú þegar, þá hringdu með í leiknum strax og pantaðu áskrift. Opið til kl. 10 öll kvöld nema laugardagskvöld. Áskrifendasími 27022 Lærðu númerið utanað. Um það verður spurt þegar þú vitjar vinningsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.