Alþýðublaðið - 23.11.1958, Síða 9
( ÍÞróttir )
Körfuknattleiksmótið:
IJM það bil tíu mínútum eft-
ir auglýstan tíma hófst körfu-
knattleikskeppnin að Háloga-
landi í fyrrakvöld. Háðir voru
tveir leikir, einn í meistara-
flokki kvenna og einn í meist-
araflokki karla. Gaman var að
fvlgjast með leikjum þessnm,
sérstaklega karlaleiknum, sem
var prýðisvet ieikinn á köflum,
spennandi og hraður.
ÁRMANN — ÍR
19:13 f MFL. KVENNA
Þessi leikur var ekki vel leik
inn og ekki virðist þekking
stúlknanna mikil á körfuknatt-
leik, enda eru þær nær aliar
virkar í handknattleik og æfa
körfuknattleik aðeins i hjá-
verkum. En með meiri æfingu
geta þær náð langt. Ármanns-
stúlkurnar voru ákvsðnari og
léku betur saman, mest bar á
Sigríði og Rut, sem báðar gætu
náð góðum árangri í korfuknatt
leik, ef þær æfðu hann sérstak-
lega. Lið ÍR hefur oft átt betri
leik, náði ekki góðu samspili
og voru ekki nógu fliótar. Mest
bar á Gerðu og Ingu, en hinar
stúlkurnar, sem lítið hafa seft
körfuknattleik geta orðið snjall
ar í þessari íþrótt í framtíðinni,
ef þær æfa.
ÍR — KFR 39:34 ST.
Þessi leikur var mjög
skemmtilegur frá fyrstu trl síð-
ustu mínútu og hinir fáu áhorf-
endur virtust skemmta sér kon
unglega. ÍR-ingax- byrjuðu að
skora, en KFR jafnar og eftir
fimm mínútur er staðan 6:6.
Næstu 15 til 20 mínútur tóku
ÍR-ingarnir leikinn alveg í sín-
ar hendur og léku skínandi vel.
Skoruðu þeir oft mjög laglega,
en ,,zone-vörn“ KFR-manna
var eltki nógu örugg. Þegar ca.
5 mínútur voru til loka fýrri
hálfleiks, var staðan 23:7 fyrir
ÍR, en það sem eftir var af hálf
leiknum lék KR maður á mann
og jöfnuðu leikinn, en í hálf-
leik voru stigin 24:13 ÍR í hag.
Seinni hálfleikurinn var ekki
síður sþenn.andi, því að nú fóru
KFR-menn að draga á, enda
hafði ÍR ailtaf sömu menn inn
á allan leikinn. Færðist tölu-
verð harka í leikinn; ’enda mik-
ið í húfi fyrir bæði félögin.
Svo fór sámt að lokum, að IR
sigraði örugglega og verðskuld
að með fimm stioa mun 39:34.
Það undarlega skeði, að KFR
tók ekki víti, sem dómararnir
dæmdu á ÍR síðustu sekúndur
leiksins, Ekki er kunnugt hvað
orsakaði þetta. Dómai’ar voru
Þórir Ólafsson og Kristinn Jó-
hannsson og dærndu vel.
Beztu menn ÍR-liðsins voru
Lárus og Helgi Jóhannsson,
sem báðir áttu ágætan leik.
Hinir þrír, Steinþór, Helgi
Jónsson og Ingi Þór léku einn-
ig vel. Lið Í'R hefur sennilega
aldrei verið eins sterkt og nú.
Þeir, sem skoruðu fyrir ÍR
voru: Lárus 12, Helgi Jóh. 10,
Steinþór 7, Helgi Jóns 6 og
Ingi Þór 4.
KFR átti einnig ágætan leik,
sérstaklega sýndu þeir góðan
baráttuvilj.a í síðari hálfleik og
gáfust aldrei upp, þó að illa
horfði um tíma. Beztir í KFR-
liðinu voru Ólafur Thorlacius
og Ingi, fljótir og skotfimir,
Eggert sýndi einig góðan leik
meðan hann var inn á, hann er
rólegur en drjúgur. Þessir skor
uðu fyrir KFR: Ingi Þorsteins-
Framhald á 10. síðu.
Iþróífir erlendis
Hér eru úrslit nokkurra
landsleikja undanfarið, Eng-
land og Wales jafntefli (0:0).
og voru það áhugamannalið,
Frakkland og Pólland gerðu
einnig jafntefli 2:2 í unglinga-
landsleik, en Ítalía sigraði
Búlgaríu með 2:1, einnig ung-
lingaleikur.
í austurrísku keppninni hef-
ur Wiener Sportclub forystuna
með 16 st., en Rapid, Vín er
í öðru sæti. í Sviss er Laus-
anne í efsta sæti með 12 st., en
næst er Young Boys með 10,
Um ÞESSAR mundir eru
tvær ráðstefnur haldnar í Genf.
Enda þótt þar sé fjallað um
mál, sem varðar allar þjóðir
meira en lítið, hefur þeim verið
lítill gaumur gefinn og virðast
allir aðilar sammála um að
einskis árangurs sé að vænta
af þessu mráðstefnum.
Á þeirri ráðstefnu, sem fyrr
hófst, ræða kjarnorkuveldin,
Bretland, Bandaríkin og Sovét
ríkin um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn. Hin ráð-
stefnan fjallar um leiðir til
þess að koma í veg fyrir skyndi
órásir. Á skyndiárásarráðstefn
unni halda Rússar því fram að
samfara eftirliti með skyndi
árásum verði að semja um eyði
leggingu kjarnorkuvopna-
birgða, en Vesturveldin hafa
ekki viljað fallast á það. Á
hinni ráðstefnunni halda Banda
ríkjamenn því fram, að stöðv-
un tilrauna með kjarnorku-
vopn verði þv íaðeins fram-
kværnd, að um leið verði sam-
ið um afvopnun almennt, en
Rússar hafa ekki tekið slíkt í
mál.
Þannig standa sakirnar og
verður ekki annað sagt en jafnt
sé á komið. í raun og veru
fjalla þessar ráðstefnur ekki
um sömu vandamál. Vandamál
ið um bann við kjarnorku-
vopnatilraunum er stjórnmála-
legs eðlis, og ráðstefnan bygg-
ir á þeim skýrslum, sem sam-
þykktar voru á fundi sérfræð-
inga stórveldanna í ágúst síð-
astliðnum. Umræður um ráð
til að varna skyndiárásum eru
enn tæknilegar. Rússar hafa,
þó frá því fyrsta reynt að gera
þær hápólitískar, meðal ann-
ars er aðalfulltrúi þeirra einn
af aðstoðarutanríkisráðherrum
Sovétríkjanna og hefur hann
aðeins rætt hina stjórnmála-
legu hlið málsins enn sem kom
ið er.
Sú staðreynd að Rússar hófu
miklar kjarnorkutilraunir
skömmu eftir að ráðstefnan tók
til starfa, dregur mjög úr lík-
unum fyrir því að samkomulag
náist að sinni, um stöðvun
kj arnorkutilrauna.
Ráðstefnan um ráð til að
komast hjá skyndiárásum er
sennilega fyrirfram dauða-
dæmd. Allar alþjóðlegar að-
gerðir, sem miðuðu að því að
koma í veg fyrir skyndiárásir,
hefðu í för með sér að stórveld
in í austri og vestrj yrðu að
ljóstra upp hernaðarleyndar-
málum sínúm. Engum dettur í
hug að þau vilji það í sölurnar
^eggja — enda þótt það sé ef
til vill öruggasta ráðið til þess
að tryggja frið. Engu ríki er
hagur í ófriði, en mörgum að-
ilum er hagur í áframhaldandi
spennu í alþjóðamálum, — og
þeim aðilum er lítt um það gef-
ið að varanlegt samkomulag
náist um afvopnun.
Utanbæjarméi i
handknattleik
UTANBÆJARMÓT í hand-
knattleik fer fram á Akranesi
í dag. Þátttakendwr eru frá
Akranesi, Keflavík, Hafnar-
firði og Aftureldingu í Mos-
fellssveit. Er þetta fyrsta mot
sinnar tegundar hér. Mótið'
verður haldið í íþróttahúsinu
á Akranesi.
Margra ára draumur
Robinsons hafði nú
rætzt. Ef báturinn gat
borið þá sjálfa og mat-
arbirgðir var möguleiki
á því, að bann gæti
fleytt þeim til fasta-
lands einhvers staðar.
Róbinson kvaddi ejma
með tárin í augunum,
og litla skipið seig hægt
og hljóðlega frá henni.
Ekki voru þeir félagar
komnir langt út, þegarl
báturinn .lenti í straum-
kasti. Hvorki segl né
árar komu að gagni.
Þeir voru alveg að
missa kjarkinn, þegar
bátinn bar skyndilega
1 upp á sandhól. Þetta
(erðist svo snöggléga,
ið Frjádagur var nærri
allinn útbvrðis.
Það leyndi sér ekki,
ið þarna var verulega
[runnsævað, en með
amstilltu átaki tókst
þeim að mjaka bátnum < ur sáu þeir mið sín og
á flot aftur. Aftur fékk ■ um sólarlag komu þeir
Róbinson trú sína á 1 aftur til síns heima, til
bátinn. Hann varð sann syjarinnar sælu, sem
færður Um að þetta
væri óskabáturinn hans.
Eftir margra tíma róð-
beir höfðu kvatt svo
innilega um morguninn.
1. árg. Ritstjóri: Vilbergur Júlíusson 27. tbi.
I skólanum
Þ a ð e r g a ma n a ð s m í ð a ...
'i!!!!llllllllll!lll!l!!!!ll!!!llllllllllllllll!!!!lllillli:!l!ll!!l!l!!lllllllll!!!!!lll!!!!!lllll!!!!l!l!i!!lll!!!i!!!ll!il!!ll!ll!ilil!lllKIII!!iliiilllll!lillllllll!l!!!i!l!l!lll!!llll!lllll!liil!lll!lllllll!!IIIUÍIIIi'!llilllllllllU!l!l!l!lllllll!lliill!liIIIIIIIIIII!ll
!!!lll!!l!!llll!ll!!lllll!!l!!!!!l!l!!!!llll!llll>llll!l!!ll!ll!ll!llll!llllllll!!!!l!l!l!l!!IIllilllillllli!!ll!!!!ll!l!ll!!!l!ll!!!ll!lllll!l!!l!!!l!ll!i!i!l!!i!!!l!lll>!l!!!!!!ll!!!llllll!l!!lll!!!!!!!l!!llllll!ll!l!!!!!!!!!!il!U|!!!l!lll!!ltl!!ll!!!!!!!!!!l!llllll!li
Alþýðublaðið — 23. nóv. 1958 9[