Morgunblaðið - 18.08.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1978
15
Borgarastríð meðal
svartra í Rhódesíu?
Salishury. 17. águst. AP.
Sögusagnir í þá átt að leiðtogar
blökkumanna í Rhódesíu. sem
þar keppa sín á milli, vinni að því
koma á fót eigin herliði, hafa
helit olíu í eld landlægs ótta íbúa
landsins.
Ásakanirnar hníga einkum að
tveimur þriggja hófsamra leið-
toga blökkumanna, sem tekið
LIÐSMENN úr öryggisveitum Tennesseefylkis í Bandaríkjunum
standa vörð fyrir framan lögreglustöð í Memphis. Öryggissveitirnar
voru kallaðar út til að aðstoða við löggæslustörf þar sem hópur
lögreglumanna í fylkinu er nú í verkfalli. Fjöidi lögreglumanna hefur
neitað að snúa aftur til vinnu þrátt fyrir tilskipun þess eínis.
Ráðherralisti í
höfði da Costa
Da Costa.
Lissabon, 18. ágúst, Reuter.
STJÓRNMÁLAKREPPAN í
Portúgal er nú á sinni fjórðu
viku. þrátt fyrir að Alfredo
Nobre da Costa. útnefndur for-
sætisráðherra. hafi ráðherralista
næstu stjórnar í höfðinu. að því
er hann skýrði frá í dag.
„Ég er með ráðherralistann í
höfðinu, en ráðherraefnin vita þó
ekkert um hugmyndir mínar,“
sagði da Costa. Hann sagði síðar
í dag að hann reiknaði með að hafa
komið á starfhæfri stjórn innan 15
daga. Fastlega er búizt við því að
da Costa myndi bráðabirgðastjórn
með ráðherra úr röðum óháðra og
tæknimenntaðra manna og efni til
kosninga á næsta vori.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Apena
Berlín
Barcelona
BrUssel
Chicago
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóh.borg
Kaupmannah.
Lissabon
London
Los Angeies
Madrid
Malaga
Majorka
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ósló
París
Reykjavík
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Toronto
Vancouver
Vtnarborg
12 lóttskýjaó
23 skýjaö
31 heíöskírt
23 skýjaó
25 alskýjað
20 skýjaö
28 heiösktrt
24 rigning
23 sólskin
18 rigning
32 sólskin
27 sólskin
24 sólskin
22 skýjaö
28 sólskin
21 heiðskírt
28 skýjað
33 sólskin
26 skýjaö
28 skýjað
30 skýjaö
26 skýjað
16 heiöskírt
30 skýjað
19 rigning
21 sólskin
12 alskýjað
30 sólskin
17 heiðskírt
22 skýjað
15 skýjaö
29 sólskin
32 rigning
29 skýjað
18 skýjað
24 skýjað
hafa höndum saman með Ian
Smith í bráðabirgðastjórn þeirri,
er setið hefur í fimm mánuði. beir
eru skæruliðaforinginn fyrrver-
andi, séra Ndabaningi Sithole og
hinn handarísk-menntaði biskup,
Abel Muzorewa. Orðrómurinn um
liðssöfnuðinn hefur ekki verið
sannaður með óyggjandi rökum.
Engu að síður beinir hann kast-
ljósunum að þeirri ógn. að
blóðugt borgarastríð svartra
manna kunni að fylgja í kjölfar
sex ára stríðs þjóðernissinna til
að binda enda á yfirráð hvíta
minnihlutans.
I svartsýnni ritstjórnargrein í
vikunni komst stærsta málgagn
blökkumanna „The Zimbabwe
Times“ svo að orði að margt benti
til að Rhódesía væri nú á svipaðri
braut og Líbanon, þar sem hver
einstakur stjórnmálaflokkur hefði
sinn eigin her að bakhjarli.
Nokkrir blökkumenn í stjórnar-
andstöðu á þingi benda á að
unglingar þeir, er mynda kjarnann
í „herjum" Sitholes og Muzorewas,
komi frá „herbúðum“ á sjö svæð-
um, séu fáein þeirra í útborg
Salisbury en aðrar í norðaustur-
og suðvesturhluta Rhódesíu. Einn
skeleggasti uppljóstrunarmaður
varðandi einkaheri leiðtoganna er
aðalráðgjafi skæruliðaforingjans
Joshua Nkomos í Sambíu, Josiah
Chinamano. Segir hann að þessi
framvinda mála sé vísbending um
yfirvofandi stjórnleysi.
Talsmenn Sitholes og
Muzorewas hafa hins vegar þver-
neitað ásökununum. Telja og
margir fréttaskýrendur að meiri
hætta sé á að borgarastyrjöld
brjótist út milli herja Nkomos og
Mugabes, sem aðsetur hefur í
Mosambique. Þeir Nkomo og
Mugabe hafa til samans um 7800
skæruliða í víglinunni í Rhódesíu.
Um 20000 munu vera utan landa-
mæranna.
ERLENT
Svía rænt í
E1 Salvador
San Salvador. El Salvador.
18. áKÚst. AP.
LÖGREGLAN í EI Salvador hefur
gripið til mikilla örvggisráðstaf-
anna vegna leitarinnar að sarnska
tækniráðunautinum Schel Björk
sem rænt var af skrifstofu sinni
á mánudag.
Sex hryðjuverkamenn, sem tald-
ir eru vinstrisinnaðir, rændu
Björk í höfuðstöðvum LM Ericson
í miðborg San Salvador og neyddu
hann til að aka á brott í eigin
bifreið. Lögreglan, fjölskylda
Björks og f.vrirtæki hans verjast
allra frétta af leitinni, og er því
ekki vitað hvort lausnargjalds
hefur verið krafizt.
Ennfremur hafa enginn kunn
samtök hryðjuverkamanna lýst
ábyrgð á ráninu á hendur sér.
Ostaðfestar fréttir herrna þó að á
bak við rániOð standi hópur manna
sem sé andsnúinn fyrirtækinu og
afstöðu Björks til verkafólks, sem
hann vill ekki að bindist samtök-
um í verkalýðsfélögum.
Margir hafa reynt að ná
yfir Atlantsála í loftbelg
Að komast yfir Atlantshafið
í loftbelg hefur sótt á hug
fjölmargra karla og kvenna á
síðustu eitt hundrað árum.
Tilraunir í þá veru hafa þar til
í dag allar endað með vonbrigð-
um og sumir hafa látið lifið.
Hér verður drepið á nokkrar
fyrri tilraunir manna til að
komast yfir Atlantshafið í
loftbelg.
1873i W.H. Donaldson hefur sig
á loft í New York en förin tekur
snöggan endi nokkrum klukku-
stundum síðar í nálægum fjöll-
um.
1881« Samuel King hefur sig á
loft í Minneapolis áleiðis til
austurstrandar Bandaríkjanna,
en þaðan ætlaði hann svo að
halda út yfir hafið til Evrópu.
Óhagstæðir vindar neyddu hann
til að gefa fyrirtækið upp á
bátinn áður en hann komst til
austurstrandarinnar.
1958« Fjórir Bretar hefja sig á
loft frá Kanaríeyjum áleiðis til
Vestur-Indía, en takmarkið var
að ferðast leið Kolumbusar. Um
borð voru Arnold Eiloart, sonur
hans Tim, siglingafræðingurinn
Colin Mudie og Rosemary eigin-
kona Colins. Um það bil 2.000
kílómetrum frá áfangastað
lentu Bretarnir í erfiðleikum og
neyddust til að lenda fari sínu.
Um síðir náðu þau á áfangastað
í körfu belgsins, en hún var
bátslaga.
1968. Kanadamennirnir Mark
Winters óg Je.rry Kostur hefja
sig á loft í Halifax en nauðlentu
eftir um 80 kílómetra flug.
1968. Francis Brenton gerir
fyrri tilraun sína til að fljúga
yfir Atlantshafið í loftbelg en
tókst ekki. Seinni tilraun sína
framkvæmdi hann ári síðar.
1970. Þrír farast í september-
mánuði þegar loftbelgurinn
„Frjálst líf“ týnist einhvers
staðar yfir Norður-Atlantshafi.
Þeir sem fórust voru flugmaður-
inn Malcolm Brighton loftsigl-
ingaverkfræðingur, og farþeg-
arnir Rodney Anderson frá New
York og eiginkona hans, leik-
konan Pamela Brown. Þau hófu
ferð • sína í Easthampton við
New York.
1973. Bob Sparks hefur sig til
flugs frá Bar Harbor í Maine-
fylki, en verður að nauðlenda
vegna fellibylja við strendur
Nýfundnalands. Sparks gerði
aðra tilraun 1975 frá Þorks-
höfða í Massachusetts, en för sú
tók endi 300 kílómetra á hafi úti
vegna leka í loftbelgnum.
1974. Thomas Gatch hefur sig
til flugs frá Harrisburg í
Pennsylvaníu-fylki í febrúar.
Einn af belgjum hans sprakk og
farið rak fyrir vindum af leið og
tók stefnu á Afríku. Far hans og
hann sjálfur komu aldrei fram.
1974. Robert nokkur Berger sem
aldrei hafði farið upp í loftbelg
hefur sig til flugs frá Lakehurst
í New Jersey. Hann lenti í
erfiðleikum skömmu eftir flug-
tak og loftfarið hrapaði niður í
Barnegat-flóa undan New
Jersey og drukknaði Berger þar.
1975. Malcolm Forbes útgefandi
gerir tilraun til að ná yfir
Átlantsála í loftfari sem hafði
13 helíum blöðrur. Farið lét ekki
að stjórn og neyddist Forbes til
að lenda.
1976. Karl Thomas fer í loftið
frá Lakehurst í loftfarinu „Andi
’76“. Nokkrum dögum síðar
finnur rússneskt skip Thomas
þar sem hann velkist um á
björgunarbát 375 sjómílur norð-
austur af Bermúda og bjargar
honum.
1976. Ed Yost, kunnur hönnuður
loftbelgja, hefur sig á loft frá
Millbridge í Mainefylki í októ-
ber. Hann var á lofti í 4%
sólarhring áður en stöðugur
hringvindur neyddi hann til að
lenda 530 mílur undan ströndum
Portúgal.
1977. Ben L. Abruzzo og Maxíe
Anderson, tveir þeirra þre-
menninganna sem komust í gær
fyrstir manna yfir Atlantsála,
hófu sig á loft í Marshfield
Massachusetts. Þeir ferðuðust
um 2.000 mílna vegalengd í
loftfarinu „Tvíörn fyrsti", áður
en þeir lentu í hringiðu-vindum
og urðu að lenda undan Isa-
fjarðardjúpi. I viðtali við Morg-
unblaðið við komuna til Reykja-
víkur eftir lendinguna sögðust
þeir aldrei ætla að leggja út í
slíka fífldirfsku aftur.
1977. Dewey Reinhard og Steve
Stevenson frá Colorado Springs
í Bandaríkjunum freista ferðar
yfir Atlantshaf, en neyðast til
að lenda eftir skamma ferð
1978. Tveir Bretar, David Cam-
eron og Christopher Davies, ná
næstum yfir Atlantsála fyrir
tveimur vikum, en voru neyddir
til að lenda 155 mílur undan
ströndum Frakklands.
Hertóku
sendiráð
Íransí
Bríissel
Brússel, 18. ágúst, AP.
FJÓRTÁN íranskir námsmenn
ruddust inn í sendiráð írans í
Briissel í gærmorgun til að
mótmæla „fjöldamorðum“
stjórnar íranskeisara. Eyði-
lögðu námsmennirnir myndir
af keisaranum og eiginkonu
hans og klíndu slagorðum á
veggi sendiráðsins áður en
belgíska lögreglan f jarlægði þá
úr byggingunni.
Engin meiðsl hlutust í að-
gerðunum sem tóku um 10
mínútur.
Brezki verka-
mannaflokkur-
inn bætir við sig
London. 18. ágúst. Router.
Verkamannaflokkurinn brezki
nýtur nú hylli 47.5% brezkra
kjósenda og íhaldsflokkurinn
13.5%. að því er fram kemur í
nýjustu skoðanakönnun Gall-
up-stoínunarinnar sem blaðið
Daily Telegraph birtir í dag.
I sams konar skoðanakönnun
fyrir mánuði hafði íhaldsflokkur-
inn tveggja prósentustiga forskot
á Verkamannaflokkinn. Frjáls-
lyndi flokkurinn nýtur hylli færri
kjósenda í könnuninni nú en fyrir
mánuði síðan.
Líkur eru nú taldar á því að
James Callaghan forsætisráðherra
rjúfi þing og efni til kosninga í
október.